Morgunblaðið - 28.04.1979, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979
5
Andóf ’79
Skorar á opinbera starfs-
menn að fella samningana í
kosningum 3. og 4. maí
Nokkrir af talsmönnum Andófs '79: Talið f.v. Eiríkur Brynjólfsson
kennari. Helga Gunnarsdóttir, félagsráðgjafi. Pétur Pétursson þulur
og Albert Einarsson kennari.
HREYFINGIN Andóf '79 var
stofnuð nú nýverið af nokkrum
opinberum starfsmönnum. Að
stofuninni standa opinberir
starfsmenn, sem andvígir eru
nýgerðu samkomulagi stjórnar
BSRB og ríkisstjórnarinnar um
niðurfellingu þriggja prósenta
kauphækkunar, sem umsamin
var. Hreyfingin stendu. fyrir
barattufundi í dag kl. 14.00 í
Félagsstofnun stúdenta.
Á blaðamannafundi, er forvígs-
menn hreyfingarinnar héldu nú
nýverið kom fram, að Andóf ’79
hefur gefið út ritling til kynningar
á starfsemi sinni. Kemur fram í
ritlingnum, að ástæðurnar fyrir
andstöðunni eru margar. Fyrst má
nefna andstöðu gegn samkomulag-
inu sjálfu og einnig mótmæla þeir
vinnubrögðum forystumanna
BSRB, sem þeir segja nýta sér
samtökin i þágu ákveðinna stjórn-
málaflokka.
Andóf '79 skorar á opinbera
starfsmenn að fella samningana i
komandi kosningum 3. og 4. maí
n. k. og bendir í ritlingnum á atriði
í samkomulaginu, sem ekki stand-
ast yfirlýsingar forystumannanna.
Andófsmenn sögðu, að með
stofnun hreyfingarinnar væri far-
in sú eina leið sem virtist fær til
þess að koma fram andmælum við
samninginn. Málflutningsmaður
forystumannanna væri mjög ein-
litur og sem dæmi mætti nefna, að
mörg aðildarfélög BSRB hefðu á
fundum sínum samþykkt ályktanir
til að mótmæla gjörðum foryst-
unnar og sent þær til stjórnar-
innar, sem þó hefur ekki séð
ástæðu til að birta þær í Ásgarði,
málgagni BSRB. „Bera þeir við, að
ekki hafi verið farið formlega
fram á birtingu, en annað eins
hefur nú verið birt, s.s. fréttir af
allskyns félagsmálanámskeiðum
o. fl.“ sagði Helga Gunnarsdóttir
félagsmáaráðgjafi. Aðrir tals-
menn Andóf ’79 á fundinum voru
Pétur Pétursson þulur, Þorsteinn
Gunnarsson kennari, Albert
Einarsson kennari og Eiríkur
Brynjólfsson kennari.
Þau sögðu Andóf ‘79 leggja
mikla áherzlu á vinnustaðastarf
og væru þau nú þegar búin að
heimsækja marga vinnustaði,
bæði í Reykjavík og úti á landi.
Undirtektir væru góðar. Allt starf
þeirra er unnið í sjálfboðavinnu og
sögðust þau ekki hafa fengið fjár-
hagslegan stuðning frá BSRB. „Á
meðan forystumennirnir þeysast
um landið á kostnað hins almenna
félagsmanns til að mæla sam-
komulaginu bót.“ Til að fjármagna
kostnaðarsamt útgáfustarf hafa
samtökin gefið út límmiða, sem
þau sögðust vonast til að sjá í
barmi sem flestra samherja sinna
í 1. maí-göngum verkalýðsins.
Það kom fram, að í Andófi ‘79
JC-dagur
á Self ossi
HINN árlegi JC-dagur verður á
Selfossi í dag, laugardag 28. apríl,
og er hann sá þriðji sem JC Selfoss
stendur fyrir. Dagskráin verður
helguð ári barnsins. Fyrir yngstu
börnin verður bíósýning um
miðjan daginn en fyrir þau eldri
verður borgarafundur þar sem
unglingar, foreldrar og forráða-
menn bæjarins munu ræða vanda-
mál unglinganna. Um kvöldið
verður síðan diskótek fyrir ungl-
ingana.
starfar fólk úr öllum stjórnmála-
flokkum og fylgir hreyfingin
engum pólitískum línum annarri
en þeirri að sjá til þess að viðun-
andi mannréttindi séu haldin í
heiðri.
Pétur Pétursson sagðist vilja
benda á að við lifðum ekki lengur í
fornöld, þar sem hægt hefði verið
að verzla með frelsi manna.
