Morgunblaðið - 25.04.1979, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. APRIL 1979
7
Vandaö og
athyglisvert
þjóömálarit
Samband ungra Sjálí-
stæðismanna gefur út
vandað tímarit um pjóö-
mál og menningarmél,
Stefni, sem erindi á til
alls frjálshyggjufólks í
landinu. í síðasta tölu-
blaði (1,—2. tbl. ’79) eru
fjölmargar ritgerðir, sem
helgaðar eru efninu
„Frjálshyggja og alræði“.
Fjalla pær um samnefnda
bók Ólafs Björnssonar
hagfræðiprófessors,
einstaka pætti hennar og
áhrif á pjóðmálaumræðu
hér á landi. Pétur J.
Eiríksson hagfræöingur
segir í lok greinar sinnar
að umræöurnar um hag-
kerfin tvö, sem Ólafur
Björnsson hafi blásið lífi í
með bók sinni „hafi leitt í
Ijós fjölmörg atriði, sem
benda til ótvíræðra kosta
markaðskerfisins fram
yfir miðstýrt kerfi, séð frá
hagfræðilegu sjónar-
miði.“ Hann segir „pað
mikilvægt atriði að frjáls-
hyggjumenn gefi gaum
hagfræðilegum undir-
stöðuatriðum lífsskoðun-
ar sínnar, ekki síður en
pólitískum og félags-
fræöilegum.“
Pétur J. Eiríksson segir
í grein sinni: „Friðpæging
einstaklingsins veltur á
prennu: 1. að samræmi
sé milli framleiöslumark-
miða og óska eínstak-
lingsíns. 2. að samræmi
sé milli raunverulegs
sparnaðarhlutfalls og
pess hlutfalls, sem
einstaklingarnir óska eft-
ir. 3. aö samræmi sé milli
vinnu í reynd og óska
einstaklinga um hlutfall
milli vinnu og fritíma.
Markaðskerfið sér sjálf-
virkt um að fyrsta atriö-
inu sé fullnægt en mið-
stýrt hagkerfi fullnægir
pví tæpast og pá aðeins
með prautum. Neytenda-
friðpæging samkvæmt
tveim síðarí atriðunum á
sér einungis stað í sósí-
ölsku kerfi komi til
mínnkun í hagvaxtar-
hraða. Því eins og við
höfum séð getur
sósíalskt hagkerfi aðeins
aukið hagvöxt fram yfir
markaðskerfið með pví
móti að gengið sé gegn
óskum neytenda um
hlutfall sparnaöar og
neyzlu og vinnu og frí-
tíma og Því einnig gegn
neytendafriðÞægingu."
„Sætsúrber"
Davíö Oddsson borgar-
fulltrúi varar m.a. við
misnotkun hugtaka, er
hann fjallar um viðfangs-
efnið.
Hann segir: „Þess-
um mönnum og mörgum
öðrum nægir ekki aö sjá
að sósíalisminn hefur
hvarvetna borið með sér
frelsisskerðingu og kúg-
un. Þeir falla fyrir kenn-
ingum um að hasgt sé að
ná fram „annars konar“
sósíalisma, — lýðræðis-
legum sósíalisma. En
einmitt slíkt glassúr á
ógeðfelld hugtök sýnir
glöggt, að höfðað er til
manna, sem ekki mega af
frelsinsu sjá og vilja setja
Þaö í öndvegi. Þeir hafa
hins vegar ekki áttað sig
á aö sósíalismanum,
alræðishyggjunni fylgir
óhjákvæmilega miðstýr-
ing, sem getur ekki átt
samlíf við víðtækt
persónufrelsi. Hugtakið
stenzt pví naumast mikið
betur en hugtakið sæt-
súrber. Ólafur Björnsson
gerir sér grein fyrir að
bók eins og hans verður
seint eða aidrei almenn
iesning. En hún gefur
áhugamönnum góðan
styrk og er með lýsandi
dæmum. og paö eru ein-
mitt áhugamennirnir,
sem hljóta að leggja
mestan skerf til opin-
berra umræðna og Þeim
erpví að mæta, Þegar
glassúrhugtakafræðing-
arnir koma til leiks."
_J
Baóherbergisskápar
Glæsilegir badskápar
Margar geröir og stæröir
Byggingavörur
Sambandsins
Suðurlandsbraut 32 ■ Simar 82033 ■ 82180
Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim, sem minntust
mín á 70 ára afmælisdegi mínum 13. apríl sl. með
heimsóknum, gjöfum og heillaóskum. Guö blessi
ykkur öll.
Sigurður Magnússon frá Þórarinsstöðum.
Dómara-
námskeið
Dómaranámskeið í íþróttagreinum. íþróttaráö
L.H. efnir til námskeiðs fyrir íþróttadómara á
félagssvæöi Fáks á Víöivöllum laugardaginn 28.
apríl. Námskeiöiö hefst kl. 9.30 og er haldið í
sambandi viö íþróttadeildarkeppni Hestamanna-
félagsins Fáks.
Áríöandi er aö þeir sem dæmt hafa undanfarin
keppnistímabil mæti vegna væntanlegra dóm-
starfa í sumar.
Skráning fer fram á skrifstofu L.H. í Félagsheimili
Fáks viö Elliðaár kl. 13—17 dag hvern, sími
86999. Dómaraskírteini veröa send verðandi
dómurum eftir þetta námskeiö.
íþróttaráö L.H.
Vormót og
varkaupstefna
hestamanna á Suöurlandi veröur föstudag og laugar-
dag 4. og 5. maí á Hellu. Dæmdir veröa tamdir
stóöhestar sem ekki hafa komist í ættbók og tekin
veröa til sölu tamin hross af aöildarfélögum.
Þátttaka stóöhesta tilkynnist Magnúsi Finnbogasyni,
Lágafelli. Þátttaka söluhrossa í Rangárvallasýslu
tilkynnist Guöna Jóhannssyni, Hvolsvelli.en í
Vestur-Skaftafellssýslu, og Árnessýslu til formanna
Hestamannafélaganna.
Þátttaka tilkynnist í síðasta lagi fyrir 1. maí.
________________________Framkvæmdanefnd.
Furumarkaður
í Vörumarkaöinum
Sjón er sögu ríkari
Opiö til kl. 8 föstudag.
Opið frá kl. 9—12 laugardag.
Vorumarkaðurinn hf„
Armúla 1 A. Sími 86112.