Morgunblaðið - 20.03.1979, Blaðsíða 1
48 SlÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
66. tbl. 66. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Kosningarnar í Vestur-Berlín:
Stobbe áfram
borgarstjóri
Símamynd AP.
HAMINGJUSAMIR FORELDRAR — Olga Korbut fimleikastjarnan fræKa kemur hér ásamt manni
sínum frá Maternitysjúkrahúsinu í Minsk með nýfæddan son þeirra.
Brrlín, 19. marz. AP.
DIETRICH Stobbe. borgarstjóri
Vestur-Berlínar úr flokki
sósialdemókrata. tilkynnti í dag.
að flokkur hans hefði náð sam-
komulaKÍ við frjálsa demókrata
um áframhaldandi meirihluta-
stjórn borgarinnar eftir kosning
arnar. sem fram fóru í K«“r. í
kosningunum í gær fengu
flokkarnir 72 sa'ti á móti 63
sætum kristilegra demókrata.
aðalandstæðinganna.
Sósíaldemókratar fengu um
42,6% atkvæða sem er svipað og
þegar síðast var kosið fyrir fjórum
árum. Frjálsir demókratar juku
hins vegar fylgi sitt um 8,1% og
kristilegir demókratar fengu alls
44,4% greiddra atkvæða.
Mjög mjótt var á mununum í
ríkiskosningunum í Rhein-
land-Phalz þar sem einnig var
kosið í gær. Þar fengu kristilegir
demókratar um 50,1% atkvæða og
51 þingsæti af 100, töpuðu fjórum.
Kristilegir demókratar hafa verið
við stjórnvölinn i Rheinland-Phalz
síðastliðin 30 ár en meirihluti
þeirra hefur aldrei staðið valtari
fótum en nú.
Friðarsamningsdrögin
samþykkt í stjóm ísraels
Tel Aviv, Washington, Kairó,
19. mars. AP. Reuter.
ÍSRAELSKA ríkisstjórnin
samþvkkti á fundi sínum í
dag friðarsamningsdrög
Carters Bandaríkjaforseta
í deilum ísraelsmanna og
Egypta. Er þá aðeins eftir
ein hindrun í vegi fyrir því
að fulltrúar landanna geti
undirritað samkomulagið,
þ.e. ísraelska þingið, sem
fjalla mun um málið á
miðvikudag.
Ef ísraelska þingið samþykkir
samningsdrögin er að sögn frétta-
skýrenda ekkert því til fyrirstöðu
að deiluaðilar geti undirritað
samninginn n.k. mánudag í
Washington.
Khmerar
taka Kom-
pong Speu
Bangkok, 19. marz. AP.
TALSMAÐUR herja hliðhollra
Pol Pot, fyrrverandi þjóðhöfð-
ingja Kambódíu, sagði á fundi
með fréttamönnum í dag, að þeir
hefðu hertekið fyikishöfuðborg-
ina Kompong Speu, 45 kílómetr-
um suðvestur af Phnom Penh,
höfuðborg Kambódfu. Þetta er
fyrsta meiriháttar borgin sem
Khmerar hertaka í skæruhernaði
þeirra.
I frétt útvarpsstöðvar skæruliða,
sem er í Kína, sagði í dag, að borgin
Kompong Speu væri mjög mikilvæg
með tilliti til aðgangs Phnom Penh
að sjó, sem er að mestu leyti eftir
svokallaðri „leið“ 4 sem liggur í
gegnum Kompong Speu.
Utvarpið sagði ennfremur, að
mjög hart hefði verið barizt um
borgina og hefðu yfir 100 víet-
namskir hermenn fallið í átökum í
gærdag en mannfall í liði Khmera
hefði aðeins verið lítilsháttar.
Að mati fréttaskýrenda fór
Brzezinski öryggismálafulltrúi
Carters Bandaríkjaforseta nánast
erindisleysu til Saudi-Arabíu og
Jórdaníu um helgina til að vinna
ráðamenn þar til fylgis við samn-
ingsdrögin. Þetta álit fréttaskýr-
enda var svo staðfest seint í
gærkvöldi þegar talsmenn beggja
þjóðanna endurtóku andstöðu sína
við samkomulagsdrögin.
Haft var eftir háttsettum
embættismanni í Washington í
dag að ef Bandaríkjamenn þyrftu
að taka við hlutverki Saudi-Araba
í efnahagsaðstoðinni við Egypta
kostaði það um 1000 milljarða
íslenzkra króna á ári.
Samkvæmt síðustu fréttum af
fundi þeirra Ezer Weizmann varn-
armálaráðherra ísraels og Kamel
Hassan Ali varnarmálaráðherra
Egyptalands í Washington hafa
þeir komið sér saman um flest
atriði nema nákvæma tímasetn-
ingu á brottflutningi ísraels-
manna frá Sinai.
