Morgunblaðið - 11.05.1979, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MAÍ1979
39
Liverpool er ekkert meðallið
11 titlar nú í öruggri höfn
UM 50.000 manns fjölmenntu á Anfield Road í Liverpool, þegar
heimaliðið mætti Aston Villa í 1. deildar leik. Sigur þýddi, að ekki eitt
einasta lið átti lengur svo mikið sem stærðfræðilegan möguleika á því
að ná Liverpool að stigum. Aston Villa hefur leikið vel að undanförnu,
en eigi að síður vann Liverpool auðveldan sigur, 3—0, og áhorfendur
fögnuðu þeim lengi og innilega, því að ellefti Englandsmeistaratitill-
inn var þar með í höfn. Er ekki ofsögum sagt, að ferill Liverpool hafi
verið einstakur síðustu árin, en á sjöunda áratugnum hefur varla liðið
keppnistímabil án þess að Liverpool hafi bætt stórbikurum í safnið og
stundum fleiri en einum.
Knattspyrnufélagið Liverpool FC var stofnað árið 1892 og ári síðar
var það kosið í aðra deildina í Englandi, en í þá daga voru deildirnar
aðeins tvær. Félagið var aðeins eitt ár í 2. deild áður en það tryggði
sér sæti í 1. deild. Sæti sem félagið missti strax ári eftir. Síðan var
félagið til skiptis í 1. og 2. deild, nokkur ár í senn á hvorum stað.
Síðast var liðið í 2. deild tímabilið 1954 — 1962, en þá fór féiagið upp í
fyrstu deild og hefur verið þar allar götur síðan. Afrekaskrá
Liverpool er vægast sagt stórkostleg og væri ekki úr vegi að líta á
hana.
1893—94: 1. sæti í 2. deild.
1895—96: 1. sæti í 2. deild.
1898—99: 2. sæti í 1. deild.
1900-1901: 1. sæti í 1. deild.
1904- 1905: 1. sæti í 1. deild.
1905— 1906: 1. sæti í 1. deild.
1909—1910: 2. sæti í 1. deild.
1914: 2. sæti í FA-bikarnum.
1921— 22:1. sæti í 1. deild.
1922— 23: 1. sæti í 1. deild.
1946—47: 1. sæti í 1. deild.
1950: 2. sæti í FA-bikarnum.
1961—62: 1. sæti í 2. deild.
1963—64:1. sæti í 1. deild.
1965: 1. sæti í FA-bikarnum.
1965—66: 2. sætið í Evrópukeppni
bikarhafa.
1965-66: 1. sæti í 1. deild.
1968—69: 2. sæti í 1. deild.
1971: 2. sætið í FA-bikarnum
1972—73:1. sæti í fyrstu deild.
1972— 73: 1. sæti í
UEFA-bikarnum.
1973— 74: 2. sæti í 1. deild.
1974: 1. sæti í FA-bikarnum.
1974— 75: 2. sæti í 1. deild.
1975— 76: 1. sæti í 1. deild.
1975— 76: 1. sæti í
UEFA-bikarnum.
1976— 77: 1. sæti í 1. deild.
1977: 2. sæti í FA-bikarnum.
1976— 77: 1. sæti í Evrópubikar
meistaraliða.
1977— 78: 2. sæti í 1. deild.
1977—78: 2. sæti í deildar-
bikarnum.
1977— 78: 1. sæti í Evrópubikar
meistaraliða.
1978— 79: 1. sæti í 1. deild.
Það leikur ekkert lið þetta eftir
Liverpool, en þarna innanborðs
eru hvorki meira né minna en 11
meistaratitlar, auk ýmissa bikara
t.d. Evrópubikar meistaraliða,
sem hafði aðeins einu sinni áður
unnist af ensku liði, Manchester
Utd. 1968. Liverpool á einnig
• Leikmenn Liverpool í sigurvímu eftir að hafa unnið Evrópubikar meistaraliða annað árið í röð á
síðastliðnu vori, en þá bar liðið sigurorð af FC Brugge, 1—0, á Wembley-leikvanginum í Lundúnum.
• Núverandi stjóri, Bob
Paisley, gefur Shanklcy lítið
eftir sem hugsuður og afburða
framkvæmdastjóri.
möguleika á að setja tvö met í
deildarkeppninni í ár. Annars
vegar hefur liðið aðeins fengið á
sig 16 mörk í leikjum sínum til
þessa, en áður hafði ekkert lið
fengið minna en 24 mörk á sig á
heilu keppnistímabili. Liverpool
slær því met þetta ef vörnin fær á
sig færri mörk en 8 í tveimur
síðustu leikjum sínum, en jafna
metið verði mörkin 8. Það er mjög
fjarstæðukennt að ætla að Liver-
pool fái þann sæg marka á sig úr
þessu eftir það sem á undan er
gengið. Ofan á þetta bætist að
liðið hefur skorað yfir 80 mörk í
deildinni í vetur og hefur félagið
líklega aldrei unnið titilinn á jafn
glæsilegan hátt.
