Morgunblaðið - 01.05.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 1979
79
iðnaðar, svo framarlega sem
„réttindi hans og hagsmunur
hafa verið fótum troðnir í trássi
við lög“. Sovézk stjórnvöld halda
því fram, að þetta sé ekki
eiginlegt verkalýðsfélag: í
fyrsta lagi vegna þess að hags-
muna sovézkra verkamanna sé
þegar nógu vel gætt af þeim
verkalýðsfélögum, sem til eru og
í öðru lagi vegna þess að það sé
ekki verkalýðsfélag verkamanna
í ákveðinni iðngrein. En hvað er
verkalýðsfélag? Ef það er sam-
tök sem berjast fyrir réttindum
verkamanna þá er Frjálsa
verkalýðssambandið eina verka-
lýðsfélagið í Sovétríkjunum. Fé-
lagar í Frjálsa verkalýðssam-
bandinu segja að „í landi okkar
er engin stofnun, sem ver hags-
muni verkamanna hlutdrægnis-
laust. Sovézk verkalýðsfélög
verja ekki réttindi okkar, þau
hafa verið sameinuð í ein sam-
tök sem eru undirgefin Flokkn-
um og ríkisstjórninni". Yfir-
maður sovézkra verkalýðsfélaga
er skipaður af ríkisstjórninni.
Sá síðasti, Alexander Shelepin,
var áður yfirmaður KGB. Eftir-
maður hans er Shibaev, áður
fyrsti ritari Saratov-svæðis-
flokksnefndarinnar. Meira að
segja forstjórarnir eru í verka-
lýðsfélögum. Forstjórarnir velja
verksmiðjunefndirnar, ekki
verkamenn. Samningar fyrir-
tækjastjórna og verkalýðsfélaga
gera aðeins ráð fyrir sameigin-
legum aðgerðum til að aga
vinnuaflið svo að tryggt verði að
áætlunin standist á réttum
tíma.
Stjórnvöld létu þegar í stað til
skarar skríða gegn Frjálsa
verkalýðssambandinu. Klebanov
var handtekinn fyrir að
„sprengja upp neðanjarðarjárn-
brautina í Moskvu" og færður í
geðsjúkrahús. Þegar aðrir félag-
ar í Frjálsa verkalýðssamband-
inu fengu hann lausan reyndi
KGB að handtaka hann og tvo
aðra, en í átökunum, sem fylgdu
í kjölfarið, tókst félögum hans
með aðstoð vegfarenda að koma
í veg fyrir handtöku. 7. febrúar
1978 var Klebanov loks handtek-
inn. í maí var hann sendur aftur
til Dnepropetrovsk eftir leynileg
réttarhöld. Síðan hefur ekkert
til hans spurzt.
Klebanov hefur barizt við
sovézk yfirvöld í 20 ár. Hann
hefur ekki barizt gegn sovézka
kerfinu heldur fyrir því að
lögum þess sé framfylgt og að
þeir embættismenn, sem koma í
veg fyrir það, verði handteknir.
Þeir hafa varpað honum í fang-
elsi, fært hann í geðsjúkrahús,
ofsótt fjölskyldu hans og neitað
honum um vinnu — en samt vill
hann ekki gefast upp. Hann er
kannski barnalegur, en hug-
rakkur, heiðarlegur og ótrúlega
þrjózkur. Þess vegna er sovézka
ríkisstjórnin hrædd við hann.
Nú er Alþjóðavinnumálastofn-
unin farin að knýja á um mál
hans og Sovétstjórnin lætur
rigna yfir hann öllum hugsan-
legum fúkyrðum og kallar hann
drykkjuhrút, Gyðing, kvenna-
bósa, þjóf og sérstaklega brjál-
æðing. Reynsla Klebanovs hefur
auðvitað fengið á hann, hann er
dálítið æstur og í tilfinninga-
uppnámi. En Alexander
Voloshanovich, opinberi sovézki
geðlæknirinn, sem skoðaði hann
í janúar 1978, komst að þessari
niðurstöðu:
„Bæði nú og á þeim tíma
þegar hann var ákærður fyrir að
brjóta lögin var hann sér með-
vitandi um gerðir sínar og hafði
fulla stjórn á þeim. Hann er
ábyrgur gerða sinna."
