Morgunblaðið - 20.03.1979, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979
25
I
9»
| KR
jærkvöldi
leiknum stóð og að honum loknum.
Valsmenn voru einfaldlega sterk-
ari og það var það sem réð úrslit-
unum og ekkert annað. Það mun-
aði miklu fyrir Njarðvíkinga að
Ted Bee lék sennilega sinn léleg-
asta leik í vetur, e*ida í strangri
gæslu Tim Dwyers og þess má
geta, að framkoma Bees eftir
leikinn var honum ekki til sóma.
Bestur Njarðvíkinga var Stefán
Bjarkason, sem sennilega hefur
aldrei leikið betur. Skot hans úr
ótrúlegustu færum rötuðu oftast
rétta leið auk þess sem hann átti
margar mjög fallegar sendingar.
Gunnar Þorvarðarson vaknaði til
lífsins í síðari háifleik og lék þá
mjög vel. Þá átti Jónas Jóhannes-
son góðan leik, sérstaklega í vörn.
Guðsteinn Ingimarsson stóð fyrir
sínu, en var óvenju daufur í
sókninni og sama má reyndar
segja um Geir Þorsteinsson.
Stigin fyrir Val: Tim Dwyer 37,
Ríkharður Hrafnkelsson 18, Gústaf
Gústafsson og Torfi Magnússon 10
hvor, Kristján Ágústsson 8,
Sigurður Hjörleifsson 4, Þórir
Magnússon 2 og Hafsteinn
Hafsteinsson 2.
Stigin fyrir UMFN: Stefán Bjarka-
son 22, Ted Bee 18, Gunnar
Þorvarðarson 16, Jónas Jóhannes-
son 10, Guðsteinn Ingimarsson 7,
Geir Þorsteinsson 6.
Dómarar voru Guöbrandur
Sigurðsson og Þráinn Skúlason og
voru Þeir ekki öfundsverðir af hlut-
verki sínu. Ekki veröur annað sagt
en aö Þeir hafi komist mjög vel frá
höröum og erfiöum leik.
Jafnt hjá
Southampton
og Arsenal
SOUTHAMPTON og Arsenal léku
í gærkvöldi í 8-liða úrslitum ensku
bikarkeppninnar og var leikið á
heimavelli Southampton að
viðstöddum 24,500 áhorfendum.
Leiknum lauk með jafntefli, 1:1,
og verða liðin að reyna með sér að
nýju á heimavelli Arsenal. Austin
Hayes skoraði fyrir Southampton
á 63. mínútu en Arsenal jafnaði
tveimur mínútum síðar þegar bolt-
inn fór í Þverslána eftir horn-
spyrnu Graham Rix og datt á
höfuð David Priee og þaðan í
markið.
Sigurvegarinn mætir Wolver-
hampton í undanúrslitunum.
• Tim Dwyer var maðurinn á bak við sigur Vals yfir
UMFN í gærkvöldi. Hann er hér á fullri ferð, en
Guðsteinn Ingimarsson og Gunnar Þorvarðarson eru til
varnar. (Ljósm. RAX).
Pórsarar auðveld
bráð fyrir KR
Þórsarar léku á laugardaginn í
íþróttahúsi Hagaskólans gegn
meisturum KR, en ekki verður
sagt að sá körfuholti. sem þar var
leikinn. hafi verið rismikill eða
spennandi. KR-ingar tóku þegar í
upphafi örugga forystu og eftir
skamma stund var staðan orðin
21—8 KR í vil. Staðan í hálfleik
var síðan 57—25, en lokatölur
voru 108—76.
Það er ekki öllu meira um gang
leiksins að segja, svo ójafn var
hann. Það merkilegasta, sem
gerðist í fyrri hálíleiknum var að
Þráinn Skúlason dómari dæmdi
tæknivíti á varamenn KR og
þjálfara fyrir að mótmæla dómi,
og þegar Einar Bollason vildi að
félagar sínir lyftu upp vara-
mannabekknum, svo sem þeir
bræður í HSK, Birkir og Þorkell,
gerðu forðum og löngu er frægt
orðið, fékk Einar umsvifalaust
dæmt á sig tæknivíti. Lýsti það
e.t.v. vel taugaveiklun dómara
leiksins.
