Morgunblaðið - 28.04.1979, Síða 27

Morgunblaðið - 28.04.1979, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979 27 Frumvarp um aðstoð við þroskahefta: Miðar að jafnrétti þeirra við aðra þjóðfélagsþegna Magnús H. Magnússon, heilbrigðisráðherra, mælti í gær fyrir frv. til laga um aðstoð við þroskahefta. Frumvarpið er samið af nefnd, sem fv. heillHgðis- ráðherra, Matthías Bjarna- son, skipaði í marzmánuði 1978. Nefndina skipuðu: Ingimar Sigurðsson, deild- arstjóri í heilbrigðisráðu- neytinu, Jón S. Olafsson, skrifstofustjóri í félags- málaráðuneytinu, Agúst Fjeldsted, hrl., og Jón S. Adolfsson skrifstofustjóri. Frumvarpið er í 6 köflum: 1) Markmið og stjórn, 2) Tilkynning- arskylda, 3) Greiningarstöð ríkis- ins, 4) Þjónusta og stofnanir, 5) Rekstur og kostnaður og 6) Ymis ákvæði. Frumvarpinu fylgir ítar- leg og vel unnin greinargerð og fjölmörg fylgigögn. Helztu nýmæli í frumvarpinu eru þessi. • 1. Ákvæði, 1. greinar, þar sem kveðið er á um að þroska- heftum skuli tryggt jafn- rétti við aðra þjóðfélags- þegna er í sjálfu sér ekki nýmæli, þar sem líta verður svo á að mannréttindi, þar með talið jafnrétti, séu einn af hornsteinum stjórnar- skrárinnar. Hvað snertir þroskahefta sérstaklega er um nýmæli að ræða. • 2. Með ákvæðum 2. greinar er lagt til orðið „þroskaheftur" Tvenn lög: Laun í veik- indaforföll- um—lán til dagvistun- arstofnana Tvenn lög vóru samþykkt á Alþingi í gær: • 1) Frumvarp til laga flutt af Jóhönnu Sigurðardóttur (A) og fl. þess efnis, að Húsnæðismála- stjórn megi veita lán til bygg- ingar dagvistunarstofnana í eigu sveitarfélaga, launþcga- samtaka og annarra félags- legra aðila, sbr. 3. gr. laga nr. 112/1976. Ráðherra setur reglugerð um framkvæmd. • 2) Frumvarp til laga um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá stöfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla. Hin nýju lög fela í sér ákvæði um rétt verkafólks til mánaðar uppsagnarfrests, eins og var í eldri lögum, en nú nægir cins árs starf f sömu atvinnugrein til að tryggja þennan rétt, sem áður var bundinn við eins árs starf hjá sama vinnuveitanda. Þá er í lögunum ákvæði um rétt tii greiðslu dagvinnulauna f allt að 3 mánuði, ef veikinda- forföll stafa af atvinnu- sjúkdóm, sem rekja má ótvírætt til þeirrar vinnu, sem viðkomandi stundar, eða til vinnuslyss. Ilér er um verulega lengingu að ræða frá fyrri 'lögum (4 vikur). sé skilgreint, en slíkt hefur ekki verið gert í lögum áður. • 3. í 3. grein frumvarpsins er kveðið á um yfirstjórn mál- efna þroskaheftra og um skýra verkaskiptingi milli þeirra þriggja ráðuneyta, sem með þessi málefni fara og samvinnu þeirra innan sérstakrar stjórnarnefndar. • 4. í 4. gr. frumvarpsins er landinu skipt niður í átta starfssvæði, að því er mál- efni þroskaheftra varðar. Þar er gert ráð fyrir sér- stökum svæðisstjórnum, sem er ætlað það hlutverk að fara með þessi málefni í héraði og sr þannig ætlunin að færa frumkvæði þessara mála sem mest yfir í héruð- in og jafnframt að þar fari fram sem fjölþættust þjón- usta. • 5. Með 2. kafla þessa frum- varps sem fjallar um til- kynningarskyldu, er lagt til að iögfest verði viss tilkynn- ingarskylda, þannig að þeim aðilum, sem annast mæðra- skoðanir, heilsufarsskoðan- ir og því um líkt, sé gert skylt að fylgjast vel með andlegu og líkamlegu at- gervi þeirra, sem þeir skoða og tilkynna foreldrum og svæðisstjórnum eftir því um hvaða skoðun er að ræða, um grun um þroskaheftingu o.s.frv. • 6. 