Morgunblaðið - 20.03.1979, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.03.1979, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979 27 HK á enn góða möguleika í 7. deildinni \ 0 Birgir Jóhannsson Fram í dauðafæri á línunni og skorar örugglega eitt af mörkunum 62. 62 mörk á 60 mínútum! HK ÚR Kópavogi opnaði botnbar- áttu 1. deildarinnar í handbolta- um á gátt með því að vinna stórsigur á slöku liði ÍR. Lokatöl- ur leiksins urðu 22—17 fyrir HK, sem hafði yfir, 11—8, í hálfleik. Eitt af því sem háð hefur hinu unga og efnilcga HK-liði í vetur, er skortur á yfirvegun. Þannig hefur liðið oft staðið vel að vígi í leikjum. en ekki getað haldið haus og tapað síðan með litlum mun. Nú er leikreynslan farin að síast inn og sýndi það sig best, þegar HK barði af sér sterkan lokasprett ÍR-inga og skoraði skðan 5 af síðustu 6 mörkum leiksins. Það var lítið skorað framan af leiknum, þannig var staðan aðeins 5—3 fyrir HK þegar 10 mínútur voru eftir til leikhlés. Nokkru síðar var staðan síðan 8—7 fyrir HK, en þá kom góður kafli hjá Kópavogsliðinu og staðan breytt- ist í 11—7. ÍR átti lokaorðið í hálfleiknum. HK hótaði að kafsigla ÍR í byrjun síðari hálfleiks, ÍR-ingar gerðu þá hverja vitleysuna á fætur annarri og HK skoraði 4 mörk í röð, staðan breyttist í 15—8 og ætla hefði mátt, að sigurinn væri í höfn. En með því að setja mann til höfuðs Stefáni Halldórssyni, rösk- uðu ÍR-ingar öllu spili HK-manna 2. deildin í handbolta. KA-Þór 20:19 (9:9) Stemningin í Skcmmunni á Akureyri var hreint með ólíkind- um þegar erkifjendurnir, KA og Þór, mættust í handboltanum í fyrrakvöld. KA sigraði í þessu mikla uppgjöri með 20 mörkum gegn 19, eftir að staðan í leikhléi hafði verið jöfn níu mörk gegn níu. Þegar í upphafi leiksins varð mikili darraðardans. KA skoraði fyrsta mark leiksins og var línu- maðurinn snlalli Þorleifur Anan- íasson þar að verki. Þórsararnir jöfnuðu þegar í stað og jafnt var á öljum tölum upp í 3 mörk gegn 3. Á þcim tíu mínútum sem þá voru liðnar hafði Tryggvi Gunn- arsson, markvörður Þórsara, gert sér lítið fyrir og varið þrjú vítaköst KA-manna og geri aðrir betur. Magnús Gauti í marki KA hafði líka angrað Þórsara, því þegar hér var komið sögu hafði hann varið eitt víti og varði skömmu síðar annað. Raunar vörðu markverðirnir hvor um sig þrjú vítaköst, en auk þess brenndu Þórsarar ein yfir mark- ið. Markverðirnir báðir áttu að þessu sinni stórleik, einkum þó Gauti, sem átti eftir að koma mjög við sögu f síðari hálfleik þegar KA-menn voru að tryggja sér sigurinn. Hvað um það áfram hélt leikur- og fór þá gamla góða klúðrið að komast ofan á hjá HK-mönnum. IR-ingar söxuðu á forskotið jafnt og þétt, þannig stóð 17—16 fyrir HK þegar um 8 mínútur voru til leiksloka og síðan stóð 18—17. En HK-menn rifu upp baráttuna í liðinu og þá stóðu IR-ingar ekki í