Morgunblaðið - 23.03.1979, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1979
25
fclk í
fréttum
+ KLAPPA saman lófunum — klappa saman lófunum. — Þessi mynd er tekin í þinghöllinni í Nýju
Delhi á Indlandi. er Kosygin forsætisráðherra Sovétríkjanna var þar nýlega á ferð í opinberri
heimsókn (í miðju) ásamt hinum indverska starfsbróður sinum Morarji Desai (til h.) og
varaforsætisráðherra Indlands D. Jatti (til v.) Kosygin kallinn ávarpaði indverska þingið. Notaði
hann tækifærið til þess að skamma fyrrum vopnabræður og bandamenn, Kínverja. fyrir innrás þeirra
í Víetnam.
+ ÞESSI mynd er tekin suður 1 Kómaborg 1
verkamannabústaðahverfi, er Jóhannes Páll páfi
kom þangað f heimsókn fyrir nokkru, en þetta
hverfi heitir San Basilie. í þessum tröppum flutti
páfinn ávarp til mikils f jölda æskufólks sem komið
haföi til að hlýða á mál páfa. — En litli kúturinn á
myndinni hafði smogið f gegnum lögregluvörðinn
sem átti að halda vörð um tröppurnar sem páfinn
talaði úr. Ilöfðu nærstaddir mjög gaman af þessu
atviki, en snáðinn skálmaði rakleiðis upp tröpp-
urnar til páfans.
+ í 20 VIKUR beið unga stúlkan (til vinstri) á
myndinni að sér yrði hjargað af cyðieyju einni í
S-Kínahafi. Þar var henni bjargað fyrir nokkru.
Ilún hafði verið á flóttamannaháti frá Víetnam.
scm fórst á grynningum við eyjuna. Voru 50
manns í bátnum og komst hún ein af lifandi.
Hún gat drepið sjófugla sér til matar og
krahbategund eina hafði hún veitt og borðað.
Það eru sjúkraliðar í her Filippseyja sem eru að
skýra fyrir stúlkunni hvernig nota skuli
tannbursta, en þangað var hún flutt er henni
var bjargað.
+ FÆSTIR munu hafa hugmynd um að í Egyptalandi sé varaforseti. — Það er Sadat forseti. sem er eðlilega
oftast nefndur á nafn í sambandi við Egyptalands-fréttir. Varaforsetinn heitir Hosni Mubaraek. — Ilann er
lengst til hægri á þessari mynd. Hún er tekin á hvfldarheimili Sadats forseta (á miðri myndinni) í bæn m
Giza. — Með forsetanum og varaforsetanum er sendiherra Bandarfkjanna í Egyptalandi sem heiti; FJIts. —
llafði sendiherrann gengið á fund forsetans í samhandi við sfðustu sáttaferð Carters BandarfkjaforseTa.
Vörumarkaðsverð
MATVORUDEILD:
Neskaffi 113 gr. (miöstærö .......... kr. 1.565.-
Síríus hjúpsúkkulaöi 400 gr.......... kr. 1.188,-
Coca puffs 1 pk ..................... kr. 398,-
Rúsínur 1 kg......................... kr I.090.-
Pillsburý’s hveiti 5 Ibs............. kr. 351,-
Nesquik kókómalt 800 gr.............. kr i.ö05.-
Ríó kaffi 1 pk.........,............. kr. 560.-
Unghænur 1 kg........................ kr. 1 »50,-
Allt niöursneitt álegg á Vörumarkaðsverði. Heilir
dilkaskrokkar, niðursagaöir á gamla veröinu.
Allt dilkakjöt á gamla veröinu.
HUSGAGNADEILD:
Furusófasett og hillur á sérleqa haq-
stæöu veröi
VEFNAÐARVÖRUDEILD:
Fallegur barnafatnaöur nýjar sending-
ar á Vörumarkaösveröi
SKÓ-0G LEIKFANGADEILQ
HEIMILIST ÆK JADEILD:
Electrolux
ryksugur
Z — 302 kr. 71.500.'
Z — 305 kr. 89.100.'
Z — 325 kr. 104.900.
Opið til kl. 8 föstudag
og til hádegis laugardag
Vörumarkaðurinnhfj
ÁRMÚLA 1A Matvörud S. 86 1 11
Húsgagnad. S 86 112 VefnaSarvörud. S. 86
Heimiiistækjad. S. 86-11 7.