Morgunblaðið - 11.05.1979, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MAÍ1979
I ■! -.M.
Skemmtun fyrir viðskiptavini —
Benzínafgreiðslumaðurinn Mike Lausten í E1 Cajon, Kaliforníu, mætti til vinnu
fyrr í vikunni klæddur eins og Arabi og með byssubelti til að hafa í stútinn á
benzínslöngunni. Lausten sagðist hafa gert þetta af þvíhann hefði orðið reiður og
viljað vekja athygli. „Er þetta Aröbum að kenna eða rfkisstjórninni?“ spruði
hann.
Sultarólin hert fyrir
komu páfa til Varsjár
Thatcher hækkar
kaup hermanna
- og þá snarlækkaði pundið
London, 10. maí. Reuter.
HIN NÝJA ríkisstjórn Margaret
Thatcher í Bretlandi tilkynnti í
dag að ákveðið hefði verið að
hækka laun hermanna, en þetta
var eitt af loforðum Thatchers í
kosningabaráttunni, enda var
talið að hið versta ástand kynni
að skapast innan raða hersins
vegna afleitra launa.
Kauphækkun sú sem ákveðin
hefur verið er um 32 prósent, en
Verkamannaflokkurinn hafði
lofað 24,2 prósenta hækkun. Þessi
hækkun mun gilda frá 1. apríl og
mun kosta Breta um 112 milljónir
sterlingspunda á ári. Þá hefur
Thatcher einnig tilkynnt launa-
hækkun til lögregluliðs í því skyni
að það sé færara um að sinna
skyldum sínum og uppfylla
auknar kröfur sem stjórn íhalds-
flokksins mun gera til lögreglunn-
ar, en Thatcher hét einnig að
málum sem að lytu lögum og reglu
yrði nánari gaumur gefinn.
Sterlingspundið féll snögglega á
ýmsum alþjóðagjaldeyrismörkuð-
um í dag vegna óvissu um verð-
bólgu og verðlagsþróun í Bretlandi
undir nýrri forystu. Pundið hafði
styrkzt verulega í fyrri viku en féll
nú í 2.0529 dollara víða í Evrópu. í
New York lækkaði það úr 2.0615 í
2.0525 dollara. Sú ákvörðun
Thatchers í gær að stórhækka
kaup lögreglunnar eða um 20
prósent og í dag hermanna á að
sögn fjármálasérfræðinga
drýgstan þátt í verðlækkun punds-
VarHjá — 9. maí. AP.
HAFIÐ er í Varsjá mikið
matvælahamstur þar sem
borgarbúar óttast að lang-
þráð heimsókn páfans í
Róm hafi í för með sér
vöruþurrð í verzlunum.
Ástæðan er þó ekki sú, að
páfinn sé svo mikið átvagl,
heldur er ljóst að
kaþólikkar utan af lands-
byggðinni muni flykkjast
til Varsjár til að fagna
trúarleiðtoga sínum. Ibú-
ar Varsjár eru 1.3 milljón-
ir. en fyrirsjáanlegt þykir
að sá f jöldi muni meira en
tvöfaldast við komu páf-
ans eftir þrjár vikur.
Það eru fleiri en húsmæður, sem
vilja hafa vaðið fyrir neðan sig.
Hið opinbera hamstrar af engu
minni móði, og hefur kjötskammt-
ur í mörgum verzlunum verið
skorinn niður um helming, en
kjötskortur er varanlegt ástand í
höfuðborg Póllands. Öll hótel í
borginni eru fullbókuð helgina,
sem páfinn verður í borginni, en
stjórnvöld eru sá aðili, sem hafa
tekið herbergin á leigu, og munu
þau siðan sjá um að útvega gist-
ingu. Ekki mun þó nema smábrot
komast fyrir í því gistirými, sem
til er, og öngþveiti er fyrirsjáan-
legt því að fæstar fjölskyldur búa
svo vel að geta hýst aðkomufólk á
einkaheimilum, en leiga á her-
bergjum hefur margfaldazt að
undanförnu. Járnbrautarstarfs-
maður einn, sem fréttamaður AP
ræddi við, bjóst helzt ið því að
málið yrði leyst með því að reisa
tjaldborg við Menningarhöllina í
miðborginni.
