Morgunblaðið - 09.05.1979, Síða 17

Morgunblaðið - 09.05.1979, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ1979 17 Nokkur megrunar- ráð Ef þið eruð í megrun, eru hér nokkur ráð sem geta hjálpað til við að halda ykkur á mottunni. 1 Ef þið eruð heima og langar í eitthvað, þá er ráð að bursta tennurnar. 2 Kaupið sleikibrjóstsykur og þegar löngunin í eitthvað er orðin óbærileg, þá grípið til sleikibrjóstsykursins. En... ekki borða hann allan heldur sjúgið hann smástund. Síðan er hann geymdur í plasti eða sellófani þangað til seinna. Hann á að geta enzt mjög lengi. 3 Ef Þið aftur á móti eruð mjög hungruð, þá er ráð að borða 1—2 harðsoðin egg eða þurrsteikt nautabuff. Erfiðið við að melta þetta er svo mikið, að það er næstum hægt að tala um mínus-hita- einingar. 4 Ef ykkur tekst ómögulega að vera í megrun, en eruð það þolinmóð, að '/2 kg niður á við nægir yfir mánuðinn, þá þarf ekki meira til að borða 150 hitaeiningum minna á dag en þið borðið venjulega. Þannig næst 1 kg af á mán- uði með því að spara 300 hitaeiningar á dag. 5 Ekki kaupa inn þegar þið eruð svöng. Ekki borða hratt. Setjið gaffalinn frá ykkur milli bita. Ekki borða þegar þið eruð að gera eitt- hvað annað, s.s. horfa á sjónvarp, lesa o.s.frv. 6 Og fyrir þá sem finnast æfingar leiðinlegar: Gangið alltaf upp stiga í stað þess að fara í lyftu. 7 Ef tími er til, gangið í stað þess að taka strætis- vagn.Góð venja er að fara úr strætisvagni einni eða tveimur stoppistöðum áður en komið er á áfangastað. 8 Ef þið eruð útivinnandi venjið ykkur á að fara í gönguferð í hverju hádegi. 9 Fáið ykkur aldrei oftar en einu sinni af sama rétti. Þetia á einnig við þegar þið eruð ekki í megrun. 10 Sleppið aldrei úr máltíð í þeirri von að grennast. Þá missið þið bara tökin á matarlystinni og byrjið að borða meira. 11 Reynið að nota sem minnst af salti og sterku kryddi í matinn. 12 Ein stór máltíð fitar meira en margar litlar. Borðið maður allan dagskammtinn í einu, gefur það sömu vikt og ef maður skipti skammt- inum í margar máltíðir, en aftur á móti 30% meiri fitu í líkamann. Attuíerfið- leikum með hárið? Feitt hár. Bezta meðalið við feitu hári mun vera háfjallasól. Látið einnig sólina skína eins mikið á hárið og mögulegt er. Borðið mikið af ávöxtum og nýju grænmeti. Þurrt, glanslaust hár. E.t.v. er hægt að rekja orsökina til of mikillar sólar eða vinds, eða rangs mataræðis. Notið hárnæringu eftir hvern þvott. Takið lýsi og borðið kalk- og járnríkan mat. Dautt hár. Nuddið hársvörðinn vel 2—3svar sinnum í viku. Borðið fæðu, sm inniheldur mikið B-vítamín. — Sagt er að B-vítamín sé áhrifaríkt gegn gráu hárunum! Gott er að vita... .. .að auðveldasta aö- ferðin til að ná hýði af tómötum er aö stinga Þeim ofan í sjóöandi vatn í 30 sek. og síðan beint í kalt vatn. — O — .. .að góð hugmynd er aö skera sítrónu í sneiðar og setja þær beint inn í frysti (án umbúða) þar til Þær eru orðnar stífar. Þá eru sneiðarnar settar í frystiumbúðir eða plastpoka og geymdar í frystinum. Sítrónusneið- arnar er hægt að nota út í drykki; Þær kæla og gefa gott bragð. — O — .. .að ef gólfteppi rúllast upp á hornunum má hreinlega pressa Þau slétt aftur. .. .að veggi sem klæddir eru tré má hreinsa meö fljótandi bóni. — O — .. .aö til tilbreytingar við hinn venjulega eplagraut má setja appelsínumarmel- aði út í. — O — .. .að pegar egg ern notuð í hrærð satöt er auðveldast aö sneiöa þau í eggjaskeraranum; fyrst í sneiöar langsum og síöan skera yfir Þversum. — O — .. .aö til aö forðast að eggjarauður Þorni upp við geymslu, á að aöskilja eggjahvítu og rauðu, en gætiö Þess að rauðan sé heil. Síðan er köldu vatni bætt varlega í glasið, Þannig aö fljóti yfir rauð- una. — O — .. .að við sólbruna er ágætt að setja talkúm á húðina í staöinn fyrir krem. — O — ...að púlsinn hjá karlmönnum er u.p.b. 60—70 slög á mínútu, hjá kvenmönnum u.p.b. 70—80 slög á mínútu og hjá börnum u.p.b. 80—90 slög á mínútu. — O — .. .að oft er erfitt að purrka af mikið útskorn- um húsgögnum. Reynið aö nota ónotaðan máln- ingarpensil. — O — .. .að Þegar vatn er sett í ísmolaform, er bráðgóð hugmynd að setja eitt kirsuber, vínber o.Þ.h. í hvert hólf og frysta. Þaö puntar verulega Þegar ísmolinn er settur út í drykk. Góð bfíakaup á notuðum Viö tökum notaöa bíla upp í nýja og margir hafa þann hátt á, aö skipta árlega og eru því ævinlega á nýjum bílum. Þarna verða því oft mjög góö bílakaup á nýlegum bílum, sem viö seljum með vildarkjörum. Komið, skoöíð °g sannreyniö Þá. // DA víd SIGURÐSSON hf. SlÐUMÚLA 35. SÍMI 85855

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.