Morgunblaðið - 28.04.1979, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 28.04.1979, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979 IIORNAFLOKKUR KÓPAVOGS ætlar að skemmta bæjarbúum á sunnudaginn klukkan 3, við Kópavogshælið. — Hornaflokkurinn var stofnaður af stjórnandanum, Birni Guðjónssyni, fyrir þremur árum. Gengu þá í hornaflokkinn gamlir nemendur Björns úr Skólahljómsveit Kópavogs. Hafa sumir þessara músikanta leikið á hljóðfæri sín allt frá 10 ára aldri. Þetta efnilega hljómsveitarfólk er á aldrinum 15—25 ára og eins sjá má er jafnvægi á milli kynjanna í Hornaflokknum hjá Birni. Þessi mynd var tekin á æfingu fyrir nokkrum kvöldum og er fremstur á myndinni stjórnandinn, Björn Guðjónsson. Frá lögreglunni: Auglýst eftir vitn- um að ákeyrslum RANNSÓKNADEILD lögreglunnar hefur beðið Mbl. að auglýsa eftir vitnum að eftir- töldum ákeyrslum. Þeir, sem geta veitt upplýsingar um það hverjir valdið hafa þessum tjónum, eru beðnir að snúa sér til lögreglunnar hið fyrsta: Laugardagurinn 14. apríl Ekið á bifreiðarnar R-33258 og R-49654 á Njálsgötu móts við Barónsstíg. Tjónvaldur var amerísk bifreið og eru þrír stafir í skráningarnúmerinu R-395. . .. Skemmd á bifreiðinni R-49654 er að öll vinstri hlið er skemmd, en fyrrgreinda bifreiðin mun vera óskemmd. Bifreiðin R-395 . . . er bláleit Chevrolet-bifreið. Þriðjudaginn 24. apríl. Ekið á bifreiðina R-9840, þar sem bifreiðin var við Barónsstíg 13 á móts við innkeyrslu að Lands- bankanum á Laugavegi 77. Vinstri hurð skemmd. Kom á bifreiðina frá kl. 22.45 til 00.30. Fimmtudaginn 36. apríl Ekið á bifreiðina R-59453 á Bjargarstíg, báðar hurðir á hægri hlið skemmdar og einnig framaur- bretti. Fólk varð vart við hávaða í götunni um kl. 04.00 til 05.00 um nóttina. Föstudaginn 27. apríl. Ekið á bifreiðina G-11449 þar sem bifreiðin var við hús nr. 45 við Sólheima eða við Glaðheima 14. Varð á tímabilinu frá kl. 21.10 til 23.00. Skemmt vélarlok, vinstra framaurbretti, grill og stefnuljós- ker. Greina mátti gula málningu á lista sem er á vélarloki. Síðustu forvöð fyrir stjórnvöld að rétta hlut ríkisútvarpsins Símamenn hvetja til þess að samkomulag- ið verði ÚTVARPSRÁÐ samþykkti eftir- farandi ályktun á fundi í gær: „Á þessu ári eru 50 ár liðin síðan útvarpsráð hélt sinn fyrsta fund. Á þeim tímamótum blasir við ráðinu einhver mesta fjárhags- kreppa sem það hefur átt við að stríða. Orsakir fjárhagskreppu stofnunarinnar eru einkum tvær: A: Ríkið hefur, haldið eftir 836 milljónum króna af tollatekjum af innfluttum sjónvarpstækjum 1978. í hlut Ríkisútvarpsins koma að- eins 340 m.kr. af 1176 m.kr. tollatekjum síðasta árs. Þessi tekjuskerðing hindrar nauðsynleg- ar endurbætur á tækjakosti og stöðvar uppbyggingu dreifikerfis á viðkvæmu stigi, þegar m.a. herzlu- mun vatnar á að sjónvarp nái til allra landsmanna. B. Skerðing tekna af afnotagjöld- um bitnar verst á dagskrárfé. Stjórnvöld leyfðu aðeins 15—17% hækkun afnotagjalds á fyrri hluta þessa árs. Á sama tíma hækkaði nær öll opinber þjónusta í landinu margfalt meira eða í samræmi við almennar verðlagshækkanir. Áskriftarverð dagblaða, sem oft hefur verið haft til viðmiðunar, hefur siðan í sept. hækkað um 50%. Á s.l. tíu árum hefur hlutfall- ið milli ríkisfjölmiðlanna og dagblaðanna gjörbreyst: Ársáskrift af dagblaði 1969 1.845 kr. 1979 36.000 kr. Ársafnotagjald af útv. og sjónv. 