Morgunblaðið - 28.04.1979, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979
23
Peter Snyman heitir pilturinn á þessari mynd. Hann reynir nú að setja heimsmet sem felst í því að vera
sem lengst í herbergi á meðal 24 hættulega eitraðra snáka. Heimsmetstilraunin fer fram í bænum
Hartbeesport Dam í grennd Pretoríu í Suður-Afríku. Peter hóf tilraun sína 20. apríl og er heimsmetið
sem hann ætlar sér að slá 36 dagar.
Krefjast fundar
af Öryggisráðinu
Sameinuðu þjóðunum, 27. apríl. Reuter — AP.
ÞJÓÐIR svörtu Afríku kröfðust í dag skyndifundar af
Öryggisráðinu og að það léti til sín taka nýafstaðar
kosningar í Rhódesíu. Þykir þessi krafa koma nokkuð á
óvart, þar sem talið var að ríkin myndu bíða með
aðgerðir þar til þing kemur saman í Rhódesíu og ný
stjórn undir forystu Abels Muzorevas biskups tekur við
völdum í lok maí.
Talið er að ástæðan fyrir
þessum kröfum Afríkuríkj-
anna sé sú að þær kröfur
magnast í Bandaríkjunum
og Bretlandi að hætta beri
öllum viðskiptaþvingunum
og bönnum á Rhódesíu. Þótt
Mengun af
olíu frá
radarstöð
Kaupmannahöfn, 27. aprfl.
MINNI mengun virðist hafa orðið
af svartolíu þeirri sem lak frá
bandarisku radarstöðinni DYE-
four í grennd Kulusuk en í fyrstu
var talið. Talið var að um 30.000
lítrar af olíu hefðu lekið frá
stöðinni en öllu líklegra er að það
hafi aðeins orðið 8.500 lítrar.
Ibúar í Kulusuk og Kap Dan voru
varaðir við að neyta drykkjarvatns
þar sem talið var að olían hefði
mengað vatnsból staðanna. Við
nánari athugun reyndist svo ekki
vera, en sýni voru þó send til
Danm'erkur til frekari athugunar.
Vegna þess mikla þíðviðris sem
verið hefur á svæðinu að undan-
förnu rann mest öli olían í sjóinn.
Hans Lassen landshöfðingi á
Grænlandi fyrirskipaði í dag
nákvæma rannsókn á tildrögum
slyssins, en talið er að snjómokst-
urstæki hafi skemmt krana og
leiðslur við birgðatanka stöðvar-
innar.___________________
Saxast á fylgi
íhaldsflokks
London, 27. apríl. AP.
SKOÐANAKÖNNUN sem blaðið
The Sun birtir í dag bendir til þess
að vinsældir íhaldsflokksins fari
minnkandi með hverjum deginum
sem líður, en nú eru aðeins sex
dagar til þingkosninga í Bret-
landi. Forskot íhaldsflokksins á
Verkamannaflokkinn er, skv.
könnuninni. þó ennþá „þægilegt*.
í skoðanakönnun The Sun í dag
er forskot íhaldsflokksins á Verka-
mannaflokkinn 7 af hundraði, en í
sams konar könnun blaðsins sl.
mánudag var forskotið 10 af hundr-
aði. Nýtur Ihaldsflokkurinn fylgis
43 af hundraði kjósenda, Verka-
mannaflokkurinn 36 af hundraði.
leiðtogi ríkjanna, Francois
Sangaret frá Fílabeins-
ströndinni, hafi aðeins sagt
að ríkin vildu að öryggis-
ráðið léti þróun mála í
Rhódesíu síðustu dægur til
sín taka, er talið að það sé
krafa þeirra að efnahags-
þvingunum og viðskipta-
banni Rhódesíu verði haldið
áfram.
Veður
víða um heim
Akureyri 0 skýjaö
Amsterdam 12 skýjað
Apena 24 heióskírt
Barcelona 15 skýjaö
BerKn 13 skýjaó
BrUssel 10 skýjaö
Chicago 12 skýjaó
Frankfurt 12 skýjað
Genf 10 rigning
Helsinki 9 skýjaö
Jerúsalem 32 heiöskfrt
Jóhannesarborg 21 láttskýjaö
Kaupmannahöfn 11 skýjað
Lissabon 19 láttskýjaö
London 11 skýjaö
Los Angeles 25 heiðskírt
Madríd 15 heiöskfrt
Malaga 20 heiöskírt
Mallorca 16 hálfskírt
Miami 31 skýjað
Moskva 18 skýjaö
New York 17 rigning
Ósló 8 léttskýjaó
París 11 skýjaö
Reykjavík 4 skýjaö
Rio De Jeneiro 26 léttskýjaö
Rómaborg 11 rigning
Stokkhólmur 9 skýjaó
Tel Aviv 29 heiöskírt
Tókýó 15 skýjaö
Vancouver 17 léttskýjaó
Vinarborg 13 skýjaö
Þaðer
Hess
Vestur-BerHn, 27. aprfl. Reuter.
