Morgunblaðið - 23.03.1979, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1979 15
Fylgi Carters
eykst lítillega
New York, 22. marz. AP.
Höfrungar til leitar að
Loch Ness skrímslinu
New York, 22. marz AP
TVEIR höírungar eru nú í
þjálfun í Flórída til að
aðstoða leiðangursmenn,
sem í sumar hyggjast leita að
Loch Ness-skrímslinu fræga,
í Loch Ness-vatni í Skotlandi,
að því er kemur fram í grein
í New York Times í gær.
Dr. Robert H. Rines sem
hefur stjórnað leitarferðum í
Loch Ness-vatni síðustu tíu
árin sagði, að dýrin myndu
verða útbúin með mynda-
vélum og sérstökum ljósum
til könnunar á svæðum sem
ekki er hægt að rannsaka
eftir hefðbundnum leiðum.
Höfrungarnir sem hafa að
undanförnu fengið þjálfun
sína í ferskvatni, munu' á
næstunni fá að spreyta sig í
ísilögðum sjó til að venjast
hinum mikla kulda sem í
Loch Ness-vatni er.
Skutu niður sex flug-
vélar Suður-Afríkuhers
SAMKVÆMT skoðanakönnun
sem fréttastofurnar AP og NBC
framkvæmdu í vikunni hefur
fylgi Jimmy Carters Bandaríkja-
forseta lítið breytzt frá því sem
það var fyrir mánuði, þrátt fyrir
frammistöðu hans í málefnum
Miðausturlanda.
Gierek mun
hitta páfa
Varsjá, 22. marz. AP.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að Jóhann-
es Páll páfi II og Edward Gierek,
leiðtogi pólska kommúnista-
flokksins, muni hittast að máli
þegar hinn fyrrnefndi kemur í
heimsókn til Póllands í júní n.k.,
að því er haft er eftir áreiðanleg-
um heimildum innan kirkjunnar.
Það vekur nokkra athygli að
Gierek skuli ætla að hitta páfa að
máli, þar sem kommúnistayfirvöld
í Póllandi hafa jafnan haft horn í
síðu kirkjunnar.
Agostino Casaroli erkibiskup,
utanríkisráðherra Vatikansins, er
nú í Póllandi til að undirbúa komu
páfa þangað í júní. Hann heldur
tveggja daga fund með æðstu
mönnum kirkjunnar á morgun og
laugardag til að ræða málin.
Khmerar
herða
sóknina
Bangkok, 22. marz. AP.
TALSMAÐUR herja hliðhollra
Pol Pots fyrrverandi leiðtoga
Kambódíumanna sagði í dag, að
þeir hefðu ráðist á herflugvöllinn
í Battambang í norðvestur hluta
landsins og eyðilagt tvær vélar og
fellt nokkra víetnamska her-
menn.
Þá sagði talsmaðurinn að
Khmerarnir hefðu í síðustu viku
fellt 245 víetnamska hermenn,
sprengt tvo skriðdreka í loft upp
og eyðilagt nokkra herflutninga-
vagna.
1 /
Veður
víða um heim
Akureyri +11 skýjaó
Amsterdam 10 léttskýjad
AÞena 22 skýjaó
Barcelona 15 léttskýjaó
Berlín 8 léttskýjaö
Brussel 7 heiðríkt
Chícago 6 heiðríkt
Frankfurt 12 rigning
Genf 11 skýjað
Helsinki 0 skýjað
Jerúsalem 26 lóttskýjaó
Jóhannesarb. vantar
Kaupmannahöfn 2 snjór
Lissabon 15 léttskýjaó
London 8 rigning
Los Angeles 16 skýjað
Madríd 11 léttskýiaö
Malaga 16 léttskýiað
Mallorca 15 léttskýjað
Míami 28 heiðskírt
New York 20 heiöskírt
Ósló 1 snjór
París 10 skýjaö
Reykjavík +10 lóttskýjaó
Rio De Janeiro 31 lóttskýjað
Rómaborg 14 lóttakýjaó
Stokkhólmur 1 skýjað
Tel Aviv 26 lóttskýjaó
Tókýó 16 léttskýjaö
Vancouver 13 skýjaö
Vínarborg 11 skýjað
Carter var af 29% spurðra tal-
inn standa sig vel í starfi í stað
28% í síðasta mánuði. — 18%
sögðu að forsetinn væri algerlega
óhæfur til að gegna starfi sínu í
stað 17% síðast. — 53% töldu
hann standa sig sæmilega í starfi.
