Morgunblaðið - 06.04.1979, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 06.04.1979, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979 VtK> MOBöJNf Mfcinu GRANIGÖSLARI oOO 00°°ö Lo°°°o% Y°°\ o‘ °ooo° Oooo0 MOVL£- Ertu búin að verðmerkja dósirnar? BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Ein af nútima sagnvenjunum, sem margir aðhyllast er fjöl- merkingaropnunin 2 tiglar, venjulega kölluð „Multi“. Opnun þessi getur haft margar merking- ar en algengast er þó, að f slíku tilfelli eigi opnarinn mjög veika opnun með sexlit í öðrum hálit- anna. Oft er erfitt að verjast með nákvæmni gegn slíkri opnun en félagi opnarans getur einnig lent í vafastöðu. Spilið í dag kom fyrir í meist- aramóti Danmerkur og notuðu austur og vestur þessar sagnvenj- ur. Austur gaf og aðeins hans vængur var á hættu. Norður S. 98653 H. - T. D653 L. G873 7981 ©PIB COPINBICIM COSPER Forskrift fyrir ofdrykkjumenn I Dagblaðinu 24. febr. er grein eftir Sigurð Gissurarson um nýjungar í baráttunni við of- drykkjuna. Með því að leiðrétta forskrift drykkjufólks á að vera hægt að gera alkohólistann að hófdrykkjumanni. Slíkar fréttir gleðja alla og ekki síst þá, sem af sjúkdómnum þjást. Af skrifum S. Gissurarsonar má ætla að for- skrift sé eitthvað, sem einn gefur öðrum til eftirbreytni. Af öðrum bókum en Forskriftarbók Claude Steinar, sem ég hef því miður ekki lesið, er alkohólismi skilgreindur sem andlegur, líkamlegur og félagslegur sjúkdómur. Þessu hefi ég og fleiri trúað. Nú vænti ég þess að heilbrigðisyfirvöld ranki við sér og setji upp endurforskriftarstofn- un í samráði við Kleppsspítala, lögreglustjóra og skattayfirvöld. Kleppsspítali sér þá væntanlega um andlegu hliðina og þá líkam- legu en lögreglustjóri „prógrammar" alkohólista með glæpahneigð og skattayfirvöld leiðrétta prógramm þeirra, sem misskilja skattalögin. Eitthvað ætti það að létta á sakadómstólum og fangelsum ef nægir að leiðrétta forskrift handhafa ávísanahefta með hringmyndunarkvilla. Með grein sinni vill Sigurður Gissurar- son meina að brátt muni koma að því að gömlu „alkarnir" okkar komi inn á vínsölurnar og inn á barina, taki einn lítinn og skundi síðan út t.d. í vinnuna. Þegar verið var að forskrifa mig og fleiri í bernsku var mér ítrekað sagt að ekki mætti trúa öllu, sem stæði á prenti. Þeir sem forskrif- uðu mig voru foreldrar mínir og kennarar og aðrir umhverfis. Auk þessa þá stalst ég til að forskrifa mig svolítið sjálfur. Vegna þessara gömlu forskriftar, þá á ég bágt með að trúa forskriftarpostulum nútímans og hvað alkohólista varðar, þá trúi ég alls ekki að þeirra lækning sé fólgin í öðru en bindindi. Hins vegar má trúa þegar búið er að sanna og væntan- lega verður ekki skortur á sjálf- boðaliðum í 10.000 manna hóp á Islandi. Legg ég þá til að hver og einn fái forskrift ásamt flösku á kostnað ríkissjóðs eða vínstúku- miða og ef „alkarnir" standast Vestur S. D2 H. 7 T. ÁK942 L. ÁKD52 Austur S. ÁK4 H. G109854 T. GIO L. 94 Suður S. G107 H. ÁKD632 T. 87 L. 106 Vinna mátti hvaða game sem vildi á spil austur-vesturs en sagnirnar tóku einkennilega stefnu. Austur Suður Vestur Norður 2 T 3 H 4 Spaðar (!) P P P Vestur sá á spilum sínum, að austur átti spaðalitinn, þar sem suður stökksagði í hjartanu. Var þannig val lokasagnarinnar skilj- anlegt. Þegar norður spilaði út tígul- þristi mátti vestur vita, að norður átti ekki til hjarta. Tían tók slaginn og afköstin í þrjá tromp- slagi bentu til fimmlitar á hendi norðurs. Þar með var skipting spilanna orðin nokkuð ljós og- vinningsleið í augsýn. Tígulkóngur og síðan fjórum sinnum lauf hefði skilið norður eftir inni með aðeins spaðaslagina tvo og D6 í tígli. Og ekki annað hægt en að láta vestur fá tvo síðustu slagina. En ef til vill var vestur of óánægður með þessa lokasögn og tapaði spilinu þegar hann svínaði tíglinum. Hverfi skelfingarinnar Eltir Eilen og Bent Hendel Jóhanna Krist|ónsdóttir snéri á islenzku. 