Morgunblaðið - 29.04.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 29.04.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. APRÍL 1979 3 Uppbót á Ofurmennið Fræði fyrir almenning Ofurmennið í lit og vísindi fyrir alla aldursfiokka TVÆR nýjungar eru í blaðinu í dag: á bls. 30 fer Ofurmennið (Superman) á kostum í litum og leggur alla síðuna undir sig, og á bls. 55 hefja Alþýðuvísindi göngu sfna f máli og myndum. Sá þáttur fjallar á einfaldan og skýran hátt um nátturuleg fyrirbæri ýmiskonar og vfsindi og tækni og hefur tekist svo ágætlega að erlendis hafa skólar jafnvel notað hann sem kennslugagn. Þetta er efni fyrir þá fróðleiksfúsu, unga sem gamla. — Ofurmennið, Superman, er á hinn bóginn óþarfi að kynna. Þessi heimsfræga myndasaga hefur nú um hríð verið daglegur gestur á myndasíðu Morgunblaðsins, og hin nýja litasfða um afrek hans og ævintýri er því einskonar helgar- uppbót. Bæði Ofurmennið og Alþýðuvfsindi er frambúðarefni á sunnudagssfðum Morgunblaðsins. Víkingar í baráttu við Valamawn i áralttatalk lalandamótains á dttgunum. Þá Þurftu beir att ajá á aftir ialandameiataratitlinum. Tekat Þeim att verja bikarmeistaratitil ainn í leiknum í kvttld? Úrslitaleikir bikarkeppni HSÍ í kvöld: Tekst ÍR að sigra í fyrsta skipti? í KVÖLD fara fram úrslita- leikirnir í bikarkeppni Hand- knattleikssambands íslands. Klukkan 19 leika Fram og KR til úrslita f bikarkeppni kvenna og strax á eftir eða klukkan 20.30 leika Vfkingur og ÍR til úrslita f bikarkeppni karla. Leikirnir fara fram í Laugar- dalshöllinni. Telja verður Fram líklegri sigurvegara í kvennaflokki, því stúlkurnar í Fram eru íslands- meistarar í handknattleik. I karlaflokki gæti orðið um hörku viðureign að ræða. Víkingar eru núverandi bikarmeistarar og þeir urðu númer 2 í íslandsmótinu, sem er nýlokið. Hins vegar eru ÍR-ingar þekktir baráttumenn, en þeir leika nú í fyrsta skipti til úrslita í þessari keppni. Það lið sem sigrar í leiknum öðlast þátt- tökurétt í Evrópukeppni bikar- hafa. HREINN SIGRAÐI HREINN Halldórsson KR sigraði í kúluvarpi á háskólamóti í frjálsum íþróttum, sem fram fram í Des Moines í Iowa í Bandaríkjunum á föstudaginn. Hreinn varpaði kúlunni 19,89 metra, sem er allnokkuð frá hans bezta. Hreinn hefur undanfarið dvalið í Texas við æfingar. Áherzla nú lögð á kol- munna, rækju og karfa SÉRSTÖK fjárveiting, að upphæð 150 milljónir króna, er til ráðstöfunar í sjávarútvegsráðuneytinu til fiskleitar og tilrauna með veiðarfæri, vinnslu og veiðar almennt. Þessi fjárveiting er utan beinna fjárveitinga til Hafrannsóknastofnunar og er þessa dagana unnið að því að skipuleggja hvernig þessu fé verður varið. Þegar er þó ljóst að mestum hluta fjárins verður varið í þrjár fisktegundir, kolmunna, rækju og karfa, að því er Morgunblaðið fékk upplýst í sjávarútvegsráðuneytinu. Líklegt er að skip verði leigt til aðstoðar þeim skipum, sem í sum- ar ætla að gera út.á djúprækju. Ekki er vitað hvort eingöngu verður um rækjuleit að ræða fyrir þessi skip eða leit að nýjum rækjumiðum. í sambandi við kolmunna er áætlað í sumar að gera ýmsar tilraunir á miðunum úti af Aust- fjörðum, má þar nefna tilraunir í sambandi við veiðarfæri, vinnslu og geymslu. Áætlað er að skuttog- arinn Hafþór, áður Baldur, verði mikið við karfaleit og rannsóknir í sumar, en reiknað er með að skipið verði ferðbúið á næstu dögum. Einkum eru uppi hugmyndir um mjög aukna karfaleit, en það er stefna stjórnvalda að beina togur- unum í auknum mæli á karfaveið- ar. Costa Del Sol 11. maí — Uppselt Grikkland 17. maí — 20 dagar Júgóslavía 3. júní — 3 vikur Costa Del Sol 1. og 8. júní — 3 vikur Tryggið ykkur réttu ferðina áður en allt selst upp. 250 sætaDC 8 -þota DAGFLUG. Muniö Útsýnar- kvöldið Hótel Sögu í kvöld. ' Austurstræti 17, Símar 26611 — 20100. Sumarið byrjar fyrr hjá þeim sem nota sér hinar hagstœðu vorferðir Útsýnar, þvi nú er sumarið komið við Miðjarðarhafið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.