Morgunblaðið - 13.06.1979, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.06.1979, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JUNI 1979 11 Musica Quatro í Norræna húsinu í kvöld í KVÖLD kl. 20.30 mun djasshljómsveit er nefnist Musica Quatro halda hljómleika í Norræna hús- Flugleiðir: 25 f erðir í viku til Austfjarða Samkvæmt sumaráætlun fljúga Flugleiðir frá Reykjavík til þriggja staða á Austurlandi, þ.e. til Egilsstaða, Norðfjarðar og Hornafjarðar. Til Egilsstaða eru flestar ferðir, þ.e. 18 í viku, þegar áætlun hefir að fullu tekið gildi. Á mánudögum, miðviku- dögum, föstudögum og laugar- dögum eru þrjár ferðir, aðra daga tvær ferðir. inu. Þó hljómsveitin sé ný eru hér engir nýgræðingar á ferð, en hljómsveitina skipa: Gunnar Ormslev, tenór og altósaxafón, Reynir Sigurðsson, víbra- fón, Helgi Kristjánsson, bassa og Alfreð Alfreðs- son, trommur. Það vekur óneitanlega nokkra at- hygli að Gunnar Ormslev er aftur farinn að leika á altósaxafón, en á það hljóðfæri lék hann er hann kom fyrst fram. Hljómsveitin hefur æft af kappi undanfarið og mun leika ný verk eftir Gunnar Reyni Sveinsson m.a. Dexter er Gunnar samdi í inn- blæstri eftir tónleika Dexter Gor- dons í Háskólabíói í október á síðasta ári og Lífið er stutt, listin löng en það er samið í minningu A'ndrésar Ingólfssonar saxafón- leikara. Þeir munu einnig leika verk eftir ýmsa ameríska djass- meistara ss. Mingus, Chick Corea og Steve Swallow. Á fimmtudags- morgun mun Musica Quatro leggja land undir fót og halda til Færeyja þar sem þeir leika á tvennum hljómleikum í Þórshöfn í boði Havnar Jazzfélagsins. Þeir félagar hafa fullan hug á aö halda samleiknum áfram og leika á skemmtunum út á landi í sumar. í haust munu þeir afturámóti leika á djasskvöldum og í skólum. Meðlimir Musica Quatro, talið frá vinstri: Alfreð Alfreðsson, Helgi Kristjánsson, Gunnar Ormslev og Reynir Sigurðsson. Á Egilsstaðaflugvelli tengist Flugleiðaflugið Flugfélagi Austur- lands sem hefir áætlun til átta staða. Þannig tengist flug frá Reykjavík flugi til Bakkafjarðar, Vopnafjarðar, Borgarfjarðar, Norðfjarðar, Breiðdalsvíkur, Djúpavogs,. Hornafjarðar og Akureyrar. Með þessu fyrirkomu- lagi eru t.d. daglegar flugferðir milli Norðfjarðar, Egilsstaða og Reykjavíkur, en til annara staða á Austurlandi eru flugferðir þrjá til fimm daga í viku. Þessar ferðir tengja þannig Austurland ekki einungis við Suðvesturland heldur einnig við Suðausturland og Norð- urland. Flugfélag Norðurlands flýgur þrisvar í viku frá Akureyri til Egilsstaða og tengist þar Flug- félagi Austurlands. Frá Egilsstaðaflugvelli eru einnig greiðar samgöngur með langferðabílum til margra staða á Austurlandi. Þessar ferðir eru í beinum tengslum við flug til Egilsstaða. Bílferðir eru til Reyð- arfjarðar, Eskifjarðar, Norðfjarð- ar, Seyðisfjarðar, Fáskrúðsfjarð- ar, Breiðdalsvíkur og Stöðvar- fjarðar. Milli Reykjavíkur og Norðfjarð- ar fljúga skrúfuþotur Flugleiða tvisvar í viku. Á miðvikudögum er brottför frá Reykjavík kl. 14:30 og á laugardögum kl. 11:15, en eftir 1. júní kl. 09:00. Að auki flýgur svo Flugfélag Austurlands frá Egils- stöðum til Norðfjarðar og tengir Norðfjörð þannig t.d. Hornafirði og fleiri stöðum. Ævintýraferðir til næstu nágranna Til Hornafjarðar verða í sumar flognar fimm ferðir í viku frá Reykjavík alla daga nema mánu- daga og laugardaga. Þar að auki flýgur Flugfélag Austurlands frá Egilsstöðum fjórum sinnum í viku og frá Hornafirði til Djúpavogs á föstudögum og sunnudögum. Þá verða bílferðir frá Hornafirði í sambandi við áætlun Flugleiða þangað. Samband grunnskóla- kennara og Lands- samband framhalds- skólakennara sam- einuð á næsta ári Á aukafulltrúaþingi S.G.K. 6. og 7. júní var samþykkt að sameina Samband grunnskólakennara og Landssamband framhaldsskóla- kennara í ein kennarasamtök á næsta ári. Samtökin munu heita Kennarasamband íslands, skammstafað K.Í., og var ákveðið að stofnþing yrði í júní á næsta ári. Félagsafjöldi L.S.F.K. og S.G.K. er nú um 2800 manns. Grænland Ferö til Grænlands-þóttstuttsé er engu lík. í Grænlandi erstórkostleg náttúrufegurö og sérkennilegt mannlíf, þar er aö finna hvort tveggja ísenn nútíma þjóöfélag eins og viö þekkjum þaö-og samfélag löngu liöins tíma. Stórskemmtilegar feröir sérstaklega fyrir fjölskyldur -starfshópa og félagasamtök. Færeyjar Þaö sem gerir Færeyjaferö aö ævintýri erhin mikla náttúrufegurö, ásamt margbreytilegum möguleikum á skemmti- og skoöunarferöum um eyjarnar, og síöast en ekki síst hiö vingjarniega viömót fólksins. Efþú ert einhvers staöar velkominn erlendis-þá erþaö íFæreyjum. Spyrjiö sölufók okkar, umboösmenn eöa feröaskrifstofurnar um nánari upplýsingar. FLUGLEIÐIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.