Morgunblaðið - 09.05.1979, Page 19

Morgunblaðið - 09.05.1979, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ1979 19 Atti að myrða CARTER? Lon An^eleH, 8. maí. Reuter-AP. MAÐUR að nafni Reymond Lee Harvey hefur játað að hafa verið þátttakandi í samsæri um að ráða Jimmy Carter Bandaríkjaforseta af dögum er forsetinn héldi ávarp á útifundi í Los Angeles á laugardag. Maður. sem Harvey hefur sagt vera aðila í samsærinu. hefur harðlega neitað aðild sinni. Harvey skýrði lögreglu frá því að hlutverk hans í samsærinu hefði verið að skjóta af byssu upp í loftið við götuhorn til að dreifa athygli mannfjöldans og þá hefði átt að skjóta á forsetann úr annarri átt. Hefðu þrír menn af suður-amerískum ættum fengið sig til að vera með í samsærinu. Harvey var handtekinn 10 m,ín- útum áður en Carter hóf ræðu sína. Tveir starfsmenn leyniþjón- ustunnar tóku eftir sérkennilegu háttalagi Harveys sem virtist taugaveiklaður og ráfaði til og frá við götuhorn þar nærri sem Cart- er skyldi koma fram. Viðurkenndi hann hlutverk sitt í samsærinu Nýtt bóluefni gegn malaríu? Filadelííu. 8. maí. AP. VÍSINDAMENN við lækna- háskóla í Ffladelfíu telja sig hafa komist skreíi nær því að þróa bóluefni gegn malaríu, en sá sjúkdómur banar nú árlega meira en milljón manna, aðallega f hinum lítt þróaðri hlutum heims. Malaría breiðist út með moskító-flugum og er iandlæg víða í Afríku og Asíu. Varnir gegn henni á þeim svæðum byggjast á töku kíninlyfja, sem taka verður daglega, en vísindamennirnir í Fíladelfíu hafa nú þróað aðferð til að aðskilja virkt mótefni frá malaríubakteríunni. Hefur mót- efni þetta verið reynt á músum og þykir gefa góða raun. Gera menn sér nú vonir um að unnt muni að nota það sem bóluefni fyrir fólk að loknum frekari tilraunum. fyrir leyniþjónustumönnunum er þeir fundu byssu og fjölda púður- skota í fórum hans. Við leit í hótelherbergi þar sem Harvey dvaldist fundust persónu- skilríki 21 árs gamals manns að nafni Osualdo Ortiz Espinoza og sagði Harvey Osualdo höfuðpaur- inn í samsærinu. Var Osualdo handtekinn og m.a. gefið að sök að vera viðriðinn bílþjófnaðarmál. Neitaði hann að eiga aðild að samsærinu, en við yfirheyrslur í dag kom í ljós, að Osualdo stóð í aðeins þriggja metra fjarlægð er Harvey var handtekinn. Veður víða um heim Akurayri +1 léttskýjaft Amsterdam 16 heiftskírt Apena 26 heiftsklrt Barcelona 16 alskýjaö Berlín 17 lóttskýjaft Bruasel 16 heiftskirt Chicago 27 rigning Frankturt 15 léttskýjað Gent 16 léttskýjaft Helsinki 9 heiftskirt Jerúsalem 26 heiftskírt Jóhannesarb. 16 léttskýjaft Kaupmannah. 10 skýjað Lissabon 19 léttskýjaft London 14 skýjaö Los Angeles 19 skýjaft Madríd 18 skýjaft Malaga 18 alskýjaft Mallorca 19 léttskýjaft Miami 26 rigning Moskva 15 skýjaft New York 24 heiðskirt Ósló 10 skýjaft Parls 17 heiftskfrt Reykjavlk 3 léttskýjað Rio De Janeiro 32 skýjaft Rómaborg 17 heiftskirt Stokkhólmur 7 skýjaft Tel Aviv 24 heiftskirt Tdkýó 20 rigning Vancouver 15 skýjaft Vínarborg 15 heiftakirt Þetta gerdist 9. maí 1978 — Lík Aldo Moros finnst í Róm. I 1975 — Þrjú skip koma til ' Guam með 8.000 flóttamenn frá : Víetnam. 