16 og margir héldu síðan áfram inn í skóginn. En hafi einhvcrj- ir farið í þessar gönguferðir í þeirri von að komast á slóðir morðingjans urðu allir þeir fyrir vonbrigðum. Ekkert af því sem á vegi vegfarenda varð gaf neina vísbendingu sem hneig í þá áttina. Lögregluforinginn var að brjóta heilann um málið þenn- an dag eins og gefur að skilja en hann varð að viðurkenna að hann hafði enn ekkert sem gaf honum hendingu. Hann hafði rcynt að fylgjast með þvi úr skógarjaðrinum hvaða útsýni fengist í áttina til húss hinnar myrtu. begar Inger Abiigaard hafði hlcypt Caju út hafði óþekktur maður scm stóð á þeim slóðum sem hann var nú. séð hinni nöktu bregða fyrir í dyrunum. Andartaki síðar hringir hann hjöllunni og frú Abilgaard opnar án þess að detta í hug annað cn að Caja hefði gleymt einhverju og væri að koma aftur. Ókunni maður- inn grípur fyrir munn hennar og neyðir hana inn í stofuna þar sem hann rekur endahnút- inn á ódæðisverk sitt. Já, lík- lega hafði þetta gengið ein- hvern veginn þannig fyrir sig. Og hvernig lögreglan ætti ein- hvern tíma að komast á slóð morðingjans var lögreglu- manninum Mortensen alger- lega hulin ráðgáta að svo stöddu. begar síðustu ljósin voru slökkt f húsunum f Bakka- bæjarhverfinu á laugardags- kvöldið gekk Mortensen lög- regluforingi hvfldarlaust fram og aftur hcima f stofunni sinni og braut heilann. bað var eitt- hvað sem hann hefði átt að skynja, eitthvað sem var að bærast f undirmeðvitund hans en hann gat ekki hent reiður á. bað plagaði hann. Og þess vegna gat hann ekki slappað af. Úti á íkornavegi — í númcr fimm — gat Lis Rugaard ekki siappað af heldur. Hún hafði þrautir f maganum og aðkenn- ingu að sinadrætti f fótunum og hún var að verða vitlaus úr brjóstsviða. Hún gekk lfka um gólf og þess vegna virti hún ósjálfrátt fyrir sér hluta af hverfinu þcgar hún gekk fram- hjá glugganum. Allt f einu nam hún staðar og hélt niðri í sér andanum. Var ekki einhver á ferli þarna úti? Dimm vera sem hallaði sér fram og virtist vera á hraðferð? Lis lagði við hlust- ir. bað var aldrei kvcikt á götuljósunum f hverfinu eftir miðnætti. bess vegna sá hún ekki veruna þarna úti. En hún sá að einhver var á ferli. Lis var sannfærð um að hún heyrði fótatak nokkrum sekúndum síðar en það hvarf sfðan í myrkrið. ( húsinu á horninu, númer tuttugu og átta á Prumulavegi, lyfti Cora höfði. Cora var varð- hundur Villumsen-fjölskyld- unnar. Á nóttunni var hún í forstofunni. Hún svaf þar en aldrei fastar en svo að hún var glaðvakandi f sömu andrá og framandi hljóð nálgaðist hana. Ný lyfti hún höfði. Augun voru glaðvakandi og hún sperrti eyrun. Svo lagðist hún fram á lappir sér og urraði mjög lágt. Næstum allir í hverfinu sváfu. Einnig Kirsten Elmer, kona rithöfundarins. Hún lá f hjónarúminu þeim megin sem vissi að dyrunum. Dyrnar fram stóðu í hálfa gátt. bær voru alltaf hálfopnar. bað var til að bæta loftræstinguna í svefnher- berginu. Upp á sfðkastið var Kirsten farið að dreyma. Und- arlegur draumur, sem var kannski ekki beinlfnis mar- tröð, en vakti með henni þung- an óhugnað. Draumurinn var ekki. langur. En sálfræðingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.