Morgunblaðið - 28.04.1979, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979
Birgir ísleifur Gunnarsson;
Tvö mál rtfiud upp
Þegar fjárhagsáætlun
Reykjavíkur fyrir árið 1979 var
til meðferðar í borgarstjórn í
febrúar s.l., komu til afgreiðslu
ýmsar tillögur vinstri meiri-
hlutans, sem voru hroðvirknis-
lega gerðar og illa undirbúnar.
Margar þessara tillagna sættu
mikilli andspyrnu starfsfólks
viðkomandi stofnana svo og
ýmissa ráða og nefnda, sem
málin heyrðu undir, og voru það
ekki síður vinstri fulltrúarnir í
nefndunum, sem mótmæltu. Af
þessu öllu varð mikið fjaðrafok,
sem ítarlega var gert að umtals-
efni þá. Vafalaust minnast
menn umræðna um útideild
ungiinga, mæðraheimilið við
Sólvallagötu, meðferðarheimilið
við Kleifarveg o.fl.
Niðurstöður
í nokkrum
málum
Við afgreiðslu fjarhagsáætl-
unar gerðum við borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins athuga-
semdir við ýmsar af þessum
niðurskurðartillögum vinstri
manna og töldum þær illa und-
irbúnar og óraunhæfar. Það er
því fróðlegt að kanna nú, hverj-
ar hafa orðið lyktir þeirra mála,
sem um var deilt fyrr í vetur.
Hér verða tvö þeirra gerð að
umtalsefni.
Útideild
unglinga
Við afgreiðslu fjarhagsáætl-
unarinnar fluttu vinstri menn í
borgarráði tillögu um að leggja
útideild unglinga niður. Við
sjálfstæðismenn lögðumst gegn
því, en vinstri meirihlutinn í
borgarstjórn greiddi allur at-
kvæði með þeirri tillögu og það
jafnvel borgarfulltrúar, sem í
félagsmálaráði og æskulýðsráði
höfðu mótmælt þessari ráða-
gerð.
Þessu var mjög ákaft mót-
mælt af ýmsum, sem til þekkja,
þ. á m. starfsfólki útideildar.
Eftir að fjárhagsáæltun hafði
verið samþykkt hopaði vinstri
meirihlutinn í borgarráði í það
vígi að skipa nefnd, sem skyldi
gera tillögu um, hvað koma
skyldi í stað útideildar. í því
sambandi beindi félagsmálaráð
því til borgarráðs að útideild
Birgir ísleifur Gunnarsson
skyldi áfram starfa, þar til
nefndin hefði lokið störfum. Því
hafnaði vinstri meirihlutinn.
Starfar enn
aö hluta
Nokkrum dögum síðar kom
fram tillaga frá nefndinni um að
útideild skyidi starfa áfram að
hluta, þ.e. vinna með þeim
unglingahópum, sem þegar
hafði verið tekið upp samstarf
við. Þá brá svo við að meirihlut-
inn samþykkti þá tillögu, þótt
engin sérstök fjárveiting væri
fyrir hendi.
I borgarstjórn fluttum við
sjálfstæðismenn tillögu um að
farið yrði eftir tillögu félags-
málaráðs, en sú tilaga var felld
og þ. á m. af borgarfulltrúum,
sem höfðu flutt tillöguna í
félagsmálaráði.
Þannig er staða þessa máls í
dag. Útideildin starfar enn að
hluta án fjárveitingar og sér-
stök nefnd er að fj^lla um
framtíð hennar. Var nokkur að
tala um ráðleysi í stjórnun?
Mæðraheimilið
við Sólvalla-
götu
Eins og kunnugt er hefur
borgin nú um langt árabil rekið
heimili fyrir einstæðar mæður
við Sólvallagötu. Þar hafa mæð-
urnar átt athvarf fyrir og eftir
barnsburð. Við afgreiðslu fjár-
hagsáætlunar fluttu vinstri
menn tillögu um að leggja
mæðraheimilið niður og setja
þar upp dagvistunarheimili fyr-
ir ungbörn. Var fjárveiting við
það miðuð.
