Morgunblaðið - 23.03.1979, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.03.1979, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1979 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Ritari Stórt innflutningsfyrirtæki óskar að ráöa ritara í bíla- og varahlutadeild. Þarf að geta byrjað strax. Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf sendist Morgunblaðinu fyrir 27. marz merkt: „R — 5672“. Innri Njarðvík Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið í Innri Njarðvík. Uppl. hjá umboðsmanni í síma 6047 og afgreiöslunni Reykjavík sími 10100. 2 trésmiðir óskast og einn verkamaður í innivinnu. Upplýsingar í síma 39680. Byggingarfélagið Sköfur .s.f. Háseta vantar á Mánatind frá Djúpavogi sem er að hefja netaveiðar. Upplýsingar í síma 97-8860. Meinatæknar Meinatækni vantar nú þegar við Sjúkra- húsið viö Keflavík. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 92-1664. Óskum aö ráöa sendibílstjóra til útkeyrslu og lagerstarfa frá næstu mánaöarmótum. Tilboð sendist augl.d. Mbl. fyrir 27. þ.m. merkt: „Apríl — 5675“. Fyrirspurnum ekki svarað í síma. Ásgeir Einarsson hf. Bergstaðastræti 13. Viljum komast í samband við laghentan mann til að sjá um ýmsar smá viðgeröir innanhúss. Veitingahúsið Naust. Víkurbær vill ráða vanan og dugmikinn verslunarstjóra í vörumarkaði. Góð laun. Þarf að geta byrjað sem fyrst. Víkurbær Vörumarkaóur Keflavík. Sími 2042 — 2044. Starfskraftur óskast hjá litlu fyrirtæki í miðborginni. Starfið er mjög fjölbreytt og felst m.a. í stjórnun og daglegum rekstri ásamt sam- skiptum við viðskiptavini, skjalavörslu fyrir tölvuvinnslu bókhalds, útfyllingu tollskjala, erlendum bréfaskriftum á ensku og einu noröurlandamáli. Nauösynlegt er að viökomandi hafi Verzlun- arskóla-, Samvinnuskólapróf eöa hliðstæða menntun. Æskilegt er að viðkomandi geti hafiö störf fljótlega. Reglusemi áskilin. Góð laun í boði fyrir réttan mann. Farið verður nleð allar umsóknir sem trúnaðarmál. Umsóknir sendist Mbl. merktar: „X — 5673“. Verslunarstjóri — Keflavík Minning: Georg Lúðvíksson framkvœmdastjóri Fæddur 25. apríl 1913. Dáinn 20. fcbrúar 1979. Við fráfall Georgs Lúðvíkssonar hafa KR-ingar misst einn sinn tryggasta og einlægasta stuðn- ingsmann. Georg var þátttakandi í starfi skíðadeildar KR frá upphafi og alla tíð síðan. 'Starfið við uppbygginguna í Skálafelli var hans hjartans mál, allt frá því að borin var hver einasta spýta í gamla skálann og fram á þennan dag. Þegar gamli KR skálinn brann árið 1955, var leitað til Georgs um góð ráð með framtíðarbyggingu skíðadeildarinnar í huga. Tryggð hans við félagið og Skálafellið tók af allan vafa um hvar skyldi byggt að nýju. Undir forustu Georgs var hafist handa um vegarlagningu og síðan byggingu hins nýja glæsilega skíðaskála. Bæði voru þessi mann- virki byggð að meira eða minna leyti í sjálfboðavinnu. Skálinn var vígður 1. marz 1959. Ári síðar, eða í febrúar 1960 var tekin í notkun fyrsta nútíma skíðalyftan hérlend- is. Síðan hefur verið stöðug upp- bygging í Skálafellinu, m.a. miklar endurbætur á veginum, margar afkastamiklar skíðalyftur hafa bætzt við og nú síðast stækkun