Klebanov er andlega heil-
brigður. Hann er venjulegur
sovézkur verkamaður, aðeins
hugrakkari en flestir. ,Eins og
hann segir sjálfur: „Ég vildi
þetta ekki, en ég leiddist út í
það. Ég vildi vinna og lifa
eðlilegu lífi. Ég átti ekki ann-
arra kosta völ.“
Listahátíð barnanna
Dagskrá 1. og 2. maí
Dagsirá
þriðju-
daginnl maí
Kl. 16.00 Frá skóla ísaks
Jónssonar. Gamli tíminn
í tali og tónum. Sögu-
stund í skólasafni: Ár-
mann Kr. Einarsson seg-
ir ævintýri. Kór Mýrar-
húsaskóla syngur.
Stjórnandi Hlín
Torfadóttir.
Kl. 17.00 Kvikmyndir
gerðar af nemendum
Álftamýrarskóla undir
leiðsögn Marteins Sigur-
geirssonar sýndar í
fundarsal.
Kl. 18.00 Skólahljóm-
sveit Valhúsaskóla,
„Gaulverjar", leika.
Kl. 20.30 Frá ísaksskóla,
Æfingaskóla K.H.Í. og
Vesturbæjarskóla: Nem-
endur úr ýmsum aldurs-
flokkum flytja frum-
samið efni.
Miðviku-
daginn
2. maí
Kl. 17.30 Frá Laugar-
nesskóla: „Heyrði ég í
hamrinum“, 7 ára börn
syngja, dansa og leika.
Frá Æfingaskóla K.H.I.:
Samleikur á flautu og
klarinett. Lúðrasveit
Tónlistarskóla Seltjarn-
arness leikur. Atli
Guðlaugsson.
Kl. 20.30 Frá Álftamýr-
arskóla: Kynning á verk-
um Guðrúnar Helga-
dóttur. Frá Víghólaskóla:
Víghólaflokkurinn flytur
„Sálin hans Jóns míns“ í
tali og tónum. Nemendur
úr Dansskóla Sigvalda
sýna nokkra dansa.
Sýningin á Kjarvals-
stöðum er opin kl. 14.00
til 22.00. Þar er fjölbreytt
sýning á verkefnum
barna á Stór-Reykja-
víkursvæðinu og sýna
þau ýmis viðfangsefni sín
undir kjörorðunum
Svona gerum við.
i/
AUGLYStNGASTOFA SAMBANOSINS
Á Bamaárl l.Mal 1979
Á þessu ári fer fram um alian heim voldugt söfn-
unarstarf í þágu vanræktra og vanheilla barna.
Fjölmargar mannúðarstofnanir og hugsjónasamtök
leggjast á eitt til aö efla þetta starf og vekja menn tít
umhugsunar. Sameinuðu þjóöirnar hafa leitað fulltingis
og samstarfs alþjóðasamvinnusambandsins um alian
heim.
Söfnun samvinnufélaganna hér á landi sem ann-
ars staðar starfar undir einkunnaroróunum „Kaupið fötu
af vatni“. Gefið aö minnsta kosti eítt hundrað krónur,
andvirði einnar fötu í vanþróuðu landi.
Einhver geigvænlegasti bölvaldur víða um heim er
skortur á hreinu vatni, eða algjört vatnsleysi, sem hefur í
Kaupíð (ötu
a£ vatní $
för með sér hvers konar hörmungar. Og börn eru
viðkvæmari en aðrir fyrir sjúkdómum, sem þróast bein-
línis í skjóli vatnsskorts eöa stafa frá menguðu vatni.
Þaö er áætlaö, að 500 milljónir barna í heiminum líöi
þjáningar af skorti á góðu vatni. Þessi einfalda og ægi-
lega staðreynd mætti öðru fremur vekja samúð þeirra,
sem búa við gnægtir vatns í óspilltu landi eins og við, fyr-
ir svo frumstæðum þjáningum hinna smæstu bræðra.
Um leið og samvinnufélögin árna hinu vinnandi
fólki til lands og sjávar heilla á hinum löngu helgaða
baráttu- og hátíðisdegi alþjóðlegrar verkalýðshreyfingar,
eru allir íslendingar hvattir til að leggja sinn skerf af
mörkum og „Kaupa fötu af vatni“ í kaupfélaginu og á
öðrum söfnunarstöðum.
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA