Morgunblaðið - 23.03.1979, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 23. MARZ 1979
Erlend fréttaskýring:
Mota Pinto Soares Sa Carneiro
Stjóm Mota Pintos
berst í bökkum
— en mat manna að fáir aðrir en sósíal-
demókratar kysu kosningar í Portúgal nú
Eina ferðina enn á ríkisstjórn í
Portúgal — sem er sú tíunda á
fimm árum frá byltingunni 25.
apríl 1974 — í vök að verjast.
Þó nokkur tími er liðinn síðan
stjórnmálasérfræöingar þóttust
eygja fall stjórnar Mota Pintos
innan tíðar. En þó situr stjórnin
enn og nú er því spáð af
mörgum í Portúgal að komist
efnahagsmálafrumvarp Pintos
stórátakalaust gegnum þingið
verði nokkru meiri kyrrð um
hríð en verið hefur. Þá gæti
jafnvel veriö að hún sæti fram
eftir árinu og þeir bjartsýnustu
leyfa sér að vona aö henni
takist að skrimta fram til kosn-
ingaárs 1980.
Það var Eanes forseti Portúgals
sem valdi Mota Pinto til að
skipa utanþingsstjórn. Hún var
síðan mynduð í byrjun nóvem-
ber og tókst Pinto betur en
Nobre da Costa, fyrirrennara
hans, en stjórn hans var aldrei
nema að nafninu til þá fáu daga
eöa vikur sem hún átti aö heita
að vera í fyrirsvari í Portúgal.
Mota Pinto þótti traustvekjandi
og menn fögnuöu vali forset-
ans, enda veitti honum ekki af
smáuppreisn eftir da
Costa-ævintýrið. Mota Pinto
var þekktur maöur í Portúgal,
mikils metinn og fluggáfaöur
prófessor og auk þess haföi
hann setið á stjórnlagaþinginu
og getið sér þar gott orð. Hann
átti sæti þar sem fulltrúi alþýöu-
demókrata PPD sem nú heita
raunar sósíaldemókratar PSD,
en gaf ekki kost á sér til frekari
þingmennsku og hvarf aö nýju
til kennslustarfa. Hann hefur
þótt laginn stjórnandi og klókur
og það er mál manna að hinn
almenni portúgalski borgari
treysti honum. En hann á undir
högg aö sækja í þinginu og
ráöstafanir hans og frumvörp
vekja ekki alltaf fögnuö pólitík-
usanna. Nú síöast er þaö iand-
búnaöarstefnan sem hefur orö-
ið til þess að stjórnin riöar í
•sosRi oo bað er ekki ný bóla svo
virðist sem Portúgölum ætli
seint aö takast að koma ásamt
um hvernig þeim málum skuli
skipað. Landbúnaðarmál eru og
sérstaklega mikilvæg svo og
framtíöarskipan þeirra vegna
þess aö Portúgölum er mikið í
mun að efla framleiðslu land-
búnaöarvara sinna og telja það
raunar eina af mikilvægustu
forsendum fyrir því að efnahag
landsins verði komið á réttan
kjöl. Nú þurfa Pórtúgalar að
flytja inn geysilega mikiö af
matvælum, meira að segja
mjólk sums staðar og það hefur
gengið óeðlilega treglega aö
auka framleiösluna í land-
búnaði. Sjálfsagt meöfram
vegna deilna um stefnuna og
vegna þess að hver höndin
hefur verið þar upp á móti
annarri.
Eins og í upphafi greindi, mun
þaö skýrast á næstu dögum
hvaða pól flokkarnir taka í
hæöina varöandi efnahags-
málatillögur Mota Pintos. Eng-
inn hefur viljað spá neinu, en
bæði sósíalistar, PS, og
miðdemókratar, CDS, hafa ver-
ið varfærnir í yfirlýsingum
sínum, og hreint ekki viljaö
fortaka fyrir hugsanlegan
stuðning sinn við tillögurnar.
Öðru máli gegnir með Sósíal-
demókrataflokk Sa Carneiros,
PSD. Aö vísu segir Sa Carneiro
aö langsamlega heilbrigðast
væri aö ekki þurfti aö efna til
kosninga fyrr en á næsta ári
eins og fyrirhugað er, en hinu er
ekki aö leyna aö vegna niöur-
stööu í skoöanakönnun sem var
gerð í Portúgal nýlega er
Sósíaldemókrataflokkurinn sá
flokkanna fjögurra sem fúsastur
væri nú aö ganga til kosninga.
