Morgunblaðið - 20.03.1979, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979
41
+ AÐGERÐIR franskra
bænda hafa verið í frétt-
um undanfrið. Hafa þeir
mótmælt kjötinn-
flutningi til landsins frá
V-Þýzkalandi með því að
koma fyrir vegatálmun-
um á landamærunum. —
Hér má sjá hvar þeir
hafa stöðvað kjöt-
flutningabíl. — Og hann
fór ekki lengra. Bænd-
urnir gerðu hann aftur-
reka.
+ ÞESSA frétta-
mynd sendi stjórn-
in í Hanoi til Vest-
urlndabjaða um
daginn. í texta með
henni segir, að
þetta séu systurnar
Smaina 17 ára og
Phuna 16, sem hér
halda á hríðskota-
byssunum sínum.
Þær hafa tekið
virkan þátt í
skæruhernaðinum
gegn sveitum Pol
Pot-stjórnarinnar. í
textanum er einnig
sagt frá því að her-
sveitir Pots hefðu
drepið foreldra
þeirra á árinu 1975.
fclk í
fréttum
+ Á KJÖRSTAÐ í Moskvu er þessi mynd tekin. —
Leonid gamli Brezhnev forseti Ráðstjórnarríkjanna
og Viktoría kona hans koma á kjörstað til að kjósa, í
nýafstöðnum kosningum. Kjörsóknin hafði verið
góð, svo sem vænta mátti eða 99,98% að sögn
yfirvalda.
+ ÞETTA er hinn nýlátni foringi
landflótta Kúrda, Mustafa Barz-
ani. — Hann lézt á sjúkrahúsi í
Washington 2. marz sl. 76 ára að
aldri. Krabbamein var dánaror-
sökin. — Lík hans var flutt heim
til írans. Þegar þangað kom var
kista hins látna Kúrdaforingja
flutt upp í fjalllendi írans. —
Við útförina, sem var fjölmenn
höfðu kúrdískar konur hrópað:
Barzani er ekki látinn! og Kúrd-
ar eru ekki dauðir! Hann var
grafinn í landamærabæ sem heit-
ir Oshnovieh á norðvesturlanda-
mærum írans og íraks. Á þeim
slóðum voru háðir lokabardag-
arnir í baráttu Kúrda fyrir
sjálfstæði sínu við hermenn
ríkisstjórnarinnar í Baghdad, á
árinu 1975.
*
Til afgreiöslu strax,
sambyggðar trésmíðavélar
G. Þorsteinsson & Johnson h.f.
Ármúla 1. — Sími 8 55 33.
„Super“
Markaður
í Sýninga-
höllinni
og 20 tegundir af
HJÓNARÚMUM
Veljiö hvaöa rúm sem er meö 100.000,- út og
50. 000.- á mánuði.
Stærsta verslun í íslandi í hjónarúmum.
í Sýningahöllinni.
Bíldshöfða 20, sími 81410 — 39160.