Morgunblaðið - 06.04.1979, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979
Meðfyljíjandi mynd er af meistaraflokksliði KR, sem vann það afrek í vetur að vinna 2. deildar keppnina í
handknattleik og leikur því í þeirri fyrstu næsta keppnistímabil.
Vesturbæjarliðið hefur verið mikið í sviðsljósinu í vetur á 80 ára afmælinu. Einkum hefur það verið
körfuboltadeildin sem hefur safnað að sér bikurum, karlaliðið bæði íslandsmeistaratitli og Bikartitli og
kvennaliðið varð nýlega íslandsmeistari. Nú bíða menn spenntir eftir sumrinu og hvað knattspyrnuliðið
býður upp á, en það vann sigur í 2. deild á síðasta keppnistímabili. Ljósm.: Kristján.
Hlauparar á
hringveginum
FRÍ, í samvinnu við öll ungmenna-
sambönd og um ailt land, gengst f
sumar fyrir Landshlaupi FRI, en
það er boðhlaup eitt mikið og er
hlaupið hvorki meira né minna en í
kringum landið. Það er engin
smáræðis hlaupasveit sem væntan-
iega mun taka þátt f hlaupi þessu,
fjöldi hlaupara gæti orðið allt að
2500. FRÍ sendi öllum samböndum
landsins bréf, þar sem áhugi
þeirra var kannaður og reyndist
hann mikill og hafa öll sambönd
landsins sent jákvæð svör tii
FRÍ-manna. Hvert samband mun
leggja til hlaupara á sfnu yfirráða-
svæði. Sprettirnir sem hvert sam-
band fær til umráða eru mislangir.
t.d. hlaupa reykvfskir hiauparar
aðeins samanlagt 10 kflómetra og
hlauparar UMSK enn minna eða 5
kflómetra, á sama tíma og hlaupar-
ar ÚÍA á Austfjörðum þurfa að
afgreiða 371 kflómetra.
Hlaupið hefst í Fossvogi klukkan
14.50 þann 17. júní og er ætlunin hjá
FRI að hafa einhvers konar viðhöfn
þar í samráði við þjóðhátíðarnefnd.
Áætlað er síðan að hlaupinu ljúki
kl. 8.20 á Laugardalsvelli 26. júní.
Telja FRI-menn að hér sé um að
ræða lengstu íþróttakeppni sem
fram hefur farið hérlendis.
Þessar hugmyndir og fleiri voru
kynntar fyrir fréttamönnum á
fundi hjá FRÍ fyrir skömmu.
FRI-menn voru þar spurðir hver
tilgangurinn með slíku hlaupi væri.
Þeir svöruðu því til, að í fyrstu hefði
einungis verið rætt um þetta til að
auglýsa íþróttir og ánægjuna af að
taka þátt í slíkum óvenjulegum
atburði. Þegar þeir hjá FRÍ hafi
hins vegar farið að athuga málin
kom í ljós að þetta gæti orðið
bláfátæku sambandinu hin ágæt-
asta fjáröflun og ætlaði FRÍ með
ýmsum leiðum að nýta hlaup þetta
til þess að „lækka skuldasúpuna"
eins og einn fundarmanna komst að
orði.
Efst á baugi er að hvert samband
selji sína áheitamiða og fái sjálft
þann hagnað sem inn kemur af
slíku. Þá eru hugmyndir um að selja
auglýsingar, gefa út auglýsingablað
o.fl., en þetta mun allt vera á
hugmyndastiginu. Það má því segja,
að ef af þessu öllu verður, að með
hlaupi þessu nái hámarki maraþon-
fárið sem geisað hefur í vetur.
Skuldir FRÍ nema nú að sögn
FRI-manna um 10 milljónum króna
og þeir áætluðu lauslega að hægt
væri að ná inn svipuðum hagnaði ef
vel væri á spilunum haldið.
— gg.
