Morgunblaðið - 08.04.1979, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 08.04.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1979 45 Umsjón: Séra Jón Dalbú Hróbjartsson Séra Karl Siyurbjörnsson Pálmasunnudagur Kvöldmáltíðin. — Altaristaflan í Ólafsvallakirkju á Skeiðum. Máluð af Baltazar. Pistill Fil. 2,5-11: (Jesús Kristur) kom fram að ytra hætti sem maður. lítillækkaði sjálfan sig. og varð hlýðinn allt fram í dauða. já. fram í dauða á krossi. Guðspjall: Matt. 21,1—9: .. .allur þorri manníjöldans breiddi yfirhafn- ir sínar á veginn en aðrir hjuggu lim af trjánum og stráðu á veginn en mannf jöldinn ... hrópaði og sagði: Hósanna. Davíðs syni! Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins! Hósanna í hæst- um hæðum! Kvöldmáltíðin Þetta gerðist að kvöldi fimmtudags, daginn áður en Jesús frá Nazaret lét líf sitt á krossi. Jesús var nýstiginn upp frá borðum ásamt ellefu af nánustu lærisveinum sínum, postulunum. Þeir gengu í myrkri næturinnar út fyrir borgina, yfir Kedron dalinn og út í garðinn Getsemane. Einn postulanna, Júdas Ískaríot, hafði farið í skyndi úr boðinu fyrr um kvöldið og var í þann veginn að leiða herlið út í garðinn til að handtaka Jesú þar sem hann baðst fyrir. I kvöldboði því, sem Jesús efndi hér til, átti hann sína síðustu máltíð og samverustund með lærisveinum sínum. Jesús var staddur í Jerúsalem til þess að halda þar upp á páska- hátíðina. Gyðingar héldu páska til þess að minnast eins mikilvægasta atburðar sögu þeirra, flóttans frá Egyptalandi. Þar var þjóðin lítil og þrælkuð af Faraó, en tókst þó á undursamlegan hátt að komast undan, undir forystu Móse. Mikil undur gerðust, er þessi atburður átti sér stað. Plága herjaði á Egypta, en Gyðingar fórnuðu lambi, ruðu blóði á dyrastafi húsa sinna og lokuðu sig inni, og plágan fór fram hjá. Guð hafði gripið inn í líf Gyðinga, og upp frá því minnt- ust þeir þessa atburðar árlega um páskana, líkt og við höldum jólahátíð til að minnast þess hvernig Guð greip inn í líf okkar í Jesú Kristi. Páskamáltíðarinnar var neytt á aðfangadag páska. Páskadag- ur var ætíð á laugardegi, svo páskamáltíðin var etin á föstu- dagskvöldi. Mikill asi var í Jerúsalem dagana fyrir páska, eins og í jólaösinni hjá okkur. Fjöldi karlmanna var á götunum og ýmist leiddu þeir eða báru lifandi lömb, er þeir voru á leið með til musterisins. Þar var þeim slátrað og mörnum brennt, sem fórn, en blóðinu stökkt á fórnaraltarið. Síðan tók eigandinn kjötið og fór með það heim, en við páskamáltíðina kom svo fjölskyldan saman og át lambakjöt, rétt eins og Gyðingar gerðu forðum í ánauð sinni i Egyptalandi. Til þess að betur skiljist, hvað hér var um að vera, verður að hafa það hugfast, að lambið, sem slátrað var, dó í stað barnsins, þ.e.a.s. þegar pestin drap börn Egypta, felldu Gyðingar lamb. Lambið dó í stað eigandans. Eigandinn átti skilið að deyja vegna synda sinna, en Guð tók lambið gilt í stað eigandans. Áður en máltíðin hófst, dýfðu allir höndunum í vatn, en það var til hreinsunar, ekki vegna óhreininda, heldur trúarlegs eðlis. Síðan var sezt til borðs hjá þeim, sem