Morgunblaðið - 06.04.1979, Page 30

Morgunblaðið - 06.04.1979, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979 + Útför sonar okkar og bróöur, ÞORBERGS BÖÐVARS ASGRÍMSSONAR, KMbargi 11, fer fram frá Hjallakirkju, laugardaglnn 7. apríl kl. 2. Jarðsett veröur í Þorlákshöfn. Ingibjörg Guömundsdóttir, Ásgrímur Guömundsson, Guðmundur Ásgrímsson, Svsinbjörn Ásgrfmsson, Bjarni Ásgrímsson. t Útför bróöur míns, MAGNUSAR JÓNSSONAR, Dsild, Stokksayri, veröur gerö frá Stokkseyrarkirkju, laugardaginn 7. apríl kl. 13.30. Fyrir hönd ættingja og vina, Guömundur Jónsson. + ANDRES INGÓLFSSON, hljóöfaralÞikari, lézt miövikudaginn 4. apríl. Vandamenn. + Eiginkona mín, móðir og tengdamóölr, GUDBJÖRG EiNARSDÓTTIR, (frá Vogi Fsllsströnd), Rsykjanesvegi 54, Ytri-Njarövfk, sem andaöist á Landakotsspítala 2. apríl, veröur jarösungin frá Innri-Njarö- víkurkirkju, laugardaginn 7. apríl kl. 2. Arnór Jóhannesson, Geröur Hólm, Valgeir Rögnvaldsson. + Móöir mín, tengdamóöir og amma, SIGURLAUG AUDUNSDÓTTIR, Austurgötu 7, Hafnarfiröi, lézt aö St. Jósepsspitala, miövikudaginn 4. apríl. Agla Bjarnadóttir, örn Agnarsson, Bjarni og Agnar Helgi. + Eiginmaöur minn og faöir okkar, ÁRNI YNGVI EINARSSON, fyrrv. framkvamdastjóri aö Reykjalundi, lézt aö Borgarspítalanum aöfararnótt 5. apríl. Fyrir mína hönd og barna okkar, Hlín Ingólfsdóttir. + ÞORBJÖRG HALLDÓRSDÓTTIR, frá Strandarhjáleigu, andaöist aö Hrafnistu 4. aprfl s.l. Vandamenn. + Eiginmaöur minn og faöir okkar, GUÐMUNDUR GRÍMSSON, húsgagnasmföameistari, Laugavegi100, lézt 4. apríl. Stefanía Runólfsdóttir, Úlfar Guömundsson, Guórún Guömundsdóttir. + Innilegar þakkír færum viö öllum þeim, sem vottuöu okkur samúö og vinarhug vegna fráfalls, BIRGIS BERNÓDUSSONAR, Áshamri 75, Vestmannaeyjum. Theódóra Þórarinsdóttir, Aöalbjörg Bergmundsdóttir, börn hins látna og systkini hans. Olafur B. Kristjánsson verkstjóri Fæddur 28. febrúar 1907 Dáinn 30. marz 1979 I dag, föstudaginn 6. apríl, fer fram frá Fossvogskirkju útför Ólafs B. Kristjánssonar, verk- stjóra og netagerðarmeistara. Fyrir nokkrum dögum áttum við Ólafur tal saman, ekki datt mér þá í hug að ég ætti ekki framar kost á að ræða við hann þótt umræðuefn- ið væri, að hann hygðist stytta vinnutimann vegna lasleika, eins og hann orðaði það. Daginn eftir var hann kominn á sjúkrahús vegna alvarlegs áfalls og hann andaðist á Borgarspítalanum 30. marz. Ólafur er fæddur 28. feb. 1907, að Sveinseyri í Dýrafirði. Foreldr- ar hans voru Kristján Jóhannes- son og Guðmunda Guðmundsdótt- ir. Systkini Ólafs eru Una, Guð- mundur og Kristján, sem öll eru á lífi. Þegar Ólafur var 6 ára drukkn- aði faðir hans. Seinni maður Guð- mundu, móður hans, var Benóný Stefánsson og áttu þau fjögur börn. Hálfsystkini Ólafs eru Sig- ríður, Stefanía (látin), Guðbjörg (látin) og Friðrikka. Ólafur gekk í barnaskólann á Þingeyri og síðan einn vetur í skólann á Núpi. 12 ára gamall byrjaði hann að róa á árabátum og síðan stundaði hann sjómennsku á skútum. Þegar hann fyrst fór að heiman réð hann sig á Freyju, en þar var þá skipstjóri hinn lands- þekkti aflamaður Guðmundur frá Tungu. Síðan lá leiðin á togarana. Ólafur giftist 18. maí 1940 