Morgunblaðið - 06.04.1979, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979
Ragnhildur Helgadóttir:
Mikilvæg utanrík-
ismál rædd að ráð-
herra fjarstöddum
Fjarverur ráðherra tíðar, sagði Olafur Ragnar
Ljósm.: Emilía
Júgóslavneskur læknir, dr. Lojze Medved, er staddur hérlendis um
þessar mundir. en hann er forstöðumaður heilsuræktarmiðstöðvar í
Portoroz, þar sem dvalið hafa íslendingar á vegum Samvinnuferða.
Medved leggur einkum áherzlu á aðferðir náttúrulækningastefnu í
heilsurækt sinni, en fyrir 7 árum hóf hann að læra nálarstunguaðferð
og beitir henni í vissum tilvikum. Hann er staddur hérlendis til að hafa
samband við þá sjúklinga er dvalið hafa hjá honum ytra.
„Aðeins sjómenn þurfa
að búa við það að ráð-
herra ákveoi einhliða
tekjumöguleika þeirra”
— segir í ályktun frá Sjómannafélagi
Reykjavíkur, þar sem mótmælt
er vinnubrögðum við gerð reglu-
gerðar um takmörkun þorskveiða
Á STJÓRNARFUNDI Sjó-
NOKKRAR umræður urðu á fundi
Sameinaðs Alþingis í gær um þing-
sköp, er Ragnhildur Helgadóttir
gerði athugasemdir við að rædd
væru mikilvæg utanríkismál að
fjarstöddum bæði utanríkisráð-
herra og formanni utanríkismála-
nefndar Alþingis. Mál það sem hér
um ræddi var tillaga Svövu Jakobs-
dóttur um bann við kjarnorkuvopn-
um á íslensku yfirráðasvæði, og
sagði Ragnhildur það hafa verið á
dagskrá allra funda sameinaðs
þings í mánuð, utan einu sinni, en
þó aldrei komið til umræðu. Nú ætti
hins vegar að ræða þetta mál ásamt
TILLÖGUR um aö gera
Hafnarstræti og Ráðhústorg
að göngugötu, lagning hrað-
brautar frá Glerárgötu yfir
Torfunesbryggjurnar inn á
Drottningarbraut og að
gerðar verði afmarkaðar
gönguleiðir í miðbæinn frá
íbúðarhverfunum verða
væntanlega lagðar fram til
afgreiðslu í bæjarstjórn
Akureyrar n.k. þriðjudag að
því er Akureyrarblaðið ís-
lendingur skýrir frá.
Arkitektarnir Svanur Eiríksson
og Haraldur Haraldsson ásamt
Davíð Arnljótssyni verkfræðingi
unnu að skipulagningunni og lögðu
tillögur sínar fyrir skipulagsnefnd
Akureyrarbæjar sem síðan vann
úr þeim tillögu og hefur hún nú
verið lögð fyrir bæjarstjórn.
Klofningur var í skipulagsnefnd-
inni um lagningu hraðbrautarinn-
ar. Vildi minnihluti nefndarinnar
að brautin sveigði fram hjá Torfu-
nesbryggjunum. Samstaða náðist
hins vegar um að gera Hafnar-
— Við höfum ekkert heyrt um
ofangreinda pöntun, sagði Bragi og
um verðið er það að segja, að í
samningi sem ísland gerði 1976 var
verð á þorski 226 bandaríkjadalir
hver pakki. Voru afgreiddir 60 þús-
und pakkar frá íslandi árið 1977 og
sama frá Noregi. Þegar kom til þess
á árinu 1978 að framhald yrði á
afgreiðslu skreiðar frá árinu 1977
fóru Nígeríumenn fram á það að
íslendingar lækkuðu verð sitt í
samræmi við norska verðið, sem þá
hafði lækkað miðað við gengi naira
vegna tveggja gengisfellinga norsku
krónunnar á árinu 1977. íslendingar
lækkuðu umsamið verð niður í 220
dali og í samræmi við fyrrnefnda
frétt er verðlækkunin á þorski þann-
einu öðru máli af tuttugu á dag-
skrá, einmitt þegar þeir Benedikt
Gröndal og Einar Ágústsson væru
fjarverandi!
Forseti, Gils Guðmundsson, sagð-
ist mundu verða við beiðni Ragnhild-
ar, og tæki hann málið út af dagskrá,
en þess væri þó að gæta að þetta mál
væri búið að vera lengst á dagskrá
þeirra mála er þar væru, án þess að
komast í nefnd.
