Morgunblaðið - 11.05.1979, Qupperneq 1
40 SÍÐUR
105. tbl. 66. árg.___
íranir til-
kynna 60%
oUuhækkun
Teheran. 10. maí. AP. Reuter.
ÍRANIR kunngerftu í dag 60%
olíuverðshækkun vegna „núver-
andi ástands á heimsmarkaði“ og
búizt er við að fleiri olíusöluríki
fari að dæmi þeirra þótt nokkur
þeirra. þar á meðal (ran, hafi
áður kunngert hækkanir á und-
anförnum mánuðum.
íranir framleiða nú 3.9 milljón-
ir olíufata á dag miðað við 6.2
milljónir í fyrra og olíutekjur
þeirra hafa minnkað þrátt fyrir
verðhækkanir úr 55—60 milljón-
um dollara í 48—50 milljónir
dollara á dag.
Jafnframt veittist trúarleiðtog-
inn Ayatollah Khomeini harka-
lega í dag að tveimur vinstrisinn-
uðum og útbreiddum blöðum, sem
hann sakaði um að stríða gegn
-múhameðskum hagsmunum og
átaldi fyrir að birta frétt um að
trúarleiðtoginn Ayatollah Talegh-
ani kunni að stofna ný stjórn-
málasamtök. Slíkt gæti stofnað
völdum Khomeinis í hættu og árás
Khomeinis er dæmi um djúpstæð-
an ágreining trúaðra múhameðs-
trúarmanna og byltingarsinnaðra
marxista.
Khomeini virtist sérstaklega
gremjast að haft var eftir honum
að hann hefði hreinsað vinstri-
menn af ákærum um að hafa myrt
trúarleiðtogann Ayatollah Mota-
hari í síðustu viku. En vinstri-
menn og Khomeini virðast sam-
mála um að aftökum skuli haldið
áfram og í dag fór 201. aftakan
fram er tekinn var af lifi þing-
maður og læknir, Akbar Bahadori,
sem var sakaður um spillingu.
írönsk blöð svöruðu í dag er-
lendri gagnrýni á aftökurnar og
sögðu að Bandaríkjamenn væru
undir áhrifum frá Gyðingum, sem
öllu réðu í fjölmiðlum og á þingi,
og að ísraelsmenn ögruðu byltingu
þjóðar gegn arðráni.
Róstusamt í
E1 Salvador
San Salvador. E1 Salvador.
10. maí. AP.
VINSTRISINNAÐIR skæruliðar
lokuðu í dag helztu vegum til
höfuðborgarinnar San Salvador í
Mið-Ameríkuríkinu E1 Salvador,
kveiktu í tólf strætisvögnum og
drápu sex manns sem voru í þeim
að sögn opinbers talsmanns.
A sama tíma söfnuðust 10.000
manns saman á torginu við dóm-
kirkju borgarinnar og þúsundir í
viðbót í nálægum götum þegar
fram fór útför 17 manna sem
lögregla felldi í mótmælaaðgerð-
um gegn stjórninni.
Átökin urðu á þriðjudag, fjórum
dögum eftir að vinstrisinnar tóku
sendiráð Frakklands og Costa
Rica og kröfðust þess að fimm
félagar þeirra yrðu látnir lausir úr
fangelsi.
Liðhlaupi
faldist í
þrjátíu ár
Berlín. 10. maí. AP.
BANDARÍSKUR liðhlaupi
Robert J. Petee, sem hefur verið
í felum í 28 ár í Vestur-Berlín,
hefur gefð sig fram við banda-
rísk hernaðaryfirvöld og fer á
morgun til Washington til
læknismeðferðar.
Hann hefur neitað að ræða
við blaðamenn en látið ( ljós
áhuga á að fara aftur til Vest-
ur-Berlínar og búa þar. Hann
hefur enn ekki lokið herskyldu-
tíma sínum en verður Ifkiega
ekki neyddur tii þess.
Petee er frá Detroit, hvarf 12.
maí 1951 eftir deilur við yfirboð-
ara, og bjó hjá þýzkri vinkonu
sinni í íbúð móður hennar í
Vestur-Berlín unz hann gaf sig
fram 30. apríl. Þau virðast aldrei
hafa gifzt, en konan sá fyrir
honum með saumaskap og
hreingerningavinnu. Hún lézt úr
krabbameini um síðustu jól.
N jósnari flýr frá
A-Þýzkalandi
Bonn. 10. m»(. AP.