vegi þeirra, enda hefði verið ósanngjarnt, ef HK hefði ekki þarna tryggt sér annan sigur sinn á vetrinum. Þó að HK sýni ótvíræð bata- merki, er margt enn í ólagi. Það er t.d. allt of lítil breidd í liðinu. Aðeins 4 leikmenn skoruðu fyrir HK og þar átti hinn kornungi Karl Jóhannsson (45 ára) sinn besta leik í vetur. Jón Einarsson, horna- maðurinn snari, átti stórkostlegan leik og lék hann varnarmenn ÍR oft háðulega með hraða sínum. Hilmar var góður þegar á leið, en Stefán var í mjög strangri gæslu og átti í basli að rífa sig lausan úr prísundinni. Að baki var Einar Þorvarðarson, sem átti mjög góð- an leik í marki HK, varði hann 16 skot í leiknum. Aðrir leikmenn HK voru þokkalegir, en ekki afgerandi. Lið IR er afar lélegt, en það ber þó þó að minnast þess í leiknum á sunnudaginn, að ÍR-ingar voru afar óheppnir með skot sín, en eigi færri en 9 skot hæfðu marksúlurn- ar og Einar varði önnur 16 skot. inn. KA skoraði næstu þrjú mörk leiksins og staðan skyndilega orðin 6 mörk gegn 3. Þórsarar gáfust þó ekki upp frekar en fyrri daginn og náðu að jafna rétt fyrir leikhlé úr vítakasti. Staðan í leikhléi var því níu mörk gegn níu. í upphafi síðari hálfleiks náðu Þórsarar síðan tveggja marka forskoti með mörkum Arnars Guð- laugssonar, sem var vísað af velli í tvær mínútur skömmu síðar og þá tókst KA að jafna leikinn og gerðu raunar meira, því KA náði foryst- unni á ný þegar um 20 mín. lifðu af leik, 14 gegn 13, og KA-menn juku síðan forskot sitt og náðu yfir- burðastöðu 20 mörk gegn 15, þegar sex mínútur voru til leiksloka. Þórsarar börðust hetjulegri bar- áttu síðustu mínúturnar og skor- uðu fjögur síðustu mörkin, en KA tókst að halda fengnum hlut og sigurinn var þeirra. Sigur KA var fyllilega sann- gjarn í þessum leik og undirrit- aður er sannfærður um að KA er nú með sterkasta liðið í 2. deild. I upphafi mótsins náði liðið sér illa á strik og tapaði liðið átta stigum af þeim tíu sem liðið hefir tapað fyrir áramótin. Haldi KA-liðið áfram á sömu braut hlýtur liðið að komast upp úr 2. deild á næsta ári, en til að svo verði má í engu gefa eftir. í leiknum gegn Þór í fyrrakvöld voru Magnús Gauti og Þorleifur Bjarni Bessason var einna spræk- astur hjá IR, en skotstíll hans er slíkur, að í leik hverjum eru jafnan dæmd nokkur aukaköst á hann vegna þess að hann ber fyrir sig bæði hné og olnboga. Brynjólf- ur Markússon átti þpkkalegan leik, en aðrir leikmenn ÍR voru slakir og gerðu mikið af mistökum. Leikinn dæmdu þeir Ólafur Steingrímsson og Gunnar Kjart- ansson. Þeir áttu betri dag en íFirðinum daginn áður, en voru þó fjarri því að vera nógu góðir. í STUTTU MÁLI: Islandsmótið 1. deild. ÍR-HK 17-22 (8-11). MÖRK ÍR: Bjarni Bessason 5, Bjarni Hákonarson 4 (3 víti), Ársæll Hafsteinsson 3, Brynjólfur Markússon 2, Hafliði Halldórsson, Guðmundur Þórðarson og Sig- urður