Wolf-Rúdiger Hess, sonur
Rudolfs Hess, sagði í dag við
fréttamenn að enginn vafi léki
á því í fjölskyldu sinni að það
væri nasistaleiðtoginn fyrrver-
andi sem sæti inni í
Spandau-fangelsinu. Vísaði
hann á bug þeim fullyrðingum
bresks læknis að það væri
staðgengill Hess sem sæti inni í
Spandau.
Wolf-Rúdiger lét þessi orð
falla eftir heimsókn í fangelsið
í gær á 85. ára afmæli föður
hans. Ilse Hess heimsótti eigin-
mann sinn í fangelsið í fyrra-
dag.
Karpov held-
ur sínu striki
Montreal, 27. apríl. AP.
KARPOV heimsmeistari í skák er
enn elstur á hinu mikla skákmóti
sem nú stendur yfir í Montreal.
Gerði Karpov jafntefli við Húbn-
er í biðskák þeirra sem tefld var í
gærkvöldi.
Aðrar biðskákir úr fyrri um-
ferðum voru tefldar í gær. Banda-
ríski skákmeistarinn Kavalek, sem
verið hefur í neðsta sæti á mótinu,
sigraði Hollendinginn Timman, en
þáði svo jafntefli í biðskák sem
hann átti óteflda við Spassky.
Portisch og Hort gerðu jafntefli í
sinni biðskák og heldur Portisch
því enn þriðja sæti í mótinu.
Hort háði mikið einvígi í bið-
skák sem hann átti gegn Tal og
tókst Tékkanum að merja jafntefli
eftir erfiða vörn.
Staðan á mótinu er nú sú að
Karpov er efstur með 8 vinninga,
Tal í öðru sæti með 7% vinning og
þriðji er Portisch með 7 vinninga.
Þá koma Ljubojevic með 6'/z,
Húbner með 6, Hort með 5,
Timman með 4'/z, Spassky með 4,
Larsen með 3% og neðstur er
KavaLek með 3 vinninga.
í næstu umferð sem leikin
verður í kvöld leiða saman hesta
sína m.a. þeir Karpov og Larsen,
Spassky og Timman.
Þetta gerdist
1978 — Herbylting í Afganistan:
Daoud forseti og ráðherrar myrtir.
1973 — Ferð Salyut 2 hætt:
sovézkt áfall í geimnum.
1969 — De Gaulle segir af sér sem
forseti Frakka.
1965 — Bandarísk landganga í
Dóminikanska lýðveldinu
fyrirskipuð.
1%0 — Stúdentaóeirðir hefjast í
Tyrklandi.
1952 — Eisenhower lætur af starfi
yfirmanns herja Bandamanna og
Ridgeway tekur við = Japan full-
valda ríki og stríði lýkur
opinberlega.
1951 — Mossadeq skipaður for-
sætisráðherra Irans. <
1945 — Mussolini og hjákona hans
tekin af lífi.
1936 — Farúk verður konungur
Egyptalands.
1919 — Þjóðabandalagið stofnað.
Flóðið í Winnipeg:
Orðið meira en
flóðið 1950 var
MIKIL flóð eru nú í Winni-
peg-fylki í Kanada, en að
undanförnu hafa orðið mikil
flóð í héruðum við Missi-
sippi-ána í Bandaríkjunum. Af
þessum sökum sló Mbl. í gær á
þráðinn til Jóns Ásgeirssonar
ritstjóra Lögbergs-Heims-
kringlu í Winnipeg. Jón hafði
eftirfarandi að segja:
„Rauðá byrjaði að flæða yfir
bakka sína fyrir skömmu og er
allur Rauðárdalurinn nú nánast
á bólakafi og vatnsyfirborðið
sums staðar orðið 20 metrum
hærra en það er við venjulegar
aðstæður.
