Morgunblaðið - 09.05.1979, Side 38

Morgunblaðið - 09.05.1979, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ1979 íslandsmótið í knattspyrnu Verður veldi Valshnikað? ÍSLANDSMÓTIÐ í knattspyrnu hefst alfarið á föstudagskvöldið, en þá leika á grasvellinum í Kópavogi lið Breiðabliks og Selfoss. Síðan rekur hver leikurinn annan, en fyrst um sinn verða það einungis Kópavogsmenn sem fá að spreyta sig á grasi, því að grasvellir Reykjavíkur, hvað þá Akureyrar, eru fjarri því að vera komnir í þolanlegt horf. Er norðanvindum og frosti að sjálfsögðu um kennt. Nýlega sagði Baldur Jónsson vallarvörður í Laugardal í viðtaii við Mbl. að við mættum vera lánsamir ef Iandsleikurinn við Vestur-Þjóð- verja geti farið fram á Laugardalsvellinum 25. maí, því að eins og sakir stæðu væri ljóst að ekkert yrði leikið á vellinum fyrr en í fyrsta lagi einhvern tíma í júní. Síðan hefur veðrið lítið breyst og þegar þetta er ritað, er enn úti norðan gola og frost um nætur. Það eru ávallt miklar vangaveltur manna á m< hinni hörðu keppni. Skai nú persónulegt mat undirritaðs. Það væri ekki úr vegi að hefja spjallið á Islandsmeisturunum, Val. Varla er vafi á því að liðið verður í hópi efstu liðanna og reyndar mjög líklegur sigurvegari. Liðið tapaði aðeins einu stigi í deildarkeppninni í fyrra, sem er frábær árangur. Sennilega er liðið nú enn sterkara, því að í hópinn hafa bæst menn eins og Ólafur Danivalsson. Liðið hefur haldið sigurgöngu sinni áfram í innan- húsmótum, meistarakeppninni og nú síðast í Reykjavíkurmótinu. Liðið sýndi í síðastnefnda mótinu misjafna leiki, en þá komu berlega í ljós aðrir eiginleikar en geta leikmanna, þ.e.a.s. seigla og heppni sem ávallt fylgir meistara- liðum. Fram Fram er það lið sem undirritað- ur telur að veiti Val hörðustu keppnina. Þó að erfitt hafi verið að meta getu liðanna sem þátt tóku í Reykjavíkurmótinu vegna samvinnu hæðar yfir Grænlandi og lægðar vestur af Noregi, virtist lið Fram mjög sterkt og grínlaust var liðið óheppið að vinna ekki Reykjavíkurmótið. Vörn Framara er mjög sterk, með þá Martein Geirsson og Kristin Atlason á miðjunni. Gunnar Bjarnason, nýi maðurinn frá FH, á síðan væntan- lega eftir að keppa við þá félaga um sæti í liðinu. Á miðjunni er Ásgeir geysilega leikinn og útsjón- arsamur leikmaður og hann hefur duglega vinnuforka í kring um sig. Það er helst spurningamerki yfir framlínu liðsins. Hana hafa skip- að að undanförnu þeir Pétur Ormslev og Guðmundur Steins- son. Þeir eru báðir fremur smá- vaxnir, en leikni þeirra er á hinn bóginn framúrskarandi, svo og ðal hvernig liðunum muni vegna í rennt yfir liðalistann og fylgir markheppni, þannig að vel kann úr að rætast þrátt fyrir allt. ÍA Það lið er ekki til, sem ekki myndi líða fyrir að missa í sömu andránni leikmenn eins og Pétur Pétursson og Karl Þórðarson, sem fóru í atvinnumennsku til Niður- landa í lok síðasta keppnistíma- bils. Það má segja sem svo, að Skagamenn hafi fengið nýja menn, svo sem Kristján Olgeirs- son, Sigurð Lárusson, Sigurjón Kristjánsson, Sigþór Ómarsson og fleiri. Þeir standa vafalaust fyrir sínu, en að þeim ólöstuðum, þá er skarð þeirra Karl og Péturs vand- fyllt, en þeir ásamt bakverðinum, Árna Sveinssyni, voru meginstoð- ir ÍA-liðsins sem varð í öðru sæti