Morgunblaðið - 09.05.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ1979
31
Minning:
Margrét Jóhanna Magnús-
dóttir frá. ísafirði
Nú er amma dáin og það snertir
viðkvæman streng hjá mér að
hugsa út í það, að hún er ekki
lengur meðal vor. Svo fer óefað
um marga, amman skipar alltaf
sérstakan sess í fjölskyldunni. Það
er eins og við börn allsnægtanna
verðum skyndilega gripin eins
konar heimþrá til hins fábreytta
lífs genginna kynslóða sem við
kynntumst aldrei í raun, en höfð-
um þó leyndan grun um að hafi
búið yfir dýrum verðmætum. Það
hefur áreiðanlega verið góð og
ráðholl amma í mörgu brekkukot-
inu.
Eg man fyrst eftir ömmu fyrir
tæplega 20 árum, þegar ég fékk að
fara í heimsókn lítill polli með
Catalina-flugbátnum sem lenti á
Pollinum á Isafirði og skekta kom
siglandi til að sækja okkur farþeg-
ana.
Eg minnist hússins hennar og
afa að Sólgötu 7 og bakhússins,
þar sem ég fékk að hjálpa henni að
rúlla þvottinn. Eg minnist líka afa
og harðfiskhjallsins hans sem stóð
í flæðarmálinu rétt austan við
húsið. Þau standa mér bæði fyrir
hugskotssjónum vinnulúin og
margreynd þegar þau tóku svo
elskulega á móti mér og leystu
mig síðan úr vistinni með fangið
fullt af besta harðfiski.
Það voru ekki mikil lífsþægindi
sem amma bjó við á Sólgötu 7, og
hún hefur þurft að leysa hin
+
Móöursystir mín
ELÍSABET ERLENDSDÓTTIR,
andaðist á Elliheimili Siglufjaröar 6. maí.
Anna Ingadóttir.
Útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu
JÓNÍNU HERMANNSDÓTTUR
Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
er andaöist þann 2. maí fer fram frá Fossvogsklrkju fimmtudaginn
10. maí kl. 3 e.h. — Blóm afbeöin.
Hjalti S. Sigurösson, Daníel Sigurðsson
Elínborg H. Eggertsdóttir, Erlan Sigfridsdóttir
barna- og barnabarnabörn
Faöir okkar + FRIDÞJÓFUR ÁRNASON
frá Hrjóti,
HjaltastaöaÞinghó
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. mai kl. 3
síödegis. ívar H. FriöDjófsson Jón FriðÞjófsson
+
Hjartkær faðir okkar
HJALTI EINARSSON,
mólarameístari,
Skólavöröustig 27,
verður jarösunginn fimmtudaginn 10. maí kl. 10:30 frá Fossvogs-
kirkju.
F.h. barna, tengdabarna og barnabarna,
Aslaug Hjaltadóttir.
+
Þökkum innilega vináttu og hlýhug við fráfall og útför,
ELÍNAR MARTEINSDÓTTUR,
Hringbraut 34,
Hafnarfirói.
Anna Lísa Siguröardóttir,
Marteinn Rafn Sigurðsson,
og systkini hinnar látnu.
+
Þökkum auösýnda samúö viö andlát,
HJÖRLEIFS HJÖRLEIFSSONAR,
f. fjármálastjóra,
Guölaugur Hjörleifsson Halla Gunnlaugsdóttir,
Soffía Bryndís Guölaugsdóttir Haukur M. Stefánsson
Hildur Guölaugsdóttir Eyjólfur K. Kolbeins.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö vegna fráfalls og jaröarfarar
móöur okkar, tengdamóöur og ömmu'
MARGRÉTAR ÁRNADÓTTUR
frá Kálfatiörn.
