Morgunblaðið - 28.04.1979, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979
3
Hækkanir opin-
berra stof nana
og fyrirtækja
UM mánaðamótin hækka ýmis
opinber þjónusta og gjaldskrár
opinberra fyrirtækja, eins og
fram kom í Mbl. í gær. Blaðið
hefur kannað hver hækkunin
verður á einstökum liðum.
Fargjöld Strætisvagna
Reykjavíkur hækka frá og með
deginum í dag að telja að
meðaltali um 25%. Finstök
fargjöld fullorðinna hækka úr
120 í 150 krónur en fargjöld
barna verða óbreytt, 35
krónur. Stór farmiðaspjöld
hækka úr 3000 í 4000 krónur
og verða miðar 34 í stað 32
áður. Lítil farmiðasjöld munu
kosta 1000 krónur eins og áður
en miðum fækkar úr 9 í 7.
Farmiðaspjöld aldraðra hækka
úr 1500 í 2000 krónur, 34
miðar. Farmiðaspjöld barna
með 30 miðum kosta 500
krónur.
Gjöld dagheimila hækka um
7,7%, úr 26 þúsund krónum í 28
þúsund krónur á mánuði fyrir
hvert barn. Gjöld leikskóla hækka
um 14,3%, úr 14 í 16 þúsund
krónur á mánuði fyrir hvert barn
og er þá miðað við fjögurra tíma
dvöl á dag en fimm tíma dvöl
kostar 20 þúsund krónur.
Algengasta tegund sements,
Portlandssement, hækkar úr
32.300 í 39.700 krónur tonnið og
hver 50 kg poki hækkar úr 1615 í
1985 krónur. Meðalhækkun á
sementi er 23%.
Áburður hækkar um 52% miðað
við það verð sem gilti í fyrra-
sumar. Algengustu tegundir
blandaðs áburðar eru Græðir 2 og
Græðir 4. Tonnið af Græði 2
hækkar úr 56.600 í 86.100 krónur
en tonnið af Græði 4 hækkar úr
59.100 í 89.900 krónur, 50 kg poki
af Græði 2 kostar nú 4305 krónur,
kostaði í fyrra 2830 krónur, en
poki af Græði 4 kostar nú 4495
krónur en kostaði í fyrra 2955
krónur.
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi greinargerð frá Eiríki Ás-
geirssyni forstjóra SVR vegna
fargjaldahækkunar fyrirtækisins:
Framlag borgarsjóðs til
reksturs SVR hefði að óbreyttu
orðið 864 milljónir króna á þessu
ári, en verður um 700 milljónir
króna miðað við verðlag í dag og
25% meðalhækkun fargjaldanna.
í fjárhagsáætlun borgarinnar
fyrir árið 1979 var gert ráð fyrir
því, að framlag borgarsjóðs til
reksturs SVR yrði 483.3 milljónir
króna.
Áætlaður reksturshalli eykst því
um nálega 220 milljónir króna í ár
þrátt fyrir 25% meðaltalshækkun
fargjaldanna frá 28. apríl. Frá
þeim tíma hefði þurft að hækka
fargjöld SVR um 60% að meðaltali
til þess að áætlað framlag borgar-
sjóðs héldist óbreytt á þessu ári,
og var það sú hækkun sem sótt var
um til verðlagsyfirvalda.
Heildarframlag borgarsjóðs til
reksturs og eignabreytinga SVR í
ár var upphaflega áætlað 750
milljónir króna, en yrði sam-
kvæmt framansögðu um 970
milljónir króna, ef verðlag héldist
óbreytt til áramóta.
Listsýning
MARÍA Jónsdóttir, Kirkjulæk,
opnar sýningu á verkum sínum í
Eden í Hveragerði í dag, laugar-
dag kl. 9 f.h. Þetta er 4. listsýning
Maríu.
Fjölmenn
útför
FJÖLMENNI var við útför Sveins
Sæmundssonar fyrrum yfirlög-
regluþjóns rannsóknarlög-
reglunnar, er fram fór í gær frá
Dómkirkjunni.
