Morgunblaðið - 28.04.1979, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 28.04.1979, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979 i hlaövarpanum ÍSLENZKA Árveig skal árla bergja, sbr. morgunbitter Árið 1926 tók Orðanefnd Verkfræðifélagsins saman orðasafn „með ráðum og atbeina verzlun- armanna í Rcykjavík" eins og segir í Lesbók Morgunblaðsins frá þessum tíma. „Hefir ekkert orð verið tekið í safnið án þess að sérfræðingur í þeirri grein hafi goldið því samþykki" segir í Lesbók. Er fyrir því ástæða að gripa niður í safn þetta að það hefur að geyma mörg hin ágætustu heiti, sem einhverra hluta vegna virðast ekki hafa náð útbreiddri rótfestu. „Mun ekki saka þótt mint sjc á góð orð og gömul, meðan þau eru ekki höfð í hvers manns tali". Orð úr viðskiítamáli eftir Orftanefnd Verkfræðingafjelagsins Sjerprentun úr Les- bók Morgunblaðs- ins 3. október 1926. Reykjavik ísatotdarprentsmtðja h.f. — 1927 Nokkur sýnishorn: ananas: granaldin apríkósa: eiraldin ávaxtapressa: kremja bitter: árveig, (árveig skal árla bergja, sbr. morgunbitter) bleja: sveipa (kvk) blýantur: ritblý boltaklippur: fleinbítur brillantine: hárgljái brjóstahaldari: brjóstalindi cognak: kúníak cornflakes: mæstur (kvk flt. sbr. maís) demantur: glitsteinn extrakt: veigur fruitsalad, aldinbland fægiskúffa: sóptrygill (trogmyndaður). gaffall: matkvísl genever: ginfari gúllas: bitlingur (í bitum). gúanó: dritlíki (gúanóverksmiðja: dritlíkisverksmiðja). hakkavél: saxa kandís: steinsykur konfekt: munngæti (sbr. munngát, sælgæti). kökusprauta: deiglyppa lakkrís: svertingi marmelaði: glómauk motta: strábreiða pappírsgatari: gathögg píanó: yman (af ymur) prímus: brími rúllupylsa: slagvefja slaufa: slyngja (sbr. (saman) slunginn) spekúlation: djarfsýsla súkkulaði: milska (fornyrði og þýðir sætur drykkur). svampur: njarðarvöttur tartelette: brauðkæna tommustokkur: vasakvarði trekt: gina (hún gín við hverju sem í hana er hellt). tyggegummi: munngúm vermouth: vermóður whisky: bretaveig SÖNGLEIKAR f GAMLA BÍÓI - PÉTUR KVEÐUR OG GUÐRÚN HEILSAR. Pétur Á. Jónsson óperusöngvari varð sextíu og fimm ára árið 1949 og hélt þá sína síðustu opinberu söngleika. Um líkt leyti tróð einnig upp Guðrún Á. Símonar í Gamla bíói en ekki til að kveðja heldur var nú þvert á móti kominn ný söngstjarna fram á sjónarsviðið. Þegar myndin var tekin mun Guðrún hafa verið ný komin frá söngnámi erlendis. — Samkvæmt frásögn Guðmundar Jónssonar óperusöngvara var siður á þessum árum að ungir söngvarar, sem komu frá námi erlendis héldu söngleika í Gamla bíói. Sjálfur sagðist Guðmundur hafa kcmið fram sextán sinnum á miðnætursöngleik árið eftir að hann kom heim frá námi. Ljósmyndari Morgunblaðsins þá og nú, Ólafur K. Magnússon tók báðar myndirnar. Píanóleikarinn er Fritz Weissappel. Stœlt og stoliö Með hreggi og hríð í nýlegri grein í Morgunblaðinu tekur Jónas Pétursson fyrrver- andi alþingismaður undir með Bjarti í Sumarhúsum að sjálfstæði sé betra en kjöt. Síðan fer höfundur nokkrum orðum um hlutverk búskapar í þjóðaruppeldinu. Það er í landbúnað sem við sækjum fyrirmyndina: Fólk, sem fær þjóðareinkennin inn í sig með mat og drykk, með sólskini og regni, hreggi og hríð við umgengni við skepnur, við vöxt gróðurs á túni og úthaga — við undafífil, vallhumal og holtasóley, að ógleymdum smáranum, sem fyllir vitin angan í