Svavarsson 1 hver. MÖRK HK: Stefán Halldórsson 6 (4 víti), Hilmar Sigurgíslason 6, Jón Einarsson og Karl Jóhannsson 5 hvor. BROTTREKSTRAR: Bjarni Bessa- son ÍR og Jón Einarsson HK í 2 mínútur. MISNOTUÐ VÍTI: Einar Þorvarð- arson varði vítaköst þeirra Sigurð- ar Svavarssonar og Bjarna Hákon- arsonar. -gg. sterkustu menn liðsins en liðið í heild lék raunar mjög sterkt og því erfitt að draga menn í dilka. Þórs-liðið er einnig sterkt lið og möguleikar liðsins á 1. deildarsæti miklir. Liðið á eftir tvo leiki gegn KR og Þrótti í Laugardalshöll og ekki fjarri að ætla að Þórsarar vinni þá leiki og þar með deildina. Raunar er ófært að spá nokkru um úrslit leikja í 2. deildinni því liðin eru afar jöfn að getu. Tryggvi Gunnarsson markvörður og Arn- ar Guðlaugsson voru bestir Þórs- ara í fyrrakvöld, en sama á raunar við um Þórsliðið og lið KA heildin var sterk og Akureyrskur hand- knattleikur er í mikilli framför og greinilegt að Arnar Guðlaugsson og Birgir Björnsson þjálfarar Þórs og KA eru að gera hluti sem vit er í og verður gaman að fylgjast með framhaldinu. Gunnar Kjartansson og Ólafur Steingrímsson dæmdu erfiðan leik nokkuð vel þegar á heildina er litið. Sjö KA-mönnum var vísað af velli í 2 mínútur og fjórum Þórsur- um. Mörk KA: Þorleifur 7 (3v), Jón Árni 5, Gunnar og Alfreð 3 hvor, Jóhann tvö mörk. Mörk Þórs: Arnar 5 (2v), Sig- tryggur og Sigurður 4 hvor, Gunn- ar 2, Jón, Ólafur og Ragnar eitt mark hver. Sigb.G. 34—28! MEIRA en mark á mín- útu. Þannig lauk leik FH og Fram í 1. deild íslandsmótsins í handbolta sem fram fór í Ilafnar- firði á laugardaginn. Leikur þessi bar mcira en lítinn kcim af því að hann skipti f rauninni litlu máli. Hvorugt liðið nær fyrsta eða öðru sætinu í deildinni og hvorugt fellur. Bæði liðin höfðu greinilega engan áhuga á að eyða tímanum í að standa í vörn. Sóknir liðanna voru stuttar og enduðu jafnan með mörkum. Á degi sem þessum, var markvarsla ekki öfundsvert starf. enda kom í ljós. að það hefði alveg eins verið hægt að gefa markvörðum lið- anna frí þennan dag. Birgir Finnbogason hjá FH, verður þó ekki skammaður (né hinir ef út í það er farið), Birgir kom aðeins inn á til að reyna við nokkur víti. Og hann varði þrjú þeirra. Þetta er hæsta heildarskor í 1. deildarleik á vetrinum, en þrátt fyrir það er það ekki gleði- efni ef fleiri slíkir leikir fylgja eftir, þetta jaðraði nefnilega við að verá hálfgerð vitleysa á stundum. Staðan í hálfleik var 16—11 fyrir FH. FH komst mjög snarlega í 7—2 í leik þessum og eftir það var aldrei um keppni að ræða og munurinn þetta 3—6 mörk allt til leiksloka. Geir Hallsteinsson fann sig vel þegar ljóst var að fátt yrði um varnir hjá Fram. Þrátt fyrir að hann væri tekinn úr umferð lengst af, lék hann við hvern sinn fingur, sneri á púka sína eins og honum sýndist og skoraði urmul marka. Auk Geirs