Morgunblaðið - 11.05.1979, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.05.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MAÍ1979 31 vörð um minningu hennar með varðveizlu hússins í föstu formi. Guðjón var svo lánsamur að fá að eyða æfikvöldunum við sólar- lagið heima á Búðum, meðan stætt var. Þrjú yngstu börnin, öll búsett á staðnum, gerðu honum það kleift. Baldvin var hans stoð og stytta öll elliárin og vakti við hvert hans fótmál. Arnfríður, Reynir, makar þeirra og börn voru öll reiðubúin að veita honum alla þá aðstoð og þjónustu er hann þarfnaðist. Öll búa þau á myndarheimilum í grennd við Geststaði svo gamli maðurinn sat jafnan daglega til borðs hjá þeim þegar ekki hamlaði veður, því fótavist hafði hann oftast fram undir andlátið. Guðjón dvaldist síðasta missér- ið á sjúkrahúsinu í Neskaupstað, þar sem hann þurfti að vera undir læknishendi og fylgdist þá Bald- vin jafnan náið með líðan hans. Á sumardaginn fyrsta fór hann ásamt Arnfríði í hinstu heimsókn- ina og var þá sýnt að hverju stefndi. Ráð og rænu hafði hann að vísu og gladdist við komu þeirra. En svo kom sumarið einnig til hans, þaö breiddi út sinn líknandi faðm. Gott fyrir þreyttan mann að fá hægan blund og sofna inn í dýrð vorsins, þannig endaði líf þessa gamla manns. „Þar bíða vinir í varpa, sem von er á gesti.“ Við samgleðjumst Guðjóni með endurfundi við látna ástvini og sendum þakkir að leiðarlokum. Guð blessi minningu þessara mætu hjóna, sem lokið hafa lífs- göngu sinni á vorri jörð. Útför Guðjóns varð gerð frá Búðarkirkju hinn 3. maí s.l. Að lokinni jarðarför komu sam- an á heimili Arnfríðar börn hins látna og aðrir vandamenn til sameiginlegrar kaffidrykkju. Voru mörg þeirra komin um langan veg til að fylgja gamla manninum síðasta spölinn og líta aftur æskustöðvarnar þennan kalda vordag. Þeim hjónum Guðjóni og Ófafíu varð 12 barna auðið, en tvö börn átti Ólafía fyrir með Stefáni unnusta sínum áður en leiðir þeirra skildu. Kristín er elst barna Ólafíu, hún er gift Tómasi Ein- arssyni kennara í Reykjavík. Kristín á eina dóttur barna. Sigurður, albróðir Kristínar. hans kona, Ragna Vilhjálmsdóttir og áttu þau eina dóttur barna. Sigurður lést á ferðalagi erlendis 1967. Hann var þekktur sem verkalýðsleiðtogi í Vestmannaeyj- um á sínum tíma og átti sitt heimili þar. Sem fyrr segir voru börn þeirra Guðjóns og Ólafíu tólf. Átta synir og fjórar dætur. Tveir sonanna eru látnir. Baldur Marinó, sem dó 6 ára 1932, og elsti sonurinn Sigbjörn, sem lést af slysförum 1947. Hann var bóndi að Vattar- 5VAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Þegar eg varð kristinn, hætti eg að reykja. Samt þekki eg fólk, sem segist vera kristið, en reykir þó. Eg fæ ekki botn í þetta. Biblían svarar spurningu yðar með þessum orðum: „Sá, sem neytir kjöts, fyrirlíti ekki hinn, sem lætur þess óneytt, og sá, sem lætur þess óneytt, dæmi ekki þann, sem neytir þess; því að Guð hefur tekið hann að sér. Hver ert þú, sem dæmir annarlegan þjón? Hann stendur og fellur herra sínum; og hann mun standa; því að megnugur er Drottinn þess að láta hann standa“ (Róm. 14,3—4). Þegar þér tókuð sinnaskiptum, fannst yður, að þér ættuð að hætta að reykja. Sumum öðrum, sem trúa á Krist af eins mikilli einlægni og þér, hefur ef til vill ekki fundizt þeir leiddir til að taka sams konar ákvörðun. Ef þér teljið yður betri lærisvein en þá, eruð þér komnir út á hálan ís. Kristindómur er ekki aðeins það að leggja eitt og annað niður: Gerðu ekki þetta, gerðu ekki hitt. Miklu fremur er kristindómurinn reynsla af hinum lifandi Kristi, trú á hann og undirgefni hjartans og alls lífsins við hann. Þá komumst við að raun um, að kristilegt líf er jákvæð reynsla og ekki neikvæð. Þar sem þessu er svo farið, berum við, kristnir menn, ábyrgð hver um sig, að breytni okkar og orð verði ekki öðrum til ásteytingar. Fyrir því segir Páll postuli: „Þess vegna mun eg, ef matur hneykslar bróður minn, um aldur og ævi ekki kjöts neyta, til þess að eg hneyksli ekki bróður minn“. (1. Kor. 8,13). nesi við Reyðarfjörð. Hann var giftur Kristínu Jónsdóttur ættaðri úr Berufjarðarhreppi, nú búsett á Seltjarnarnesi, og eignuðust þau þrjár dætur og einn son. Jón Ársæll, fyrrum útgerðarmaður, giftur Jónínu Guðbjörgu Brunnan. Þau búa á Höfn í Hornafirði og eiga fjóra syni. Lilja, húsmóðir, gift Sigurði Þórðarsyni útgerðarmanni og at- vinnurekanda í Vestmannaeyjum og eiga þau fjórar dætur og einn son. Þorleifur Bragi, teppalagninga- maður, Reykjavík. Hann er giftur Ursulu von Balszun frá Lubeck í Þýskalandi. Þorleifur á einn upp- kominn son frá fyrra hjónabandi. Heiðveig, húsmóðir í Hafnarfirði. Hún er gift Brynjólfi Þórðarsyni bifreiðastjóra, þekktum dugnað- armanni þar um slóðir, og eiga þau sex dætur og einn son. Unnur, húsmóðir einnig búsett í Hafnar- firði, hún er gift Steini Tryggva- syni bílamálara og eiga þau þrjá syni og þrjár dætur. Friðfinnur, verkstjóri hjá Haf- skip h/f. Hans kona er Lára Hannesdóttir, ættuð úr Keflavík, og er þeirra heimili i Breiðholtinu. Friðfinnur á áttá börn frá fyrra hjónabandi, tvær dætur og sex syni. Axel, er giftur Jóhönnu Dav- íðsdóttur og eiga þau þrjá syni. Þau eru búsett á Hellisandi. Arnfríður yngsta systirin er bú- sett á Fáskrúðsfirði. Hún er þekkt fyrir félagsmálastörf þar á staðn- um,. Hennar maður er Geir Helgason sem einnig er Fá- skrúðsfirðingur. Börn Arnfríðar eru fimm dætur og einn sonur. Reynir, bifreiðastjóri, einnig búsettur á Fáskrúðsfirði, giftur Láru Hjartardóttur frá Árnagerði og eiga þau fimm syni og eina dóttur. Siðast en ekki síst verður nafn Baldvins, næst yngsta sonar- ins, samofið lífi gamla mannsins allt fram í andlátið. Þetta er engan veginn tæmandi skrá yfir afkomendur Guðjóns Bjarnasonar og Olafíu konu hans. Barnabörnunum fjölgar ár frá ári. Það er lögmál lífsins að ein kynslóð taki við af annarri, því þótt ein kveðji í dag, heilsar önnur á morgun. Reykjavík, 6. maí. 1979. Tengdadóttir. Krukkuborg í síðasta sinn BARNALEIKRIT Þjóðleikhússins á stóra sviðinu í vetur, Krukkuborg, eftir Odd Björnsson verður sýnt í síðasta sinn á sunnudag, og er það 32. sýning leiksins. Aðsókn hefur verið mjög góð, enda vakti sýningin athygli fyrir nýstárleika sakir