í síðari hálfleik var það mark-
verðast að fleiri tæknivítum var
dreift. Jón Indriðason fékk eitt
dæmt á sig fyrir að bregða á glens
og Eiríkur Jóhannesson fékk eitt
dæmt á sig, en fyrir hvað er ekki
vitað, þá var og eitt tæknivíti
dæmt á Alfreð Túliníus. En þrátt
fyrir þessa slöppu dómgæslu var
sigur KR-inga aldrei í hættu, en
lokatölur urðu sem fyrr segir
108—76.
Lið KR-inga verður e.t.v ekki
dæmt með neinni sanngirni eftir
þennan leik til þess var mótherj-
inn of slakur. Að vanda voru það
þó þeir Jón Sigurðsson og John
Hudson, sem báru af, en einnig
voru þó þeir Einar Bollason og
Garðar Jóhannsson góðir. Eftir
þennan leik verða KR-ingar nú
aðeins að bíða og sjá hverja þeir
eiga að leika við í úrslitum móts-
ins og er það vel að íslandsmótið í
ár endi með hreinum úrslitaleik
milli tveggja liða, svo sem reyndar
gerðist einnig í fyrra.
Þórsarar voru allir slakir í
þessum leik, nema hinnn stórgóði
Mark Christensen, sem KR-ingum
gekk illa að stöðva. Flogið hefur
fyrir að nokkur Reykjavíkurlið séu
nú að reyna að tryggja sér þennan
leikmann fyrir næsta vetur, en
ekkert hefur fengist staðfest í því
sambandi. Jón Indriðason, hinn
litríki leikmaður Þórsara, átti að
þessu sinni afleitan leik og hafði
það sitt að segja. Eiríkur Sigurðs-
son var þá frekar daufur, en gerði
þó stundum usla í vörn KR-inga.
Stig KR: Hudson 29, Einar
Bollason 18, Jón Sigurðsson 16,
Garðar Jóhannsson 15, Birgir
Guðbjörnsson 12, Arni Guðmunds-
son 8, Þröstur Guðmundsson 6,
Ásgeir Hallgrímssön og Gunnar
Jóakimsson tvö stig hvor.
Stig Þórs: Mark 37, Jón I. 10,
Eiríkur Sig. 9, Karl Ólafsson og
Ágúst Pálsson 6 hvor, Birgir
Rafnsson 4, Ómar Gunnarsson og
Þröstur Guðjónsson 2 stig hvor.
Dómarar voru Guðbrandur
Sigurðsson og Þráinn Skúlason og
áttu þeir slakan dag miðað við það
hversu leikurinn átti að vera
auðdæmdur.
—gíg-
Mímir fallinn
TVEIR leikir fóru fram í 1. deild íslandsmótsins í blaki um
helgina, háðir fyrir norðan og báðar viðureignir UMSE og Mimis.
UMSE vann báða leikina og sendi Mími þar með niður í 2. deild,
en Mímir hefur lokið leikjum sínum 16 og hlaut aðeins tvö stig.
Eins og fram fur komið, tekur Víkingur stöðu Mimis í 1. deild.
Fyrri leikinn ann UMSE 3—0, 15-2, 15—7 og 15—2. Síðari
leikinn unnu íorðanmenn 3—1, 15—10, 14—16, 15—6 og loks
15-3.
Staðan í 1. deild blaksins er nú þessi:
Þróttur 14 11 3 35:16 700:527 22
UMFL 14 11 3 34:18 685:573 22
ÍS 13 9 4 32:17 636:555 18
UMSE 13 3 10 17:33 576:607 6
Mímir 16 1 15 13:47 500*846 2
Þá kom KA suður og lék bæði gegn ÍBV í Eyjum og gegn
Víkingum í Hagaskóla í 2. deildinni. KA tapaði báðum leikjunum
0—3 og heíði því verið betra heima setið.
Stórutjarnarskóli varð íslandsmeistari í grunnskólaflokki pilta
um helgina. en þá fór fram keppni í úrslitariðli. Stórutjarnarskóli
vann Vogaskóla 2 — 1 og Flúðaskóla 2—0. í keppninni um annað
sætið vann Vogaskólinn Flúðaskólann 2—1. Þá fóru fram leikir í
úrslitariðlum framhaldsskólakeppninnar. í kvennaflokki vann
Háskólinn Iþróttakennaraskólann 3—0 og í karlaflokki vann ÍKÍ
íurðu nauman sigur á liði Bifrastar, unnu að vísu 3—0, en
hrinunum lauk 15—12,15—13 og 15—12. GA/gg.