Talið er að frammistaða Carters
í baráttunni gegn verðbólgunni og
st^fna hans í orkumálum standi
honúm helzt fyrir þrifum. Flestir
þeir sem spurðir voru sögðu að
hann réði engan veginn við þau
miklu efnahagsvandamál sem við
væri að glíma.
Aðeins 12% töldu Carter standa
sig vel í orkumálum og 53% sögðu
hann standa sig afleitlega.
Leiguflugið
varð undir í
baráttunni
Genf, 22. marz. Reuter.
LEIGUFLUGFÉLÖG á Atlants-
hafsleiðinni fluttu um 20% færri
farþega á árinu 1978 heldur en
árið á undan, á sama tíma og
félögin sem halda uppi reglu-
bundnu flugi fluttu um 28,5%
fleiri farþega, að því er IATA,
Alþjóðasamband flugfélaga, til-
kynnti í Genf í dag.
Munurinn varð mestur á flug-
leiðinni Bretland — Bandaríkin.
Þar fluttu félög með reglubundið
flug um 41,4% fleiri farþega held-
ur en árið áður. Á sama tíma
fluttu leigufélögin um 33,9% færri
farþega á þessari sömu leið.
Lissabon, 22. marz. AP.
TILKYNNT var í Lissabon í dag
að Angólaher hefði í síðustu viku
skotið niður sex suður-afrískar
herþotur sem gert hefðu árásir á
búðir skæruliða þar í landi.
Talsmaður Angólastjórnar sagði
að hersveitir hefðu skotið niður
sex Mirageþotur sem síðar reynd-
ust vera frá flugher Suður-Afríku,
eftir að þeim höfðu verið gefin
fyrirmæli um að skjóta á allar
flugvélar sem ryfu lofthelgi
Angóla án heimildar.
Þá sagði talsmaðurinn að flug-
vélar Suður-Afríkuhers hefðu 70
sinnum farið inn fyrir lofthelgi
Angóla á síðustu tveimur vikum,
hent niður um 132 tonnum af
sprengjum, sem hefðu fellt 16
manns og sært um 30 alvarlega.
Talsmaðurinn ásakaði Suð-
ur-Afríkumenn ennfremur um að
hafa tvívegis sent landgönguher-
sveitir inn fyrir landamæri
Angóla í síðustu viku, í annað
skiptið um 17 kílómetra innfyrir
og hitt skiptið um 12 kílómetra.
Frá Jan Erik Lauré,
fréttaritara MorgunbladsinB í Ósló
VERKFALL norskra leikara hefur
nú staðið á aðra viku og enn sem
komið er bendir ekkert til þess að
þeir hefji að leika listir sínar að
nýju á sviði, í útvarpi og sjónvarpi á
næstunni. Þessari vinnudeilu hefur
verið vísað til kjaradóms, en ekki er
vitað hvenær málið verður tekið til
meðferðar á þeim vettvangi.
Að líkindum verður niðurstaða
Þá tilkynnti talsmaður skæru-
iiða Swapo að þeir hefðu í þessari
viku skotið niður fjórar flugvélar
Suður-Afríkuhers.
kjaradóms sú, að verkfallið sé ólög-
legt, en leikarar hafa lýst þvi yfir að
þeir muni ekki hefja störf sín að
nýju fyrr en þeir ellefu leikarar, sem
sagt var upp störfum við tvö leikhús,
hafi verið endurráðnir.
Toralv Maurstad, leikhússtjóri við
Þjóðleikhúsið í Ósló, þar sem átta
hinna útskúfuðu leikara hafa starf-
að, er enn einu sinni kominn í
sviðsljósið, en rökstuðningur hans
fyrir uppsögnum er sagður fela í sér
meðal annars einn sé of feitur, annar
of gáfaður og sá þriðji sé með
ómögulegan hárlit. Maurstad vísar
þessu á bug og segir að þessar
tilvitnanir séu slitnar úr samhengi,
enda hafi hann hreina samvizku í
málinu.