Jóhannes Páll páfi II var erki-
biskup í Kraká þar til hann var
kjörinn páfi í október s.l., og mun
hann einnig heimsækja heima-
borg sína. Að minnsta kosti 80 af
hundraði pólsku þjóðarinnar að-
hyllast kaþólska trú, og er talið að
kaþólsku kirkjunni í Póllandi hafi
vaxið mjög þróttur við það að
Karol Wojtyla var kjörinn páfi.
ERLENT
Marks & Spencer
att á „báknið”
Deild í KGB ýtir
undir hryðjuverk
RómaborK, AP.
VITO Miceli, fyrrver-
andi yfirmaður ítölsku
leyniþjónustunnar, sak-
aði Sovétmenn nýlega
um að ýta undir
ólýðræðislega starfsemi
kommúnista í Vest-
ur-Evrópu. Hefði sérstök
deild, „deild-A“, verið
sett á laggirnar í því
skyni innan sovézku
leyniþjónustunnar
(KGB). Væri deild þess-
ari einkum ætlað það
hlutverk að fjármagna
og styrkja eftir öðrum
leiðum starfsemi
ítalskra hryðjuverka-
hópa, sem aukið hafa
aðgerðir sínar eftir að
kosningabaráttan hófst
fyrir alvöru á Ítalíu.
Miceli sagði við sama
tækifæri, að hann hefði
árið 1972, er hann var
yfirmaður leyniþjónust-
unnar, lagt til við stjórn-
völd að 22 sovézkum
njósnurum, er störfuðu á
Ítalíu í skjóli sendiráðs-
tignar, yrði vísað úr
landi. Aldo Moro hefði
samþykkt það en lagt til
að fjórum og fjórum
njósnaranna yrði vísað
úr landi í einu svo málið
vekti síður alþjóða-
hneykslun. Þáverandi
forsætisráðherra, Giulio
Andreotti, sem einnig er
forsætisráðherra Ítalíu í
dag, hefði hins vegar
hafnað þessum tillögum
alfarið „sakir ríkishags-
muna“. Andreotti vildi
ekkert um þetta mál
segja í dag.
99
Lundúnum — 10. maí — AP.
MARGARET Thatcher,
hinn nýi forsætisráðherra
Bretlands, hefur ráðið í
sína þjónustu forstjóra
stórfyrirtækisins Marks
and Spencer til að gera
úttekt á skriffinnskubákn-
inu i þeim tilgangi að
uppræta sóun og óvirkni í
opinberri stjórnsýslu.
Sir Derek Rayner fær ekki í
hendur vald til að framkvæma
niðurskurð af neinu tagi, heldur
verður hann Thatcher og mönnum
hennar til ráðuneytis. Sparnaður í
opinberum rekstri var eitt helzta
Þetta gerdist
1978 — Kínverjar saka Rússa um
árásir yfir Ussuri-fljót.
1976 — Sendiherra Bólivíu í París
ráðinn af dögum.
1975 — Souvanna Phouma við-
urkennir sigur kommúnista í
Laos.
1972 — írar samþykkja aðild að
EBE í þjóðaratkvæði.
1971 — Musterin í Angor Wat
laskast í stórskotahríð í Kam-
bódíu.
1949 — ísrael fær upptöku í SÞ.
1943 — Bandaríkjamenn ganga á
land á Aleutian-eyjum og ná aftur
fyrsta bandaríska landsvæðinu í
stríðinu við Japani.
1878 — Tilraun gerð til að ráða
Vilhjálm I Þýzkalandskeisara af
dögum.