Arni Egilsson
Örnólfur Árnason
Margrát Árnadóttir
Valur Egilsson
Guörún Margrát Egilsson
Dagmar Erna Egilsson
Finnborg Örnólfsdóttir,
Helga Jónsdóttir
Olga Guörún Árnadóttir
Ólöf Jónsdóttir
Egíll Jón Egilsson
Inga LíaaYgiÍMon.
margvíslegustu vandamál sem
húsmóðir. Áreiðanlega hefur kost-
ur oft verið þröngur þegar afi var
á vertíðum fjarri heimilinu lang-
tímum saman.
Er ég heimsótti hana nýlega
sagði hún mér hlæjandi frá því, að
eitt sinn hafi pabbi hennar frétt
af því hve þröngt var í búi, og
komið róandi á árabát einn síns
liðs, með vistir alla leið frá
Kleifum í Skötufirði.
Hvers vegna skyldi hún hafa
sagt þetta hlæjandi? Jú, amma
var einstaklega nægjusöm og
ánægð með sinn hlut. Það hlýjaði
manni um hjartaræturnar að
koma til hennar hin síðari ár,
vitandi að enn væri til fólk sem
hefði aldrei tekið þátt í lífsgæða-
kapphlaupinu mikla, en virtist
samt ánægt.
Við barnabörnin erum þakklát
fyrir að hafa fengið tækifæri til að
kynnast ömmu og getum svo
sannarlega lært mikið af henni.
Hún skilur eftir sig skarð sem við
gætum leitast við að fylla.
Ég minnist þakklátur hinna
elskulegu stunda sem ég átti með
ömmu og mun geyma minningu
hennar um ókomin ár.
Magnús Pálsson.
Minning:
Sigríður Ragna
Sesselíusdóttir
Fædd 28. júní 1922
Dáin 30. aprfl 1979
„Hún fer aö cnsu óð.
er óllum mönnum kóA
ok vinnur verk sín hljóð."
Þessar látlausu ljóðlínur Davíðs
Stefánssonar koma mér í hug,
þegar ég sendi Sigríði Sesselíus-
dóttur hinztu kveðju. Sjaldan
fellur eplið langt frá eikinni.
Fórnfýsi og kærleikslund átti hún
ekki langt að sækja, dóttir hjón-
anna Guðlaugar Gísladóttur og
Sesselíusar Sæmundssonar, sem
landsfræg voru fyrir hjálpsemi
sína og góðvild, enda hlaut þar
margur huggun og líkn í neyð
fyrir mátt bænar og trúar. I æsku
minni var Sesselíus þjóðsagna-
persóna, enda gæddur fjágætum
dulrænum hæfileikum, sem hann
beitti öðrum til hjálpar og líknar
en sjálfum sér aldrei til frama eða
fjár. Af því fórfúsa líknarstarfi
fer mörgum sögum, sem ekki
verða raktar hér.
I þessu andrúmslofti trúar og
náungakærleika á heimili foreldra
sinna á Óðinsgötunni ólst Sigríður
Ragna upp í hópi 6 systkina, þrjú
þeirra hefur hinn slyngi sláttu-
maður nú lagt að velli langt fyrir
aldur fram.
Sigríður átti við skæðan sjúk-
dóm að stríða framan af ævi en
var við góða heilsu og naut fulls
starfsþreks síðasta áratuginn, þar
til hún kenndi sér annars meins
fyrir hálfu öðru ári síðan. Bata-
horfurnar voru góðar, hún hóf
störf sín að nýju og við væntum
enn langra samvista við hana. En
skjótt skipast veður í lofti, og nú
hefur dauðinn burgðið brandi
sínum fyrirvaralaust að kalla.
Öldruðum föður sínum var
Sigríður einstök stoð og stytta unz
yfir lauk. Þótt hún giftist ekki né
eignaðist börn, var líf hennar
þjónusta og fórn fyrir aðra.