AUSTUR-þýzkur stjórnarfulltrúi
hefur fengið hæli í Vestur-Þýzka-
landi og hann er annar háttsetti
embættismaðurinn sem hefur
flúið til landsins frá
Austur-Þýzkalandi á þessu ári
samkvæmt áreiðanlegum
heimildum (dag.
Samkvæmt heimildunum heitir
maðurinn Peter Schádlich og hef-
ur verið sérfræðingur í málefnum
Finnlands í austur-þýzka utan-
ríkisráðuneytinu. Samkvæmt
heimildunum var flogið með
Schádlich til Vestur-Þýzkalands
25. apríl frá Helsinki þar sem
hann bað um hæli í sendiráði
Bonn.
Fyrri fréttir hermdu að maður-
inn væri Peter Steglich, annar
æðsti maður skipulagsdeildar
ráðuneytisins og fv.sendiherra í
Svíþjóð. En upplýsingaráðuneytið
í Bonn neitaði að Steglich hefði
flúið þótt það staðfesti að
diplómat að nafni „Peter S“ hefði
fengið hæli.
Engin staðfesting fékkst á
þeirri frétt blaðsins Bild að
Schádlich hefði verið njósnari
Vestur-Þýzkalands í þrjú ár.
FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Carter vill árlega
fundi æðstu manna
Lóan heim úr lofti flaug. Myndin var tekin í Reykjavík í gær.
Ljósm. Mbl. RAX.
WaHhinKton, 10. maí. AP. Reuter.
CARTER forseti staðfesti í dag,
að hinn nýi samningur um tak-
mörkun á fjölda gereyðingar-
vopna, Salt II, yrði undirritaður
15. júní og líklegt er talið að
undirritunin fari fram í Vín.
Carter mun leggja til við
sovézka forsetann, Leonid
Brezhnev, þegar þeir undirrita
samninginn. að þeir samþykki að
haldnir verði árlega fundir æðstu
leiðtoga Bandaríkjanna og Sovét-
ríkjanna.
Brezhnev sagði í dag í boðskap
í tilefni sovézkra menningarsýn-
inga í New York og Washington,
að Bandarikjamenn og Rússar
væru komnir „á ábyrgt stig“
mikilvægra ákvarðana um tak-
mörkun
vígbúnaðarkapphlaupsins.
Þetta var fyrsta yfirlýsingin frá
Kreml síðan tilkynnt var í
Washington í gær, að samkomulag
hefði náðst í grundvallaratriðum
um Salt II. Fréttin var birt 17
klukkutímum síðar í Moskvu og
vestrænir diplómatar í Moskvu
furðuðu sig á þessari töf og
ónákvæmum fréttum Rússa um
samkomulagið.
Þetta virðist þó ekki tákna, að
babb hafi komið í bátinn þar sem
Rússar vilja hafa allt á hreinu
áður en þeir gefa út opinbera
tilkynningu að sögn
diplómatanna. í boðskap sínum í
dag sagði Brezhnev, að gagn-
kvæmur skilningur milli risaveld-
anna grundvallaðist á sameigin-
legum tilraunum þeirra til að
binda enda^ á vígbúnaðarkapp-
hlaupið.
Carter forseti hóf í dag baráttu
sína fyrir staðfestingu nýja sátt-
málans með viðvörun um að ef
öldungadeildin felldi hann yrði
það ægilegt áfall fyrir heimsfrið-
inn og skaðlegt öryggi Banda-
ríkjanna. Hann sagði að staðfest-
ing Salt II yrði „mikilvægasta
afrek sem þjóðin gæti unnið um
mína daga“.
Hingað til hafa Rússar hundsað
fyrri tillögur frá Carter um árlega
fundi æðstu leiðtoga Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna.
Amin myrti
erkibiskup
London. 10. ma(. Rputer.
YFIRMAÐUR lögreglu
Amin-stjórnarinnar í Uganda,
Kassim Obura. hefur gefizt upp
fyrir frelsissveitum og sakað Idi
Ámin um að hafa myrt erki-
biskup anglikönsku kirkjunnar
í Uganda og tvo ráðherra að
sögn útvarpsins í Kampala.
Erkibiskupinn og ráðherrarnir
voru handteknir í febrúar 1977 og
sakaðir um þátttöku í samsæri
um að steypa Amin og tilkynnt
var að þeir hefðu beðið bana í
umferðarslysi. Obura segir að
slysið hafi verið sett á svið og
leynilögregla Amins hafi myrt
mennina.