Hitt metið sem leikmenn Liver-
pool stefna nú að er að vinna
titilinn á hærri stigafjölda en
áður hefur gerst. Til þess þarf
Liverpool að vinna síðustu tvo
leiki sína, en þá hlýtur liðið einu
stigi meira en Leeds gerði þegar
félagið vann titilinn fyrir fáum
árum.
Liverpool hefur þrátt fyrir allt
aldrei tekist að vinna hina einu
sönnu „tvennu“ sem Bretar kalla,
eða bæði titilinn og FA-bikarinn á
sama keppnistímabilinu. Tvö ensk
lið hafa afrekað það, Lundúnaliðin
Tottenham og Arsenal. Á allra
síðustu árum hefur liðið þó verið
aðeins feti frá því, en í bæði
skiptin var það sama liðið sem
hafði bikartak á meisturunum.
Árið 1977 tapaði Liverpool í úr-
slitaleik FA-bikarsins 1—2 fyrir
Manchester Utd. og skemmst er að
minnast þess, að sama félag og
raunar sami leikmaðurinn Jimmy
Greenhoff, skaut Liverpool út úr
bikarkeppninni í undanúrslitum
fyrir fáum vikum. í öðru tilvikinu,
hinu fyrra, var Liverpool orðið
enskur meistari og í síðara tilvik-
inu var Liverpool með unnið mót,
þrátt fyrir stærðfræðilega mögu-
leika liða eins og WBA og Notting-
ham Forest. Það sýnir þó kannski
best hvers lags yfirburðalið Liver-
pool er og hefur verið síðustu árin,
að þremur dögum eftir að hafa
tapað fyrir United á Wembley árið
1977, reif það sig upp úr hinum
augljósa vonbrigðadal og gersigr-
aði hið geysisterka vestur-þýska
lið Borussia Mönchengladbach í
úrslitum Evrópubikarkeppni
meistaraliða.
Ef undan er skilinn hálfur þriðji
áratugur á þessari öld, kemur í
ljós, að velgengni Liverpool hefur
einkum verið á sjöunda áratugn-
um og þeim áttunda. Það eru
einkum leikmennirnir sjálfir sem
þakka það tveimur óviðjafnanleg-
um þjálfurum, þeim Bill Shankley
og síðan arftaka hans, Bob
Paisley. Það sýnir hinn góða
liðsanda hjá Liverpool, að þeir
kapparnir Shankley og Paisley
hafa alltaf á hinn bóginn verið
fljótir að eftirláta leikmönnunum
allan heiðurinn.
Stewart stendur sig
ÞAÐ VAR töluvert um það rætt, þegar íslenska landsiiðið í körfuboita
var á keppnisfcrðalagi fyrir skömmu, að Skotar, mótherjar íslendinga
í tveimur landsleikjum, íétu í ljós mikinn áhuga á að fá ÍR-inginn Poul
Stewart til liðs við sig, þar sem hann er af skosku bergi brotinn.
Ekkert varð þó úr því um sinn, cn í leikjunum gegn íslendingum,
mciddist einn skosku leikmannanna það illa, að hann varð að draga
sig út úr hópnum. Fékk þá Stewart skyndilega bréf frá Skotum, þar
sem nærveru hans væri óskað og var kappinn fljótur út.
Síðan hefur töluvert vatn runnið til sjávar og Skotar leikið nokkra
leiki. Stewart hefur verið misjafnlega mikið með og stendur lítið, enda
hefur hann átt í nokkrum erfiðleikum eftir að hann slasaði sig í
upphitun norður á Akureyri í vetur. Stewart vann þó bókstaflega einn
leikinn fyrir Skota. en það var gegn Sviss. Skotar unnu naumlega og
Stewart skoraði 29 stig í leiknum og var besti maður skoska liðsins.
Skoska liðið hefur nú komið sér í úrslitakeppni sem fram fer á Ítalíu
innan skamms.
Tryggingamót
í knattspyrnu
í KVÖLD föstudag 11. maí gengst Brunabótafélag íslands fyrir
innanhússknattspyrnumóti milli tryggingafélaganna. Keppt verður í
íþróttahúsinu Ásgarði Garðabæ og hefst keppnin kl. 20.00. Sex lið
taka þátt f keppninni, Brunabótafélag íslands, Tryggingamiðstöðin.
Almennar tryggingar, Ábyrgð. Samvinnutryggingar og Trygging.
Búast má við harðri keppni og spennandi. Keppt verður um veglegan
bikar til eignar, sem gefinn er af Brunabótafélagi íslands.
• Kenny Dalglish sækir að marki FC Brugge í úrsiitaleiknum um Evrópubikar meistaraliða 1978. Til
varnar cru Birgir Jenscn markvörður og Eduard Kieger. Liverpool vann að sjálfsögðu og Dalglish skoraði
sigurmarkið.
Valur opið hús
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Valur er 68 ára í dag. í tilefni
dagsins verður opið hús ásamt veitingum í Félagsheim-
ilinu að Hlíðarenda og hefst það klukkan 15.00 og
stendur til klukkan 18.00. Valsmenn bjóða velkomna
alla félagsmenn og velunnara félagsins.