íslandsmótsins í fyrra og vann síðan bikarkeppnina. í A verður að öllum líkindum meðal efstu liða, en varla meistari. KR KR-ingar unnu 2. deildina af miklu öryggi síðastliðið keppnis- tímabil og unnu sig þannig upp í fyrstu deild á ný eftir aðeins eins árs fjarveru í 2. deild. í Reykjavík- urmótinu hefur liðið átt afar misjafna leiki, en þeir betri hafa bent til þess að liðið verði ofarlega í deildinni. Það er fyrst og fremst samheldni og barátta sem er styrkur KR, enginn virðist skera sig úr, en margir leikmenn liðsins eru mjög leiknir að auki og Sverr- ir Herbertsson og Jón Oddsson, nýi leikmaðurinn frá ÍBÍ, gætu orðið meðal markhæstu leik- manna mótsins. ÍBK ÍBK tryggði sér nokkuð óvænt UEFA-sæti á síðasta keppnis- • íslandsmótiö í knattspyrnu hefst alfariö um helgina, en þessi mynd er af glæsimarki Steinars Jóhannssonar Keflvíkings í deildarleik gegn Fram. Væri ekki úr vegi aö óska þess aö mikið yröi gert af slíku í sumar, en fyrst um sinn yröi það aö fara fram á malarvöllum því að vorið hefur sofiö yfir sig aö þessu sinni. Ljósm: Kristján tímabili með mjög ungu og lítt reyndu liði. Ástæðulaust er að ætla að liðið verði ekki enn betra á þessu sumri, einkum þar sem Þorsteinn Ólafsson markvörður er farinn að leika með á ný eftir nokkuð langa Svíþjóðardvöl. Þor- steinn hefur varið af miklu öryggi í vorleikjunum, sýnt landsliðs- takta. Sem fyrr segir, skortir leikmenn ÍBK tilfinnanlega reynslu, hún kemur auðvitað smám saman, en á meðan verður liðið aðeins í efri hluta deildarinn- ar án þess að vega alvarlega að bestu liðunum. ÍBV Þeir verða í miklum erfiðleikum í sumar. Liðið hefur misst ýmsa lykilmenn, einkum þó og sér í lagi markakónginn, Sigurlás Þorleifs- son, yfir í Víking. Útherjinn Karl Sveinsson er farinn til Svíþjóðar og Einar Friðþjófsson til Völs- unga á Húsavík. Litlu mátti muna að Tómas Pálsson færi til Vopna- fjarðar, en ekkert varð úr og skemmst er að minnast að hann skoraði þrjú mörk gegn UBK um síðustu helgi. Eigi að síður verður basl á Eyjamönnum, því að byggð- arlagið er lítið og engir knatt- spyrnumenn hafa flutt sig til Eyja af fastalandinu. Eyjamenn segja sjálfir að þeir eigi efnilega stráka til að fylla skörðin. Satt best að segja verða strákarnir að vera meira en efnilegir, því að þeir hafa ekki þá leikreynslu sem fyrirrenn- arar þeirra höfðu. Víkingur Víkingar verða um miðja deild og annað slagið sígandi niður á hættusvæðið. Það er lítið að marka Reykjavíkurmótið sem fyrr segir, en sum úrslitin þaðan stinga þó í augun, t.d. 1—0 sigur gegn Val og síðan 1—2 tap í næsta leik gegn 3. deildar liði Ármanns. Varnar- leikur liðsins er þokkalegur og miðjumennirnir kröftugir. Þá virðist þó skorta nokkuð útsjónar- semi og spila oft af meira kappi en forsjá. Sovézki þjálfarinn Youry Ilichew þjálfaði liðið síðustu vikur síðasta keppnistímabils og virtist vera að koma liðinu á rétta braut, en í vorleikjunum hefur hins vegar ekkert komið út úr liðinu og verði ekki breyting á, er liðið ekki liklegt til afreka. Liðinu hefur borist mikill liðsstyrkur, sem er Sigurlás Þorleifsson. Hann hefur ekki sýnt sitt besta í vor, en komist hann á skrið, getur það skipt öllu máli fyrir Víking. Þróttur Af því sem best verður séð, bæði í Reykjavíkurmótinu í vor og í íslandsmótinu