Snjóflóð
grönduðu
48 manns
Nýju-Delhi, 22. marz. AP.
TALSMAÐUR Kashmir-rikis á
Indlandi sagði í dag að hin miklu
snjóflóð í ríkinu s.l. mánuð hefðu
grandað alls 48 manns. — Ríkið er
að miklu leyti sambandslaust við
Nýju Delhi vegna mikilla snjóa,
vegir eru undir margra metra
þykku snjólagi.
Þyrlur hafa á undanförnum
dögum flogið á milli einangraðra
þorpa og fleygt niður matar-
skömmtum og sjúkragögnum.
Þetta gerðist
23. marz
1966 — Erkibiskupinn af
Kantaraborg gengur á fund páfa
í Róm (Fyrsti opinberi fundur
yfirmanna anglíkönsku og
kaþólsku kirkjunnar í rúmar
fjórar aldir).
1965 — Fyrsta tveggja manna
bandaríska geimfarinu skotið á
braut.
1962 — Flugvélum og
skriðdrekum beitt gegn
evrópskum uppreisnarmönnu, í
Alsír.
1944 — Bandarískir og brezkir
hermann sækja yfir Rín.
1933 — Þýzka þingið vetir
Adolf Hitler alræðisvöld.
1919 — Benito Mussolini
stofnar nýja stjórnmála-
hreyfingu á Italíu.
1918 — Lithaugaland lýsir yfir
sjálfstæði.
1909 — Theodore Roosevelt fv.
forseti fer frá New York í
leiðangur til Afríku.
1848 — Fyrsti skipulagði hópur
landnema gengur í land í
Dunedin á Nýja-Sjálandi.
1801 — Páll I Rússakeisari
ráðinn af dögum og Alexander I
tekur við.
1775 — Áskorun Patrick Henry
um sjálfstæði Norður-Ameríku
(„Give me Liberty or give me
Death").
1568 — Öðru trúarstríðinu
lýkur í Frakklandi með
Longjumean-friðnum.
1534 — Clement páfi VII lýsir
giftingu Hinriks VIII og
Katrínar af Aragon gilda.
Afmæll: Alfred Milner, brezkur
stjórnmálaeliðtogi
(1851—1925)= Roger Bannister,
brezkur íþróttamaður (1919 — )=
Joan Crawford, bandarísk leik-
kona (1908 —1977)= Bernadette
Devlin, írsk mannréttindakona
(1947 —)= Wernher von Braun,
þýzkættaður eldflaugasér-
fræðingur (1912-1977).
Andlát: Stendahl, rithöfundur,
1842.
Innlent: Sighvatur og Sturla
koma í Borgarfjörð með 1200
manna liði og Snorri flýr 1236=
Eldgos tvær mílur frá Gríms-
stðum á Fjöllum 1875= d.
Halldór Friðriksson yfirkennari
1902= Dani handtekinn fyrir
níðgrein um íslendinga 1943=
Tillaga Jóhannesar Kjarvals um
íslenzkt hvalfriðunarskip 1948=
Eggert G. Þorsteinsson ráð-
herra fellir stjórnarfrumvarp
um verðgæzlu 1970.
Orð dagsins: Oft verður lítill
neisti að stóru báli — Dante,
ítalskt skáld (1265-1321),
HDiumiJngiuimiiiximgJiiMiiimunimgiiigingiiiimuiiPiuiiiiinimgjiiigfiiiiimnginijiiPiiBi
■
Hljómplötumarkaóur
í Vörumarkaönum, Ármúla.
Allt að 80% afsláttur
af íslenskum og erlendum hljómplötum.
<=
Hljómplötuútgáfan hf.
ÉT(i)TfflIÍÍlIfiIIfi)IliUi)T(irfi)T(irfilTíilT(í)Tíir(ilTfirr(ilT(iIT(ÍIT(ÍiT(i)T(i)TT(ilT(ilT(irfi)T(ilTfilTlÍÍ
Noregur:
Horfur á löngu
leikar averkf alli