Morgunblaðið - 20.03.1979, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979
21
Sjá bls 26
'
Leikmaður ársins
LIAM Brady, leikmaður með Arsenal var um helgina kjörinn
knattspyrnumaður ársins af félögum sínum f ensku knattspyrn-
unni. Val Bradys kemur dálítið á óvart. ekki fyrir þær sakir að
Brady eigi það ekki skilið, heldur frekar vegna þess að
almenningsálitið var mjög hliðhollt Argentínumanninum smá-
vaxna Osvaldo Ardiles hjá Tottenham.
Ardiles var ásamt fjórum öðrum í öðru sæti. Einn hinn fjögurra
var blökkumaðurinn Cirel Regis, WBA, sem hlaut við þetta sama
tækifæri útnefninguna „Young player of the Year“, eða efnilegasti
unglingurinn.
Mótanefndin
á ferðinni
„ÞETTA skeyti fengum við nákvæmlega tvær mfnútur í tvö“,
sagði Ingvar Viktorsson, formaður handknattieiksdeildar FH, er
hann sýndi blaðamönnum skeyti sem mótanefnd HSÍ hafði sent
FH-ingum á laugardaginn. Það varðaði leikbann Sverris
Kristinssonar, markvarðar FH.
Sverrir var útilokaður í leiknum gegn Haukum nokkrum
dögum áður, en þar sem ekkert hafði um það heyrst að mál hans
hafði verið tekið fyrir, var hann að sjálfsögðu mættur í slaginn
gegn Fram klukkan 15.00 á laugardaginn. En klukkan 14.00
fengu FH-ingar skeyti mótanefndar og voru leikmenn þá flestir
mættir í íþróttahöllina f Hafnarfirði. Birgir Finnbogason var þá
ræstur út á elleftu stundu og lék hann með sem annar markvörður
FH.
En hvað hefði gerst ef ekki hefði náðst í Birgi eða einhvern
annan? Hefði þá ekki mótanefndin gefið höggstað á sér til kæru?
Hvað eiga svona vinnubrögð að þýða og hvenær má handbolta-
alþýðan f landinu eiga von á að slíkum vinnubrögðum linni?
Isfirðingar
missa
fyrirliðann
2. DEILDAR lið ÍBÍ hefur orðið
fyrir miklum mannamissi f
vetur. Áður hefur verið frá því
sagt, að Jón Oddsson gekk í
KR, Ómar Torfason gekk í
Víking.
Nú hefur fyrirliðinn og einn
besti leikmaður liðsins á
sfðasta keppnistfmabiii til-
kynnt félagaskipti. Það er
Þórður Ólafsson sem mun
þjálfa og leika með 3. deildar
liði Bolupgarvfkur næsta
sumar. Þá eru allar horfur á
því að bróðir hans og fyrrum
fyrirliði ÍBÍ, Guðmundur Ólafs-
son fylgi honum til Bolungar-
vfkur. Guðmundur lék ekki
með á síðasta keppnistímabili,
hann hefur verið við nám í
Noregi og æft þar og leikið með
liði f 2. dcild.
Ekki nóg með það heldur
hefur unglingalandsliðsbak
vörðurinn Halldór ólafsson
brugðið sér til Svíþjóðar og
mun leika þar með liði sem
leikur í 4. deild. Markvörður
ÍBÍ, Hreiðar Sigtryggsson,
hefur og yfirgefið ísfirðinga,
er genginn í KR.
Þetta eru samtals eigi færri
en 6 leikmenn sem allir hafa
verið fastamenn í liði ÍBÍ.
Þetta er mikið áfall fyrir liðiö,
en það var aðeins einu stigi frá
því að komast í fyrstu deild á
síðasta keppnistfmabiii. — gg.
— o — o — o —
Rauða
spjaldið
í LEIK Roma og Lazfó í ftölsku
1. deildinni, gerðist það um
helgina, að varamaður Lgzfó,
Ammoniaci, var rekinn af leik-
velii aðeins einni mfnútu eftir
að hann trftlaði inn á. Þá lenti
hann f samstuði og lá eftir að
því er virtist, slasaður. En
þegar að var gáð, var
Ammoniaci aðeins að plata og
fékk hann fyrir það rauða
spjaldið!
— o — o — o —
Þór —
Ármann
íkvöld
SÍÐARI leikurinn í 16 liða
úrslitum bikarkeppni HSÍ
verður háður á Ákureyri í
kvöld og hefst leikurinn klukk-
an 18.30. Er hér um að ræða
leik Þórs og Ármanns.
• Liam Brady.
Þeir nafnar
Ágúst Þorsteins-
son og Ásgeirsson
háðu harða bar-
áttu í Víðavangs-
hlaupi íslands.
cd
Sveinn Jónsson
formaður KR tek-
ur við sigurlaun-
um KR í meist-
aramóti íslands í
lyítingum. glæsi-
legum skildi. Góð
afmælisgjöf frá
lyftingadeildinni.
KR er 80 ára í ár.
Það þarf krafta í
köggla til þess að
lyfta 210 kg. Það
gerði Gústaf
Agnarsson á Lyft-
ingamóti Islands
um helgina.
Sjá bls. 23
Það var ánægju-
legt að sjá miklar
framfarir fim-
leikafólksins á
meistaramótinu f
Laugardalshöll-
tal' co
Sjá bls 22