Morgunblaðið - 02.06.1979, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1979
37
Kirkjuhúsið ber þar hátt við
lygnan sæ.
Fámennt er í eyjunni við hið
ysta haf með veðrin hörð. Kirkja
Grímseyinga sú hin nyrsta á landi
voru er hin reisulegasta.
í báðum þessum kirkjum er
Guði sungið lof og dýrð ásamt
bænarákalli safnaðarins.
Þá kemur mér í hug orð úr
Grímseyjarbók sr. Péturs er hann
spurði við húsvitjun gamlan sjó-
mann: varstu aldrei hætt kominn í
björgunum, — það kom fyrir — en
Faðir vor dugði mér, ég bað um
hans vernd og blessun á meðan ég
vann verkið.
Ég óska frænda mínum sr. Pétri
Sigurgeirssyni og konu hans Sól-
veigu Ásgeirsdóttur til hamingju
á þessum merka degi.
Pétur Indgjaldsson
Á ÞESSUM tímamótum ævi
þinnar sér Pétur, sendi ég þér
innilegar hamingjuóskir og þakkir
fyrir langa og trausta vináttu,
snuðrulaust og gott samstarf pg
öll störf þín í þágu kirkjunnar. Ég
bið þér og fjölskyldu þinni Guðs
blessunar og þakka ykkur hjónun-
um hugstæðar og ljúfar samveru-
stundir á heimili ykkar.
Við embættisbræður þínir í
Eyjafjarðarprófastsdæmi árnum
þér árs og friðar. — Lifðu heill.
Stcíán Snævarr prófastur.
Um leið og við hjónin óskum þér
til hamingju með sextugsafmælið
þökkum við margra ára vináttu og
samstarf. Þökk sé þér fyrir ötula
og markvissa forystu í Prestafé-
lagi hins forna Hólastiftis, —
fyrir stofnun Æ.S.K. í Hólastifti
og starfsins þar, — fyrir byggingu
sumarbúða við Vestmannsvatn, en
Æ.S.K. er 20 ára á þessu ári.
Þannig mætti lengi telja. Störf þín
mörg og margvísleg einkennast öll
af dugnaði og þrautseigju, en
lipurð og mildi.
Við þökkum gestrisni ykkar
hjónanna og mörgu ánægjustund-
irnar á heimili ykkar fyrr og síðar.
Megi íslenzk kirkja lengi njóta
krafta ykkar.
Aðalbjörg og Sigurður
Grenjaðarstað.
Ég veit að í Mbl. 2. júni 1979
verður á myndarlegan hátt minnst
þeirra tímamóta í ævi sr. Pétur
Sigurgeirssonar, vígslubiskups
okkar Norðlendinga, er hann þann
dag verður sextugur.
Mitt erindi er aðeins að biðja
þessum góða vini allrar Guðs
blessunar, svo og konu hans
Sólveigu og öllum ástvinum
þeirra, og þakka hin löngu og góðu
kynni, og einkum og sér í lagi alla
þá hlýju vináttu, sem hann hefur
auðsýnt mér frá fyrstu tíð kynna
okkar.
Séra Pétur Sigurgeirsson,
vígslubiskup, er manngæðamaður;
maður sem lifir öllum til góðs og
sjálfum sér til mikillar sæmdar.
Mikið er Akureyringum og okkur
Norðlendingum öllum það þakkar-
efni, að við fengum að eignast sr.
Pétur og í svo langa tíð að njóta
mannkosta hans, hins glaða hlýja
hugar, trúmennsku og starfs-
hæfni.
Sú er ósk mín að við megum
njóta starfs sr. Péturs og vináttu
um langa tíð. Ég þakka honum
forystu fyrir Prestafélagi Hóla-
stiftis hins fona og fyrir sam-
starfið í stjórn þess og yndis-
stundir á greiðasömu menningar-
heimili þeirra vígslubiskupshjóna.
Gott er með sr. Pétri að vera. í
návist hans finnst svo glöggt sem
verða má, að sönn eru þessi orð
norska stórskáldsins: „að þar sem
góðir menn fara þar eru Guðs
vegir“.
Gunnar Gíslason, Glaumbæ.
Sr. Pétur Sigurgeirsson vígslu-
biskup Hólastiptis er 60 ára í dag
og allir vinir hans og kunningjar
fjær og nær óska honum innilega
til hamingju.
Mér er ennþá í fersku minni
þegar ég fyrst kynntist Pétri. Það
var sumarið 1938 á ísafirði þar
sem faðir hans var þá prófastur.
Pétur var þá að koma úr síma-
vinnu og var á leið heim til sín.
Við höfðum sézt áður í bænum og
vissi hann að ég var frá Skotlandi
pg var að þjálfa í knattspyrnu á
ísafirði. Við heilsuðumst og spjöll-
uðum dálítið saman. Seinna hitti
ég Pétur í kirkjunni við messu-
gjörð, þó skal ég viðurkenna að ég
skildi mjög lítið af því sem fór
fram. Ég hafði þá kynnst foreldr-
um Péturs og gleymi ég aldrei
þeirri gestrisni sem þau sýndu
mér á meðan ég dvaldi það sumar
á ísafirði og síðar. Og var það séra
Sigurgeir Sigurðsson biskup sem
síöar tók virkan þátt í því að ég
ílentist á íslandi og gerðist þjónn
þjóðkirkjunnar.