1 3. kafla þessa frumvarps er lagt til að sett verði á fót sérstök aðalgreiningarstöð, greiningarstöð ríkisins, og er henni fyrst og fremst ætlað að annast rannsóknir á greiningu á þroskaheftum ásamt öðrum störfum. Gert er ráð fyrir að við þessa stöð starfi sérmenntað starfsfólk og að sérstakur forstöðu- maður starfi þar sérmennt- aður í uppeldi og umönnun þroskaheftra. • 7. í 11. gr. eru ákvæði þess efnis að búa skuli þannig að almennum stofnunum, að þeim sé kleift að annast þjónustu við þroskahefta. • 8. í 12. gr. er kveðið á um þær stofnanir, sem skuli vera fyrir þroskahefta í landinu. Reynt er að aðgreina slíkar stofnanir með hliðsjón af hlutverki þeirra. • 9. I 13. gr. eru ákvæði um umsóknir, um þjónustu og vistun á stofnunum. Þar er kveðið á um aðra skipan mála heldur en í dag og Kjartan Ólafsson: Leiðrétting Kjartan Ólafsson (Abl.) hefur beðið fyrir leiðréttingu á þingfrétt Mbl. þess efnis, að hann hafi getið um fjarveru formanns og varafor- manns fjárhagsnefndar neðri deildar Alþingis til skýringar á því, hvers vegna hann kæmi fram sem talsmaður nefndarinnar. Hins vegar hafi hann í engu látið að því liggja, að fjarvera þeirra væri orsök að því, hver dráttur væri orðinn á afgreiðslu lánsfjár- áætlunarinnar, sem til meðferðar er hjá nefndinni eins og hafi mátt skilja af fréttafrásögn blaðsins. Þessari leiðréttingu er hér með komið á framfæri. Stjórnarfrumvarp med hertum eftirlitsreglum Vorblær í þingsölum Fáar vikur lifa eftir þingtím- ans, þótt mörg mál og stór séu óafgreidd, þar á meðal lánsfjár- áætlun 1979 og vegaáætlun. Samt er vor í lofti í þingsölum ekki sfður en utan dyra. Hér sjást fjórir þingmenn Sjálf- stæðisflokks léttir á brún þrátt fyrir annríkið: Matthías Bjarnason, fv. sjávarútvegsráð- herra. Þorv. Garðar Kristjáns- son forseti efri deildar, Geir Hallgrímsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins og Eggert Haukdal. 1. þ.m. Sunnlendinga. Skipan gjaldeyris- og viðskiptamála: vísast um það nánar til athugasemda við 13. gr. • 10. í 14. gr. frumvarpsins eru sérstök ákvæði, sem tryggja eiga það, að þeir aðilar, sem ekki njóta kennslu eða þjálfunar utan heimilis, fái slíka ókeypis kennslu og þjálfun, sem metin yrði við þeirra hæfi. Hér er um að ræða ákveði til þess að tryggja það, að þroskaheft- ir, sem einhverra hluta vegna njóta ekki þeirrar almennu þjónustu, sem fyr- ir hendi er samkvæmt lög- um, verði ekki útundan. • 11. í 15. gr. eru ákvæði um að framfærendur þroskahefts einstaklings, sem eingöngu dvelur í heimahúsum og þarfnast umönnunar eða gæslu, að dómi