Sigurður og Jóhann
unnu tvfliðaleikinn
Um síðustu helgi fór fram fjórði
hluti Meistaramóts TBR. Keppt
var í tvfliða- og tvenndarleik karia
og kvenna og voru þátttakendur
um 80 frá 8 félögum víðs vegar að.
Úrslit í mótinu urðu sem hér segir:
B-flokkur:
Tvíliðaieikur karla: Viktor
Magnússon og Einar Sverrisson
TBR, sigruðu Svavar Jóhannsson
og Hilmar Jónsson Gerplu 15/10,
15/10.
Tvfliðaleikur kvenna: Edda
Jónasdóttir Gerplu og Dröfn
• Sigurður Haraldsson ásamt
Jóhanni Kjartanssyni vann tví-
liðaieikinn í meistaraflokki
karia.
Guðmundsdóttir Gerplu sigruðu
Önnu Úlfarsdóttur og Elínu
Guðjónsdóttur TBR, 15/2 og 15/3.
Tvenndarleikur: Edda Jónas-
dóttir og Hilmar Jónsson Gerplu
sigruðu Svavar Jóhannesson og
Dröfn Guðmundsdóttur Gerplu,
15/4 og 15/12.
A-flokkur:
Tvíliðaleikur karla: Ágúst Jóns-
son og Óskar Bragason KR
sigruðu Walter Lentz og Árna
Haraldsson TBR, 15/4 og 15/8.
Tvíliðaleikur kvenna: Bryndís
Hilmarsdóttir og Jórunn Skúla-
dóttur TBR sigruðu Hlaðgerði
Laxdal KR og Þyri Laxdal TBR,
15/11 og 15/5.
Tvenndarleikur: Þorgeir
Jóhannsson TBR og Jórunn
Skúladóttir TBR sigruðu
Skarphéðinn Garðarsson og
Bryndísi Hilmarsdóttur TBR,
15/8, 11/15 og 15/1.
Meistaraflokkur:
Tvíliðaleikur karla: Sigurður
Haraldsson og Jóhann
Kjartansson TBR sigruðu Sigfús
Ægi Árnason og Sigurð Kolbeins-
son TBR, 15/2 og 15/2.
Tvíliðaleikur kvenna: Kristi'n
Magnúsdóttir og Kristín
Berglind TBR sigruðu Lovísu
Sigurðardóttur og Hönnu Láru
Pálsdóttur TBR, 15/8 og 15/6.
Tvenndarieikur: Jóhann
Kjartansson og Kristín Berglind
TBR sigruðu Brodda Kristjánsson
og Kristínu Magnúsdóttur TBR,
16/18,15/10 og 15/5.
Þetta var síðasti hluti Meistara-
móts TBR, 1979. Keppt hefur verið í
öllum greinum og öllum flokkum í
badminton, jafnt ungra sem
gamalla, og hafa keppendur verið
alls yfir 200.
Innanhússmótið á Suö-
urnesjum tókst mjög vel
Knattspyrnufélagið Víðir í Garði
sigraði í tveimur elztu aldurs-
flokkunum sem spiluðu í innan-
hússknattspyrnumótinu sem fram
fór á vegum íþróttabandalags
Suðurnesja um si'ðustu helgi.
Tókst mótið mjög vel í alla staði og
var mikil stemmning og þá
sérstaklega á sunnudeginum, en þá
spiluðu yngri flokkarnir.
Eins og áður sagði sigraði Víðir í
meistara- og fyrsta flokki.
Grindvíkingar urðu í öðru sæti í
meistaraflokki, Njarðvík í þriðja
sæti og Reynir í Sandgerði í fjórða
sæti.
Njarðvíkingar unnu 3. og 5. flokk
en Grindvíkingar 4. og 6. flokk.
Um helgina hefst svo
utanhússmótið. Sandgerðingar spila
gegn Njarðvík og Grindvíkingar
mæta Víði.
AR/ÞR.