Ástu Markúsdóttur frá Ystu-Görðum í Kolbeinsstaðahreppi og byrjuðu þau búskap í Reykjavík. Börn þeirra eru: Ingibjörg, gift Poul Busse véltæknifræðingi, þau búa í Danmörku, og Benóný Markús húsgagnasmiður, giftur Guðfinnu Snorradóttur, þau búa á ísafirði. Síðustu 14 árin áður en Ólafur kom alfarið í land var hann lengst Minning af bátsmaður á togaranum Hilmi, en þar var skipstjóri Jón Sigurðs- son frá Eyrarbakka, einnig var hann bátsmaður hjá öðrum þekkt- um skipstjóra, Halldóri Gíslasyni. 11. febrúar 1947 réðst Ólafur sem verkstjóri til Hampiðjunnar og varð síðan yfirverkstjóri á netaverkstæðinu. Starfsferill hans hjá fyrirtækinu varð því rúm 32 ár. Vegna framúrskarandi dugnað- ar hans og mannkosta er hann nú kvaddur með söknuði. Störf sín öll rækti Ólafur með sérstakri sam- viskusemi, sparaði hann ekki spor- in til að líta eftir að öll net væru vandlega unnin og afgreidd eftir settum reglum. Hann var vinsæll og dáður af starfsfélögum sínum fyrir hreinskiptið hugarfar og einstaka góðvild og tillitssemi við lausn vandamála. Þegar mikið var um að vera og áríðandi að standa við gefin loforð um afgreiðslu var vinnugleði hans slík að loftið var mettað af atorkuvilja og engin lognmolla þoluð í næsta nágrenni, en til þess kom heldur ekki, því vinnugleði hans var smitandi og þá var miklu komið í verk af SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Eg er vel giftur og á þrjú mannvænleg börn. En við eigum lítið af þessa heims gæðum. Hins vegar er nágranni minn ríkur og nýtur velgengni. Hann hefur verið giftur þrisvar sinnum og er mjög upp á kvenhöndina. Hvers vegna hvílir heill yfir sifkum mönnum, en ekki fólki eins og okkur? Mér þykir leitt, að þér skulið spyrja þannig. Samkvæmt bókinni minni njótið þér meiri hamingju en nágranni yðar. Einn ríkasti maður heims — hann hefur fimm sinnum gengið í hjónaband — sagði nýlega: „Eg skyldi gefa allar milljónirnar mínar, ef eg fyndi konu, sem elskaði mig í raun og sannleika." Lítið á: Þér eigið það, sem ekki verður keypt fyrir peninga, góða eiginkonu og þrjú dásamleg börn. Mesti hamingjumaður á þessari jörð var Jesús Kristur. Þó átti hann ekkert, sem hann gat kallað eign sína. „Refir eiga greni og fuglar himinsins hreiður, en mannssonurinn á hvergi höfði sínu að halla." En hann lét eftir sig arfleifð, sem auðgar líf manna allt fram á þennan dag. Granni yðar hefur fengið það, sem hann óskaði sér, og hann hafði lítið upp úr því. + Þökkum Innilega fyrir auösýnda samúö viö andlát móöur minnar, systur okkar og mágkonu, ELÍNBORGAR BRYNJÓLFSDÓTTUR, Grundarstíg 2. Jón Theodór Láruaaon, Sigríöur Brynjólfadóttir, Guólaug Brynjólfadóltir, Ingólfur Þorateinaaon, Kriatin Sandholt, Katrín Brynjólfadóttir, Gíali Brynjólfaaon, Áata Valdimaradóttir. samhentum starfsmönnum. Brást ekki að afgreiðslan færi fram samkvæmt umtöluðu loforði. Á alvörustundum lífsins, þegar við stöndum frammi fyrir hinum mikla leyndardómi, er ekkert nema trúin, sem bjargar frá auðn tilgangsleysisins, Ólafur B. Kristjánsson hafði í ríkum mæli þá eiginleika hugarfars og sálar- lífs, sem gera verður ráð fyrir að séu ekki eingöngu af þessum heimi, heldur sé það eina, sem