átti Kristján Arason nokkuð góðan leik, einn sinn besta í vetur. En enginn FH-inga, frekar en Framara, á skilið hrós fyrir framlag sitt til varnarleiks. Atli Hilmarsson, Viðar Birgisson og Birgir Jóhannesson gerðu allir góða hluti í sókninni hjá Fram, en voru frekar lítið inn á, einkum þó þeir tveir síðastnefndu. Þá var kappinn hann Sigurbergur traust- ur að venju. Gunnar Kjartansson og Ólafur Steingrímsson sáu um dómgæsl- una og var hún fjarri því að vera nógu góð. Einkum ber að skamma þá félaga fyrir að flauta of fljótt, þannig hagnaðist brotlega liðið oft og mörgum sinnum í leiknum. í STUTTU MÁLI íslandsmótið 1. deild FH — Fram 34-28(16-11) MÖRK FH: Geir Hallsteinsson 13 (4 víti), Kristján Arason 6, Viðar Símonarson 5, Guðmundur Árni Stefánsson 4, Sæmundur Stefáns- son 2 og Valgarð Valgarðsson 1 mark. MÖRK FRAM: Atli Hilmarsson 7 (1 víti), Viðar Birgisson 5 (2 víti), Björn Eiríksson 4, Pétur Jóhann- esson og Birgir Jóhannesson 3 hvor, Gústaf Björnsson og Theo- dór Guðfinnsson 2 hvor, Erlendur Davíðsson og Sigurbergur Sig- steinsson 1 mark hvor. BROTTREKSTRAR: Sigurbergur í 4 mín. Sæmundur, Guðmundur Árni, Valgarð Guðmundur Magn- ússon og Geir allir í 2 mín. Auk þess Atli Hilmarsson í 2 mínútur. MISNOTUÐ VÍTI: Birgir Finn- bogason varði tvívegis frá Gústaf og síðan víti frá Atla. Elnkunnagjöfln FYLKIR: Jón Gunnarsson 3, Halldór Sigurðsson 2, Gunnar Baldursson 2, Stefán Hjálmarsson 2, Örn Hafsteinsson 1, Einar Einarsson 1, Kristinn Sigurðsson 1, Einar Ágústsson 2, Sigurður Símonarson 2, Magnús Sigurösson 3. Guðni Hauksson 2, Jóhann Jóhannesson 2. VÍKINGUR: Kristján Sigmundsson 3, Steinar Birgisson 3, Olafur Jónsson 4, Magnús Guðfinnsson 2, Páll Björgvinsson 2, Erlendur Hermannsson 3, Árni Indriðason 3, Skarphéöinn Óskarsson 2, Viggó Sigurðsson 1, Einar Magnússon 1, Eggert Guðmundsson 2. FH: Magnús Ólafsson 1, Birgir Finnbogason 2, Viðar Símonarson 2, Guömundur Magnússon 2, Geir Hallsteinsson 4, Kristján Arason 3, Guðmundur Árni Stefánsson 2, Sæmundur Stefánsson 1, Valgarö Val- garðsson 1, Sveinn Bragason 1. FRAM: Guðjón Erlendsson 1, Gissur Ágústsson 1, Sigurbergur Sigsteinsson 2, Birgir Jóhannesson 2, Erlendur Davíðsson 2, Pétur Jóhannsson 1, Gústaf Björnsson 1, Theodór Guðfinnsson 1, Atli Hilmarsson 3, Björn Eiríksson 2, Viðar Birgisson 2. ÍR: Jens Einarsson 2, Ingimundur Guðmundsson 2. Brynjólfur Markússon 2, Bjarni Hákonarson 2, Bjarni Bessason 3, Hafliði Halldórsson 1, Ársæll Hafsteinsson 2, Sigurður Svavarsson 2, Guðmundur Þórðarson 1, Guðjón Marteinsson 1, Bjarni Bjarnason 1. HK: Einar Þorvarðarson 3, Stefán Halldórsson 2, Hilmar Sigurgíslason 3, Jón Einarsson 4, Karl Jóhannsson 3, Ragnar Ólafsson 2, Kristinn Ólafsson 2, Erling Sigurðsson 2V Friðjón Jónsson 1. Hörkuuppgjör KA og Þórs

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.