Morgunblaðið - 20.03.1979, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979
Fram vann á
lokasprettinum
EFTIR sigur Fram gegn FII í 1.
deildar keppninni í handholta má
segja, að staða liðsins sé mjdg
sterk, þó að ckki borgi sig að
ganga svo langt að segja að Fram
sé með unnið mót. Liðið á enn
eftir tvo leiki sem verða crfiðir,
gegn Val og KR. Fram hefur
aðeins tapað 3 stigum í mótinu,
en FII scm hefur leikið 2 leikjum
færra, hefur tapað 5 stigum með
tapi sínu fyrir Fram. Leikurinn
um helgina var ávallt í járnum,
með FII þó lengst af í forystu.
Lokakaflinn var hins vegar ckki
fagur hjá FII og þá tryggði hið
leikreynda lið Fram sér sigurinn,
11 — 8, en FH var yfir, 6 — 4, í
hálfleik.
Sem fyrr segir, hafði FH frum-
kvæðið framan af leiknum og lék
liðið þá mun betur en Fram. Það á
þó við um bæði liðin, að tauga-
spenna þrúgaði flesta í sóknar-
leiknum, ekki síst vegna þess að
varnarleikur beggja liða var geysi-
lega sterkur. Tölur eins og 3 — 1
og 6 — 4 sáust, FH í vil. Nokkrum
sinnum var jafnt, en í fyrri hálf-
leiknum voru FH-stúlkurnar
ávallt fyrri til að skora. Framan af
siðari hálfleik var enn 2 marka
munur, en síðan komu 4 mörk í röð
frá Fram og hafði liðið þar með
náð tveggja marka forystu, 9 — 7.
Svanhvít minnkaði muninn úr
vítakasti, en gerði annað síðan
ógilt þegar aðeins rúmar 2
mínútur voru tii leiksloka. FH
fékk ekki annað tækifæri til þess
að jafna, því að Guðríður sem sjálf
hafði misnotað þrjú víti í leiknum,
skoraði tvö síðustu mörkin úr
vítaköstum fyrir Fram.
Katrín Danivalsdóttir átti
bestan leik hjá FH, hættulegur
línumaður og með járnklær í
vörninni. Anna Gunnarsdóttir átti
einnig ágætan leik hjá FH, en
öðrum gekk verr. Hjá Fram var
Sigrún Blómsterberg eins og
Berlínarmúr í vörninni, en að öðru
leyti var Framliðið mjög jafnt.
Aðalmarkaskorarar beggja lið-
anna, Guðríður hjá Fram og
Svanhvít hjá FH voru óvenju
mistækar að þessu sinni.
Mörk FH: Katrín og Svanhvít 3
hvor, Anna og Kristjana 1 hvor.
Mörk Fram: Guðriður 7 (5 víti),
Jóhanna, Sigrún, Jenný, Oddný og
Guðrún eitt mark hver.
-gg.
• Jóhanna Halldórsdóttir fiskar vítið sem innsiglaði sigur Fram genn
FH íFiróinum á laugardaginn.
Ljosm. Mhl. Knst ján
IR í úrslit
ÍR tryggði sér réttinn til að leika til úrslita í bikarkeppni KKÍ í mfl.
kvenna með því að sigra KR með 43 stigum gegn 42. í leikhléi var
staðan 22:18, KR í vil. í úrslitum mæta ÍR-stúlkurnar ÍS.
Leikur KR og ÍR ájaugardaginn var ekki vel leikinn og mikið um
mistök á báða bóga. ÍR komst í 8:4 í byrjun, en KR breytti stöðunni í
14:8. sér í hag. IR minnkaði síðan muninn fyrir leikhlé og áfram í
síðari háifleik og tókst að komast. yfir 28:23. í lokin hljóp nokkur
spenna í leikinn og KR-stúlkurnar voru með knöttinn síðustu 25
sekúndurnar án þess að þeim tækist að skora og ÍR sigur var í höfn.
Stigin fyrir ÍR: Anna Eðvarðsdóttir 20, Ásdís Ilinriksdóttir 6. Ásta
Garðarsdóttir 5, Guðrún Gunnarsd., og Þorbjörg Sigurðard., 4 hvor,
Guðrún Bachman og Guðrún Ólafsd., 2 hvor.
Stigin fyrir KR: Kristjana Hrafnkelsdóttir, Linda Jónsdóttir og
María Guðnadóttir 11 hver, Salína Helgadóttir 5 og Björg Kristjáns-
dóttir 2.
ÁG
• Sif'urvcf'ararnir síðari da/f mótsins. í þyngri flokkunum. Frá vinstri Birgir Þór Borgþórsson sem
sigraði í 100 kg flokki. Magnús Guðmundsson sem varð annar. og Jakob Bjarnason ÍBA sem varð þriðji í
þcssum flokki. M kemur Ágúst Kárason sigurvegari í 110 kg flokki. og Óskar Reykdalsson annar. og
Gústaf Agnarsson sigurvegari íyfirþungavikt. Ljósmynd Kristján
Gústaf vann
glæsilegt afrek
MEISTARAMÓT íslands í
lyftingum fór fram um helgina f
anddyri Laugardalshallarinnar.