svæðis- stjórnar, að höfðu samráði við greiningarstöð ríkisins, eigi rétt á aðstoð. Gert er ráð fyrir að viðkomandi Matthías Bjarnason sveitarfélög sjái um að þessi aðstoð verði veitt, en kostn- aður við aðstoðina verði greiddur úr ríkissjóði, sbr. 17. gr. 4. málsgr. Ennfremur Magnús H. Magnússon er gert ráð fyrir því að kjósi framfærendur það sjálfir og séu þeir taldir til þess hæf- ir, sé heimilt að veita aðstoð með peningagreiðslu. Svavar Gestsson viðskiptaráð- herra, mælti í gær fyrir stjórn- málafrumvarpi um skipan gjald- eyris- og viðskiptamála. Aðalefnisþættir frumvarpsins eru þessir. 1) I 1., 2. og 3. gr. er fjallað um stefnumótun, verkaskiptingu, vöru- og tollameðferð o.fl. 2) I 4. gr. er fjallað um skila- skyldu gjaldeyris, innlenda gjald- eyrisreikninga og fl. í því sambandi. 3) í 5. gr. er fjallað um þátt gjaldeyrisviðskiptabanka og skyldur þeirra, m.a. við gj aldeyrisef tirlitið. 4) í 6. til 11. gr. er fjallað um ýmis störf, sem gjaldeyriseftirlitið hefur með höndum, svo og ýmis verkefni og heimildir Seðlabanka við skipan þessara mála. 5) I 12. gr. er fjallað almennt um erlendar lántökur. 6) í 13. gr. er fjallað um útflutningsleyfi. 7) I 14. — 19. gr. er fjallað um önnur ákvæði og viðurlög, þ.á m. leyfisgjöld, heimild gjaldeyris- eftirlits til að stöðva tímabundið gjaldeyrissölu o.fl. Aðalstefnulýsing frumvarpsins, í 1. gr., er, að vöruinnflutningur sé ekki háður leyfum, nema í undan- tekningartilfellum skv. reglum, sem ráðuneytið kann að setja, eins og það er orðað í greinargerð. Gert er ráð fyrir því í 2. mgr. að aðrar yfirfærslur en vegna vara, þ.e. vegna fjármagnsflutninga og þjónustugreiðslna, verði háðar reglum, sem ráðuneytið setur. I 2. gr. eru ákv. um breytingu á gildandi fyrirkomulagi um framkv. laganna. Þar er gert ráð fyrir því að viðskiptaráðuneytið fari með úthlutun leyfa að svo miklu leyti, sem vöruinnflutningur er háður þeim. Sama gildir um útgáfu annarra gjaldeyrisleyfa, s.s. vegna þjónustugreiðslna eða fjármagnsflutninga. Seðlabanki skal verða til ráðuneytis um fram- kvæmd og heimildarákvæði er um að fela megi gjaldeyrisbönkum framkvæmd úthlutunar. Ekki er gert ráð fyrir verulegum breytingum á reglum, er varða tollaafgreiðslu. Mikilvæg ákvæði eru hins vegar um skilagreiðslu gjaldeyris, sem fela í sér breytingar frá gildandi lögum, m.a. með því að gera greinarmun á sölu- og skilaskyldu gjaldeyris. Ennfremur eru ákvæði sem lögfesta reglugerðarheimildir um tilvist innlendra gjaldeyris- reikninga. Ekki er gert ráð fyrir fjölgun gjaldeyrisbanka (sem nú eru 2). Fastar er að orði kveðið í 5. gr. um upplýsingaskyldu gjald- eyrisviðskiptabanka, svo og skyld- ur þeirra við gjaldeyriseftirlitið, sem fær allvíðtækar heimildir í starfi sínu, sbr. 6. gr. Vakin er sérstök athygli á 4, mgr. hennar um gagnkvæma upplýsingaskyldu opinberra aðila, þ.á m. skatt-, verðlags-, tollyfirvalda og gjald- eyriseftirlitsins. Ýmis önnur aðhaldsákvæði er að finna í frum- varpinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.