Mun starfa
áfram
Við sjálfstæðismenn í borgar-
stjórn vöruðum við þessu, enda
var þessari ráðagerð mjög mót-
mælt af félagsmálaráði og
starfsfólki Félagsmálastofnun-
ar. Fluttum við tillögu í borgar-
stjórn um það að teknar yrðu
upp viðræður við Félag ein-
stæðra foreldra um rekstur
heimilisins, en félagið hafði sent
borgarráði tilboð um það efni.
Niðurstaða er nú fengin í
þessu máli. Mæðraheimilið mun
starfa áfram og er það sam-
kvæmt eindreginni tillögu fé-
lagsmálaráðs. Ekki var laust við
að menn hefðu lúmskt gaman af
að sjá fréttir Þjóðviljans af
þessu máli. Látið var eins og
stórsigur hefði unnizt í málinu
og í viðtali við Guðrúnu Helga-
dóttur mátti sjá, að hún var
stórhrifin af því, hversu Alþýðu-
bandalagið stæði sig vel í að
hætta við að leggja niður þarfar
stofnanir.
Þessi tvö dæmi sýna, að það
hefur reynst rétt, sem við sjálf-
stæðismenn héldum fram við
afgreiðslu fjárhagsáætlunar í
vetur, að ýmsar svokallaðar
sparnaðartillögur vinstri flokk-
anna voru óraunhæfar, enda illa
undirbúnar. Þær voru gott
dæmi um það, hvernig ekki á að
standa að málum.
Fjármálaráðuneytið falsar
neyzlutölur
— segir Guttormur Einarsson,
stærsti innflytjandi slíkra efna
„GERSTOPPIÐ í fyrra,
þegar kvitturinn kom upp
um að ríkið ætlaði að
stöðva allan innflutning á
ölgerðarefnum, olli gífur-
legri veltuaukningu hjá
mér og mínu fyrirtæki, því
að fólk hamstraði þessi
efni,“ sagði Guttormur
Einarsson, framkvæmda-
stjóri Ilagplasts, sem er
stærsti innflytjandi slíkra
efna. „Þá pantaði ég og
flutti inn ölgerðarhráefni
fyrir allt árið 1979 og
leysti það út árið 1978.
Þetta þýðir að útreikning-
ar f jármálaráðuneytisins í
greinargerð frumvarpsins
um hvað mátt hefði fram-
leiða mikið áfengi úr þessu
efni fá ekki staðizt. Það er
fölsun, að láta að því liggja
að hér sé um neyzlu að
ræða, því að enn ligg ég
með mikið magn af þessu í
vörugeymslu
verksmiðjunnar.*
„Þetta er fyrsta meiriháttar
fölsunin, sem gerð er í greinargerð
með þessu frumvarpi," sagði Gutt-
ormur, „og það hlýtur að vera sett
þar fram til þess að kaupa alþing-
ismennina til fylgilags við frum-
varpið. Það er ljóst að Sölvi
Helgason fjármálaráðuneytisins
hefur bersýnilega hagnýtt sér
þetta með því að taka innflutning
ársins 1978 og setur hann fram við
alþingismenn sem neyzlu ársins
1978. Því er allt tal um 250 þúsund
flöskur af brennivíni eða jafngildi
þeirra helbert rugl. Reiknikúnst-
irnar hafa ekki verið lagðar fram
sem slíkar og það getur hver sem
er — hvaða Sölvi Helgason sem er
reiknað þessa Wluti fram og aftur.
Hins vegar getur hver maður séð,
sem vill kynna sér málin að við
erum hér með helminginn af þess-
um birgðum hér inni á gólfi í
vörugeymslunni."
