Morgunblaðið - 20.03.1979, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 20.03.1979, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979 Jónas H. Haralz: Hér fer á eftir fyrri hluti erindis. sem Jónas H. Haralz flutti á fundi Varðarfélagsins 14. marz s.l. I. Inngangur Þaö hlýtur að þykja nokkrum tíðindum sæta, þegar fjórir stjórn- málaflokkar, allir þeir sem sæti eiga á Alþingi, leggja um svipað leyti fram stefnuskrá í efnahags- málum. Þetta eru því meiri tíðindi sem þessar stefnuskrár eru ítar- legri og að sumu leyti heilsteyptari og byggðar á meiri yfirsýn og skilningi á þróun og samhengi efnahagsmála en oftast nær áður. Það eykur svo enn á mikilvægi þessarar stefnumörkunar flokk- anna, að forsætisráðherra sam- steypustjórnar þriggja þeirra gerir um svipað leyti tilraun til að móta stefnu ríkisstjórnar sinhar í yfir- gripsmiklu frumýarpi um efna- hagsmál. Ætlun mín er að fjalla í þessu erindi fyrst og fremst um þá stefnu, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur markað í stefnuskrá sinni „Endurreisn í anda frjálshyggju", en bera þá stefnu jafnframt saman við stefnu annarra flokka. Mun ég þá einkum leggja áherzlu á að sýna fram á þau meginsjónarmið, sem stefnumörkun hvers flokks byggist á og mismun þeirra sjónarmiða. Enn fremur mun ég leitast við að gefa gaum þeim atriðum stefnu- skránna, sem eru sameiginleg eða samræmanleg. Áður en lengra er haldið í þessu efni er þó nauðsynlegt að fjalla um þróun íslenzkra efnahagsmála á undanförnum árum, og raunar auratugum, og þeim horfum, sem framundan eru í þeim málum. Þetta er sá veruleiki, sem sérhver stefnumörkun hlýtur að skírskota til og fjalla um. Þegar litið er á þróun efnahags- mála hér á landi undanfarinn áratug, er ekki unnt að komast að annarri niðurstöðu en þeirri, að okkur hafi gengið flest í haginn að því er ytri aðstæður snertir. Verðlag á útflutningsafurðum hefur lengst af verið hátt og viðskiptakjör yfirleitt betri en nokkru sinni áður. Við höfum öðlast fullan umráðarétt yfir auðlindum fiskimiðanna og afla- brögð hafa verið tiltölulega góð. Þótt verðhækkun olíu hafi valdið okkur búsifjum, hefur hún um leið stóraukið verðmæti þeirra orku- auðlinda, sem við sjálfir búum að, bæði í vatnsafli og jarðhita, og þannig bætt skilyrði okkar til haghagvaxtar og velmegunar í framtíðinni. Það hefur að sjálf- sögðu valdið okkur erfiðleikum eins og oft áður, að verðlag útflutnings- afurða hefur sveiflast upp og niður, en á hinn bóginn ráðum við yfir nægri þekkingu og getu til þess að verjast áhrifum slíkra sveiflna að verulegu leyti, ef vilji er fyrir hendi. Við vitum einnig, að mikil- vægir fiskistofnar eru í hættu og að við verðum að hafa fulla gát á nýtingu þeirra. Þetta skiptir miklu máli í nánustu framtíð, en er í raun atriði, sem við höfum frekar lítið tillit tekið til fram að þessu og hefur því ekki í teljandi mæli snert afkomu okkar enn sem komið er. Loks má nefna, að ástand alþjóð- legra fjármagnsmarkaða hefur lengst af verið mjög hagstætt á þessum áratug. Við höfum þess vegna átt greiðan aðgang að tiltölu- lega ódýru erlendu fjármagni til langs tíma, er við höfum getað notað bæði til framkvæmda og til þess að halda við nægilegum gjald- eyrisforða. En hvað hefur okkur þá orðið úr þessum hagstæðu ytri aðstæðum? Hefur okkur tekizt að halda uppi hagvexti og auka velmegun eins og vænta hefði mátt? Höfum við að ráði getað nálgast þau markmið, sem við höfum sett okkur í svo mörgum greinum? Hefur samfélag okkar eflzt að samheldni og Jónas H. Ilaralz. Stefnu- skrá Sjálf- stœðis- flokksins s- i efnahags- málum þroska? í