maðurinn flytur með sér til heilla í starfsama tilveru handan móð- unnar miklu. Við, samstarfsmenn Ólafs hjá Hampiðjunni, sendum Ástu, börn- um þeirra hjóna og öðrum að- standendum innilegar samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning hans. Hannes Pálsson. Dáið er eitt af dýrfirsku og tápmiklu börnunum mínum, úr barnaskólanum mínum í Þing- eyrarhreppi, hann Ólafur B. Kristjánsson lést í Borgarsjúkra- húsinu, föstudaginn 30. mars. Hann Óli, eins og hann var kallaður í vinahópi, var fæddur að Arnarnúpi í Þingeyrarhreppi, 28. febrúar og var fullra 72 ára. Foreldrar hans voru Kristján Jóhannesson, skipstjóri, og Guð- munda Guðmundsdóttir. Föður sinn missti hann er hann var þriggja ára. Einn af „Árna pungum", sem kallaðir voru og hann skipstjóri á, fórst með manni og mús í mynni Dýrafjarðar. Síldin, en svo hét skipið, var með minnstu einmöstrungum Árna Jónssonar á Isafirði og gert út þaðan. Blessuð sé minning þeirra allra. Móðir Óla dvaldi næstu ár að Arnarnúpi, enda var móðir hennar þar og systir er réð þar búi. Tengdamóðir og stjúpi voru líka á næsta leiti. Þegar Síldin fórst, hafði Óli eignast systur, er Una heitir, og bróður, Guðmund, og var móðir hans þunguð að þriðja barninu, er Kristján heitir. Þau búa öll í Reykjavík og sakna nú góðs bróð- ur. Þannig var nú líf margrar sjó- mannskonunnar á Vestfjörðum í þá daga og víðar, því miður. Eftir þetta flutti móðirin, Guðmunda, inn að Sveinseyri í sama hreppi með börnin sín þrjú. Guðmundur var tekinn í fóstur af Halldóru Gestsdóttur, sem einnig varð ekkja í sama sinn. Guðmundur Matthíasson var nefnilega stýri- maður á „Síldinni", en barnlaus þá. Móðir Öla réð til sín ráðsmann, er Benóní Stefánsson hét, sem varð síðari maður hennar og barn- anna mesta gæfa. Undir hans og mömmu sinnar handleiðslu ólust þau upp og eignuðust fjórar hálf- systur. Þessi börn áttu skólagöngu í forskólann í Haukadal, þar sem ég, sem þessar línur rita, átti að heita kennarinn. Hann Óli var ekki hár í loftinu, varð þó að ganga í snjó og yfir hættulega læki að fara, en fósturfaðir Óla var vak- andi yfir velferð hans, jafnt og sinna eigin dætra eftir að þær fæddust. Sennilega hefur Óli verið frekar seinþroska, enda meira gefinn fyrir líkamlegu störfin en þau andlegu. Þetta breyttist, hann hafði orðið gaman af lestri góðra bóka. Eins og vani var unglinga á þessum árum, tók Óli heitinn fljótt þátt í störfum sveitamennsk- unnar, en snemma hneigðist hug- urinn að sjónum, enda ekki að öðru að hverfa hjá drengjum í Dýrafirði. Máltækið segir „Margur er knár þó hann sé smár“. Það var sannleikur um Óla. Hann var ekki í vandræðum með að fá skipsrúm og ungur að árum komst hann t.d. til Guðmundar í Tungu, dugnaðar- og afkastamannsins mikla og af honum dáður. Eftir að Óli hætti sjómennsku hefur hann unnið að netagerð hjá Hampiðju Reykjavík- ur og þar mikils metinn. Ég flyt eiginkonu, börnum og systrum dýpstu samúðarkveðjur frá mér og fjölskyldu minni. Ég veit að þau eiga öll miklar og hugljúfar minningar að geyma. Blessuð sé minning Óla. Ég veit að hann á góða heimvon til æðri heima. Þ.J.E.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.