Ólafur Ragnar Grímsson bað einn-
ig um orðið, og heimilaði forseti
honum að taka til máls, en aðeins
um þingsköp. Sagði hann að það væri
undarlegt að Ragnhildur skyldi taka
stræti og Ráðhústorg að göngu-
svæði og kemur það til fram-
kvæmda árið 1980 er hitaveitan
verður lögð í miðbæinn. Verður
hitaveitunni þá þannig komið fyrir
að á yfirborð götunnar festi ekki
snjó.
ig og er verðið í dölum á hvern 45 kg
pakka:
Árið 1977 naira 147 US* 226 (gengi 1,54)
Árið 1978 naira 130 US$ 200 (gengi 1,54)
Árið 1979 naira 100 US$ 154 (gengi 1,54)
(Ein naira jalngildir um 500 ísi. kr.).
Skreiðarsamlaginu er kunnugt um
að Norðmenn hafa undanfarnar vik-
ur verið að semja um skreiðarsölu til
Nígeríu. Nú hefur auk framan-
greindrar blaðagreinar einnig borizt
norska blaðið Fiskaren frá 26. marz
sl. og er frá því skýrt, að gerður hafi
verið samningur um sölu skreiðar til
Nígeríu og einnig á hertum kol-
munna í stórum stíl, en ekki er
greint frá verði. Ekki er fullgengið
frá þessum samningum.
málið þessum tökum, og sagðist
hann jafnvel álíta að það væri gert
til að þagga niður umræður um þetta
mál. Sagði Ólafur Ragnar að fjarver-
ur utanríkisráðherra úr þingsölum
væru það miklar og tíðar, að oft
hefði verið erfitt að koma fram
málum um utanríkismál af þeim
sökum, og gæti þess orðið langt að
bíða að þetta mál fengi afgreiðslu ef
bíða ætti Benedikts.
Síðan hóf Ólafur umræður um
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli og
um aðild Islands að Atlantshafs-
bandalaginu, þar til forseti sló í
bjölluna nokkrum sinnum til að gefa
til kynna að það mál væri alls ekki
til umræðu, heldur aðeins umræður
um þingsköp.
Sighvatur Björgvinsson tók einnig
til máls, og sagði hann að utanríkis-
ráðherra hefði tjáð sér áður en
þingfundur hófst, að hann væri mjög
önnum kafinn á skrifstofu sinni, en
myndi þó koma í Alþingishúsið ef
þingmenn óskuðu þess. Sagðist Sig-
hvatur nú hafa hringt í Benedikt og
væri hann á leiðinni.
Þegar hér var komið sögu var sem
fyrr segir búið að taka málið út af
dagskrá, og ekki varð þess vart að
Benedikt Gröndal utanríkisráðherra
kæmi í Alþingishúsið.
— Skreiðarsamlagið hefur haft
samband við norska útflutningsráðið
og beðið um upplýsingar um verð,
magn og kjör. Þess er að vænta að
Norðmenn veiti þessar upplýsingar.
Þá sagði Bragi að gerðar hefðu
verið tvær meiri háttar tilraunir af
íslands hálfu til að kynna hertan
kolmunna á markaði í Nígeríu. —
Skreiðarsamlagið sendi í október
1976 tilraunasendingu sem líkaði
mjög vel, sagði Bragi Eiríksson, og
var þessi þurrkaði kolmunni kall-
aður„ministockfish“.
— Rannsóknastofnun sjávarút-
vegsins sá um þurrkunina og var
þeirri stofnun og sjávarútvegsráðu:
neytinu gefin nákvæm skýrsla. I
mannafélags Reykjavíkur,
sem haldinn var 4. apríl
1979, var samþykkt að mót-
mæla harðlega þeim
aðferðum sem viðhafðar
voru við gerð reglugerðar
um takmarkanir á þorsk-
veiðum, sem sjávarútvegs-
ráðuneytið gaf út 26. marz
s.l.
í fréttatilkynningu frá
félaginu segir svo:
Engir úr röðum launþega
hér á landi, nema fiski-
menn, þurfa að búa við það
að ráðherra ákveði einhliða
stuttu máli má segja, að markaður-
inn hafi verið mjög jákvæður og
vorum við hvattir til þess að fram-
leiða verulegt magn.
