Morgunblaðið - 23.03.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.03.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1979 5 Magnús Björns- son vígður prest- ur Seyðfirðinga Biskup íslands, herra Sigur- björn Einarssun, mun vígja Magnús Björnsson til prests- þjónustu í Seyðisfjarðarpresta- kalli n.k. sunnudag. Séra Heimir Steinsson rektor í Skálholti lýsir vígslu en hann er Seyðfirðingur og þjónaði Seyðisfjarðar- prestakalli. Þá verður sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson prestur á ísafirði vfgsluvottur, en hann var Magnús Björnsson áður prestur Seyðfirðinga. Aðrir vígsluvottar eru sr. Sigurður Kristjánsson fyrrum prófastur á ísafirði og sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, en það er í fyrsta sinn scm kona er vígsluvottur við prestsvígslu hériendis Háskólakórinn leiðir messusönginn, en Magnús söng með kórnum um árabil, Rut Magnússon stjórnar, Marteinn H. Friðriksson annast organleik sr. Hjalti Guðmundsson þjónar fyrir altari og hinn nývigði prestur prédikar. Magnús Björn Björnsson er 26 ára að aldri, Reykvíkingur, sonur hjónanna Björns Magnússonar og Sigrúnar Kaaber, Hörpugötu 10, Reykjavík. Hann lauk guðfræðiprófi frá Háskóla íslands í júní 1978 en hefur undanfarið verið við fram- haldsnám í Noregi í kennimann- legri guðfræði með sérstakri áherslu á sálgæslu. Seyðisfjarðarprestakall er aðeins ein sókn eftir að byggð lagðist niður í Loðmundarfirði. Prestslaust hefur verið í Seyðis- firði undanfarin ár. Nýbreytni Flugleiða flýtir fyrir afgreiðslu farþega innanlandsflugs INNANLANDSFLUG Flugleiða hefur tckið upp þá nýbreytni að þeir farþegar sem ferðast fram og til baka samdægurs fá brottfarar- spjöld fyrir báðar leiðir um leið og þeir hefja ferðina. Er með þessu áætlað að hraða nokkuð afgreiðslu og verður fyrst um sinn reynt á flugleiðinni milli Reykjavíkur og Akureyrar. Ráðgert er að taka þetta upp á þeim leiðum sem flogið er til oftar en einu sinni á dag. I frétt frá Flugleiðum segir m.a. svo um þessa nýju tilhögun: Sæmdur ridd- arakrossi Danne- brogsorðunnar Drottning Danmerkur hefur sæmt Harald Magnússon, gagn- fræðaskólakennara, riddarakrossi Dannebrogorðunnar sem viður- kenningu fyrir það mikla starf sem hann hefur unnið við samningu íslensk-dönsku orða- bókarinnar sem útgefin var af ísafoldarprentsmiðju árið 1976. Samkvæmt hinu nýja fyrirkomu- lagi kaupir farþeginn farmiða t.d. Reykjavík — Akureyri — Reykjavík á venjulegan hátt og farpöntun hans er einnig með hefðbundnu sniði. Við brottför frá Reykjavík fær farþeginn brottfararspjald sem gildir fyrir báðar leiðir þ.e. Reykjavík — Akur- eyri og Akureyri — Reykjavík. Á brottfararspjaldið er skráð flugnúm- er, dagsetning og brottfarartími. Við flug til Reykjavíkur síðdegis sama dag, þarf farþeginn aðeins að gæta þess að vera kominn í flugstöðina um það leyti sem kallað er til viðkom- andi flugs og getur þá gengið beint um borð í flugvélina og afhendir þar brottfararspjaldið. Farþeginn þarf ekki að gefa sig fram við afgreiðslu- fólk sérstaklega. Sé farþeginn hins vegar ekki mættur í flugstöð fimm mínútum fyrir auglýsta brottför er álitið að hann hafi hætt við ferðina og er þá heimilt að ráðstafa sæti hans til farþega sem e.t.v. eru á biðlista. Flugleiðir vona að þessi nýbreytni verði til þess að auðvelda farþegum, sem fara fram og aftur samdægurs ferðirnar og spari þeim tíma og fyrirhöfn. Lone Pine skákmótið hefst á sunnudaginn: Þrír íslendingar meðal þátttakenda ALÞJÓÐLEGA skákmótið í Lone Pine í Kaliforníu í Bandaríkjun- um hefst á sunnudaginn en það er jafnan bezt mannaða skákmótið á ári hverju. í fyrra tóku 22 stór- meistarar þátt í mótinu og þeir verða álika margir núna. Það sem dregur skákmenn á mót þetta fyrst og fremst eru geysihá verðlaun, sem í boði cru, en 1. verðlaun ncma um 5 miiljónum fslenzkra króna. Þrír íslenzkir skákmenn verða meðal þátttakenda að þessu sinni, Guðmundur Sigurjónsson stór- meistari og alþjóðlegu meistararn- ir Helgi Ólafsson og Margeir Pétursson. Fara skákmeistararnir utan í dag. Ekki hafa borizt af því fregnir hvaða stórmeistarar aðrir en Guðmundur verða með nema hvað öruggt er að Kortsnoj og Larsen verða meðal keppenda og hugsanlega heimsmeistarinn Kar- pov. í fyrra sigraði Larsen eftir tvísýna og skemmtilega keppni. Tefldar verða 9 umferðir eftir Monrad-kerfi. Tónleikar lúdrasveitar Tón- listarskólans á Selt jarnarnesi Næst komandi laugardag, 24. marz, heldur lúðrasveit Tónlistarskólans á Scltjarnarnesi tónleika í Félagsheimili Seltjarnarness. Tónleikarnir hefjast kl. 15.00. Stjórnandi lúðrasveitarinnar er Atli Guðlaugsson. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. ; .V.-A. ‘ wMwmmi mm- T . s mmmé fVfVíí-. m \ mmrniMWmmmm , .-> >csv.- • ► '>-AXa cS'V.i1;'!•> - ■■ ÆBr. ■ ': ■■ II mstöfa&maT m m M m IppSÍIIR mm : •C m :i&C&-' / mmmMmmmmmA - stssf ^ Bm ■ 0* Æf BÆ b [ ■ - Cjí/ii ■■Vift iv.'í»V. s' mlSÍmlSmm SS'izsSS-lia&{&$?&&&& •L,».'-V »"-■ - -cv-i' Rwlr-Nviríð >: ' - ' Unglingadeild áf^ ungnngaaeiid mKARNABÆR oo o.'—: i.i .L:.t:u..A: ooicc Austurstræti 22. Sími frá skiptiborði 28155

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.