Síðan sagði Guttormur: „Þéssi
breyting mun valda feikilegum
átroðningi á bakara af fólki, sem
sækist eftir geri. Þetta mun færa
sölu á ýmsum ölgerðarefnum til
baka yfir í hendur apótekara, sem
hafa heimild fyrir lyfjamalti,
þetta mun færa hvers konar djús-
drykkjarframleiðendum i landinu
aukna sölu og stóraukinn markað.
Slíkur drykkjardjús verður notað-
ur í stórauknum mæli til öl- og
víngerðar í heimahúsum og ölgerð-
in mun fá mjög aukna sölu í
hvítöli. Síðast en ekki sízt mun
þetta færa mjólkurvöruframleið-
endum stóraukna sölu á mysu.
Þeir geta litið bjartari augum til
framtíðarinnar með nýtingu á
þeim drykk og kannski þeir leysi
vandamál landbúnaðarins með
því.
Ég er kominn hér með inn í
landið dýrar vélar til þess að
framleiða ölgerðarefni og setja í
dósir. Þessi tæki eru sum komin í
gagnið, önnur komin til landsins
og bíða eftir því að verða tekin í
notkun. Ég hef hér í góðri trú
stefnt að því að setja upp verk-
smiðju til þess að pakka ölgerðar-
efnum í dósir og plastbrúsa. Þetta
mun ríkið væntanlega ekki bæta,“
sagði Guttormur Einarsson að
lokum.
Leiðrétting
Sú prentvilla slæddist inn í frétt
um breskan prédikara sem taka
mun þátt í samkomum hjá Fíla-
delfíu, að þær voru sagðar hefjast
kl. 21.30. Rétt er hins vegar að
samkomurnar hefjast kl. 20.30.
Hlutaðeigendur eru beðnir velvirð-
ingar á þessum mistökum.
A AÐEINS um einum mánuði var grindin reist að nýju 1600 fermetra
vélaverkstæði J. Hinrikssonar að Súðavogi 4. Efnið var flutt inn frá
Beigíu og kom það til iandsins fyrir röskum mánuði, en áður höfðu
stöplarnir verið steyptir. Á næstunni verður síðan byrjað að klæða húsið
og stcypa plötuna, en áætlað er að verkstæðið taki til starfa í hinu nýja
húsnæði sfðari hluta sumars. Myndin var tekin sfðastliðinn föstudag er
starfsmenn fyrirtækisins flögguðu í tilefni góðs starfs á skömmum tfma.
Kynning og ráðstefna um þök
Byggingarþjónustan
Grensásvegi 11 gengst fyrir
kynningu og ráðstefnu um
þök dagana 2. til 5. maí n.k. í
húsi þjónustunnar. Dagskrá
ráðstefnunnar hefst mið-
vikudaginn 2. maí kl. 17.15
með ávarpi Gunnlaugs Hall-
dórssonar arkitekts. Kl.
17.30 ræðir Guðmundur Kr.
Guðmundsson arkitekt um
þakgerðir og kl. 18.00 talar
Guðmundur Pálmi Kristins-
son verkfræðingur um
kostnað mismunandi þak-
gerða. Kl. 18.30 verða
umræður og fyrirsurnum
verður svarað; Fimmtudag-
inn 3. maí kl. 17.15 ræðir
Leifur Blummenstein
byggingarverkfræðingur um
flöt þök. Gunnar S.
Björnsson byggingarmeist-
ari talar um þakefni kl. 17.45
en frjálsar umræður og
fyrirspurnir verða kl. 18.15.
Síðasta dag kynningarinnar
og ráðstefnunnar flytur
Magnús H. Magnússon
félagsmálaráðherra ávarp
kl. 13.15 en kl. 13.30 ræður
Guðmundur Halldórsson
verkfræðingur um
einangrun, rakavörn og loft-
ræstingu. Kl. 14 ræðir Leifur
Benediktsson verkfræðingur
um orsakir þakleka og úr-
bætur á þeim og kl. 14.30
verða umræður og fyrir-
spurnir.
Öllum er heimil ókeypis
þátttaka í ráðstefnunni.