Morgunblaðið - 23.03.1979, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.03.1979, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1979- Siggi Sveins aðalmadurinn Handboltaliðinu hans Sigurðar Sveinssonar í Svíþjóð, Olympía, KPnsur ekki sem skyldi í deildarkeppninni þar í landi, er neðsta liðið ojf virðist dæmt til að falla. Hefur Olimpía aðeins G stig að loknum 21 leik. Kiruna AIF er í næst neðsta sæti með 7 stig. AIK hefur 10 stig, en siðan eru 8 stig í fjórða neðsta liðið. En Sigurður er greinilega aðalmaðurinn í liðinu og sænsku blöðin kalla hann meira að segja „Siggi“. Sigurður hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð fyrir kraft sinn og skothörku. í síðasta leik Olympía, tapaði liðið á heimavelli fyrir Drott 21—23. Sigurður átti stórleik með liði sínu og skoraði 9 mörk, þar af aðeins eitt úr vítakasti. Heim er efsta liðið í sænsku deildinni, hefur 34 stig. Ystad er í öðru sæti með 30 stig. Heim vann Kiruna um helgina 35—17, en Ystad vann öruggan sigur gcgn Ilellas, 22—13. Finni til Bristol C. Enska 1. deildar liðið Hristol City hefur samþykkt að greiða sænska liðinu Eskilstuna 50.000 sterlingspund fyrir finnska landsliðsmanninn Perrti Jantunen. Jantunen, sem er 2G ára gamall, hefur leikið 26 landsleiki fyrir Finnland og hann verður fyrsti Finninn sem leikur í ensku knattspyrnunni. Dað er þó ekki frá öliu gengið enn, Bristol-félagið hefur sótt um atvinnuleyfi fyrir Jantunen og þegar það liggur lyrir, verður samningurinn undirritaður. Martin Chivers. miðherjinn gamalkunni. hefur nú gengið í raðir Brighton, cfsta liðsins í 2. deild. Chivers er 34 ára gamall og hefur leikið víða t.d. með Tottenham, Servette í Sviss og síðast með Norwich. Ekki var gamli maðurinn dýr, 15.000 sterlingspund. / Badmintonmót áSkaganum Mikil drift hefur verið í badminton á þessu ári, mót hafa verið um svo til hverja helgi. Nú fer keppnistímahilinu senn að Ijúka, en þó heldur Badmintonfélag Akraness opið meistaraflokksmót á morgun og hefst mótið ki. 12.00 í íþróttahúsi Akraness. Þetta mót heitir „UÓMAMÓT“ því Smjörlíki h.f. hefur styrkt þetta mót á myndarlegan hátt, enda nafn þess kennt við hið vinsæla Ljóma-smjörlíki. Allir bestu badmintonmenn iandsins taka þátt f þessu móti. Það má búast við mjög harðri keppni því að meistaraflokkurinn er orðinn miklu jafnari en hann hefur verið undanfarin ár. Hörður Ragnarsson og Jóhannes Guðjónsson Í.A. munu leika saman tvíliðaleik eftir tveggja ára hlé. Þeir voru eitt af sterkustu tviliðaleikspörum landsins fyrir tveimur árum þannig að það verður gaman að sjá hvað þeir gera. Mótanefnd vonar að Akurnesingar og nágrannar fjölmenni í íþróttahúsið á morgun og sjái alla bestu Badmintonmenn landsins leika Ijómandi badminton á fysta Ljómamóti Skagamanna. Fjölbreytt íbróttamót fatiaóra á Akureyri Fatlað iþróttafólk efnir til fjölbreyttrar fþróttahátfðar í fþróttahúsi Glerárskóla á Akureyri um næstu helgi. íþróttafélag fatlaðra á Akureyri annast um alla framkvæmd í samstarfi við f.S.Í. og Borðtennissamband íslands. Mótin sem fram fara eru fslandsmót í borðtennis og boccia og eru það fyrstu fslandsmót fatlaðra f þessum greinum. í borðtennismótinu eru 14 keppendur frá Reykjavík og Akureyri. Keppt er f einliðalcik og tvíliðaleik. í boccamótinu eru 30 keppendur frá Reykjavík, Akureyri og Vestmannaeyjum. Keppt er í einliðaleik og sveitakeppni. Einnig fcr fram keppni í bogfimi. Þar eru aðeins 4 keppendur, frá Reykjavfk og Akureyri. I>oks fcr fram lyftingamót. Keppendur í því eru 11, frá Reykjavík, Akureyri, Siglufirði og Vestmannaeyjum. AIls eru keppendur um 40 og þar af um 10 f hjólastól • Knattspyrnufélag Reykjavíkur á 80 ára afmæii um pessar mundir. Verður afmælisins minnst á margvíslegan hátt. í kvöld er árshátíð félagsins að Hótel Sögu þar sem þessara merku tímamóta í sögu félagsins verður minnst. Á myndinni hér fyrir ofan eru þrír landskunnir KR-ingar. Þeir hafa unniö til