Halldór vann
30kmgönguna
Rcykjavíkurmeistaramótið í 30 km skíðagöngu fór fram í
Bláfjöllum á laugardaginn og var gengið f nágrenni Borgarskála.
Veður um helgina var kjörið til útivistar og tókst mótið sérlega
vel.
Halldór Matthíasson sigraði að þessu sinni, gekk á 108.53
mfnútum. Halidór er í Fram. Félagi hans Örn Jónsson varð annar
á 114,54 mfnútum. Páll Guðbjörnsson, sem oft hefur unnið keppni
þessa. varð að þessu sinni að gera sér þriðja sætið að góðu. en
hann gekk vegalengdina á 115,41 mínútum.
MH vann
boðgönguna
SVEIT Menntaskólans við Hamrahlíð varð hlutskörpust á
skfðaboðgöngukeppni framhaldsskólanna, sem fram fór nærri
Borgarskála f Bláfjöllum á sunnudaginn. Gengið var 3x3
kílómetra og þrír menn því í hverri sveit. Keppt er jafnan um
farandbikar sem verslunin Sportval gefur.
Sigursveit MH gekk á 33,11 mfnútum. Sveitina skipuðu Sveinn
V. Guðmundsson, Ilörður Hinriksson og Guðmundur Helgason.
Sveit Menntaskólans við Sund hafnaði í öðru sæti á 37,21 mfnútu,
en sveitina skipuðu þeir Aðalsteinn Guðmundsson, Krístinn
Sigurðsson og Einar Úlísson. í þriðja sæti varð sfðan sveit
Iðnskólans á 39,07 mínútum. í sveit Iðnskólans voru þeir Danfel
Ilelgason, Ingimar Sveinbjörnsson og Oddur Vffilsson.
Skagamenn á
skotskónum
Einn leikur fór fram í litlu bikarkeppninni í knattspyrnu á
Hvaleyrarholtsvellinum í Hafnarfirði á föstudaginn. Haukar léku
þá gegn ÍA og lauk leiknum með öruggum sigri Skagamanna,
4—1. Það verður að segjast eins og er, að það er hálfgerð vitleysa
að vera að lcika knattspyrnu á þessum árstfma. Það sást best á
ástandi vallarins, en hann lfktist íremur freðmýri hcldur en
fótboltavelli. Gekk völlurinn undir nafninu Þúsundvatnavöllur-
inn og leikmennirnir hefðu ekki blotnað jafn rækilega þótt þeir
hefðu hoppað í höfnina
Annars var mesta furða hve vel liðin náðu að leika. einkum þó
Skagamenn, sem af og til settu saman góða samleikskafla. Lofar
Skagaliðið góðu fyrir sumarið. Kristján Olgeirsson lék með og
vakti athygli, greinilega góður leikmaður .á ferðinni. Sigurður
Lársson var bakvörður og skilaði sínu vel. Þá hefur Guðbjörn
Tryggvason dregið fram skóna á nýjan leik og hann skoraði tvö af
mörkum Skagamanna í leiknum, Matthfas Hallgrfmsson hin tvö
af mörkum Skagamanna f leiknum, Matthfas Hallgrfmsson hin
tvö. Loftur Eyjólfsson skoraði eina mark Hauka. en ef eitthvað er
að marka þennan leik (sem cr vafasamt) verða Haukar í basli í
sumar. — gg.
Rússar sterhir
Heimsmeistararnir í handknattleik, Vestur-Þjóðverjar, léku um
helgina 3 landsleiki við silfurliðið frá HM, Rússa. Allir leikirnir
fóru fram í Þýskalandi. Fyrst unnu Rússar 18—16 í Frankfurt.
Síðan hefndu Þjóðverjar með 17 — 16 sigri í Eppelheim. Þriðja
leikinn unnu Rússar síðan 19—18 í Bremen. Staðan í hálfleik í
síðasta leiknum var 12—8 fyrir Rússa.