á skálanum. Allt þetta má rekja til þeirrar framsýni er Georg sýndi er hann af drengskap við KR tók að sér að stjórna uppbyggingu skíða- svæðisins í Skálafelíi. Fyrr á árum var Georg Lúðvíks- son einn bezti skíðamaður Reykja- víkur, jafnvígur á svig og skíða- göngu. Hann var dugmestur í Sá besti frá JAPAN Frá 1. maf veröur P. Stefánsson hf. meö einkaumboö á íslandi fyrir Mitsubishi Motor Corporation I Japan. Þá bjóöum við hinn frábæra GALANT SIGMA sem fariö hefur sigurför um heiminn, vegna framúrskarandi gæöa og öryggls. Verókr. 4.185.000.- Miðaó vió gengisskráningu 12.3.1979 Fyrsta sending til afgreiöslu i maí flestu, jafnt við æfingar sem og í félagsstarfi, ávallt reiðubúinn að taka'að sér erfiðustu störfin, bera þyngstu byrðarnar, þegar færa þurfti öll aðföng til skálans á herðum sér. Gamli skálinn var í nær 600 m hæð og vegalengdin frá vegi 5 km. Mörgum fannst nóg um að bera sjálfan sig þessa leið í misjafnri færð. Það voru ekki margar helgarferðirnar sem Georg ekki bar aðföng til skálans, hvort sem um var að ræða vistir eða byggingarefni. Auðvelt var að hrífast af ákafa hans og áhuga við að ná settu marki. Þó var mest áberandi í fari hans sú hógværð, sem einkenndi allt hans tal og gerðir. Snyrti- mennska var einkennandi þáttur í fari hans. Það kom allsstaðar fram, hvort sem um var að ræða heimili þeirra Guðlaugar, garðinn þeirra eða umhverfið í Skálafelli. Georg var ávallt að snyrta eitt- hvað eða hlúa að gróðri. Tryggð hans við menn og mál- efni var einstök. Ef hann tók að sér eitthvað verkefni, var því borgið. Það var aldrei talað um fé né fyrirhöfn, verkinu skyldi lokið. Það var gæfa okkar KR-inga að fá að starfa með og kynnast Georg Lúðvíkssyni. Fyrir það erum við þakklátir. Störf hans að málefnum skíðadeildar KR verða aldrei full- þökkuð. Skíðadeildin heiðrar og varðveitir bezt minningu Georgs með því að auka og bæta þau mannvirki og aðstöðu þá er hann lagði grundvöll að með sínu mikla og fórnfúsa starfi fyrir KR. Félagar í skiðadeild KR votta ástvinum Georgs Lúðvíkssonar innilegustu samúð við fráfall hans. Þ.J. Asgeir Guðmunds- son — Minningarorð Það var námskapituli að kynn- ast Ásgeiri og vert að skrifa minningargrein, til að mikla Guð fyrir það, að Hann setur i um- hverfi manna fjölbreyttar mann- gerðir, — kjarna og hismis, sem leiðir hver af annarri eins og myrkur af ljósi. Og myrkrið tekur ekki við ljós- inu, bólgnum hroka sínum til unaðar, en ljósið andar elsku sinni og þiðir storknuð hjörtu, máttvana hné og veikasta hörkveik. Lofaður sértu Guð, fyrir meist- arann Jesúm Krist og hjálparann Heilagan anda. Þú Guð, sem ert eins og blundandi neistinn i stein- inum og þyrlar ekki upp ryki, en elskar ástvana sálir sem hafa sundurmarinn anda. Þú Guð, sem dvelur háan og helgan stað og leitar týndra og vegmóðra, lofaður sértu fyrir elsku þína og undursamlega náð, fyrir hógværð þína og lítillæti, sem meistarinn kynnti á jörðu þessari sem dýrast mannkosta, hverjum Ásgeir Guðmundsson var skrýddur manna best. Blessuð sé minning hans. Óli Ágústsson Lítið barn hefur ' lítið sjónsvið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.