Morgunblaðið - 09.05.1979, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ1979
13
ólöf Harðardóttir og Arnar Jónsson
M jög góð vertíð
í Sandgerði
Sandncrði. 8. mal.
FYRSTU fjóra mánuði ársins barst á land í Sandjíerði 11.120 lestir af
fiski, en það er 3.850 lestum meira en á sama tímabili í fyrra. Af
þessum afla nú voru 9.886 lestir af bátafiski. sem fékkst í 2162
sjóferðum. en í fyrra var bátaaflinn 7.272 lestir í 1989 sjóferðum en
einnig lönduðu to(?ararnir 10 sinnum hér í vetur í 1231 lestum. en þeir
josuðu hér aidrei fyrstu 1 mánuðina í fyrra.
Lelkllst
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
er fyrst og fremst gríðarmiklar
.umbúðir um lítið hugnæmt ævin-
týri. í staðinn fyrir einlægni
ævintýraskáldsins er komin sölu-
vara þar sem leitast er við að kitla
hégómagirnd áhorfenda sem búið
er að mata á því sérameríska
fyrirbrigði sem slíkir söngleikir
eru. Það sem á að vera ádeila
breytist í skrípalæti, skopið gerir
varla meira en laða fram stirðnað
bros, textinn vekur vorkunnsemi
eða gremju. Ég þekki ekki þennan
söngleik á frummálinu. Lögin
virðast léttvæg og eru ekki
minnisstæð. Þýðingin er með
fáeinum undantekningum slík
flatneskja að undrun vekur að
leikararnir skuli fást til að flytja
hana.
Sýningin er viðamikil og hefur
greinilega verið kostað miklu til.
Það hefur kannski réttlætingu í
því að nauðsynlegt sé að setja á
svið söngleik öðru hverju. Ekki
sætir þo söngurinn neinum tíðind-
um. Fáguð rödd ólafar Harðar-
dóttur skar sig úr og auk þess kom
hún vel fyrir á sviðinu.
Líkiega hefur Dania Krupska
lagt hart að sér við að kenna
leikurunum að dansa og hreyfa
sig. Árangur er góður, en nægir
ekki verkinu til brautargengis. Sé
þess getið sem vel er gert má
minna á túlkun Sigríðar Þorvalds-
dóttur á Vinfríði prinsessu.
Róbert Arnfinnsson í hlutverki
konungs brást ekki fremur en
endranær. Sama má segja um
Þórhall Sigurðsson í hlutverki
flóns. Sigmundur örn Arngríms-
son var lipur dansmeistari.
Trúbadorarnir Flosi ólafsson og
Egill Ólafsson voru ósköp
vandræðalegir. Hvað þetta verk
höfðaði lítið til undirritaðs
skrifast þó ekki á reikning
leikenda eða annarra aðstandenda
sýningarinnar. Það á einfaldlega
ekkert erindi til íslenskra áhorf-
enda.
Prinsessan á bauðinni eftir Jay
Thompson, Marshall Baker og
Dean Fuller er verk með tóma-
hljóði. Nær hefði verið að leita
fanga annars staðar.
Aflahæstu bátarnir í apríllok
voru Skagaröst með.605 lestir í 71
sjóferð, skipstjóri á henni er Örn
Einarsson. Annar varð Bergþór
með 541 lest í 80 sjóferðum og
þriðji varð Arney með 540 lestir í
47 sjóferðum. Skagaröst og Berg-
þór voru á línu í janúar og febrúar
en síðan á netum, Arneyjan var
aftur á móti á netum, nema í
marz, þá stundaði hún loðnuveið-
ar.
9.400 lestum af loðnu var landað
hér í vetur og 200 lestum af
loðnuhrognum en aðeins 1306
lestir af loðnu bárust hingað
veturinn 1978. Segja má að bið-
staða sé hér nú hjá verulegum
hluta bátanna síðan netaveiði-
bannið gekk í gildi og bíða þeir
ýmist eftir því að geta hafið
netaveiðar að nýju er banninu
lýkur 20. maí eða að humarvertíð-
in hefjist. Einnig standa vonir til
að 6—8 bátar fái leyfi til rækju-
veiða hér í sumar á Eldeyjar-
svæðinu svokallaða, en þær veiðar
hófust aftur í fyrrasumar, eftir
nokkurra ára hlé. í fyrra voru
aðeins þrír bátar á rækjuveiðum
og gáfust þær allvel. Þá var
starfrækt ein rækjuvinnslustöð
hér í Sandgerði og nú er unnið að
stækkun hennar og einnig er verið
að koma upp aðstöðu til rækju-
vinnslu í Garðinum.
