Morgunblaðið - 06.04.1979, Qupperneq 40
<x
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JKgptttMðfrlfr
ALURA'
FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979
ÞAð var sannkallað stjörnustríð er Marzbúarnir í 6-Z Verzlunarskóla Islands kvöddu skóla sinn og kennara að viðeigandi hætti í gærmorgun.
Framundan hjá þessum Marzbúum eru langar og strangar setur yfir bókunum, en uppskeran verður væntanlega virði erfiðisins á útskriftardegi
í júnímánuði, með prófskírteinin upp á vasann og hvítan koll á höfði. (Ljósmynd Edward Westlund).
Síðasta tilboð Flugleiða til FÍA:
Þaklyfting, sem þýðir allt að
270 þús. kr. hækkun á mánuði
Ragnar Arnalds neitadi ad leggja fram frestunarfrumvarp
Hverfisgötumálið:
Varðhalds-
úrskurð-
ur konunn-
ar kærður
YFIRHEYRSLUR fóru fram í gær
yfir Þráni Kristjánssyni, sem viður-
kennt hefur að hafa hanað Svavari
Sigurðssyni 1 húsinu að Hverfisgötu
34 s.l. sunnudag. Yfirheyrslunum
verður fram haldið 1 dag, að sögn
Þóris Oddssonar vararannsóknar-
lögreglustjóra.
Sambýliskona Svavars heitins,
sem situr einnig í gæzluvarðhaldi
vegna sama máls, hefur sömuleiðis
verið yfirheyrð. Þórir Oddsson sagði
að margt benti til þess að konan ætti
ekki aðild að þessu voðaverki. Konan
hefur kært gæzluvarðhaldsúrskurð-
inn til Hæstaréttar og er úrskurðar
hans að vænta mjög fljótlega.
Drangur
kom ekki
rjómanum
til skila
Siglufirði, 5. aprfl.
DRANGUR var væntanlegur
hingað í dag með ýmsan varn-
ing, þar á meðal mjólk og
rjóma, en skortur er orðinn á
þeirri nauðsynjavöru hér í
Siglufirði.
Drangur komst langleiðina
inn í höfnina, en þegar hann átti
eftir 100 metra að hafnargarðin-
um varð hann stopp og komst
ekki lengra. Varð skipið að snúa
við aftur mörgum húsmæðrum
hér til sárra vonbrigða, því að
fermingar verða hér um helgina
og sýnt er að rjómatertur verða
með fæsta móti í fermingarveizl-
unum að þessu sinni.
Fólk í vanda
FIMMTÁN bílar voru um miðnætti
tepptir á Sandskeiði rétt neðan við
Litlu kaffistofuna. Bflar frá Slysa-
varnafélaginu voru þá á leiðinni
fólkinu til aðstoðar.
Allgóð færð var austur fyrir Fjall í
gærdag, en undir kvöld byrjaði að
skafa. Um klukkan 22 var færð orðin
mjög þung og var Suðurlandsvegi
fljótlega lokað vegna ófærðar. Þá
höfðu 15 bílar teppst í ófærðinni, en
aðstoð var á næsta leiti eins og áður
sagði.
FLUGLEIÐIR hafa gert félögum í
Félagi íslenzkra atvinnu-
flugmanna tilboð um þaklyftingu
frá 1. aprfl að telja, sem þýðir
launahækkanir fyrir flugmenn á
bilinu frá 15 og upp í 24%. Eru
dæmi þess að þessi þaklyfting veiti
þeim flugmönnum, er hæst hafa
laun, allt að 270 þúsund króna
launahækkun á mánuði. Flugmenn
höfnuðu þessu tilboði í fyrradag,
en Flugleiðir sendu það aftur
skriflegt og fjölluðu flugmenn
m.a. um þetta á félagsfundi í
gærkveldi.
Staða málsins er þannig að í raun
er málið margþætt. Flugmenn hafa
krafizt jafnlaunastefnu og hefur
orðið samkomulag um að setja hana
í gerðardóm. Þar inni í myndinni er
að launaþakinu verði lyft eins og
hjá öðrum þjóðfélagsþegnum, enda
hafa þeir fengið minni hlutfallsleg-
ar hækkanir á liðnu ári en aðrir. Þá
hafa blandazt inn í þetta krafa um
störf á nýrri Boeingþotu, verði hún
keypt, og störf hjá Arnarflugi. Upp
úr samningafundinum slitnaði í
fyrradag, er rætt var um nýju
Boeingþotuna.