Ástæöan fyrir því er að í þessari
könnun fékk Sósíaldemókrata-
flokkurinn, PSD, jafnmikið fylgi
og Sósíalistaflokkurinn PS, eöa
13 prósent. Miðdemókrata-
flokkurinn CDS, fékk 8 prósent
og Kommúnistaflokkurinn PCP,
töluvert minna. Því eru
PSD-menn hinir vígreifustu og
segja að engum vafa sé undir-
orpið að þeir myndu vinna
stórsigur í kosningum nú og
þakka þaö náttúrlega ábyrgri
stöðu þeirra í hverju máli — að
þeirra sögn. Mörgum finnst
líklegt að mjótt yrði á munum
milli þessara erkifjenda ps
flokks Mario Soaresar og PSD
flokks Sa Carneiros. En á það
ber þó aö líta aö það sem
maður rekur fyrst og fremst
augun í þegar litið er á þessar
tölur er hversu mikið er áhuga-
leysi kjósenda — þ.e. aö innan
við fjörutíu prósent kjósenda
kunni þar með að vera
óákveðnir eöa áhugalausir. Því
sýnist sem þaö væri verulegt
hættuspil aö etja Portúgölum í
kosningar nú og sjálfsagt
veröur í lengstu lög reynt að
koma í veg fyrir þaö.
Yrðu kosningar nú er líklegt aö
PS, flokkur Soaresar, myndi
tapa töluverðu fylgi, það dregur
út af fyrir sig enginn í efa. Upp á
síðkastið — og reyndar allar
götur síöan í júlí sl. er Soares
fór frá meö umdeildum
glæsibrag — hefur óiga færst í
aukana innan flokksins. Margir
framámenn í flokknum hafa
sagt sig úr honum og svo hefur
maöur gengið undir manns-
hönd aö reyna aö sætta aöila
og sumir hafa komið aftur í
flokkinn og jafnvel gengið úr
honum ööru sinni. Þaö hefur
veriö losarabragur á flokknum
svo aö Soares hefur átt fullt í
fangi með aö halda honum
saman. Þó er ekki víst aö PS
myndi tapa neinu sem næmi í
kosningum nú og vel getur veriö
aö hann nái sér á strik ef hann
gæti snúið sér meira að
uppbyggingu innan flokksins á
næstunni.
Hinn almenni borgari í Portúgal
finnur þó væntanlega mest tll
þess hve dýrtíðin þar í landi er
ofboösleg. Verö á nauösynja-
vörum hækkar svo ört að fólk
hefur varla undan því aö fylgjast
með verðlagi. Vitaskuld bitna
verðhækkanir á nauðsynjum
harkalegast á þeim sem minnst
hafa og nú hefur einnig farið að
bera á skorti á ýmsum
nauðsynjavörum, m.a.
hrísgrjónum sem Portúgalar
nota með hverri máltíð, og allt
er þetta til aö auka á erfiöleika
og mæöu manna. Kannski er
bót í máli að svo viröist þó sem
stjórninni hafi oröið eilítiö
ágengt í því að draga úr geig-
vænlegu atvinnuleysi í landinu,
þótt vissulega sé langt í land aö
verulegur árangur af þeirri
viðleitni sjáist.
H.K.
Krían dafnar
á Tjörninni
Fuglalíf Tjarnarinnar var
óbreytt frá því sem verið hefur og
það sem gleðilegast er fyrir borg-
arbúa. að kríuvarpið gekk vel og
fundust nú 113 hreiður eða 11
hreiðrum fleiri en árið áður, og
virtist varpið hafa heppnast mjög
ve). Talið að 50 ungar hafi komist
á legg. Að jafnaði farast
85—90%, en nú misfórust 80%, að
því er næst verður komist.
Þetta er kafli úr ársskýrslu
Hafliða Jónssonar garðyrkju-
stjóra, sem hann lagði fram í
umhverfismálaráði nýlega. Hann
segir ennfremur: Æðarfugl hélt
sömu hreiðurtölu og árið áður, eða
44 pör, og bar nokkuð á áfergju
sílamáva í ungviðið í júní og júlí
og voru þá skotnir 10 verstu
vargfuglarnir.