Þeir bátar, sem eru á veiðum
hér nú hafa aflað allvel að undan-
förnu. Sérstaklega hafa þó troJl-
bátarnir fengið mjög góðan afla
sunnan við landið í um þaö bil
mánaðartíma. Til dæmis lönduðu
tveir þeirra hér um helgina, Elliði
á laugardaginn 44,7 lestum og
Reynir á mánudaginn 44 lestum,
báðir eftir 2—3 sólahringa veiðar.
Nokkrir bátar eru á veiðum með
línu, þar af tveir sem voru á
netum fram að mánaðamótum og
hafa þeir stærri verið með þetta
4—7 lestir í róðri. Sjö bátar eru
byrjaðir á handfæraveiðum, en
þær veiðar höfðu gengið mjög
erfiðlega vegna hinnar sterku
norðanáttar, sem hér hefur verið
ríkjandi að undanförnu.
Togararnir héðan hafa einnig
aflað mjög vel í vetur og á föstu-
daginn landaði Dagstjarnan 100
lestum eftir 5 daga veiðiferð. Mikil
og góð vinna hefur verið hér í
fiskvinnslustöðvunum að undan-
förnu.
1 gær landaði svo skuttog-
arinn Guðmundur í Tungu frá
Patreksfirði hér í Sandgerði rúm-
lega 100 lestum af fiski, eingöngu
karfa og grálúðu, en slíkan fisk
þykir ekki að sögn nógu hag-
kvæmt að vinna á Vestfjörðum.
— Jón.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Þessi sýning lætur ekki mikið
yfir sér, en hún er nokkuð þung á
metunum, er athuguð er. Má ég
nefna vefnað Júlíönu okkar
Sveinsdóttur, stólinn hans Arne
Jacobsen, spilaborðið stórkostlega
eftir Kaare Klint, Ole Schwalbe og
Lise Warburg koma einnig við
sögu, grænn messuhökull eftir
Kirsten og John Becher er
meistaraverk, skartgripir eftir
Helgu og Bent Exner eru í sér-
flokki, og það eru einnig altariska-
leikur og oblátudiskur eftir Jören
Dahlerup. Af keramik bendi ég
aðeins á gólfvasa eftir Axel Salto
og annan vasa eftir Christian
Poulsen. Þannig mætti fylla
margar síður í Morgunblaðinu
með upptalningu eftir upptaln-
ingu. En guði sé lof, þess er ekki
þörf. Það einasta rétta í slíkum
tilfellum er að ganga á vit þeirra
hluta, er sýndir eru og kýnnast
þeim persónulega. Ég er viss um
að enginn, sem eyðir virði
sígarettupakka í að skoða þessa
einstæðu sýningu, eða réttara sagt
þennan hluta Hins danska list-
iðnaðarsafns, mun sjá eftir fé og
tíma. Ef við kunnum ekki að meta
sýningar sem þessar, ja, hvað þá?
Það færi þó aldrei svo, að maður
spyrði sjálfan sig; Er þá ástandið
ekki betra í okkar ágæta landi en
svo, að varla verður hugtakið
menning bendlað við það fólk, er
býr í návist fannhvítra jökla og
hnarreistra eldfjalla, við úfið haf
og harðar hríðar, frost og funa.
Hver erum við? Því verður ekki
svarað að sinni.
Það eru margir snöggir blettir á
nútíma menningu okkar hér á
Fróni, en ég vona að það spyrjist
ekki um okkur, að við höfum
sniðgengið jafn glæsilega sýningu
og nú er í kjallara Norræna
hússins. Það yrði blátt áfram
þjóðarskömm.
Valtýr Pétursson.
láiö fjórar flugur íeinu
Flaggskipið sambyggða
CROWN
1. Utvarp: FM-steiio7MW/3W44W^Eiiiiöfl vandað og næmt.
2. Magnari: 2><50 W músik - 100 Wðtt.^jjr—
3. Segulband: Vandað cassettutæki með Dolby NR kerfi.
Tíðnisvörun CR0!/FeCr: 40-14000 rið.
4. Plötuspilari: Mjög vandaður plötuspilari með rafsegultónhaus, sem hefur
að geyma demantsnál, sen endist lox lengur en safír. Vökvalyfta,
/j mótskautun, hraðastillir með Ijós á disk, 33 og 45 snúningar.
Verö kr.
408.320.
Hagstæð innkaup
gera yöur kleift
aö eignast þetta tæki,
sem á sér enga keppinauta.