Morgunblaðið - 28.04.1979, Qupperneq 18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL T 1979
Athyglisverð
bátasýning
Hér gefur að líta athyglisverða botnlögun á plastbáti, eftirlík-
ingu á gömlum súðbyrðingi, sem gefur bátnum aukna mýkt f sjó,
aukna sjóhæfni og aukinn styrk. Þetta er 22 feta bátur
framleiddur hjá Flugfiski í Vogum.
Þessi glæsilegi bátur er- íslensk framleiðsla, mun hann bera
nafnið Signý, hann verður á bátasýningu Snarfara. Honum er
ætlað stærra og meira hlutverk en standa mönnum til
augnayndis, þvf ákveðið er að eigandi hans sjórallkappinn
Gunnar Gunnarsson stýri honum í næstu keppni umhverfis
iandið, sem ákveðin er fyrsta dag júlimánaðar næstkomandi.
Þetta er 23 feta plasthátur framleiddur hjá Mótun h/f í
Hafnarfirði.
Athyglisverð bátasýning
Margt athyglisvert er að sjá á
bátasýningu Snarfara, sem opn-
uð verður í dag kl. 14 í Sýningar-
höllinni í Artúnshöfða.
Skemmtilegt er að íslensk sport-
bátaframleiðsla skuli vera þar á
meðal, sem hlýtur að vekja
athygli, í fyrsta lagi fyrir hvað
stutt er síðan framleiðsla á
plastskemmtibátum hófst hér á
landi nokkuð að ráði. I öðru lagi,
hvað tekist hefur að framleiða
sterka og um leið áferðargóða
báta sem sýnt hafa sjóhæfni og
sannað styrk sinn (samanber
tveir fyrstu bátar í keppninni
umhverfis landið síðastliðið
sumar voru íslenskir). Margt
fleira mun gleðja augað á þess-
ari sýningu, sem er sú fyrsta
sinnar tegundar hér á landi,
yrði of langt mál upp að telja
alla þá hluti sem á sýningunni
verða (sjón er sögu ríkari). Þó
vil ég nefna seglbáta, loftpúða-
bát, trillur, vatnabáta, fiskibáta,
dýptarmæla, hraðamæla, átta-
vita svo og mjög athyglisvert
lóran-staðsetningartæki. Tísku-
sýningar verða. Hver aðgöngu-
miði gildir sem happdrættis-
miði, þátur í aðalvinning sem
dreginn verður út í lok sýningar.
Sýningartími er frá kl. 14 til kl.
22 sýningardagana.
Bátar
Umsjón:
HAFSTEINN
SVEINSSON
Snarfari með
sérstakan bás
Snarfari, félag sportbátaeig-
enda, mun verða með sérstakan
bás, þar sem öllum bátaunnend-
um gefst kostur á að innrita sig
í félagið. Eg vil taka skýrt fram
að þetta félag er ekki aðeins
miðað við sportbátaeigendur þó
að félagið beri þetta nafn, held-
ur er það hugsað sem félag allra
bátaáhugamanna og skiptir ekki
máli í því sambandi hvort menn
eru bátseigendur eða ekki. Lög-
un og ganghraði bátanna skipta
heldur ekki máli, hér skiptir
mestu að menn standi saman og
stefni einhuga að því marki sem
við höfum sett okkur, það er að
höfn sú sem samþykkt hefur
verið, verði byggð.
Margar gerðir og stærðir af
utanborðsvélum verða til sýnis
á sýningu Snarfara. Hér er
mynd af glæsilegri 235 hestafla
utanborðsvél V-6 frá Evinrude
(hún hlýtur að gefa sæmilegt
spark).
ChevroletCitation—ný-
stárlegur bíll frá GM
Jóhann P. Jónsson rallökumaður kvað fara vel um sig þarna í
aftursætinu.
VÉLADEILD Sambandsins er um
þessar mundir að hefja innflutn-
ing á nýrri gerð bandariskra bíla
frá General Motors verksmiðjun-
um svo sem frá hefur verið skýrt í
Mbl. Er þessi bíli um margt
nokkuð frábrugðinn öðrum
bandariskum bílum og ber helzt
að nefna framdrif, sem nú er þó
að ná æ meiri vinsældum meðal
bandariskra framleiðenda.
Bíllinn sem Veladeildin hefur
kynnt er Chevrolet Citation og er
talið að hér sé um að ræða eitt
mesta átak GM verksmiðjanna, til
hönnunar hafi verið varið gífur-
legum upphæðum og vandað til
undirbúnings framleiðslunnar. í
útliti minni þessi bíll nokkuð á
evrópska bíla t.d. Simcuna og ekki
er hægt að segja að hann minni á
bandarískan uppruna sinn, en
telja má hann snotran útlits. Vélin
liggur þversum og er hún fáanleg
97—117 Din hestöfl fjögurra eða
sex strokka. Hægt er að fá bílinn
með ýmis konar tilbrigðum ef svo
má að orði komast, sjálfskiptan
eða beinskiptan, með bekk eða
tveimur aðskildum stólum
frammí, vökvastýri eða ekki,
tveggja, þriggja eða dyra og er
verðið allt frá 5,2 m.kr. uppí 6,5
m.kr. Heildarþyngd bílsins er um
1100 kg, hann er 4!/2 m langur, 1,73
m á breidd og hæðin 1,32 m. Lengd
milli hjóla er 2,66 og má segja að
ekki sé hægt að leggja nógu mikið
á hann, en stýrið svonefnt er
tannstangarstýri. í akstri er bíll-
inn fremur lipur og viðbragð ið
Chevrolet Citation er hægt að opna vel að aftan og leggja niður
aftursætið til að fá aukið farangursrými. Má segja að þetta lag minni
nokkuð á evrópska bfla. Ljósmyndir: Rax