1973 — SÞ tilkynna að nægar kornbirgðir séu ekki til í heimin- um til að mæta meiriháttar uppskerubresti. 1972 — ísraeismenn bjarga 100 gíslum úr belgískri farþegaflug- vél, sem hryðjuverkamenn hót- uðu að sprengja á Lod-flugvelli. 1955 — V-Þýzkaland fær aðild að NATO. 1945 — Rússar taka Prag — Siðari heimsstyrjöldinni lýkur opinberlega. 1944 — Rússar taka Sevastopol á Krím. 1936 — ítalir innlinja Abyssiníu og Viktor Emmanúel III lýstur keisari. 1933 — Nazistar brenna 25.000 bækur á báli í Berlín. 1926 - Richard E. Byrd flýgur fyrstur yfir Norðurpólinn. 1788 — Brezka þingið samþykk- ir lög um afnám þrælahalds. 1671 — Thomas Blood ofursti reynir að stela brezku krýning- argimsteinunum. 1502 — Kólumbus fer frá Cadiz í fjórðu og síðustu ferðina til Nýja-heimsins. Afmæli: Giovanni Paisiello, ítalskur tónlistarmaður (1741-1816) - John Brown, bandarískur baráttumaður af- náms þrælahalds (1800—1859) — Sir James Barrie, brezkur rithöfundur (1860-1937). Andlát: Friðrik Vilhjálmur, hinn mikli kjörfursti 1688 — Friedri/ch von Schiller, skáld 1805. ’ Innlent: Prentfrelsi lögleitt 1855 — Jón Hreggviðsson dæmdur í Kjalardal 1684 — d. Magnús konungur lagabætir 1280 — Mannlaust skip kemur að landi á Reykjaströnd (af því týndust tveir synir Steins biskups og 83 aðrir) - 1723 - d. Páll Melsteð amtmaður 1861 — Fyrsta barna- stúkan stofnuð í Reykjavík 1886 — „Ingólfur" kemur til Reykja- víkur 1908 — Afreksflug Björns Pálssonar til Grænlands 1957 — Frumvarp um kjördæmabreyt- ingar afgreitt frá Alþingi 1959 — Morðið á Jóhanni Gíslasyni 1968 — Rithöfundar sameinast 1974. Orð dagsins: Loftkastalar eru dýrir í rekstri — Lytton barón, enskur rithöfundur (1803-1873). Ali Fathi Amin, íyrrverandi hershöfðingi, yfirmaður þriðja herfylkisins og meðlimur í herlagastjórn Irans, biðst vægðar fyrir byltingardómstóli í Teheran. Byltingardómstóllinn fann Fathi Amin sekan um að hafa skipað hermönnum að skjóta andstæðinga keisarans og var hann tekinn af lífi í dögun f gær. Fathi Amin er 30. hershöfðinginn sem fer fyrir aftökusveit byltingardómstólanna frá því að bylting var gerð í íran í febrúar. Símamynd-AP. Aldrei fleiri aftökur á einum degi frá byltingu Teheran, 8. maí. Reuter — AP. Þrír fyrrverandi ráðamenn í valdatfð franskeisara voru leiddir fyrir aftökusveitir byltingardómstóla í Teheran í dögun í gær, en þeir voru (f.v.): Dr. Gholam-Reza Kianpur upplýsinga- og dómsmálaráðherra í stjórn Amir Abbas Hoveida, Javad Sa'eed forseti neðri málstofu þingsins og dr. Mohammad-Reza Ameli-Tehrani fyrrverandi upplýs- inga- og menntamálaráðherra. Símamynd —AP. AFTÖKUSVEITIR byltingar- ráðsins í íran tóku í dag 21 mann af lífi. og er það nýtt met í aftökum á cinum degi frá því að