Síðasta áratuginn vann hún marg-
I vísleg störf fyrir heimili mitt og
Ferðaskrifstofuna Útsýn, og var
það að því leyti ævistarf hennar,
að hún gegndi ekki öðru föstu
starfi utan heimilis á æviferli
sínum.
Fyrir tryggð hennar, trú-
mennsku, alúð og vináttu eru
henni nú færðar einlægar þakkir
að leiðarlokum.
.Guól HÓrtu falln.
uk Guó launi bezt
þór fyrlr mÍK ment."
Ingólfur Guðbrandsson
Sveinbjörn Jónsson kjör-
inn heiðursfélagi Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur
AÐALFUNDUR Skógræktaríé-
lags Reykjavíkur var haldinn
miðvikudaginn 2. maf sl.
Þetta var 33. aðalfundur fé-
lagsins. Þau tíðindi gerðust á
þessum fundi að Guðmundur
Marteinsson formaður og
Sveinbjörn Jónsson meðstjórn-
andi gengu úr stjórn félagsins.
Ifafði Guðmundur Marteinsson
verið formaður félagsins allt
frá stofnun þess árið 1946, og
Sveinbjörn Jónsson f stjórn
félagsins frá sama tfma. Guð-
mundur hcfur stjórnað félaginu
með miklum skörungsskap bll
þessi ár og undir hans stjórn
má segja að það hafi vaxið og
eflst með ári hverju.
Hann var hylltur ákaft og
þökkuð störfin. Að tillögu
stjórnar var samþykkt að gera
Sveinbjörn Jónsson að heiðurs-
félaga Skógræktarfélags
Reykjavíkur.
I stjórn félagsins voru kosnir
að þessu sinni Jón Birgir Jóns-
son verkfræðingur sem verður
formaður og Ragnar Jónsson
afgreiðslumaður ritari og Bjarni
K. Bjarnason borgardómari sem
er nýr í stjórninni, og verður
meðstjórnandi.
Sitkagreni frá Alaska, gróður-
sett í Ileiðmörk 1953.
Ljósm. Vilhjálmur
Sigtryggsson.
í varastjórn var kosinn Þor-
valdur S. Þorvaldsson arkitekt.
Aðrir í stjórninni eru Lárus
Blöndal Guðmundsson, varafor-
maður, Björn Ófeigsson gjald-
keri, í aðalstjórn og í varastjórn
eru Kjartan Thors og Kjartan
Sveinsson.
Framkvæmdastjóri félagsins
er Vilhjálmur Sigtryggsson.
Á s.l. ári var á vegum félags-
ins plantað í Heiðmörk, Öskju-
hlíð, Rauðavatnsstöð og Breið-
holt um 130 þúsund plöntur.
Plöntuframleiðsla félagsins
var á sl. ári 230 þús. plöntur
bæði til skógræktar og garð-
ræktar. Margt hefur verið gert
til úrbóta í stöðinni á sl. ári og
hefur hagur félagsins sjaldan
verið betri.
Samþykkt var að hækka ár-
gjöld félagsmanna í kr. 3.000.-
en innifalið í gjaldinu er ársrit
Skógræktarfélags íslands og þau
eintök af Skóginum (félagsbréfi)
sem koma út á árinu með marg-
víslegum leiðbeiningum.
Á fundinum var eftirfarandi
tillaga samþykkt:
Aðalfundur Skógræktarfélags
Reykjavíkur, haldinn í Reykja-
vík miðvikudaginn 2. maí, 1979,
lýsir stuðningi sínum við hug-
myndir Þórarins Þórarinssonar,
skólastjóra frá Eiðum, um skóg-
rækt sem búgrein, sem settar
eru fram í blaðagreinum í dag-
blöðunum Morgunblaðinu og
Tímanum í s.l. marzmánuði.
Teldi fundurinn mikils um
vert, að stjórn Skógræktarfélags
íslands beitti sér fyrir skipu-
lagningu á framkvæmdum í
anda umræddra hugmynda.
(Fréttatilkynning).