þessu efni verður allt annað uppi á teningnum. Hagvöxt- ur hefur verið tiltölulega lítill og aukning framleiðni á hvern vinnandi mann mun minni en í nágrannalöndum okkar, þrátt fyrir mikla aukningu þess fjármagns, sem við ráðum yfir. í þessu efni er raunar um að ræða áframhald þróunar undanfarinna áratuga. Aukning velmegunar hefur því fyrst og fremst byggst á bættum viðskiptakjörum, sem við síður en svo getum treyst að haldist í framtíðinni. Þau glæsilegu mark- mið, sem sett hafa verið í heil- brigðismálum, tryggingamálum, menntamálum, umhverfismálum og jafnréttismálum, svo helztu greinarnar séu nefndar, virðast ekki vera öllu nær en í upphafi áratugsins. I byggðamálum hefur ótvíræður árangur, sem náðst hefur, orðið upphaf nýrra vanda- mála annars staðar. Jafnframt hefur reynst æ örðugra að afla fjár til að standa undir þeim mikla kostnaði, sem sóknin að öllum þessum markmiðum felur í sér. Verðbólgan er bezti mælikvarði þess, hversu margt og mikið hefur farið úrskeiðis. Hún hefur á þess- um áratug verið þreföld til fimm- föld á við það, sem hún áður var, og hefur ísland á þessum tíma verið í hópi allra mestu verðbólgulanda heimsins. Verðbólgan er sjúkdóms- einkenni. Hún sýnir hversu erfiðlega gengur að samræma þau markmið, sem að er stefnt, og gerir á sinn hátt upp þá reikninga, sem menn vildu ekki horfast í augu við. En hún er um leið sjúkdómur, sem veldur nýjum þrautum og leggur nýjar torfærur á framfarabrautina. Samhliða því, sem æ torveldara hefur virst að ná settum mark- miðum og verðbólga hefur vaxið, hefur gætt æ meiri vonbrigða og vonleysis. Sundrung og upplausn hafa verið einkenni tímans, póli- tískir flokkadrættir og átök á vinnumarkaði hafa farið vaxandi frekar en minnkandi. Þetta er sá bakgrunnur, sem stjórnmálaflokkarnir hafa haft- fyrir sér, þegar þeir hver um sig mörkuðu stefnu sína í efnahags- málum á undanförnum mánuðum. Eins og vænta mátti fjalla þessar stefnuskrár því fyrst og fremst um hagvöxt og verðbólgu. Hvernig er umjt að ná auknum hagvexti með minni tilkostnaði? Hvernig er unnt að ráðstefa betur þeim auknu gæðum, sem hagvöxturinn felur í sér? Hvernig er unnt að hafa hemil á verðbólgu til að greiða með því móti bæði fyrir auknum hagvexti og betri skiptingu afraksturs? Hvernig er unnt að byggja traust- ara og farsælla samfélag? Þessum spurningum svara stefnuskrárnar hver frá sínum sjónarmiðum og á sinn hátt. II. Frjálshyggjan Grundvöllur að stefnu Sjálfstæðis- flokksins Grundvallarsjónamið Sjálf- stæðisflokksins er það, að árangurs sé ekki að vænta í þeim efnuín, sem hér að framan voru rædd, nema til komi frjáls og virk þátttaka þeirra fjölmörgu einstaklinga, sem sam- félagið skipa, og þeirra eininga; sem þessir einstaklingar mynda. I þeim hluta heims, þar sem við lifum, kemur mönnum ekki til hugar, að listamenn geti starfað og skapað nema í frelsi. Hvers vegna ættu önnur lögmál að gilda í öðrum greinum mannlegs lífs? Hvers vegna ættu menn ekki að vera ’ frjálsir að því að leggja fram sköpunargáfu sína og orku til hvers konar framleiðslu og viðskipta alveg eins og til lista? Hvers vegna ætti að vera meiri árangurs að vænta á grundvelli þvingana og hafta, boða og banna, en á grund- velli frelsis? Enn fremur má spyrja, hvar skyldi vera að finna mesta þekkingu og reynslu í fram- leiðslu og viðskiptum? Hjá þeim, sem framleiðsluna og viðskiptin stunda, eða hjá ráðuneytum, nefndum og ráðum? Svipuðu máli gegnir um ráðstöfun þess, sem menn bera úr býtum. Hverjir ættu að vera betur færir að dæma um það, hvaða ráðstöfun komi mönnum að mestu gagni og veiti þeim mesta