Morgunblaðið - 20.03.1979, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 20.03.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979 29 Fjallháir skattar hafa verið lagðir á sagði Karl Steinar Guðnason á Alþingi í gær Það hafa verið lagðir á fjallháir skattar og við búum nú við niðurgreidda verðbólgu. sagði Karl Steinar Guðnason, þing- maður Alþýðuflokksins, í út- varpsumræðunum í gær. Rakti hann þetta til þess, að Alþýðu- handalagið færi vanbúið að taka á sig ábyrgð með þeim afleiðing- um, að krukkað hefði verið í kjarasamninga án stefnumótunar til langs tíma í efnahagsmálum. Hann sagði, að í Alþýðubanda- laginu væðu uppi „pólitískir geld- ingar“, sem hefðu gleymt hugsjón sinni en gerzt talsmenn eigin metnaðar og framagirni. Af þeim sökum hefði Guðmundi J. Guðmundsson verið settur út. í skuggann, en Ásmundur Stefáns- son verið barinn niður. Skólaskákmót Reykjavíkur: Karl Þorsteins og Arnór Björnsson sigurvegarar SKÓLASKÁKMÓT Reykjavíkur fór frarn í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur við Grensásveg um helgina. Þátttakendur voru 29 og var teflt í tveimur flokkum. eldri deild (7.-9. bekkur) og yngri deild (1, —6. bekkur). Efstu menn í hvorri deild urðu þessir: Eldri deild: 1. Karl Þorsteins, Langholtsskóla 7 2. Jónas G. Friðþjófsson, Vogaskóla 6 3. Hákon Guðbjartsson, Melaskóla 4 V2 4. Björn Þórvaldsson, Langholtssk. 4 Ljósm. Olafur H. ólafsson. Sigurvegararnir Karl Þorsteins (t.v) og Arnór Björnsson sitja hér saman að tafli. Sigur Karls var nokkuð óvæntur því hann sigraði þann keppanda í efri deild. sem fyrirfram var talinn sigurstranglegastur, Jóhann Hjartarson. 2. Jóhann Hjartarson, Alftamýrarsk. 6 3. Birgir 0. Steingrímsson, Ármúlask. 4Vi 4. Svavar H. Svavarsson, Æ.K.H.Í. 4 5. Hrafn Loftsson, Hlíðaskóla 4 Yngri deild: 1. Arnór Björnsson, Hvassaleitisskóla 7 Erindaflutningi frestað ÁÐUR auglýstum erindaflutningi Georgs Ólafssonar verðlagsstjóra á fræðslufundi BSRB, sem fram átti að fara á mívikudagskvöldið, hefur verið frestað. Áformað er að verðlagsstjóri haldi erindið síðar. Frétt frá fræóslunefnd BSRB. 5. Davíð Ólafsson, Hólabrekkusk. 4 G. Arnaldur Loftsson, Hlíðaskóla 4 7. Gunnar Ö. Sigurðsson, Árbæjarsk. 4 I eldri deild voru tefldar 7 um- ferðir samkvæmt Monradkerfi og voru 40 mínútur á hverja skák en i yngri deild voru tefldar jafn margar umferðir en 30 mínútur voru þar á hverja skák. Sigurvegararnir hljóta titilinn skólaskákmeistarjar Reykjavíkur og tveir efstu keppendurnir í hvorri deild unnu sér rétt til þátttöku í Skólaskákmóti Islands. Samstarfsnefnd taflfélaganna í Reykjavík sá um mótið en skák- stjórar voru Ólafur H. Ólasson og Hrafn Haraldsson. Við treystum forsætis- ráðherra fullkomlega — sagði Ragnar Arnalds á Alþingi í gær — VIÐ Alþýðubandalagsmenn treystum forsætisráðherra full- komlega til þess að beita sér fyrir málamiðlun og væntum forystu hans á lokastigi þessa máls. sagði Ragnar Arnalds í útvarpsumræð- unum um frumvarp forsætisráð- herra í gær. Hann sagði jafnframt, að for- sætisráðherra hefði verið reiðubú- inn til þess að ganga til móts við málamiðlun Alþýðubandalagsins á síðasta ráðherrafundinum, en ráð- herrar Alþýðuflokksins hefðu neitað. Margir alþýðuflokksmenn- gerðu sér grein fyrir, að ef flokkurinn yrði áfram ósveigjan- legur, uppskæri hann litlar þakkir í þeim kosningum, sem framundan væru. Ragnar Arnalds sagði, að í frumvarpi forsætisráðherra fælist 6% kjaraskerðing launafólks, sem væri 2—3% meiri kjaraskerðing en áður hefði verið talað um. Kókaínmálið í Kaupmannahöfn:. Myndir: Nordfoto. LÖGREGLUMAÐURINN H.P. Nöregaard heldur hér á töskunni með 13.3 milljónum króna í sænskum. dönskum og norskum seðlum. scm fannst í herbergi íslenzkra hjóna á gistiheimilinu „5 svanir". Á myndinni má einnig sjá fíkniefni og vog. sem notuð er til þess að vega fíkniefni við sölu. Á hinum myndunum má sjá hluta af gullskartgripunum. dós með kókaíni og hnífana, sem fundust í fórum íslendinganna. Nöregaard lögregluforingi hefur fyrst og fremst annast rannsókn kókaínmálsins. íslendingarnir neita stöð- ugt að kannast við hlutina sem fundust í fórum þeirra FÍKNIEFNALÖGREGLAN í Kaupmannahöfn yfirheyrði í gær tvo af f jórum Islendingum. sem sitja í gæzluvarðhaldi vegna kókaínmálsins margum- talaða. Þá fóru einnig fram yfirheyrslur yfir Ungverjan- um, sem tengist þessu sama máli. Samkvæmt þeim upplýsing- um, sem Morgunblaðið aflaði sér í ga>r. þverneituðu íslend- ingarnir sem fyrr að kannast nokkuð við málið. Segjast þeir annaðhvort ekki þekkja til ffkniefnanna og annarra hluta. sem fundust við handtökuna. eða þá að þeir hafa verið að geyma þá fyrir fólk. sem þeir þekkja ekki. íslendingarnir hafa líka haldið því fram að þeir þekki ekkert til Ungverj- ans og sömuleiðis kveðst hann ekkert þekkja til íslending- anna. Ilins vegar telur lögregl- an sig hafa sannanir fyrir hinu gagnstæða. Eins og ráða má af framan- sögðu er þetta mál engan veginn auðvelt viðfangs fyrir fíkniefna- lögregluna. Hún vinnur þó kappsamlega að því að upplýsa málið og eins og áður hefur komið fram, hefur íslendingur, sem situr í fangelsi í Helsing- borg í Sviþjóð, gefið mikilvægar upplýsingar svo og önnur tveggja stúlkná, sem látnar hafa verið lausar úr gæzluvarðhaldi, sem þær sátu í um hríð. Lögreglan reynir fyrst og fremst að upplýsa hvaðan fíkn>- efnin eru komin, þar af tæpt hálft kíló af kókaíni og hver er eigandi þeirra, hver er eigandi peninganna, sem fundust hjá fólkinu, byssunnar og hnífanna og hvaðan skartgripirnir og minkapelsinn eru. Myndirnar sem hér fylgja sýna þá mörgu hluti, sem lög- reglan fann hjá Islendingunum og Ungverjanum við handtök- urnar, allt nema byssuna og minkapelsinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.