Morgunblaðið - 20.03.1979, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979
Bandarískur sál-
fræðingur með fyrir-
Jestra um áfengismál
„SAMVINNA fjolskyldu «k moft-
forðarstofnunar svo RÓður áranií-
ur mo>íi nást“ ok „Samvinna
ieikra ok lærðra, lækna, sálfræð-
inKa. presta. fclaKsráðjíjafa og
alkóhólista som náð hafa árangri
eftir lciðum A.A. samtakanna“ er
heiti tvoKgja fyrirlestra sem dr.
Daniol J. Anderson flytur í Att-
hasíasal Hótol Söku í kvöld og
annað kvöld.
Dr. Anderson er sálfræðingur
með B.A. próf frá College of St.
Thomas, St. Paul, M.A. frá Loyola
University, Chicago og Ph.D. frá
Ottawa háskólanum í Ontario,
Kanda. Hann hefur verið þátttak-
andi í ýmsum rannsóknum á alkó-
hólistum og fíkniefnaneytendum,
starfað að kennslu ► við háskóla
Dr. Danicl Anderson.
Minnesota og North Dakota ásamt
Rutgers University. Hann er mjög
þekktur í Bandaríkjunum fyrir
starf sitt og fyrirlestra.
Hazelden Foundation er ein
elsta og reyndasta meðferðar-
stofnun í Bandaríkjunum fyrir
alkóhólista og fíkniefnaneytendur.
Stofnunin grundvallar meðferð
sína á leiðum A.A.- og Alan-
on-samtakanna. Hazelden er löngu
þekkt fyrir útgáfu sína á fræðslu-
efni í formi bóka, kvikmynda og
segulbanda fyrir meðferðarstofn-
anir og alkóhólista, svo og þjálfun
starfsfólks til starfa á meðferðar-
stofnunum fyrir vímugjafaneyt-
endur. Nokkrir íslendingar hafa
átt þess kost að sækja sér fræðslu
til Hazelden. Fjölskyldumeðferð
hefur verið rekin á stofnuninni
mörg undanfarin ár, svo og göngu-
deildarmeðferð sem starfrækt
hefur verið í Minneapolis bæði
fyrir alkóhólista og aðstandendur.
Fyrri fyrirlesturinn verður í
kvöld klukkan 20.30, og sá síðari er
á morgun klukkan 12 á hádegi. Er
það hádegisverðarfundur og kost-
ar maturinn 3500 krónur. Báðir
fyrirlestrarnir verða sem fyrr
segir fluttir í Átthagasal Hótel
Sögu, og eru þátttakendur beðnir
að tilkynna sig á hádegisverðar-
fundinn í síma 27440.
Öllu áhugafólki er boðin þátt-
taka á fundunum, en það er Stefán
Jóhannsson félagsráðunautur sem
gengst fyrir þessari Islandsferð dr.
Andersons.
Námskeið á vegum
Sameinuðu þjóðanna
SAMEINIJÐU þjóðirnar efna að
vanda til tvoggja alþjóðlegra
námskoiða á sumri komanda. sem
íslenskum háskólastúdontum og
háskólaborgurum gefst kostur á
að sækja um. Annað námskeiðið
er haldið í aðalstöðvum Samein-
uðu þjóðanna í New York.
Hitt námskeiðið verður haldið í
Genf, dagana 16.—27. júlí og er
það ætlað háskólaborgurum.
Viðfangsefni þess er starfsemi
Sameinuðu þjóðanna með sérstöku
tilliti til starfseminnar í Genf.
Megintilgangur námskeiðanna
er að gefa þátttakendum kost á að
kynnast til nokkurrar hlítar
grúndvallarreglum, markmiði og
starfi S.Þ. og sérstofnana þeirra.
Námskeiðin eru ekki haldin með
tilliti til vinnu hjá SÞ.
Hver þátttakandi greiðir sjálfur
ferðakostnað og dvalarkostnað.
Sameinuðu þjóðirnar annast
sjálfar val þátttakenda, en Félag
Sameinuðu þjóðanna á íslandi
hefur milligöngu um tilnefningu
úr hópi íslenskra umsækjenda.
Umsóknarfrestur rennur út 21.
marz.
„Ljúkum verkinu”
í gær. sunnudag, — „Á
DROTTINS DEGI“ - birti
Morgunblaðið ága>tt og hjarta-
styrkjandi viðtal við Guðmund
Einarsson framkva>mdastjóra
Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Þar getur hann þess aðspurður.