endi var bundinn á valdatíma keisarans í febrúar. Mönnunum var m.a. gefið að sök að hafa stofnað til styrjaldar við Guð. Alls hafa 192 fallið fyrir kúlna- hríð aftökusveitanna frá því í febrúar. Meðal hinna föllnu voru forseti neðri deildar íranska þingsins og yfirmaður skriðdrekasveitar hers- ins. Einnig tveir fyrrverandi upp- lýsingaráðherrar, 15 starfsmenn leyniþjónustunnar, ofursti í hern- um og lögregluforingi. Voru þeir sóttir til saka fyrir þremur bylt- ingardómstólum. Ayatollah Khomeini sagði að loknum aftökunum í dag, að ef honum sýndist svo væri hægt að ráða af dögum á hálfum degi alla þá sem andsnúnir væru hinni islömsku byltingu. Yfirlýsing Khomeinis kemur á sama tíma og ósætti í röðum stuðningsmanna byltingarinnar kemur upp á yfirborðið. Kommún- istaflokkurinn, sem er hliðhollur Sovétríkjunum, réðst í dag harka- lega á stjórn Bazargans og sakaði hana m.a. um að taka upp hansk- ann fyrir kapitalista og sveigja af slóð byltingarinnar. Bazargan réðst í gær að vinstri- sinnum og sakaði þá m.a. um að hafa myrt Ayatollah Morteza sem barizt hefði af hörku gegn marx- isma. Aðstoðarforsætisráðherra írans, sem er helzti talsmaður byltingarstjórnarinnar, aflýsti í dag venjulegum fundum með fréttamönnum þar sem kommún- istar hafa hótað honum lífláti. Rekstrarörðugleikar hjá fískveiðiflotanum Þórnhöfn, frá Jogvan Arge, fréttaritara Mbl. HLUTI færeyska fiskiveiðiflot- ans á nú við alvarlega rekstrar- örðugleika að stríða. Er málið nú komið til kasta Lögþingsins, en leitað hefur verið til þcss um aðstoð svo að flotinn stöðvist ekki. Sá hluti flotans, sem veitt hefur fisk til bræðslu í Norður- sjó, hefur átt við ýmsa örðugleika að etja f langan tfma og stafa erfiðleikarnir bæði af lágu hráefnisverði og hækkandi reksturskostnaði. Hefur þess verið farið á leit að þessum hluta flotans verði veittur olíustyrkur og styrkur vegna vaxtakostnaðar, svo og að fiskverð verði greitt miklu meira niður en nú er gert. Einnig hefur þess verið farið á leit, að rekstur togara, sem stunda ísfiskveiðar við Færeyjar, verði styrktur, m.a. með auknum olíustyrk. Hver olíulítri kostar um 65 krónur íslenzkar og fá útvegs- menn um sjö krónur í olíustyrk frá hinu opinbera. Ósk útvegs- manna er að styrkurinn verði allt að 30 krónur. Segja talsmenn flotans, að síðustu verðhækkanir á olíu hafi gert reksturinn allan örðugari. Óf r j ósemisað- gerðum f jölgar Sooul. 8. maí. AP. FJÖLDI hjóna í heiminum, sem látið hafa gera á sér læknis- aðgerð til að koma í veg fyrir barneignir, hefur vaxið úr 65 milljónum árið 1975 í 90 milljónir í fyrra, að því er fram kom á ráðstefnu um þessi mál í Seoul í S-Kóreu í dag. í Kína bjuggu á síðasta ári 36 milljónir hjóna, sem látið höfðu vana sig af fúsum og frjálsum vilja, og í Indlandi 22 milljónir, en 10 milljónir í Evrópu, 12 milljónir í Bandaríkjunum og 1 milljón í Afríku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.