í fyrra, leika Þrótt- arar af meira kappi en forsjá. Það er gífurlegur hraði á öllu sem þeir gera á vellinum, en oft vantar allan brodd. Piltarnir eru kannski 'leiknir hver fyrir sig, en lítið sem ekkert kemur út úr hlaupum þeirra. Þess vegna var liðið í fallhættu í fyrra og neðarlega í Reykjavíkurmótinu. Hætt er við að fallbaráttan sé framundan hjá hinu unga Reykjavíkurliði. KA KA slapp við fa.ll í fyrra og er ekki ólíklegt að liðið verði í baráttunni á sama enda deildar- innar. Liðið fékk mikinn liðsstyrk í Einari Þórhallssyni, miðverðin- um sterka hjá Breiðablik, og ætti hann að geta lagfært mikið vörn KA, sem var oft eins og gatasía í fyrra. Liðið náði oft í fyrra ágæt- um leikjum inn á milli og komist eitthvað jafnvægi á vörnina með tilkomu Einars, gæti KA orðið um miðbik deildarinnar. Haukar Haukarnir komu upp úr 2. deild í fyrra og var það nokkuð óvænt, því að fyrir síðustu umferðina voru bæði Þór frá Akureyri og ÍBÍ mun líklegri til stórræðanna. En taugarnar brustu hjá þeim á lokasprettinum og Haukar fóru upp. Haukarnir sýndu í mörgum leikja sinna ágætan sóknarleik og skoraði liðið mikið af mörkum. Vörnin var hins vegar fjarri því að vera sannfærandi og ef marka má leiki liðsins í vormótunum, er vörnin enn höfuðverkur. Haúk- arnir þurfa að kippa því í Iag ef ekki á illa að fara, en hópurinn er mjög samhentur og baráttan gæti hugsanlega fleytt liðinu. Barátta við fall verður þó líklegast hlut- skipti liðsins. — gg- • KR-ingurinn Sverrir Herbertsson var markhæsti leikmaöurinn í 2. deild síöastliöiö sumar. Hann þykir ekki ólíklegur til að vera í hópi markhæstu leikmanna í 1. deild í sumar. Liverpool meistari LIVERPOOL sigraði Aston Villa 3:0 I 1. deild í Englandi í gssrkvöldi og tryggdi sér Þar meö Englands- meistaratitilinn í 11. skipti og hefur ekkert enskt lið unnið hann oftar. Liverpool hefur fengið 64 stig og é eftir tvo leiki. Ef félagið sigrar f peim béðum setur pað nýtt stiga- met í deildinni, núverandi met er 67 Enska knatt- spyrnan stig, sett af Leeds árið 1969. 3. DEILD: Brentford — Swlndon 1:2 1 % Peterb. — Chesterf. 0K) w \ jf' 4. DEILD: Barsley — Grimsby 2:1 Úrslit leikja f Englandi f Seunthorpe — Wlmbledon 2K) gærkvöldi: 1. DEILD: 'A % Bolton — Tottenham 1:3 • T West Bromwlch — Southampton 1:0 VJ£ Llverpool — Aston Vllla 3:0 2. DEILD: Burnley — Mlllwall Neweaxtle — Wrexham Sheffleld Utd. — Lelcexter 0:1 2d) 2:2 50 þúsund manns voru á Anfield Road í Liverpool í gærkvöldi og fögnuöu sigrinum innilega. Alan Kennedy, Kenny Dalglish og Terry McDermott skoruðu mörk Liverpool. Mark Ally Brown nægói WBA til sigurs, en félagiö keppir nú um 2. sætiö viö Nottingham Forest. Ólæti uröu í Sheffield, þar sem Sheffield Utd. féll í 3. deild í fyrsta skipti í 90 ára sögu félagsins. Liöið þurfti aö vinna Leicester 9:0 til þess aö halda sæti sínu. Árangur Liverpool síöustu árin hefur verið hreint ótrúlegur. 1973: Enskur meistari, sigur í UEFA-bikar, 1974: Enskur bikarmeistari, í 2. sæti í 1. deild, 1975: í 2. sæti í 1. deild, 1976: Enskur meistari, Sigur í UEFA-bikar, 1977: Evrópumeistari, enskur meistari, í 2. sæti í bikar- keppninni, 1978: Evrópumeistari, í 2. sæti í 1. deild, 1979: Enskur meistari. J

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.