Morgunblaðið - 20.03.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.03.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979 5 Reydarf jördur: Unnid öll kvöld og allar helgar Reyðarfirði 19. marz 1979. BÁTURINN Gunnar kom á laugardag með 54 tonn af fiski og Snæfugl kom á sunnudag með 47 tonn. Heildarafii Gunnars sfðan hann byrjaði á vertíðinni. en það var 21. febrúar, er orðinn 271 tonn og heildarafli Snæfugls er 311 tonn en hann hóf vertíð 9. janúar. Mikil vinna er nú hjá Söltunar- stöð G.S.R. og er unnið öll kvöld til klukkan 11 og einnig um allar helgar. —Gréta. Samgöngur þrátt fyrir Stykkishólmi 19. marz ÞRÁTT fyrir að veturinn hafi verið umhleypingasamari og erfiðari hafa áætlunarferðir bifreiðanna staðist milli Reykjavíkur og Snæfellsness. Að vísu hafa komið fyrir þeir kaflar sem ferðunum hefir seinkað en ekki meir. Hafa því verið farnar daglega ferðir í allan vetur nema mánudagar hafa fallið úr. Er mikil samgöngubót að þessum áætlunarferðum og hafa menn kunnað að notfæra sér þær. í góðu lagi erfiða tíð Auk þess sem Hópferðir Helga Péturssonar s.f. hafa haldið uppi svona ágætum ferðum hafa þær einnig flutt hópa í leikhúsferðir og til upplyftingar og er það orðin venja hér að starfsfólk fyrirtækja safnar í sjóð til slíkra ferða. Áætlunar- ferðirnar hafa jafnan haft á að skipa góðri stjórn og ágætum bifreiða- stjórum sem veita góða þjónustu. \ Fréttaritari. Austurstræti Model 79: Ný samtök tízkusýningafólks STOFNUÐ hafa verið ný samtök tískusýningafólks. Model ‘79. Er hér um að ræða fimmtán aðila sem allir störfuðu áður með Modelsamtök- unum, þrettán konur og tveir karlmenn. Stjórn Model ‘79 hefur þegar verið kosin, og er formaður Matthildur Guðmundsdóttir. Einn stofnendanna er Helga Möller, og ræddi blaðamaður Morgunblaðsins við hana í gær. „Við vorum öll í Modelsamtökun- um og langaði til að ráða okkur dálítið meira sjálf og ráða því á hvern hátt við störfuðum að þess- um málum, svo við ákváðum að drífa í þessu" sagði Helga. „Nú, þótt þetta sé nýtt nafn og nýstofnuð samtök, þá er þetta allt reynt fólk og búið að starfa við þetta í mörg ár. Við ætlum okkur að gera þetta vel úr garði, eignast alls konar hluti sem nota þarf við tískusýningar, svo sem palla og margt fleira, þannig að við ættum að geta sýnt á ýmsum stöðum sem hingað til hefur ekki verið unnt að sýna á. Þá er það ætlun okkar að gera atriði okkar það vel úr garði að tískusýningar okkar verði annað og meira en uppfyllingaratriði, ætlum að gera úr þessu meira *show“ svo að það geti orðið burðaratriði á skemmtunum en ekki uppfylling. — Skemmtiatriði af þessu tagi eru orðin það vinsæl að grundvöllur er orðin fyrir því að gera betur en áður hefur verið gert á þessu sviði." Að lokum sagði Helga að þau litu björtum augum á framtíðina, þau hefðu þegar fengið talsvert að gera og væru farin að bóka fram í tímann, en ekkert þeirra hefur tískusýningar þó að aðalstarfi, heldur er hér um aukastörf að ræða, ýmist með útivinnu eða húsmóðurstörfum. Glímt á Austfjörðum Reyðarfirfti, 19. marz 1979. SKJALDARGLÍMA Austurlands fór fram í Félagslundi föstudaginn 16. marz, og voru þátttakendur sex talsins. í efsta sæti varð Hreinn Sigmars- son með fimm vinninga, í öðru sæti Óli Sigmarsson með fjóra vinninga og í þriðja sæti Hans Methúsalems- son með þrjá vinninga. Skjaldarglíma Austurlands fór síðast fram árið 1972, og þá sigraði Þorvaldur Aðalsteinsson. Aðalsteinn Eiríksson sem þjálfað hefur drengina á vegum Ú.I.A. er nú að senda fimm drengi í landsflokka- glímu Islands sem verður eftir nokkra daga. — Gréta. Hér eru þau sem standa að Model ‘79, að loknu fyrsta verkefninu, en það var að sýna föt á Útsýnarkvöldi á Hótel Sögu á sunnudagskvöidið. Eftir svipnum að dæma hefur byrjunin ekki verið sem verst! Ráðstefna um kirkju- söng í Bústaðakirkju RÁÐSTEFNA verður í kvöld í Bústaðakirkju þar sem rætt verð- ur um kirkjusöng og er ráðstefna þessi skipulögð af söngmála- stjóra þjóðkirkjunnar, Hauki Guðlaugssyni, og sr. Ólafi Skúla- syni dómprófasti í samráði við stjórn Kirkjukórasambandsins. Hefst hún kl. 20:30 og verður í safnaðarheimili Bústaðakirkju. Á ráðstefnunni verða flutt er- indi þar sem koma fram sjónarmið prests, organista og sóknar- nefndarmanns til kirkjusöngs og er síðan áætlað að hafa umræður. Til hennar hefur verið boðið prest- um Reykjavíkurprófastsdæmis og organistum, formönnum kirkju- kóra og öllum sóknarnefndar- mönnum. Verður einnig rætt um þátt safnaðarins og kirkjukórs í kirkjusöng, en ráðstefnan stendur þetta eina kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.