hlýjum sumrum. Þetta hefir alla tíð verið mikilvægt hlutverk búskapar að ala upp fólk. Voru menn og vissu það Neisti, 9. apríl, 1979: „Menningardagar her- stöðvaandstæðinga sem hófust á Kjarvalsstöðum 16. mars náðu hámarki sínu í glæsilegum fundi í Háskólabíói 31. mars. Þar sannaðist enn sem áður að allir þeir listamenn sem eitthvert mannsmót er á Að sitja við A-borðið Hækka iðgjöld af A-bílum? spyr Dagur á Akureyri þann 18. apríl. Það mun eflaust koma við pyngju margra ef A-bílar flytjast í sama flokk og t.d. R-bílar segir blaðið, en gífurlegur munur mun vera á iðgjaldi áhættuflokka. Kemur fram að áhættuflokkur er reiknaður eftir fjölda tjóna, þ.e. trassaskap ökumanna. Bendir Dagur á að það hljóti „að vera Akureyringum og Eyfirðingum mikið kappsmál að vera ekki settir til borðs með Reykvíkingum". Huglœkningar Hestaritið Eiðfaxi segir að kona nokk- ur austanfjalls hafi nýlega ætlað á námskeið hjá Reyni Aðalsteinssyni með góðhryssu. En rétt í þann mund sem námskeiðið átti að hefjast vildi svo illa til að hryssan heltist. Hringdi þá konan í dýralækninn en hann kom ekki fyrr en löngu síðar og var þá hryssan orðin góð af heltinni. Konan atyrti lækninn fyrir seinlæti en hann svaraði: „Já, en kona góð, hefur þú aldrei heyrt um huglækningar?" Kórþraut í Búðardal I tilefni fimmtugsafmælis Karlakórs Akureyrar á næsta ári átti norðanblaðið Islendingur fyrir skömmu viðtal við formann kórsins, Ara Friðfinnsson. Það kom fram í viðtalinu að kórinn, fjörutíu og einn maður, hefði meðal annars spreytt sig á óperum. Hitt má þó athyglisverðara heita að kórinn tókst á hendur för til Búðardals í sumar sem leið og söng fyrir heimamenn „Er ég kem heim í Búðardal". Gaman hefði verið að heyra t.a.m. Don Kósakkakórinn fást við sama verkefni. Vörulán I leikskrá Þjóðleikhússins við sýningu leikritsins Stundarfriður er að finna síðu í skránni miðri þar sem segir: EFTIRTALIN FYRIRTÆKI HAFA LÁNAÐ VÖRUR OG HÚSBÚNAÐ í SÝNING- UNA: Talningin innifelur m.a. Hitachi-sjónvarpstæki frá Vilbergi og Þorsteini, Philips-ryksugu frá Heimilistækjum s.f. en síðan segir í lok upptalningar: Leikararnir eru frá Þjóðleikhúsinu. Tilþrif Svofellt niðurlag fylgdi grein Eyjaskeggjans á.j. í Morgunblaðinu sl. þriðjudag. Állt um það hefur landið ennþá miklar nytjar af lífi Eyjaskeggja og annarra sjávarplássa. Svo miklar að öll tilþrif til framtaks í þessu landi byggjast á þeim. Samt hefur það furðulega skeð að þessir staðir eiga ekki samleið með skólakerfi landsins sem elur fyrst og fremst upp fólk til starfa í skrifstofubyggingum landsins og burðast við að miða efnahag landsins við iðnað í stað fullvinnslu sjávarafurða. Margur kgssir þá hönd er hann vildi að af vœri Á meðfylgjandi mynd sjáum við her- stöðvaandstæðinginn Ragnar Arnalds sýna varaforseta Bandaríkjanna handrit á Árnastofnun. I sama mund stóðu skarar herstöðvaandstæðinga fyrir utan og veifuðu mótmælaspjöld- um. Undrar menn vart lengur rökvís- legt samhengi í athöfnum þessara samtaka enda komið í ljós að þau eru fyrst og fremst auglýsingamiðstöð pólitískra skemmtikrafta. Lénskar erfðir Ólafur R. Einarsson í viðtali við Helgarpóstinn: „í Framsóknarflokknum tíðkast lénskar erfðir, en 1 Alþýðubanda- laginu er ákjósanlegast að hafa verið í Framsóknarflokknum." eru herstöðvaandstæðingar."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.