þeirra fjögurra Evróþumeistaratitla í frjálsum íþróttum sem íslendingum hefur hlotnast. Þeir eru (f.v.) Gunnar Huseby, sem varð Evrópumeistari í kúluvarþi 1946 í Ósló og 1950 í Brússel; Hreinn Halldórsson, sem varð Evróþumeistari í kúluvarpi innanhúss í San Sebastian á Spáni 1977, og Torfi Bryngeirsson, sem varð Evrópumeistari í langstökki í Brússel 1950. Ljósm Mbl. Kristján. ÍR-stúlkur bikarmeistarar ÍR varð í fyrrakvöld bikar- meistari f körfuknattleik f mfl. kvenna með því að sigra ÍS í úrslitalcik með 10 stiga mun, 55:45, en f leikhléi var staðan 28:26, ÍR í vil. ÍR-stúlkurnar voru mun sprækari í byrjun og komust í 10:4 og 17:11, en ÍS núði að jafna 22:22, en tveggja stiga munur var í leikhléi eins og áður sagði. framförum í vetur og er vel að þessum sigri komið. Þrjár stúlkur sköruðu framúr hjá ÍR að þessu sinni, þær Anna Eð- varðsdóttir, Guðrún Bachman og Guðrún Gunnarsdóttir, en sú síðastanefnda er mjög efni- leg. Þá var Ásta Garðarsdóttir drjúg. IS-liðið hefur í vetur ekki verið nærri því eins sterkt 'og í fyrra og saknar mikið Kolbrún- ar Leifsdóttur. Liðið var jafnt í þessum leik og stigahæstar voru Guðný Eiríksdóttir með 12 stig, Þórunn Rafnar með 11, Anna Björg Aradóttir 9 og Þórdís Kristjánsdóttir með 8. Stigahæstar hjá ÍR voru Anna Eðvarðsd. og Guðrún Bachman með 18 stig hvor og Guðrún Gunnarsdóttir með 9. AG. Fyrstu mínútur síðari hálf- leiks voru mjög jafnar, en þegar staðan var 36:36 kom góður kafli hjá ÍR, sem breytti stöðunni í 41:36 og síðan 47:39 og má segja að með þessum kafla hafi IR gert út um leikinn og sigri þeirra var ekki ógnað. ÍR-liðið hefur tekið miklum Landslið í körfu valið LANDSLIÐSNEFND KKÍ hefur valið eftirtalda leik- menn í landslið: Innanhússmeistara mót íslands í sundi Pétur Guðmundsson, Uni- versity of Washington, Geir Þorsteinsson, UMFN, Gunnar Þorvarðarson, UMFN, Jón Sig- urðsson, KR, Garðar Jóhanns- son, KR, Kristinn Jörundsson, IR, Jón Jörundsson, ÍR, Kol- beinn Kristinsson, ÍR, Kristján Ágústsson, Valur, Þorvaldur Geirsson, Fram. Nokkrir leikmenn gáfu ekki kost á sér vegna vinnu eða náms, s.s. Torfi Magnússon, Jónas Jóhannesson, Jón Héð- insson og Guðsteinn Ingimars- son. Landsliðið heldur utan til Skotlands 2. apríl og verða leiknir tveir landsleikir við Skota í Glasgow þ. 3. og 4. apríl. Þaðan verður farið til Danmerkur og leiknir tveir landsleikir við Dani þ. 6. og 7. apríl. Til undirbúnings liðsins eru nú að hefjast æfingar undir stjórn landsliðsþjálfara, Tim Dwyer. Innanhússmeistaramót íslands í' sundi 1979 verður haldið í Sund- höll Reykjavíkur 23.-25. mars n.k. samkvæmt eftirfarandi dag- skrá: FÖSTUDAGUR 23. mars: Mæting keppenda kl. 19.00 Mót hefst kl. 20.00 LAUGARDAGUR 24. mars: Fyrir hádegi: Mæting keppenda kl. 9.00, undanúrslit hefjast kl. 10.00 Eftir hádegi: mæting keppenda kl. 17.00, mót hefst kl. 18.00 SUNNUDAGUR 25. mars: Fyrir hádcgi: mæting keppenda kl. 9.00, undanrásir hefjast kl. 10.00 Eftir hádegi: mæting keppenda kl. 17.00, mót hefst kl. 18.00 KEPPNISGREINAR: FÖSTUDAGUR: 1. 800 m skriðsund kvenna 2. 1500 m HkriðHund karla * LAUGARDAGUR: 3. 400 m fjórsund kvenna(7.00,0) 4. 400 m skriðHund karla(5.40,0) 5. 100 m skriðsund kvenna (1.25,0) 6.100 m bringUHund karla (1.30,0) 7. 200 m bringusund kvenna (3.35,0) 8. 200 m flugsund karla (3.15,0) 9. 100 m flugsund kvenna (1.40,0) 10. 200 m baksund karla (3.00,0) 11.100 m baksund kvenna (1.40,0) HLÉ 10 mfnútur 12. 4xl00m fjórsund karla 13. 4xl00m fjórsund kvenna SUNNUDAGUR: 14. 400 m fjórsund karla (6.00,0) 15. 400 m skriósund kvenna (6.30,0) 16. 100 m skriósund karla (1.15,0) 17. 100 m hringusund kvenna (1.45,0) 18. 200 m flugsund karla (3.10,0) 19. 200 m flugsund kvenna (3.40,0) 20. 100 m flugsund karla (1.20,0) 21. 200 m baksund kvenna (3.30,0) 22.100 m baksund karla , (1.25,0) HLÉ 10 MÍNCTUR 23. 4X100 m skriðHund kvenna 24. 4X200 m skriðaund karla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.