1969 3.300 kr. 1979 36.200 kr. Ef sama hlutfall ætti að haldast þá hefði afnotagjald af ríkisfjöl- miðlunum báðum átt að vera 64.000 kr., eða lítið eitt ódýrara en tvö dagblöð. Ljóst er að Ríkisútvarpið hefur átt í vök að verjast meðan dag- blöðin nær ótakmarkað fá heimild til að hækka þjónustu sína. Enn má benda á, að á sama tíma og fjárhagur Ríkisútvarpsins er þrengdur svo, að horfast verður í augu við stórfelldan niðurskurð dagskrár óg m.a. er talað um að stöðva leikritagerð Sjónvarps, hef- ur beinn styrkur úr ríkissjóði til rekstrar Þjóðleikhúss hækkað úr 359.1 millj. kr. 1978 í 584.3 millj. kr. 1979, eða um 62,7%. Mun Þjóðleikhúsið þó síst of vel haldið. Það dagskrárfé sem útvarpsráð hefur nú til ráðstöfunar er tæp- lega sama krónutala og á sl. ári og í 35—40% verðbólgu hefur hið takmarkaða afnotagjald í för með sér stórfelldan niðurskurð dag- skrár. Ríkisútvarpið er að sjálf- sögðu reiðubúið að auka sparnað og aðhald í rekstri. Útvarpsráð er fyrir sitt leyti á sínu takmarkaða — segir i ályktun útvarpsráðs valdsviði tilbúið til að axla slikar byrðar. En útvarpsráð minnir á þær miklu kröfur sem gerðar eru til Ríkisútvarps á tímum örra framfara á sviði fjölmiðlunar. Þær kröfur eru gerðar til Ríkis- útvarpsins, að það stuðli að al- mennri menningarþróun, flytji fjölbreytt efni og veiti öllum landsmönnum alhliða þjónustu, og auk þess má minna á mikilvægt hlutverk Ríkisútvarps í almanna- vörnum. Stofnuninni ber að standa við fjölþjóðlegar skuld- bindingar um skipti á dagskrár- efni. Það þarf að mæta kröfum almennings um fjölbreytni og gæði á tímum þegar öll fjölmiðlun tekur miklum stakkaskiptum og samkeppni harðnar. Öll dagskrár- gerð krefst nú orðið mikillar vinnu, einkum tæknilega og gæða- kröfur við dagskrárgerð hafa á síðustu tveim árum leitt til mikilla fjárútláta. Ógjörningur er að hverfa aftur til dagskrárvinnu- bragða síðasta áratugs. Sú fjár- hagskreppa s^jn nú ríkir býður heim stöðnun við stofnunina er sviptir Ríkisútvarpið því að það gegni sínu menningarhlutverki og stofnunin verður ósamkepþnisfær á tímum æ fullkomnari fjarskipta. Nú er svo komið, að útvarpsráð verður að gríþa til stórfellds niðurskurðar. Útvarpsráð lýsir stjórnvöld ábyrg fyrir þessari stöðu og bendir á, að nú eru síðustu forvöð fyrir stjórnvöld, að leiðrétta hlut Ríkisútvarpsins svo komist verði hjá niðurskurði. Óbreytt ástand leiðir til þess að á næstu vikum koma til fram- kvæmda eftirtaldar niðurskurðar- aðgerðir: 1. Sjónvarpsdagskrá hverrar viku verði stytt verulega. Niðurskurðin- um verði jafnað á erlent og innlent efni, skemmtiþætti, fræðsluefni, íþróttaefni og fréttatengda þætti. Leitast verður við að draga ekki úr flutningi barnaefnis. 2. Sumarlokun sjónvarpsins verð- ur lengd úr 4 vikum í 5 vikur til samræmis við orlofstíma flestra starfsmanna. 3. Takmörkuö verði gerð íslenskra leikrita í sjónvarpi á þessu ári miðað við fyrri viljayfirlýsingu útvarpsráðs, enda þótt sú ráðstöf- un brjóti í bága við vilyrði, sem stofnunin hefur gefið leikurum og leikritahöfundum og hindri stofn- unina í að standa við skuldbind- ingar gagnvart öðrum þjóðum. 4. Stórlega verður aukinn hlutur endurtekins efnis hjá hljóðvarpi. 5. Þættir í hljóðvarpi, sem verið hafa mjög dýrir í vinnslu, verði felldir niður og dregið verulega úr leikritaflutningi. 6. í innlendri dagskrárgerð sitji í fyrirrúmi gerð ódýrs efnis en öllum dýrari verkefnum frestað. 7. Frestað verði öllum áformum um að hefja næturútvarp eða áætlunum um að senda út aðra dagskrá. Fjölbreyttar hugmyndir um nýjungar í dagskrárgerð, sem ræddar hafa verið í útvarpsráði, koma ekki til framkvæmda að sinni. Útvarpsráð mun beita sér fyrir því, að gerð verði úttekt á kostnað- arhlið dagskrárgerðar stofnunar- innar og mun á þeim grundvelli marka nýja dagskrárstefnu, sem óhjákvæmilega mun leiða til sparnaðar, en jafnframt draga úr fjölbreytni dagskrár ríkisfjölmiðl- anna. Núverandi útvarpsráð harmar að það skuli hindrað í að uppfylla þær kröfur sem lands- menn gera til stofnunarinnar, en vísar öllum kvörtunum til þeirra ráðamanna er ekki hafa skilning á menningarhlutverki ríkisfjölmiðl- anna.