1867 — Sjálfstæði Luxemborgar
viðurkennt samkvæmt París-
ar-sáttmálanum og Prússum gert
kosningaloforð Thatchers, og er
búizt við því að hann beinist í
fyrstunni aðallega að skatta- og
almannatryggingakerfinu.
Nýr frkv.stjóri
Evrópuráðsins
StraBborg. Frakklandi, AP.
Austurríkismaðurinn Franz
Karasek var nýlega kjörinn fram-
kvæmdastjóri Evrópuráðsins. í
kosningum um starfið hlaut
Karasek 78 atkvæði, en fulltrúi
Svía í stjórnarnefnd ráðsins, Olof
Rydbeck, hlaut 74 atkvæði. Kosið
er til fimm ára í senn.
að flytja her sinn þaðan.
1860 — Landganga Garibaldis og
Rauðstakka hans í Genúa.
1824 — Bretar taka Rangoon í
Burma.
1812 — Spencer Perceval forsæt-
isráðherra ráðinn af dögum í
Neðri málstofunni.
1745 — Orrustan um Fontenoy:
Saxe marskálkur sigrar Englend-
inga.
1709 — Umsátur Karls XII um
Poltava hefst.
1507 — Frakkar innlima Genúa.
Afmæli. Irving Berlin, banda-
rískur sönglagahöfundur
(1888---) — Salvador Dali,
spænskur listmálari (1904--).
Andlát. William Pitt, stjórnmála-
leiðtogi, 1778 — Sir John
Herschel, stjörnufræðingur, 1871
— Max Reger, tónskáld, 1916.
Innlent. Kötlugos hefst 1721 —
Veður
víða um heim
Akureyri hiti v. trostm. skýjað
Amsterdam 14 skýjaó
Apena 28 bjart
Barcelona 19 skýjaó
Berlín 15 skýjaó
Brussel 17 bjart
Chicago 29 bjart
Frankfurt 22 sól
Genf 19 mistur
Helsingi 10 bjart
Hong Kong 31 bjart
Jerúsalem 30 bjart
Jóhannesarb. 14 sól
Las Palmas 23 léttskýjaó
Lissabon 23 sól
London 16 sól
Los Angeles 21 bjart
Madrid 21 sól
Majorka 21 téttskýjaó
Malaga 20 léttskýjaó
Miami 27 bjart
Montreal 31 sól
Moskva 15 skýjaó
Nýja Delhi 41 skýjaó
New York 35 bjart
Ósló 10 sól
Parfs 19 sól
Rio de Jan. 34 skýjaó
Reykjavík 4 léttskýjaó
Rómaborg 21 bjart
San Francisco 18 bjart
Stokkhólmur 12 skýjaó
Sydney 20 bjart
Teheran 27 bjart
Tel Aviv 22 skýjaó
Tókíó 22 skýjaó
Toronto 29 sól *
Vancouver 15 sól
Vínarborg 18 bjart
11. maí
Ragnheiður Brynjólfsdóttir vinn-
ur eið að sakleysi sínu 1661 — „La
Réchenche" kemur til Reykjavíkur
að kanna afdrif eftirlitsskipsins
„La Lilloise" 1835 — Ákveðið að
flytja prentsmiðjuna í Viðey til
Reykjavíkur 1844 — Jóni Sigurðs-
syni boðin yfirstjórn kláðamálsins
1859 — Hásetaverkfallinu lýkur
1916 — Þjóðernissinnar hefja
blaðaútgáfu 1932 — íslands-
sýningin í New York opnuð 1939
— íslendingar sigra Norðmenn í
sundkeppni 1949 — Landsmet
„Sæbjargar" í vertíðarafla 1969 —
Kurt Waldheim í heimsókn 1973
— f. Einar Jónsson 1874 —
Jóhannes Nordal 1924.
Orð dagsins: Enginn hefur eins
mikla þörf fyrir frí og sá sem er
nýkominn úr fríi — Elbert
Hubbard, bandarískur rit-
höfundur (1856-1915).