Morgunblaðið - 02.06.1979, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ1979
61
TT^1 ^
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
0100KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
þessi umrædda lúguafgreiðsla var
sett á í þeim eina tilgangi að
lengja sölutíma á frímerkjum og
um leið að gera mönnum kleift að
póstleggja almenn bréf.
Aðra almenna póstþjónustu, svo
sem viðtöku ábyrgðarbréfa, sem
krefst bókunar og sérstaks með-
höndlunar, svo og annarrar póst-
þjónustu af svipuðum toga spunn-
in, er því miður ekki hægt að veita
við þessar aðstæður, enda engan
veginn á færi eins manns.
Eg vona að viðskiptavinir pósts-
ins kunni að meta þessa viðleitni
og skilji þá aðstöðu, sem hér er um
að ræða — og virði óþægindin á
betri veg.
Matthías Guðmundsson
póstmeistari.
• Símaskráin 1979
Þegar ég las fyrst um að
smækka ætti letur símaskrár
fannst mér að þetta væri spor
aftur á bak vegna smæðar leturs-
ins. Þegar nýja skráin kom fannst
mér hún betri en sú gamla. Ég vil
taka það fram að ég nota gler-
augu, án þeirra rennur allt saman,
en letrið er greinilegt þótt smátt
sé.
Þá er einn kostur, að maður
þarf ekki að fletta mörgum blöð-
um. Til dæmis er d-dálkur rúm-
lega 2% síða. Þetta flýtir fyrir. Ég
á orðabók þar sem d-dálkurinn er
255 blaðsíður. Þar er letrið ennþá
smærra, svo smátt að ég þarf á
stækkunargleri að halda. Þó er ég
fljótur að finna orð þar.
Ég veit að margt fólk sér verr
en ég. Vil ég vinsamlegast benda
því á að reyna að fá sér stækkun-
argler, helst ekki minna en 6—8
cm í þvermál. Ætti þá vandi
flestra að vera leystur og fljótara
að finna í skránni vegna færri
blaðsíðna.
Eitt er það sem þessi bók hefur
erft frá símaskrám liðinna ára.
Það er allt of þunn kápa. Mætti
ekki næst hafa hana úr þykkara
efni svo hún héldist ókrumpuð
þetta ár sem við notum hana.
Kópavogsbraut 16,
Asgeir Guðmundsson.
• Steypugallar
Töluvert hefur verið rætt og
ritað um þá. Öllum kemur held ég
saman um það, að þessir gallar
hafi aukist á seinni árum, og fært
ýmis rök að þeirri niðurstöðu.
Minna má á merka grein eftir
Harald B. Bjarnason í
Morgunblaðinu um daginn, hann
talaði þar, bæði af reynslu og
þekkingu.
Við gamlir steypukarlar, getum
enn í dag séð, bæði hús og önnur
mannvirki standa óbrotin og
ósprungin eftir áratugi. Hin stóra
spurning er, hvað veldur? Þá var
steypuefnið hrært á flekum og
mælt í flötum eða börum.
Sjáið gömlu brýrnar á Elliðaán-
um. Sú syðri var steypt haustið
1919, en hin nyrðri vorið 1920. Þær
standa þarna enn, heilar og
ósprungnar, eftir mikia umferð í
marga áratugi. Heill sé hinum
gömlu steypuköllum og traustu
mannvirkjum íslands, sem enn
standa.
Gamall brúarkarl.
Islandsmótið
1. deild
Valur - Haukar
á laugardalsvelli í dag kl. 14
Allir á völlinn.
Valur.
Þessir hringdu . .
• Fleiri
hestamyndir
2298—2478 hringdi vegna mynd-
arinnar í sjónvarpinu „Dagur
hestsins“.
„Mig langar til að biðja félag
tamningamanna að ganga á undan
með góðu fordæmi og nota hjálma
og helst að láta Iögleiða notkun
þeirra. Það hafa oft orðið slys og
menn fengið heilahristing við að
stunda hestamennsku og í sjón-
varpinu voru t.d. aðeins tveir
knapar með hjálma í stóðhesta-
reiðinni.
Einnig langar mig til að minn-
ast á það hversu ósmekklegt það
var að sjá fulltrúa hestamannafé-
laganna í sínum eigin fötum en
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á opnu skákmóti í Islington í
Englandi í fyrra kom þessi staða
upp í skák þeirra Brittons. og
stormeistarans Nunrs. sem hafði
svart og átti leik.
ekki í einkennisbúningum síns
félags. Það er leiðinlegt að sjá
mann skemma fallegan hest. Jafn-
vel formaður eins félagsins spók-
aði sig um óeinkennisklæddur.
Að lokum langar mig að benda á
það að tónlistin í myndinni var
einum of há. En Bjarni Felixson
mætti gera meira af því að sýna
okkur hestamyndir í íþróttaþátt-
unum og hvíla okkur á knatt-
spyrnunni um stund."
HÖGNI HREKKVÍSI
■ & Þ/& £//£/ tWœQ/IBD 6-/E&/A/,
hA ^A/p />/£) JSA/DI//2MJZ/TT uaP/Æews >u
PZTTA KöM/Ð... 5oo/<{óaajÆ!
Egyptaland
Grikkland
rn ;S§i*5Em::' BSSStt
Brottför 21. júní (15 dagar). Fariö um
söguslóöir í Aþenu, Cairó, Alexandríu, Sues
og Luxor. FERÐASKRIFSTOFAN
Verð 345 Þús.
Víósýn,
Austurstræti 3, sími 27090.
S2F SIG6A V/öGá £ A/LVE^AW
33 ... Bxel! 34. fxel - IIí2. 35.
Dg5 - IIxg2+! 36. Kxg2 - Rf l+
og hvítur gafst upp. Eftir 37. Kg3
- Dgl+, 38. Kh4 - Df2+, 39. Rg3
— Rg2+ er hann mát.