Morgunblaðið - 20.03.1979, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979
45
ur fram í sambandi við hjónaband
og barnauppeldi. Það verður hver
og einn að meta hvað hann telur
rétt í því sambandi. Hins vegar
segir hann Grease-kvikmyndina
kalla á lauslæti. Ég fékk ekki
betur séð en öll myndin gengi út á
það að strákurinn sem var ást-
fanginn af stelpunni reyndi af
öllum mætti að fá hana og segðist
vera hjálparlaus án hennar. Og
síðast í myndinni virðist allt vera
fallið saman hjá þeim pörum sem
hafa verið að stinga saman nefjum
í gegnum kvikmyndina. Er þetta
ekki bara gangur lífsins?
„Foreldri"
• Tvær kvikmyndir
Mig langar afskaplega mikið
til þess aö sjónvarpið taki upp á
því að sýna tvær kvikmyndir á
föstudags- og laugardagskvöldum.
Við sem erum mikið heima vegna
barna eða einhvers annars höfum
sjaldan mikið annað að gera en að
horfa á sjónvarp, hlusta á útvarp
eða drepa tímann með einhverju
öðru þessi kvöld. Við gætum að
vísu gert afskaplega mikið, en það
er orðinn siður, sérstaklega á
laugardagskvöldum, að fólk gerir
ekkert nema að slappa af eða
skemmta sér.
Kvikmyndir sjónvarpsins eru
oftast búnar um eða eftir mið-
nætti og stundum fyrr. Ef sýndar
væru tvær kvikmyndir væri dag-
skráin aldrei búin síðar en
klukkan 2 eftir miðnætti. Ég er
líka viss um að hinn mikli fjöldi
„barnapía" sem út um allt situr í
stofum ókunnugra og horfir á
sjónvarpið til enda um helgar en
situr svo og dauðleiðist eftir það
(ég er hér að tala um heiðarlegar
og almennilegar barnapíur) yrði
mjög feginn ef dagskráin lengdist
um 2 tíma. Það myndi stytta þeim
biðina.
Með óskum um að sjónvarpið
taki eitthvað af þessu til greina.
„Ung húsmóðir".
• Saga úr
umferðinni
Kæri Velvakandi.
Ég skrifaði til þín ekki alls
fyrir löngu vegna þess að mér
fannst Reykvíkingar vanmeta
okkur sem keyrum bíla með utan-
bæjarnúmerum. Ég var svo vitlaus
að halda að vegna þessarar litlu
klausu í blaðinu myndi þetta
ástand batna. Nú langar mig til að
segja þér frá atviki sem gerðist s.l.
laugardag, 17. mars, á Hring-
brautinni. Ég keyri bíl með
A-númeri og þegar ég kem að
bakaríinu sem stendur við Hring-
brautina, ekki langt frá Mela-
vellinum, sé ég hvar tvær gamlar
konur standa við gangbrautina og
líta ráðvilltar í kringum sig. Þær
eru komnar út á graseyjuna en
enginn stöðvar til þess að hleypa
þeim lengra yfir götuna. Ég ákveð
því að stöðva fyrir þeim og ætla nú
að vera ósköp „lögleg" í þetta sinn
og stöðva u.þ.b. 10 metra frá
gangstéttinni. Þegar ég hef
stöðvað kemur bíll aftan að mér og
bílstjórinn sem er fremur ungur
karlmaður, leggst á flautuna. Ég
lít því í baksýnisspegilinn og við
mér blasir andlit með þvílíkum
vandlætingarsvip að sjaldan hef
ég séð annað eins og þar að auki
hristi hann höfuðið yfir sig undr-
andi yfir því að Akureyrarbjálfinn
skuli vera að stöðva á miðri
Hringbrautinni. Frekjan og yfir-
gangshátturinn var svo mikill að
hann athugaði ekki að ég var að
stöðva við gangbraut til þess að
hleypa fólki yfir. Hins vegar
keyrði bíll upp að hliðinni á mér og
sá hvað um var að vera og stöðvaði
auðvitað líka og þá minnkaði
nokkuð vandlætingarsvipurinn á
Reykvíkingnum.
Ég vildi aðeinds koma því á
framfæri, einu sinni enn, að við
sem ökum bílum með utanbæjar-
númerum erum ekki endilega
neinir afglapar og ég og fleiri
slíkir höfum búið hér í Reykjavík
um þó nokkurn tíma og þekkjum
göturnar hér alveg eins vel og
sumir „innfæddir". Mér finnst það
líka vera argasti dónaskapur að
láta skapið bitna á utanbæjarbíl-
stjórum. Þeir þurfa að komast
leiðar sinnar þótt þeir séu hér í
sumarfríi um smá tíma og þekki
göturnar ekki út og inn.
Það er enginn neitt betri af því
að vera Reykvíkingur né heldur að
keyra bíl með R-númeri en það er
afskaplega þreytandi að keyra bíl
með A-númeri hér í höfuðborginni
vegna broddborgaraháttar reyk-
vískra ökumanna.
Utanbæjarmaður“.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
í fyrstu deildar keppni sovézka
meistaramótsins fyrra kom þessi
staða upp í skák hins 23ja ára
gamla stórmeistara Alexanders
Kochievs, sem hafði hvítt og átti
leik, gegn Kakageldijev.
29. Dg6!! — hxg6 (Lakara var
29 .. Rf6, 30. Dxh7+!) 30. Rxg6+
- Kh7, 31. Rxe7+ - Kh6, 32.
Rxg8 — Hxg8, 33. Hg3 og hvítur
vann endataflið auðveldlega.
HÖGNI HREKKVÍSI
NESSY
^ Veitingahús J
Austurstræti 22 Inn stræti sími 1134C
Til sölu
3 dyra sjálfskiptur árgerö ’78ekinn
C itrr\ “ ’7Q
323 3 dyra sjálfskiptur árgerð ’78ekinn 14.000
323 5 dyra “ ’78 “ 12.000
323 5 dyra “ ’78 “ 50.000
818 2 dyra coupe “ ’78 “ 12.000
929 Station “ '77 “ 58.000
616 4 dyra “ ’77 “ 37.000
929 Station “ ’76 57.000
1212 dyra hardtop “ ’76 “ 36.000
616 2 dyra “ ’76 “ 40.000
929 4 dyra “ ’75 “ 70.000
929 2 dyra hardtop “ ’74 “ 87.000
Athugið:
6 mánaða ábyrgð ofangreindum bílum. fylgir öllum
HF.
SMIDSHÖFDA 23 simar. 812 64 og 812 99
BÍLABORG
Kaupendur notaðra bifreiða athugið!
Mazda umboöiö Bílaborg hf. hefur ávallt á
boðstólum úrval notaðra Mazda bíla með
6 mánaöa ábyrgð.
Tryggiö fjármuni yðar og viðskipti sem
best.
BÍLABORG HF.
SMIDSHÖFDA 23 símar: 81264 og 81299