höfðu efni á að vera við borð. húsbondinn sat við mitt borðið og stjórnaði máltíð- inni. Fyrst var sunginn lofsöng- ur og húsbóndinn flutti borð- bæn. Voru þetta reyndar hvers- dagslegir siðir Gyðinga, en nú hafðar sérstakar hátíðabænir. Venja var að bera steikt lambakjöt á borð á páskum, vín í fjórum krúsum, ósýrt eða óhefað brauð, einna líkast hrökkbrauði, því svo var mikill asinn á ísraelsmönnum forðum, að ekki var unnt að sýra brauðin og láta þau lyfta sér áður en þau voru bökuð. Skál stóð á borðinu með söltu vatni, til að minna á tíð þjóðarinnar, er hún grét hlutskipti sitt í þrældómi. Einnig var skál með sérlega beizkum jurtum sem tákn er minnti á erfiðleikana, sem þjóð- in hafði orðið að þola. Húsbóndinn hafði svo yfir Pálminn er tákn sig- urs og gleði. Sigur- sælum konungum var fagnað með því að veifa pálmagreinum. formála, eins konar inn- setningarorð, þar sem hann minnti á handleiðslu Guðs, hvernig hann hafði leitt þjóðina út úr þrældómi og síðan útdeildi hann eða skammtaði öllum viðstöddum matinn. Síðasta kvöldmáltíð Jesú var páskamáltíð, en þó með mikil- vægum afbrigðum. Hún var fyrst og fremst degi of snemma, eða á fimmtudegi, og guðspjöll- in minnast ekki á, að þar hafi verið neytt lambakjöts, og er helzt að sjá, að svo hafi ekki verið. Heldur útdeilir Jesús aðeins víninu og brauðinu og breytir auk þess út af hinum venjulega formála, sem allir karlmenn í ísrael, komnir til vits og ára, kunnú utan að, en fer þess í stað að tala um sinn eigin dauða og að upp frá þessu muni þeir eta minningarmáltíð um hann. Þetta hefur óneitanlega allt komið mjög flatt upp á læri- sveinana og komið þeim mjög einkennilega fyrir sjónir. A.m.k. einum þeirra, Júdasi, var alveg nóg boðið og fór út í miðju kafi. Um margt hafa þeir hlotið að hugsa daginn eftir, er Jesús hékk deyjandi á krossinum og síðbúnir Jerúsalembúar hröð- uðu sér til musterisins til þess að fá páskalambi sínu slátrað. Rétt eftir að Jesús var lagður í gröfina hófst helgin, og fólk í hverju hreysi söng um páska- lambið, sem hafði verið slátrað, um lambið, sem bar synd þeirra. Eftir upprisu Jesú Krists frá dauðum, varð hin síðasta kvöld- máltíð postulanna með Jesú þeim dýrmæt reynsla, og þeir skildu þá, hvað Jesús hafði átt við. Kvöldmáltíðin var þeim hin nýja páskamáltíð. Nú var ekki lambi slátrað lengur til að friðþægja fyrir syndir manna. Jesús var lamb Guðs. Jesús hafði fært þeim fyrirgefningu Guðs. Kvöldmáltíðarinnar skyldi neytt með lotningu fyrir Kristi, með bæn um fyrirgefn- ingu syndanna og með gleði vegna kærleika Guðs. Þannig neytum við hinnar helgu máltíðar enn þann dag í dag, vegna Krists, sem helgaði og gaf allt sitt líf okkur, til þess að leiða okkur til Guðs. BibUulestur vikuna 8. —14. apríl Sunntidnxiir £!. apríl Jóh. 12: 1-lfí Múnuditfíur 9. apríl Jóh. 1$: 28—10 briöjudayur 10. apríl Lúk. 23:13-25 MidvikudaKur 11. a príl Matt. 27: 27-31 Fimmtudaffur 12. apríl Mark. 15:21 -32 Föstudagur 13. apríl Mark. 15:33-11 Lauftardattur 11. apríl Matt: 27:57-66 Siyuröur Pdlsson AUDROTTINSDEGI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.