Knattspyrnupunktar
WBA-LEIKMAOURINN og lyfja-
hneyksliskappinn Willy Johnstone
hefur pekkst girnilegt tilboð frá
kanadíska stórliöinu Vancouver
Whitecaps og gengur hann til liös
viö félagið í vor. Honum eru boðin
rosalaun og segir hann sjálfur að
hann vseri bjálfi ef hann skrifaði
ekki undir. Johnstone hefur geng-
ið illa á pessu keppnistímabili,
hann hefur ekki komíst í lið hjá
WBA eftir niðurlæginguna í
Argentínu síðastliðiö sumar, peg-
ar hann var rekinn heim með
skömm eftir að hafa kolfallið á
lyfjaprófi fyrir landsleik Skota
gegn Perú.
o o o o
Komið hefur fram, að leikmenn
með spænskum liöum eru peír
hæstlaunuðustu í Evrópu. Kom
petta fram í könnun hjá spænsku
fótboltariti. Leikmenn meö topp-
liðum fá að meðaltaii 200 dali á
klukkustund eða allt í allt 85.000
dali á ári. Bærilegt paö.
Leikmenn ítölsku toppliðanna
eiga einnig fyrir mjólk handa
börnum sínum, peir eru að meðal-
tali með 144 dali á tímann og um
60.000 dali í árslaun. Ekkert fólag
borgar pó betur en belgíska
storliöið Anderlecht, sem borgar
leikmönnum sínum 108.000 dali á
ári. Eigi allfjarri peim eru Kölnarar
sem borga 98.000 á ári.
o o o o
Olíujöfrarnir i Kuwait eru á
höttunum eftir hæfilega fégráðug-
um Þjálfara sem væri um leið fær
um að gera Kuwait að stórveidi í
knattspyrnu. Er næsta víst aö peir
eru að reyna að lokka til sín gamla
manninn Sir Alf Ramsey, sem
gerði Englendinga að heims-
meisturum í knattspyrnu áríð
1966.
o o o o
Sagt var frá pví hér í Mbl. fyrir
skömmu, að gríska knattspyrnu-
sambandið hefði ákveðið að leika
fyrstu deildar leik nokkurn á nýjan
leik eftir gróf dómaramistök. Á
sínum tíma var ekki frá pví greint í
hverju mistökin voru fólgin, en
skal nú úr pví bætt. Paok og
Ethnikos voru að leika mikilvæg-
an leik, staðan var 1—1 og Paok
skoraði pá, 2—1. 6 leikmenn Paok
voru síöan enn að fagna markinu á
vallarhelmingi Ethnikos pegar
leíkmenn síðarnefnda liðsins hófu
leikinn á vallarmiðju, óðu upp og
skoruöu jöfnunarmarkið. Og til
allrar furðu lét dómarinn markið
standa.
o o o o
Norður-amerísku félögin í
knattspyrnu hafa fengið til sín
allmarga breska knattspyrnu-
menn að undanförnu og má t.d.
nefna, að Vancouver Whitecaps,
sem keypt hefur Willy Johnstone
eins og sagt er frá hór aö ofan,
hefur einnig fengið til liðs viö sig
Trevor Whymark frá Ipswich, Ray
Lewington frá Chelsea og Roger
Kenyon frá Everton. Seattle
Spunders hefur keypt til sín Alan
Hudson frá Arsenal, John Ryan og
Jimmy Neighbour frá Norwich og
priðja Norwich-leikmanninn,
markvörðinn Kevin Keelan, hefur
félagið fengið loforð um að fá
lánaðan í sumar.
Þá hefur líö Tulsa Roughnecks
keypt Þá David Nish frá Derby,
Terry Darracott frá Everton og
Wayne Hughes frá West
Bromwich. Bóka má, að fleiri sölur
fylgi í kjölfariö.
o o o o
Þá má að lokum geta pess, að
pjálfari nokkur sem er vel kunnur
hér á landi, Tékkinn Jan Fabera,
hefur verið ráðinn pjálfari hjá
alsírska liðinu Constantine, liði
sem stendur í harðri fallbaráttu.
Skyldi Fabera hafa fengið meö-
mæli frá Breiðabliki?