Séra Þórir Stephensen
Dómkirkjuprestur flutti
minningarræðuna og ungir lög-
reglumenn stóðu heiðursvörð við
kistu hins látna í kirkjunni. Söng-
menn úr Lögreglukórnum sungu
sálmana við undirleik dómorgan-
istans, Marteins H. Friðrikssonar.
Gamlir samstarfsmenn Sveins hjá
rannsóknarlögreglunni, báru kistu
hans úr kirkju.
Listahátíð barn-
anna hefst í dag
LISTAHÁTÍÐ barnanna á
Kjarvalsstöðum hefst í dag með
opnunarhátíð kl. 2. Verða þá
opnaðar margs konar sýningar
í báðum sölum hússins, á öllum
göngum. Ávörp flytja Sindri
Skúlason nemandi í Hvassa-
eleitisskóla, Edda Óskars-
dóttir, formaður Félags
íslenzkra myndlistarkennara,
og Kristján J. Gunnarsson
fræðslustjóri.
Sérstakar dagskrár verða
fluttar tvisvar sinnum í dag. Kl.
4 verður dagskrá flutt af
nemendum Fossvogsskóla, sem
nefnist „Við umhverfið og
framandi þjóðir". Og klukkan
20.30 í kvöld flytur Réttarholts-
skóli leikri'tið „Sandkassinn"
eftir Kent Anderson, undir leik-
stjórn Guðmundar Þórhalls-
sonar. Þá leikur skólahljómsveit
Valhúsaskóla „Gaulverjar". Þá
verða sýndar kl. 17 kvikmyndir
gerðar af nemendum Álfta-
mýrarskóla undir leiðsögn
Marteins Sigurgeirssonar.
Listahátíð barnanna, „Svona
gerum við“, er öllum opin og
aðgangur ókeypis.
•VOR-
NAÐUR
franskt/ítalskt
Útsýnarkvöld
Hótel Sögu
sunnudagskv. 29. apríl
Kl. 19.00 Húsiö opnaö — afhending ókeypis happdrættismiöa.
Vinningur: Útsýnarferð.
Hressandi drykkir á barnum.
Upplýsingar um hiö glæsilega feröaúrval Útsýnar meö Loftbrúnni.
Kl. 19.30 Boröhald hefst stundvíslega. Frönsk matarveizla —
Gidot d‘ agneau Beaumaníére.
Verð aðeins kr. 3.500.-
Dans til kl. 01.00
Hin hressilega og bráöskemmtilega hljómsveit Ragnars Bjarnasonar ásamt
söngkonunni Þuríði Sigurðardóttir leika fjölbreytta tónlist viö allra hæfi.
Ókeypis happdrætti:
Allir gestir fá ókeypis happdrættismiöa.
Dregið veröur tvisvar. Kl. 20 og kl. 23.30.
Vinningar: Sólarlandaferðir með Útsýn.
Matargestir fá ókeypis sýnis-
horn af frönskum ilmvötnum
frá „Nina Ricci“ og „Gains
Borough“.
Missið ekki af glæsilegri
skemmtun og möguleik-
um á ókeypis Útsýnar
ferð.
Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir, aðeins
rúllugjald en tryggið borö tímanlega hjá yfirþjóni
í síma 20221 frá kl. 15.00 á fimmtudag.
Ferðaskrifstofan
JÍTSÝNL
Módel ’79
sýna nýjstu vor og
sumartízkuna.
„Tónar italíu“
Hreinn Líndal óperu-
söngvari syngur vinsæl
ítölsk lög viö undirleik
Ólafs Vignis Alberts
sonar.
Myndasýning
Sumar í sólarlöndum.
Danssýning:
íslenzki dansflokkur-
inn sýnir fjöruga
dansa.
Fegurðar-
samkeppni
Úrslit í Ijósmyndafyrir-
sætukeppni Útsýnar.
Kynntur verður hópur
glæsilegra stúlkna, eft-
ir vali dómnefndar.
Bingó
Spilaö um þrjár glæsi-
legar Útsýnarferöir.