En leiðir okkar lágu ekki saman
fyrr en Pétur fluttist með foreldr-
um sínum til Reykjavíkur og
hann, ásamt mér, innritaðist í
Guðfræðideild Háskólans. Og þá
fékk ég þá ósk mína uppfyllta að
kynnast þessum unga og hrein-
skilna manni sem ég sá fyrst í
vinnugalla á götu ísafjarðarbæjar
á sólríkum sumardegi. Sú kynning
var mér til mikillar gleði og úr
henni varð vinátta, traust og
fögur. Máltækið segir: „Sá er
vinur sem í raun reynist". Pétur
var ekki lengi að skilja að ég sem
var einbirni foreldra minna hafði
áhyggjur af þeim úti í Skotlandi
þar sem striðshættan var dagleg-
ur viðburður, enn fremur komst ég
ekki til þeirra vegna stríðsins. Það
var óvanalegt, og er það ennþá, að
ungur maður sýnir öðrum mikinn
kærleika og skilning eins og Pétur
Sigurgeirsson sýndi mér á þessum
tíma. Enginn veit nema ég um þau
uppörvandi orð og hvatningu sem
hann veitti mér; um þá daglegu
hjálp á margan hátt sem hann
veitti mér. Hann var einnig
kennari minn, leiðrétti íslenzku
mína og kenndi mér ný orð. Eins
og fyrr segir var ég einbirni, en ég
eignaðist bróður í fyrsta sinn og
það langt frá ættlandi mínu. Hann
var Pétur Sigurgeirsson. Hann
vildi vera prestur og vissi ég vel af
kynnum mínum af honum, að
hann var útvalinn til þess. Það
voru ungir menn þá í Guðfræði-
deildinni sem vissu vel um þörf á
æskulýðsstarfsemi innan kirkj-
unnar. Pétur var einn þeirra og
eftir framhaldsnám í Bandaríkj-
unum settist hann að á Akureyri
og varð frumkvöðull að stofnun
æskulýðsstarfsemi kirkjunnar þar
í bæ, og var dæmi hans til þess að
Þjóðkirkjan stofnaði til
almennrar æskulýðsstarfsemi sem
hefur vaxið og er nú sterkur
þáttur í starfi kirkjunnar. Án efa
er margur æskumaður sem þakkar
sr, Pétri í dag fyrir prédikanir
hans, leiðbeiningar og góð ráð sem
hann hefur veitt honum í 32 ár og
meira. En ef vígslubiskupinn hefði
ekki orðið prestur, og þá hefði
kirkja Islands tapað miklu. Hefði
hann t.d. getað orðið afbragðs
góður blaðamaður. Hann er vel
pennafær eins og mátti sjá í
Kirkjublaðinu sem hann stjórnaði
að mestu á meðan faðir hans var
biskup. Og bókin hans um
Grímsey, sem hann hefur einnig
þjónað í 26 ár, er fyrsta flokks
heimildarrit um eyjuna og vel
skrifuð.
Ég varð einnig var við það að á
ungum aldri' bjó sr. Pétur yfir
miklum skipulagsgáfum og hafa
þa'r komið fram í ríkum mæli í
starfi hans sem prests og
víglslubiskups. Trú séra Pélurs
hefur alltaf verið lifandi og raun-
sæ, Guði til dýrðar og mönnum til
sáluhjálpar. Hann hefur Drottin í
öllu sem hann gerir.
Ég þakka af alhug stéttarbróður
mínum fyrir aila ómetanlega
hjálp í „langan aldur" og óska
honum og frú Sólveigu konu hans
og fjölskyldu innilega til
hamingju með stóra daginn.
líóbert Jack.
KAUPMANNAHÖFN
GLASGOW
51.000
HELSINKI
94300
DUBLIN
5Z300I
LUXEMBORG
78.300
FÆREYJAR 7Q 0/1/1
38.000 iuu
LONDON
63.100
STOKKHOLMUR
84.000
GAUTABORG
72.900
OSLÓ
67.300
BERGEN
67.300
Vissir þú um
þetta verð?
Ofangreind dæmi sýna fargjöld
(fram og til baka) hvers
einstaklings í fjögurra manna
fjölskyldu, sem nýtur
fjölskylduafsláttar frá almennum
sérfargjöldum.
til viöbótar-og þá lítur dæmiö út
eins og sýnt er hér aö ofan.
Þar eru aöeins sýndir nokkrir
möguleikar af fjölmörgum - en
viljirþú vita um flugfargjöld
til fleiri staöa og alla afsláttarmögu-
Almenn sérfargjöld eru 6-30 daga leika sem bjóöast þá er bara aö
fargjöld sem gilda allt áriö til
nær 60 staöa í Evrópu -
en fari fjölskyldan saman til
Noröurlanda - Luxemborgar eöa
Bretlands fæst fjölskylduafsláttur
hringja í síma 25100, heimsækja
næsta umboösmann eöa söluskrif-
stofu okkar í fíeykjavík í Lækjar-
götu og aö Hótel Esju.
FLUGLEIÐIR