— í júlí 1976 var sett innflutn-
inssbann á skreið til Nígeríu og var
ekki meira framleittt fyrr en á árinu
1978. Þá lét sjávarútvegsráðuneytið
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
sjá um að þurrka kolmunna og var
Islenzku umboðssölunni falið að
senda þá framleiðslu til Nígeríu.
Þessi framleiðsla var kölluð „Dried
Blue Whiting" og líkaði hún einnig
mjög vel. Segja má því með réttu, að
Islendingar hafi kynnt þurrkaðan
kolmunna á markaðnum í Nígeríu. I
fréttinni í Fiskaren kemur fram að
gert er ráð fyrir að kolmunni verði
þurrkaður bæði undir beru lofti og í
þurrkhúsum og mun kolmunninn
hvorki verða slægður né hausaður.
Því miður vitum við ekki enn um
verð það sem Norðmenn hafa sett á
kolmunna og skreið á árinu 1979, en
væntanlega skýrist þetta mál innan
tíðar, sagði Bragi Eiríksson að lok-
um.
tekjumöguleika þeirra með
þeim hætti sem gert var
með reglugerð þessari.
Þetta er gert án nokkurs
samráðs við samtök sjó-
manna um leið og mismun-
un er gerð milli þeirra sem
veiðar stunda með ákveðn-
um veiðarfærum og milli
landsvæða. En ráðamenn
virðast sammála um að
bera megi fyrir borð hags-
muni reykvískra sjómanna
og útgerðar.
Reykvískir sjómenn
standa við hlið þeirra
starfsbræðra sinna sem
telja friðunaraðgerðir
nauðsynlegar til viðhalds og
aukningar hrygningarstofn-
um þorsksins.
En þeim þykja kaldar
slíkar kuldakveðjur frá
stjórnvöldum sem koma
fram í einhliða ákvörðun
þeirra og vara alvarlega við
slíkum vinnubrögðum við
frekari ákvörðun takmark-
ana á loðnuveiðum, um leið
og stjórn félagsins lýsir
undrun sinni á því ósam-
ræmi sem fram kemur í
yfirlýsingum fiskifræðinga
um veiðiþol loðnunnar.
Þingmenn í
páskaleyfi
á morgun
STEFNT er að því að ljúka
störfum Alþingis fyrir páskaleyfi
þingmanna í síðasta lagi á morg-
un, laugardag, að því er forseti
Sameinaðs Alþingis, Gils Guð-
mundsson, tilkynnti í upphafi
þingfundar í gær.
Sagði hann þingmenn af þess-
um sökum mega vera við því búna
að þingfundir yrðu langir og
strangir fram að leyfi.
Hraðbraut lögð yfir
Torfunesbryggj-
umar á Akureyri?
KIRKJUKÓR Vestmannaeyja Ieggur land undir fót um helgina og heldur
tónleika í kvöld, föstudagskvöld, í Hveragerðiskirkju kl. 20.30 og á
laugardag í Fíladelfíukirkjunni í Reykjavík kl. 2. Guðmundur H.
Guðjónsson organisti stjórnar kórnum sem mun syngja fjölbreytta
innlenda og erlenda dagskrá. Einsöngvarar verða Þórhildur Óskarsdóttir,
Geir Jón Þórisson og Reynir Guðsteinsson.
Norðmenn semja um
skreiðarsölu til Nígeríu
SAMLAGI skreiðarframleiðenda hefur borist vitneskja um að Nigeria National Supply Company Ltd. hafi nýlega
pantað 300 þúsund skreiðarpakka að verðmæti 30 milljónir naira og sagði Bragi Eiríksson hjá Samlagi
skreiðarframleiðenda, er Mbl. hafði samband við hann, að sér hefði ekki borizt nein vitneskja um þessa pöntun
önnur en frétt í frönsku blaði.
í frétt franska blaðsins segir, að þessir 300 þúsund skreiðarpakkar komi frá 3 löndum, Noregi, Grænlandi og
fslandi, og eigi Noregur einn að afgreiða 200 þúsund pakka. Verðmæti þessarar pöntunar er 10% lægra en 1978,
en verðið það ár var 30% iægra en verðið árið 1977. „Þessi verðlækkun skýrist af hagstæðri aðstöðu Nígeríu,
þeirri staðreynd að hún er hinn eini stóri innflytjandi þessarar framleiðslu. Hún flytur inn milli 50 — 60% af allri
framleiðslu hinna þriggja ofangreindra landa, en fyrir borgarastyrjöldina flutti hún inn enn meira, milli
80 —90% segir í frétt hins franska blaðs.