Mótið sýndi að lyftingaíþróttin er
í mikiili sókn hér á landi. Áhorf-
endur voru fjölmargir, og
skemmtu sér hið besta. Nokkur
íslandsmet voru sett á mótinu en
árangur var góður í öllum flokk-
um.
Hörðust var keppnin í 75 kg
flokki. Þar börðust þeir Þor-
steinn Leifsson KR og Freyr
Aðalsteinsson harðri baráttu um
íslandsmeistaratitilinn. Keppnis-
skap og harka þeirra var alveg
mögnuð. í snörun lyftu þeir báðir
120 kg. sem var nýtt íslandsmet,
tóku þeir metið hvor af öðrum
upp að þessari þyngd.
Freyr náði svo að setja nýtt
íslandsmet í aukatilraun, 120, 5
kg. I jafnhöttun mátti lengi vel
ekki á milli sjá. Svo fór þó að
Þorsteinn sigraði, lyfti 147 kg sem
er nýtt Islandsmet í þessum flokki.
Freyr átti góða tilraun við 150 kg
en mistókst Það var því Þorsteinn
sem sigraði, lyfti samanlagt 267 kg
og er það jafnframt Islandsmet.
Besti árangur mótsins var hjá
Gústafi Agnarssyni KR, sem setti
nýtt og glæsilegt Islandsmet í 110
kg flokki í jafnhöttun, lyfti 210 kg
sem er mesta þyngd sem jafnhött-
uð hefur verið hér á landi. Þá setti
Gústaf met í samanlögðu 370 kg í
þessum flokki. Þessi frábæri ár-
angur Gústafs gaf honum flest
stig á mótinu og fékk hann vegleg-
an bikar í verðlaun fyrir að vera
besti einstaklingurinn.
í 67,5 kg flokki setti Kári Elías-
son nýtt Islandsmet í snörun, lyfti
107,5 kg og einnig í samanlögðu
237,5 kg. Guðmundur Sigurðsson
stóð sig mjög vel í sínum flokki, þó
að ekki setti hann met, samanlagt
lyfti hann 322 kg í 90 kg flokknum
og varð Guðmundur annar stiga-
hæsti einstaklingur mótsins.
Öll framkvæmd mótsins var til
mikils sóma, keppnin gekk hratt
og vel fyrir sig og var vel skipu-
lögð.
Stigahæstu einstaklingar lyft-
ingamótsins: sti
Gústaf Agnarsson KR 236,40
Guðmundur Sigurðsson Á 221,88
Guðgeir Jónsson KR 217,00
Birgir Borgþórsson KR 211,00
Þorsteinn Leifsson KR 206,24
Stigahæstu félögin:
KR 42 stig
ÍBA 26 stig
Ármann 5 stig
- Þr.
• Gústaf Agnarsson KR vann
hesta afrek mótsins og fékk veg-
legan bikar að launum. Hér er
hann með sigurlaunin. Gústaf
lyfti 210 kg í jafnhöttun og er það
mesta þyngd sem íslendingur
hefur jafnhattað fyrr og síðar.
Mð er ekki lítið afrek að lyfta
slíkri þyngd.
Ljósmynd Kristján.
Úrslitin í lyftingamótinu
Fyrri dagur:
Flokkur 52 kg Snörun Jafnh. Samanl. Röð
Þórhallur Hjartarson IBA 50 62,5 112,5 1
Flokkur 56 kg Kristján Hauksson KR 47,5 65,0 112,5 1
Flokkur 60 kg Þorvaldur B. Rögnvalds. KR 82,5 106,5 ísl.m. 187,5
Flokkur 67,5 Haraldur Ólafsson ÍBA 97,5 125 22,5 2
Kári Elísson IBA ísl.m. 107,5 130 237,5 ísl.m.
Viðar Eðvarðsson IBA 90 115 205 3
Hörður Markan Á Garðar Gíslason ÍBA Ágúst Magnússon IBA 70 90 160 4
Flokkur 75 kg Þorsteinn Leifsson KR 120 147 ísl.m. 267 ísl.m. 1
Freyr Aðalsteins. IBA 120 145 265 2
Garðar Gíslason ÍBA 87 112 200 3
Baldur Borgþórsson KR 85 110 195 4
Seinni dagur Flokkur82,5 kg Snörun Jafnh. Samanl. Röð
Guðm. H. Helgas. KR 120 145 265 1
Gísli Ólafsson ÍBA 105 135 240 2
Bragi Helgason KR 95 110 205 3
Flokkur 90 kg Guðmundur Sigurðsson Á 137,5 185 322 1
Guðgeir Jónsson KR 137,5 172 310 2
Kristján Falsson IBA 122,5 147,5 270 3
Flokkur 100 kg Birgir Þór Borgþórs. KR 140 175 315 1
Jakob Bjarnason ÍBA 105 140 245 2
Flokkur 110 kg Ágúst Kárason KR 135 172‘A 307 >/2 1
Óskar Reykdalsson ÍBA 100 135 235 2
Flokkur +110 kg Gústaf Agnarsson KR 160 210 370 1
I