Við Tjörnina urpu í sumar 5
tegundir anda, en það voru stokk-
önd (70 pör), gargönd (2 pör)
duggönd (14 pör) skúfönd (14 pör)
og æður (44 pör).
Grágæs fjölgar jafnt og þétt.
Hafa nú vetursetu við Tjörnina
110 fuglar og hefur stofninn vaxið
um helming síðan 1976. Eru gæs-
irnar á flugi yfir borginni í stórum
flokkum þegar þær sækja til vatna
og voga í nágrenninu. Að sumrinu
finna þær sér varpland utan
byggðar, þar sem þær fá griðland
fyrir ásókn mannfólksins. Hið
sama gildir um álftirnar. Þær
koma á tjörnina nú orðið aðeins í
stuttar heimsóknir og vekja þá að
sjálfsögðu verðskuldaða athygli.
Eins og áður sáust á þessu ári
ýmsir sjaldséðir fuglar á tjarnar-
svæðinu. Þar sást 1 keldusvín
(des), 2 bleshænur (apríl—maí og í
des.), 1 skógarsnípa (des.), 1 land-
svala (maí), 1 bæjarsvala (maí),
gransöngvari (des.) og 1 dverg-
kráka (jan., maí og aftur í okt.)
Inga Magnúsdóttir
formaður Framfara-
félags Breiðholts III
Aðalfundur Framfarafélags
Breiðholts III var haldinn
fimmtudaginn 1. mars kl. 20.30 í
Fellahelli.
A fundinum var ný stjórn kjörin
og lét fyrrverandi formaður
félagsins af störfum en í hans stað
var kosin Inga Magnúsdóttir.
Aðrir í stjórn eru: Björn Bjarna-
son varaformaður, Jón Sveinsson,
Gjaldkeri, Bertha Biering ritari,
meðstjórnendur eru Elías Ólafs-
son, Þóroddur Skaftason, Jóna
Högnadóttir, Bjarni Hallfreðsson,
Halldór Gunnarsson, Karl
Ásgeirsson, Sigríður Gísladóttir
og varamenn eru Birgir Jónsson,
Magnús Sigtryggsson, Elínborg
Gísladóttir og Sigurður Bjarna-
son.
Stjórnin hefur samþykkt að
eftirfarandi atriði ættu að hafa
forgang í uppbyggingu hverfisins.
Að útisundlaug verði tekin í
notkun sem allra fyrst, að ljúka
frágangi á almennum leiksvæðum
og ganga frá opnum svæðum, að
leggja greiðfæra gangstíga milli
Fella- og Hólahverfis, að lögreglu-
og slökkvistöð verði reist sem allra
fyrst, að hraða verði byggingu
íþróttahúsa fyrir Fjölbrauta- og
Hólabrekkuskóla, að haldið verði
áfram uppbyggingu Fjölbrautar-
skólans og öldungadeild verði
komið þar á fót sem fyrst, að byggt
verði vallarhús við íþróttavöllinn
að bygging Félags- og menninga-
miðstöðvar og útibús Borgarbóka-
safnsins sem rísa á sameiginlega
austan Austurbergs verði hafin
hið fyrsta og að bætt verði við
akgreinum við innkeyrslu á
Reykjanesbraut úr Breiðholti I og
á Breiðholtsbraut úr Breiðholti II.
í Breiðholti búa nú 25 þúsund
íbúar og er fyrirhugaður borgara-
fundur um málefni hverfisins í
aprílmánuði.
Síðasta
sýning á
óperunni
Pagliacci
ÍSLENZKA óperan hefur nú sýnt
óperuna Pagliacci eftir Ruggiero
Leoncavallo fjórum sinnum. Hús-
fyllir hefur verið á öllum sýning-
um.
Ýmsir erfiðleik.ar voru við
uppsetningu óperunnar svo sem
húsnæðis- og fjármál, en erfiðasti
hjallinn að þessu sinni er nú
yfirstiginn að sögn forráðamanna
óperunnar með aðstoð hins mikla
fjölda óperuunnenda sem sótt
hefur sýningar eða stutt starfið á
annan hátt.
Síðasta sýning á óperunni
verður sunnudaginn 25. mars kl.
19.15 í Háskólabíói.