„Forystumenn verkalýðs-
hreyfingarinnar, Kristján Thorla-
cius o.fl., sögðu fyrir kosningar:
„Samningana í gildi“ — þeir sögðu
aldrei „Samningana í gildi mínus
3%“. Þetta kallast svikin loforð,"
og Þorsteinn bætti við: „Fyrir
kosningar sögðu þessir sömu herr-
ar: „Verkfallsrétturinn kostar bar-
áttu,“ en nú segja þeir: „Verkfalls-
rétturinn kostar baráttu og
fórnir.“
Andóf ‘79 gengst fyrir baráttu-
fundi í dag kl. 14.00 í Félagsstofn-
un stúdenta við Hringbraut. Þar
verða flutt stutt ávörp, söngsveitin
Kjarabót kemur fram, einnig
verður kvæðalestur o.fl. Andófs-
menn sögðu að lokum, að þeir
vildu hvetja opinbera starfsmenn
til að kynna sér samningana og
hvað raunverulega fælist í þeim,
fjölmenna á fundinn í dag og í
kosningarnar 3. og 4. maí n.k.
Sparivelta
m
sfSíJtó.fcrr.r.
Jafngreiðslulánakerfí
Samvinnuban'kinn kynnir nýja
þjónustu, SPARIVELTU,
sem byggist á mislöngum
en kerfisbundnum sparnaði
tengdum margvíslegum lána
möguleikum.
Hið nýja spariveltukerfi er í 2 flokkum A og B,
sem bjóða upp á fjöldamismunandi lántökuleiða,
með lánstíma allt frá
3 mánuðum
til 5 ára.
Auk þess
er þátttak-
endum heimilt
að vera með fleiri
en einn reikning í Spariveltu-B.
Fyrirhyggja í fjármálum
Lengri sparnaður leiðir til hagstæðara
lánshlutfalls og lengri lánstíma.
Ekki þarf að ákveða tímalengd
sparnaðar umfram 3 mánuði í
A-flokki og 12 mánuði í B-flokki.
Allir þátttakendur eiga
kost á láni með
hagstæðum
vaxta- og
greiðslukjörum.
Þátttaka í
SPARI-
VELTUNNI
auðveldar
þér að láta
drauminn rætast.
Markviss sparnaður = öruggt lán
»«k*»
LÁNAMÖGULEIKAR MEÐ HAMARKSSPARNAÐI
SPARIVELTA-A Sparnaðarflokkar: 25, 50 og 75 þús.kr. á mánuði.
Sparnaðar- tímabil Mánaðarlegur sparnaður Sparnaðuri lok tímabils Láns- hlutfall Lán frá Sam- vinnubanka Ráðstöfunarfé með vöxtum Mánaðarleg endurgr. Endurgr. tími
3 mánuðir 4 mánuðir 5 mánuðir 6 mánuðir 75.000 75.000 75.000 75.000 225.000 300.000 375.000 450.000 100% 100% 100% 100% 225.000 300.000 375.000 450.000 454.875 608.875 764.062 920.437 78.108 78.897 79.692 80.492 3 mánuðir 4 mánuðir 5 mánuðir 6 mánuðir
SPARIVELTA-B Sparnaðarflokkar: 15, 25 og 35 þús.kr. á mánuði.
Sparnaðar- timabil Mánaðarlegur sparnaður Sparnaðuri lok timabils Láns- hlutfall Lán frá Sam- vinnubanka Ráðstöfunarfé með vöxtum Mánaðarleg endurgr. Endurgr. tími
12 mánuðir 18 mánuðir 24 mánuðir 30 mánuðir 36 mánuðir 35.000 35.000 35.000 35.000 35.000 420.000 630.000 840.000 1.050.000 1.260.000 125% 150% 200% 200% 200% 525.000 945.000 1.680.000 2.100.000 2.520.000 982.975 1.664.420 2.677.662 3.411.474 4.165.234 49.819 45.964 55.416 64.777 73.516 12 mánuðir 27 mánuðir 48 mánuðir 54 mánuðir 60 mánuðir
Gert er ráðfyrir 19.0%innlánsvöxtum og 24.69% útlánsvöxtum svoog lántöku'gjaldi. Vaxtakjöreru háð ákvörðun Seðlabankans.
Upplýsingabæklingur er fyrir hendi í öllum afgreiðslum bankans.
Samvinnubankinn
REYKJAVlK, AKRANESI, GRUNDARFIRÐI, KRÓKSFJARÐARNESI, PATREKSFIRÐI.SAUÐARKRÓKI, HÚSAVlK,
KÓPASKERI. VOPNAFIROI, EGILSSTÖÐUM, STÖÐVARFIROI, VlK I MÝRDAL. KEFLAVlK, HAFNARFIRÐI