Ekkert vatn er í Winni-
peg-borg sjálfri, þar sem
skurður mikill var grafinn í
hálfhring um borgina eftir
flóðin miklu 1950 og tekur hann
við þegar vatnavextir fara yfir
ákveðin mörk.
Hið opinbera hefur nú gefið
tilskipun um að allir íbúar
Rauðárdalsins skuli yfirgefa
svæðið, en fyrir skömmu var til
þess mælst að fólk kæmi sér á
brott af svæðinu. Á flóðasvæð-
inu búa um 12—15 þúsund
manns og þar er einnig mikið
um skepnur, einkum nautgripi.
Aðeins um 5—6 kílómetra
þaðan sem ég bý er allt á
bólakafi. Fólk hefur gripið til
þess ráðs að raða sandpokum
umhverfis hús sín og er ég
skrapp inn á svæðið mátti víða
sjá sandpoka upp á miðja veggi.
Flugvélar komu til Winnipeg á
fjögurra klukkustunda fresti í
allan gærdag með sandpoka frá
Kaliforníu og Chicago.
Þó að flóðin séu víða orðin
meiri en 1950 hafa þau ekki náð
hámarki sínu. Hækkar vatnið
stöðugt og rigningar halda
áfram. Búist er við að flóðin
verði í hámarki 6. maí. Þá
Mikil flóó eru nú i Winnip*g-fylki
í Bandaríkjunum, an á Þaim
slóðum búa margir sam aru af
íslenzku bargi brotnir. Einnig
hafa mikil flóö variö í Bandaríkj-
unum, á vatnasvasði Missisippi-
árinnar, og var pessi mynd tekin
fyrir skömmu í borginni Jackson.
verður á svæðinu eitt allsherjar-
stöðuvatn sem verður um 100
kílómetrar á lengd og 30—40 km
á breidd.
Samgöngur eru lamaðar á
flóðasvæðinu. Allir þjóðvegir og
járnbrautir niður að landa-
mærum Bandaríkjanna eru
undir vatni. Hqrinn hefur verið
settur í viðbragðsstöðu vegna
ástandsins og borist hefur tilboð
um aðstoð frá nágrannafylkjum.
Trudeau forsætisráðherra flaug
yfir svæðið í gær til að kynna
sér ástandið.
Ástandið í Nýja íslandi er öllu
betra en fyrir sunnan borgina.
Þar er engin hætta á ferðum, en
akrar og engi eru þó öll blaut.“
28. apríl
1876 — Viktoría Bretadrottning
verður keisaradrottning af
Indlandi
1789 — Uppreisnin á „Bounty":
Bligh kapteinn og 18 sjóliðar settir
um borð í bát á Suður-Kyrrahafi.
1655 — Enskur floti eyðir sjóræn-
ingja flota beysins í Túnis og
leysir fanga úr haldi í Algeirsborg
= Fjöldamorð á mótmælendum í
Vaudiois í Savoy.
1521 — Karl keisari V afhenti
Ferdinand erkihertoga bróður sín-
um eignir Habsborgara í Austur-
ríki til eignar.
1503 — Spánverjar eyða frönskum
flota við Cerignola, Sikiley.
Afmæli. Otto, rómverskur keisari
(32—69) = James Monroe, banda-
rískur forseti (1758—1831) =
Antonio de Oliveira Salazar,
portúgalskur einræðisherra (1889
— 1971) = Kenneth Kaunda. forseti
Zambíu (1924 — ).
Andlát. Mikhail Kutuzov, her-
maður, 1813 = Fuad I, konungur
Egypta, 1936.
Innlent. Bæjarbardagi (fyrsta
stórorusta Sturlungaaldar) 1237 =
Tugthúsið gert að embættisstað
stiftamtmanns 1817 = d. Snorri
digri 1301 = Sveinn Danakonungur
Úlfsson 1076 = Ormur Bjarnason
1250 = Struense líflátinn 1772 =
Grein Jóns Ólafssonar um „lands--
höfðingjahneykslið" 1873
„Heimdal" kemur til gæslustarfa
1895 = Stofnuð „Breiðfylking" 1937
= Sex vikna verkfalli lýkur 1955 =
Bretar tilkynna að herskip verði
send aftur á íslandsmið 1960.
Orð dagsins. Heimskingi hlýtur
öðru hverju að hafa rétt fyrir sér
— William Cowper, enskt skáld
(1731 - 1800).