„að málefni fatlaðra hafi vcrið
mjög í sviðsljósinu síðustu
mánuði. Rótt or það. on sú alda
skilnings og „markta>ks“ áhuga.
sem hófst. hefur fyrir þróttloysi
okkar óg sljóleika ekki onnþá
risið svo sem vorða þurfti og
maklegt er.
Þess vegna er það sannarlegt
gleði- og þakkarefni, og ætti að
verða okkur jafnframt óeftir-
gefanlegt ÁKALL, til virkrar þátt-
töku að Hjálparstofnun kirkjunn-
ar og Lions-hreyfingin hérlendis
hafa nú á ný gefið okkur tækifæri
til að bæta fyrir allt vangert eða
ógert gagnvart æfinga-sundlaug
Sjálfsbjargar, félags fatlaðra, við
Hátún hér í borg. Við eigum og
getum okkur alveg að meinalausu
— öll sömul — lagt 'fram þá
fjármuni, sem á vanta til að „ljúka
verkinu". Og aðferðin er ein og hin
sama alla tíð:að láta okki SITT
eftir liggja, eftir því, sem guð og
samvizkan býður, „Þá verður ljúft
og létt hvert spor“ til kærleiks-
ríkrar og verðugrar þátttöku í
lausn hrópandi velferðarmáls, sem
með einhverjum hætti varðar
okkur öll — undantekningarlaust.
Góðir landar! Það minnsta, sem
við — hinn breiði fjöldi — getum
gert til liðsinnis góðum málum og
göfugurh málstað, er að taka
undir. þegar tónninn er gefinn af
þeim aðilum, sem taka á sig
forystu viðleitni í sólarátt.
' Eitt allra skemmtilegasta, mest
spennandi og nærtækasta
verkefnið núna — á stundinni —
er „upprisa“ sundlaugar Sjálfs-
hjargar! Stuðlum að hcnni —
STRAX!
Rvk. 19. marz 1979.
Baldvin Þ. Kristjánsson.
Á loðnumiðunum, Ljósfari nær og fjær Sigurður RE 4, aflahæsta skipið á vertíðinni.
Góður afli tvo
síðustu dagana
HEILDARAFLINN á loðnuvertíðinni var um 520 þúsund tonn og aflahæsta skipið,
Sigurður RE 4, með rúmlega 16 þúsund tonn. Nokkur skip berjast síðan um næstu
sæti og eru þau Súlan, Pétur Jónsson, Bjarni Ólafsson, Gísli Árni, Víkingur,
Börkur og e.t.v. fleiri. Endanlegar tölur um afla einstakra skipa liggja ekki fyrir
þar sem löndunarbið er á flestum stöðum og í gærkvöldi voru sum skipanna enn á
leið á löndunarstaðina, allt frá Seyðisfirði, suður, vestur og norður um land til
Siglufjarðar.
A laugardag varð aflinn
10.400 tonn, en til hádegis á
sunnudag 13.300 tonn. Frá há-
degi á laugardag til loka ver-
tíðarinnar á hádegi á sunnudag
tilkynntu eftirtalin skip um afla
til Loðnunefndar:
Laugardagur: Bergur II 470,
ísleifur 400, Þórshamar 180,
Helga II 500, Ljósfari 350, Nátt-
fari 500, Öskar 390, Arney 180,
Sigurður 1300, Svanur 700, Fífill
570, Hákon 780, Albert 580,
Hamravík 150, Keflvíkingur 500,
Ársæll 450, Helga Guðmunds-
dóttir 700, Jón Finnsson 550,
Heimaey 130.
Sunnudagur: Gullberg 570,
Örn 550, Vonin 170, Pétur Jóns-
son 650, Börkur 1100, Hafrún
600, Harpa 630, Loftur Baldvins-
son 600, Hrafn 300, Eldborg 650,
Kap II 660, Stapavík 370, Óli
Óskars 500, Bjarni Ólafsson
1100, Breki 350, Súlan 500,
Rauðsey 470, Gísli Árni 620,
Sæberg 280, Víkingur 650,
Guðmundur 560, Seley 250,
Arney 140, Þórshamar 250, Sæ-
björg 300, Arnarnes 300, Árni
Sigurður 100, Steinunn 100.
Hið glæsilega skip Eldborgin HF 13, sem kom til lands um áramót, við bryggju á Eskifirði. Þar hefur
verið landað meiri loðnu en nokkru sinni áður og bræðslan á Eskifirði sennilega sú. sem tekið hefur á
móti mestri loðnu á vertíðinni. (Ijósmynd Jóhannes Long Ijósmyndari hjá Mats Wibe Lund).
Stund milli stríða, skipverjar á Eldborginni gæða sér á ljúffengum matnum áður en kallið kemur frá
skipstjóranum.