og þykir mjög falleg. Þarna leika saman fullorðnir leikarar og börn og brúður, og gerist hluti leiksins á hafsbotni, en þar synda um ýmis sjávardýr með sérstakri tækni, sem kölluð hefur verið „svarta leikhúsaðferð- in“. Þórhallur Sigurðsson er leik- stjóri Krukkuborgar, leikmynd og búningar eru eftir Unu Collins, og Hilmar Oddsson og Hróðmar Sigurbjörnsson sömdu tónlistina. Leikarar eru níu, en félagar úr Leikbrúðulandi, þær Erna Guðmarsdóttir, Hallveig Thorlacius og Helga Steffensen taka einnig þátt í sýningunni og eiga þar stóran hlut. Er þetta í annað sinn, sem Þjóðleikhúsið og Leikbrúðuland vinna saman að sýningu. (Fréttatilkynning) Meinleg villa MEINLEG villa læddist inn í blaðið í gær. Þar var sagt, „borgarráðsmenn hefðu ávallt getað útskýrt úthlutanir á hlutdrægan hátt“. Þetta er rangt. Þarna átti að standa hlutlægan hátt. Byggingavörudeild Sambandsins auglýsir byggingaref ni SMIÐAVIÐUR 50x125 Kr. 661.- pr. m. 25x150 Kr. 522 - pr. m. 25x100 Kr. 348.- pr. m. UNNIÐ TIMBUR Vatnsklæðning 22x110 Kr. 3.916.- pr. m2 Panill 20x108 Kr. 6.080,- pr. m2 “ 20x136 Kr. 5.592,- pr. m2 Gólfborð 29x90 Kr. 5.867.- pr. m2 Gluggaefni Kr. 1.260,- pr. m Glerlistar 22 m/m Kr. 121,- pr. m Grindarefni og listar 45x115 Kr. 997.- pr. m “ 45x90 Kr. 718.-pr. m “ 35x80 Kr. 492,- pr. m «< 30x70 Kr. 438,- pr. m t< 30x50 Kr. 378,- pr. m “ 27x40 Kr. 300,- pr. m «« 27x57 Kr. 324,- pr. m u 25x60 Kr. 228,- pr. m “ 25x25 Kr. 106.- pr. m (t 22x145 Kr. 516.- pr. m u 21x80 Kr. 398.- pr. m «« 20x45 Kr. 192.- pr. m “ 15x22 Kr. 121,- pr. m Múrréttskeiðar 10x86 Kr. 168.- pr. m Þakbrúnarlistar 15x45 Kr. 156.- pr. m Bílskúrshurðakarmar Kr. 1.210,-pr.m SPÓNAPLÖTUR 9 m/m 120x260 Kr. 3.047,- 12 m/m 120x260 Kr. 3.305,- 15 m/m 120x260 Kr. 3.664,- 18 m/m 120x260 Kr. 4.178,- 25 m/m 120x260 Kr. 6.416,- LIONSPAN SPÓNAPLÖTUR 3,2 m/m 120x255 Kr. 1.176,- LIONSPAN SPÓNAPLÖTUR, VATNSLÍMDAR HVÍTAR 3,2 m/m 120x255 Kr. 2.098,- 6 m/m 120x255 Kr. 3.193,- 8 m/m 120x255 Kr. 3.973.- 9 m/m 120x255 Kr. 4.363.- AMERÍSKUR KROSSVIÐUR, DOUGLASFURA STRIKAÐUR 11 m/m 122x244 Kr. 8.395.- 4 m/m STRIKAÐUR KROSSV. M/VIÐARLÍKI Ulive Ash 122x244 Kr. 3.566.- Early birch 122x244 Kr. 3.566,- Key West Sand 122x244 Kr. 3.566.- SPÓNLAGÐAR VIÐARÞILJUR Coto 10 m/m Kr. 4.760.- pr. m2 Antik eik finline 12 m/m Kr. 5.456.- pr. m2 Hnota finline 12 m/m Kr. 5.456.- pr. m2 Rósaviður 12 m/m Kr. 5.456.- pr. m2 Fjaðrir Kr. 139.- pr. stk GLERULL 5x57x1056 Kr. 688.- pr. m2 STEINULL 5x57x120 Kr. 1.082,- pr. m2 7,5x57x120 Kr. 1.608.- pr. m2 10x57x120 Kr. 2.134,- pr. m2 ÞAKJÁRN BG 24 6 fet Kr. 1.962,- 7 fet Kr. 2.290,- 2,4 m Kr. 3.593,- 2,7 m Kr. 4.042.- 3,0 m Kr. 4.491,- 3,3 m Kr. 4.940.- 3,6 m Kr. 5.389,- 4,0 m Kr. 5.988,- 4,5 m Kr. 6.737,- 5,0 m Kr. 7.485.- Getum útvegað aðrar lengdir af Þakjárni, allt að 10,0 m með fárra daga fyrirvara. Verð pr. Im., kr. 1.664.- BÁRUPLAST 6 fet Kr. 7.603.- 8 fet Kr. 10.138.- 10 fet Kr. 12.672.- BÁRUPLAST LITAÐ 6 fet Kr. 8.035,- SÖLUSKATTUR ER INNIFALINN Í VERÐINU. Byggingavörur Sambandsins Ármúla 20. Sími 82242

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.