I dag mun Magnús H. Magnússon
félagsmálaráðherra leggja fram á
Alþingi frumvarp um að frestað
skuli öllum verkfallsaðgerðum FÍA
fram til 1. október. í gær var farið
fram á það við Ragnar Arnalds
samgönguráðherra, að hann legði
frumvarpið fram, en hann neitaði,
þar sem ráðherrar Alþýubandalags-
ins töldu óeðlilegt að hann gerði
það, slíkt ætti að vera hlutskipti
félagsmálaráðherra, sem einn hefði
haft afskipti af deilunni af
ráðherrum ríkisstjórnarinnar.
Björn Guðmundsson, formaður
FÍA, sagði í gær í samtali við
Morgunblaðið að sér fyndist fyrir-
ætlanir ríkisstjórnarinnar fáran-
ÁLAGNINGARRLGLUR í smá-
sölu breytast í dag, þar sem
ríkisstjórn hefur heimilað
hækkun álagningar. Samkvæmt
upplýsingum Magnúsar E.
Finnssonar, framkvæmdastjóra
Kaupmannasamtaka íslands,
mun þessi hækkun valda 3 til
4% hækkun á útseldri vöru eftir
því hver varan er. Hann kvað
þessa hækkun vera metna innan
við eitt vísitölustig.
Hækkun þessi mun ná til allrar
almennrar matvöru, en Magnús
kvað aðalbreytinguna verða að því
er varðar skófatnað, en þar hafa
verið sameinaðir flokkar og er
erfitt að meta bein áhrif þeirrar
hækkunar. Á þeim hámarksverðs-
vörum, sem verðlagsstjóri ákveður
verð á, er hækkunin 14% ofan á
álagninguna, en þær vörur voru
fyrir með mjög lágri álagningu og
veldur 1 til 4 prósentustiga hækk-
legar og hefðu þær engin áhrif haft
á fundinum í gærkveldi. Þeir hefðu
hins vegar rætt tilboð Flugleiða og
ætluðu sér að greiða um það
atkvæði á fundinum, sem stóð enn
klukkan 00.30, þegar Morgunblaðið
fór í prentun.
un álagningar. Endanlegt vöru-
verð hækkar þá um 3 til 4%.
Þá kvað Magnús vexti á vöruút-
reikningi hækka um 1,5 prósentu-
stig, frá 1,5 í 3%, þá hækkar
grunnurinn. Er sú hækkun með-
talin í þeim tölum, sem nefndar
voru í sambandi við vöruverðs-
hækkunina gagnvart neytendum.
r
Isinn braut 3
staura í lönd-
unarbryggju
Siglufirði, 5. apríl.
ÍSINN hefur í kvöld fært sig upp á
skaftið hér í firðinum og er nú
byrjaður að brjóta niður aðallönd-
unarbryggjuna hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins. Þrír burðar-
staurar höfðu gefið sig í átökunum
við ísinn og ef þrýstingurinn eykst
enn, kann verr að fara.
- mj
Ingólfur Ingólfsson, forseti FFSI:
Kröfum okkar verður
fylgt eftir af hörku
„VIÐ viljum til þrautar reyna að
þoka málinu lengra, áður en grip-
ið verður til aðgerða,“ sagði Ing-
ólfur Ingólfsson, forseti Far-
manna- og fiskimannasambands
íslands í samtali við Morgunblað-
ið eftir að fulltrúar sjómanna
höfðu komið af fundi með vinnu-
veitendum um kaup og kjör sjó-
mannastéttarinnar. „Kröfum okk-
ar verður fylgt eftir af hörku, en
ég vona að viðræður verði góðar
og árangursríkar, svo að ekki
komi til aðgerða,“ sagði Ingólfur.
Ingólfur kvað það hafa komið
fram í upphafi fundarins, að
Vinnuveitendasambandið hefði
samþykkt ályktun um að það gæti
ekki léð máls á neinum kauphækk-
unum. Hins vegar lýstu fulltrúar
Vinnumálasambands samvinnufé-
laganna því að engin slík samþykkt
hefði verið gerð hjá þeim og þeir
neituðu ekki að ræða kröfur sjó-
manna, en þeir töldu hins vegar
mikla annmarka á kauphækkunum
í kjölfar aðgerða ríkisstjórnarinn-
ar. Vildu þeir halda áfram viðræð-
um um breytt launakerfi, en Ingólf-
ur kvað þá breytingu óhjákvæmi-
lega fela í sér hækkanir.
Næsti samningafundur hefur
verið boðaður á mánudag.
Álagning í smásölu hækkar í dag:
Hækkun útseldrar
vöru verður 3—4%