Millet
flutt úr
landi
París, 19. marz. AP.
BANDARÍSKA kvcnréttindakon-
an Kate Millet kom í dag til
Parísar með flugvél frá íran og
hafði hún að eigin sögn verið
flutt um borð í flugvélina með
þeim orðum að veru hennar væri
ekki óskað í íran framar.
Millet var mjög örg í garð
yfirvalda í íran við komuna til
Parísar og sagði viö það tækifæri,
að fyrir konu væri það algert
helvíti að búa í íran, þær væru
fullkomlega fótum troðnar.
Mikið mannfall í inn-
byrðis átökum Kúrda
Teheran, 19. marz. AP. Reuter.
TIL mikilla átaka kom í
Kúrdabænum Sanandaj í
Norður-íran í nótt milli
stríðandi fylkinga
múhameðstrúarmanna, að
því er haft er eftir áreiðan-
legum heimildum. Talið er
að a.m.k. 170 manns hafi
fallið í átökunum sem voru
enn mjög hörð seint í gær-
kvöldi.
Mjög vel vopnaðar sveit-
ir uppreisnarmanna fóru
um götur bæjarins, réðust
á lögreglustöðina og aðal-
stöðvar útvarps og sjón-
varps auk þess sem til
mjög harðra átaka kom
milli hinna striðandi fylk-
inga á aðaltorgi bæjarins.
Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir
ýmissa trúarleiðtoga á svæðinu
virtist ekkert lát á bardögum seint
í gærkvöldi og jafnvel orð Aya-
tollah Khomeinis trúarleiðtoga
landsmanna hrifu ekkert.
I samtölum sem fréttamenn
AP-fréttastofunnar áttu við fólk í
bænum í gegnum síma kom fram,
að algert hörmungarátand ríkti
vegna mikils fjölda slasaðra,
sjúkrahús staðarins annaði engan
veginn öllum þeim sem á aðstoð
þurftu að halda.
Þá kom ennig fram í samtölun-
um, að flugher landsins hefði sent
þyrlur á vettvang sem skutu
óspart á uppreisnarmenn.
I útvarpsávarpi Khomeinis
ásakaði hann erlenda heimsvalda-
sinna um að standa fyrir þessum
óeirðum í sínu „heittelskaða“
Kúrdistan.
Viðræður
28. marz?
Tokyo, 19. marz. AP.
KÍNVERSKA stjórnin
hefur gert það að tillögu
sinni, að friðarviðræður
þeirra og Víetnama hefjist
28. marz n.k., þar sem
þjóðirnar reyni að koma
samskiptum sínum aftur í
eðlilegt horf, að því er haft
er eftir áreiðanlegum heim-
ildum í Tokyo í dag.
Víetnamar ásaka Kínverja á
sama tíma um að hafa enn ekki
lokið brottflutningi sínum frá
Víetnam, jafnframt því sem
þeir fari um ránshendi á
undanhaldi sínu.
Fréttir herma, að Kínverjar
muni senda varautanríkisráð-
herra sinn, Xibhua Han
Nianglong, til viðræðna af sinni
hálfu og geri það jafnframt að
tillögu sinni, að Víetnamar
sendi utanríkisráðherra sinn.
Veruleg fylgisaukning
íhaldsmanna í Finnlandi
Helsinki. 19. marz. AP
og fréttaritara Mbl. TR.
ALLT útlit var fyrir
verulega fylgisaukningu
finnska íhaldsflokksins
þegar rúmlega tveir
þriðju hlutar atkvæða
höfðu verið taldir í þing-
kosningunum sem fram
fóru í Finnlandi á sunnu-
dag og mánudag og líkur
bentu til þess að fylgið
hryndi af stjórnarflokk-
unum, sósíaldemókrötum
Qg kommúnistum.
Þegar um 69% atkvæða höfðu
verið talin höfðu íhaldsmenn
aukið fylgi sitt um 3,1% frá
kosningunum 1975 og fengju að
öllu óbreyttu 45 þingsæti í stað
35 áður. Kommúnistar og sósíal-
demókratar höfðu þá tapað
rúmlega 1% frá því í kosningun-
um 1975.
Harry Holkeri, formaður 1-
haldsflokksins, sagði í sjón-
varpsviðtali þegar þessar tölur
lágu fyrir, að þær sýndu ein-
dreginn vilja finnskra kjósenda
fyrir því að breytt yrði um
stefnu í innanríkismálum.
Tölvuspár bentu til þess seint
í gærkvöldi að hinir litlu hægri
flokkarnir m.vndu einnig bæta
verulega við sig fylgi. — Það
kom fram hjá fréttaskýrendum
að ein aðalástæðan fyrir þessu
mikla fylgistapi stjórnarflokk-
anna væri eflaust sú að þeim
hefði tekist afleitlega við stjórn-
un efnahagsmála.