fullnægingu en mennirnir sjálfir? En til þess að frjáls starfsemi einstaklinga og þeirra fyrirtækja og félaga, sem þeir mynda, geti farið fram, og til þess að menn geti ráðstafað aflafé sínu á þann hátt, sem þeir kjósa, þurfa skilyrði heilbrigðs markaðs og samkeppni að vera fyrir hendi. Það er skoðun Sjálfstæðis- flokksins, að nægilegt frelsi til athafna og til ráðstöfunar tekna hafi ekki verið hér á landi um langt 'skeið og því hafi ekki verið sinnt sem skyldi að stuðla að því, að heilbrigðar markaðsaðstæður mynduðust. Að vísu hafi stórt skref verið stigið í rétta átt á viðreisnar- árunum upp úr 1960, en þó hafi á skort, að nægilega langt væri gengið í ýmsum greinum. Þar að auki geti það ekki farið á milli mála, að á undanförnum árum hafi að nýju verið vegið að því frjáls- ræði, sem komið hafði verið á, með vaxandi ríkisafskiptum og skatt- heimtu. Kveður að sjálfsögðu rammast að þessu á s.l. mánuðum. Meginskilyrði þess, að unnt reynist að örva hagvöxt, auka velmegun og halda verðbólgu í skefjum sé því fólgið í auknu frjálsræði og virkari markaðsbúskap. III. Samræmd stjórn efnahagsmála Annar meginþáttur í sjónar- miðum Sjálfstæðisflokksins er nauðsyn almennrar og samræmdr- ar stjórnar efnahagsmála. Til þess að frjáls atvinnustarfsemi og frjálst neyzluval geti notið sín, til þess að markaðsviðskipti geti átt sér stað með eðlilegu móti þurfa ákveðin ytri skilyrði að vera fyrir hendi. Það er að miklu leyti hlut- verk ríkisvaldsins og stofnana þess að sjá fyrir þessum ytri skilyrðum, að stuðla að því að framleiðsla og neyzla, söfnun fjármagns og ráðstöfun þess, geti farið fram við sem eðlilegastar markaðsaðstæður. Miklu máli skiptir að þetta hlut- verk sé vel af hendi leyst, þannig að hvorki sé gengið of skammt né of langt og fulls samræmis sé gætt í því, sem gert er. I þessu sambandi má fyrst nefna nauðsyn þess að halda uppi almennum lögum og reglu og veita þar með það innra og ytra öryggi.sem er forsenda sérhverrar efnahagsstarfsemi. Þá má nefna margvíslega þjónustu á sviði sam- gangna, heilbrigðis- og mennta- mála, sem erfitt er að sjá um nema á vegum opinberra aðila. Þó er það mikið álitamál, hvernig hagan- legast er að koma þessum málum fyrir, og hafa þjóðir, sem búa við frjálsan markaðsbúskap valið allmismunandi leiðir í því efni. Til þess að standa undir kostnaði við þá þjónustu, sem ríki og aðrir opinberir aðilar inna af hendi, þarf að afla fjár með álagningu skatta og gjalda og leitast þá jafnframt við að haga þeirri álagningu þannig, að réttlætissjónarmiða sé gætt. Það skiptir meginmáli, að ríkið hagi skattlagningu þannig, að hún trufli sem minnst eðlilega starfsemi atvinnu- og viðskiptalífs og skerði sem minnst skilyrði frjáls neyzluvals. Jafnframt þarf vand- lega að gæta þess, að starfsemi ríkisins og skattlagning þess stuðli að sem jöfnustum gangi atvinnu- lífsins og verði hvorki uppspretta ofþenslu né samdráttar. Þá er það á ábyrgð ríkisvaldsins fyrir atbeina þeirra stofnana, sem það hefur til þess skipað, að sjá atvinnu- og viðskiptalífinu fyrir hæfilegu magni peninga og t.ryggja það, að peninga- og fjármagns- markaðir geti starfað og þróast með eðlilegum hætti. Loks má geta þess, að tilkoma öflugra samtaka á vinnumarkaðnum, bæði á hlið laun- þega og vinnuveitenda, hefur knúð ríkisvaldið í vaxandi mæli til að beita áhrifum sínum varðandi gerð launasamninga. Það er venja, að greina á milli þriggja meginþátta í þeirri stefnu, sem ríkisvaldið fylgir í efnahags- málum. Þessir þættir eru fjármál, Endurreisn íanda frj álshyggju

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.