“ MBL. hefur borizt eftirfarandi: „Félag íslenzkra símamanna hélt almennan fund 26. apríl 1979 um samkomulag BSRB og fjár- málaráðherra frá 23. mars s.l. Fundinn sóttu rúmlega 80 fé- lagsmenn og í fundarlok var eftir- frandi ályktun samþykkt með öllum greiddum atkvæðum gegn tveimur. „Almennur fundur í Félagi ís- lenzkra símamanna, haldinn 26. apríl 1979, hvetur til samstöðu um að hafna samkomulagi BSRB og fjármálaráðherra um niðurfell- ingu 3% kauphækkunar gegn „Ég er mjög undrandi á þessum ummælum útvarpsráðs, því það er eins og menn vilji ekki vita af því, sem þeir þó eiga að vita, að það á að koma hækkun á alla taxta ríkisútvarpsins síðar á árinu. Allir þessir útreikningar útvarpsráðs byggjast hins vegar á óbreyttum tekjum. Ég skil ekki vinnubrögð af þessu tagi,“ sagði Ragnar Arnalds menntamálaráð- herra, er Mbl. sneri sér til hans í gær í tilefni af ályktun útvarps- ráðs. „Sjónvarpið fær 17% hækkun á afnotagjöldin og hefur verið til- fellt breytingu á lögum um kjarasamn- inga opinberra starfsmanna. Fundurinn ítrekar jafnframt fyrri kröfur F.Í.S. um fullan samn- ingsrétt félaginu til handa." Tónleikar í Stykkishólmi Stykkishólmi, 27. april. ENSKI píanóleikarinn Richard Deering leikur í félagsheimilinu í Stykkishólmi á mánudagskvöld. Fréttaritari. kynnt um 20% hækkun á síðari hluta ársins," sagði Ragnar. „Og þótt ekki fáist þá nema önnur 17%, þá er samanlögð hækkun afnotagjalda sjónvarps á árinu þar með rúmlega 36%, sem er rúmlega það, sem verðbólgan er talin verða á árinu. Útvarpið fær 15% hækkun af- notagjalda og rætt hefur verið um 15—20% hækkun síðar á árinu. En fáist ekki nema önnur 15% þá, hækka afnotagjöld útvarpsins samt um 32% á árinu, sem er rétt við verðbólgustigið. Auglýsingataxti útvarpsins hækkaði nýlega um 35% og það er gert ráð fyrir enn frekari hækkun síðar á árinu. Hjá sjónvarpinu hækkaði auglýsingataxtinn 1. nóv- ember sl. um 35% og við höfum boðið þeim upp á frekari hækkun í vetur, en þeir hafa kosið að bíða með hana. Væntanlega hækka auglýsingar í sjónvarpi þá í haust. Þegar þetta er haft í huga og svo það að útvarpið kom út á árinu 1978 með hagnað, þótt ekki væri hann mikill, þá get ég ekki séð að það geti verið rétt að tala um fjársvelti. Skýringin á þessu hlýt- ur að vera sú, að það er rangt reiknað. Hitt er svo aftur annað mál að ríkisútvarpið hefur fengið minni hlut af tolltekjum af innflutningi sjónvarpstækja til sinna fram- kvæmda. Og ég tel framlag ríkis- sjóðs til framkvæmda útvarpsins of lítið. En væntanlega verða gerðar ráðstafanir til að ríkisút- varpið geti staðið við sína fram- kvæmdaáætlun og hef ég í því sambandi kannað með útvegun láns til þess," sagði Ragnar Arn- alds. EBE sendir Noregi hótun Ósló, 27. apríl. Reuter. EMBÆTTISMENN í Ósló vörðu í dag þá ákvörðun norsku ríkisstjórnarinnar að takmarka fiskveiðar við Norður-Noreg og sögðu að þetta væri bráðnauðsynieg bráðabirgðaráðstöfun tii þess ætluð að vernda ókynþroska þorsk. Áður hafði fjárlagafulltrúi Efnahagsbandalagsins, Christopher Tugendhat, sagt á Evrópuþinginu í Strassborg að bandalagið mundi taka til at- hugunar þann möguleika að grípa til refsiaðgerða ef tak- mörkunum yrði ekki aflétt eða ef fullnægjandi skýring fengist ekki. Norðmennirnir neituðu því að bannið næði til þriggja fjórðu lögsögu þeirra norðan 62. breiddargráðu og sögðu að það tæki aðeins til lítils svæðis við Nord Kap. Ráðstafanirnar eru gerðar þar sem sjórinn er mjög kaldur. Hefur ókynþroska þorskur neyðzt til þess í fyrsta skipti síðan 1958 að yfirgefa Aust- ur-Barentshaf þar sem hann hefur venjulega haldið sig. Rússar hafa einnig mótmælt og farið fram á að þessum tak- mörkunum verði aflétt. Skil ekki svona vinnubrögð — segir Ragnar Amalds menntamálaráðherra

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.