Morgunblaðið - 13.06.1979, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.06.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ1979 29 Vegleggjöf til Reykjahlíðarkirkju dansleikir í sveitum við mikið fjölmenni og tekist furðu vel að sögn. Hvers vegna geta Reykvík- ingar það þá ekki einnig? Önnur hugmynd er sú, að loka áfengisverslunum nokkru fyrir 17. júní. „Dýrt fyrir ríkið“, segja menn. En hvað er dýrt? Aðrir vilja fara áróðursleiðina, höfða til betri tilfinninga allra manna í félögum, fyrirtækjum, blöðum og útvarpi og biðja alla þjóðina að skemmta sér vel þenn- an dag, en í hófi. Víst er allt þetta reynandi. Með góðum óskum kem ég þessum hugmyndum á framfæri. Reykvíkingur. • Síríus, hin bjarta hvíta sól Mörg eru undur hins mikla geims og vísindin eru stöðugt að leiða æ fleiri þeirra í ljós. Eitt af furðum alheimsins eru hin hvitu dvergstirni, en það eru litlar sólstjörnur, á því stigi SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Fyrir nokkru fór fram í Minsk í Sovétríkjunum skákmót til minn- ingar um hinn þekkta skákmann og þjálfara Sokolsky, en við hann er byrjunin 1. b4 kennd. Þessi staða kom upp á mótinu í skák þeirra Kapenguts, sem hafði hvítt og átti leik, og Mochalovs. 20. Bxg5! - Rg6 (Ef 20... fxg5, þat21. Re5+) 21. Hxe7+! - Hxe7, 22. Bxf6 og svartur gafst upp. Sigurvegari á mótinu varð Kupr- eitschik. Hann hlaut 10 V4 v. af 15 mögulegum. Vinningi neðar komu þeir Didishko og Kapengut. Þessir hringdu . . . • Óvirðing við sjómenn Kona nokkur hafði samband viö Velvakanda vegna sjómanna- dagsins. „Ég vil að borgin biöji sjómenn opinberlega afsökunar á því að strætisvagnarnir flögguðu ekki á sjómannadaginn. Þeir flagga fyrir öllu mögulegu öðru en ekki sjó- mannadeginum og finnst mér það óvirðing og móðgun við sjómenn. Einnig finnst mér það óviðeigandi að á þessum hátíðisdegi skuli vera opinber útiskemmtun á Miklatúni þar sem ekki er á nokkurn hátt minnst á sjómannadaginn. Þarna var beinlínis verið að stela þessum hátíðisdegi sjómanna." þróunar, að efnisþéttleiki þeirra er orðinn margfaldur á við það sem um er að ræða í venjulegum stjörnum. Álitið er að hvítir dvergar, svokallaðir, séu um 14 af hundraði allra stjarna í vetrarbrautinni. Dvergstirni eru ólík öðrum sól- stjörnum að því leyti, að upp- sprettur kjarnorkunnar eru þar að fullu tæmdar, nema í allra ystu lögum þeirra. Þetta eru stjörnur þar sem efnin eru úr sér gengin, kjarnakrafturinn uppurinn. Efni þeirra eru úrkynjuð, ef svo mætti segja, því rafeindir frumeindanna eru horfnar út í veður og vind, og aðeins frumeindakjarnarnir eru eftir, ólíkt því sem er í venjulegum stjörnum. Slíkt efni hefur því margfaldan þéttleika á við venju- legt efni. Meðalþéttleiki hvítra dverg- stjarna er um það bil milljónfald- ur á við þéttleika okkar sólar og annarra hliðstæðra sólna, og stærð þeirra e.t.v. aðeins á við stærð jarðstjarna. Bjartasta sólstjarna himins frá okkur að sjá er Síríus sem er í tæplega 9 ljósára fjarlægð. Þarna er um tvístirni að ræða. Tvær sólir ganga þar hvor um aðra og er umferðartiminn um 50 ár. Bjart- ari stjarnan, Síríus A, er 25 sinnum bjartari en okkar sól. En minni stjarnan, Síríus B, er hvítur dvergur um 50 sinnum minni að þvermáli en okkar sól, og er 14 birtustigum daufari en Síríus A, eða 1/100 af birtu okkar sólar. En þéttleiki litlu stjörnunnar er slík- ur, að einn rúmþumlungur af efni hennar mundi vega eitt tonn! Hverjar eru líkur á þróuðu lífi, á einhverri reikistjarna Síríusar, þessarar björtu sólar? Stjörnu- fræðin kann enn ekki að svara þeirri spurningu með neinni vissu. En fyrirburðafræðin (Parapsycho- logy) er komin á þröskuld þess, að láta lífið á stjörnunum til sín taka, og að takast á við þau rannsóknarefni sem þar bíða úr- lausnar. Hér er um að ræða stjörnulíffræðina, sem verða mun eitt af aðalviðfangsefnum fram- tíðarinnar, ef vísindin ná að þró- ast í þá átt, sem vera ætti. Ingvar Agnarsson HÖGNI HREKKVÍSI AfHVPZ'sO VéflWM vfo Altf/fF HÐ H/rrASl 0 '! PÆ6SAR? MOIU?!" «nai laiiai miw B&’ SIG&A V/öGA £ ÁiLVEfcAN Mývatnssveit, 12. júní VIÐ messu í Reykjahlíðarkirkju á hvítasunnudag las sóknarprest- urinn, séra Örn Friðriksson, eftirfarandi gjafabréf: „Við undirrituð sendum hér með orgelsjóði Reykjahlíðarkirkju krónur 225 þúsund að gjöf, til minningar um foreldra okkar, hjónin frá Vogum, Guðfinnu Stefánsdóttur f. 5.11.1890, d. 8.1.1977 og Jónas Pétur Hall- grímsson f. 1857, d. 5.12.1945. Með innilegri ósk um að þetta framlag megi verða til þess að efla það fagra hlutverk sem sjóðnum var ætlað, og að ætíð megi óma fagrir hljómar í þessu guðshúsi guði til dýrðar í blíðu og stríðu. Ólöf Valgerður Jónasdóttir, Jón Jónas- son, Stefán Jónasson, Sigurgeir Jónasson, Þorlákur Jónasson, Guðfinna Friðrika Jónasdóttir, Kristín Jónasdóttir, Hallgrímur Jónasson, Pétur Jónasson." Séra Örn þakkaði fyrir hönd kirkjunnar þessa veglegu gjöf. — Kristján. Ljósmynda- samkeppni FÉLAG áhugaljósmyndara og Æskulýðsráð Reykjavíkur efna árlega til samkeppni um bestu mynd vetrarins meðal hópa í tómstundastarfi, en félagið hefur gefið farandbikar, sem keppt er um. 1. og 2. verðlaun hlaut sam- starfshópur úr Æfingaskóla Kennaraháskóla íslands, en 3. verðlaun fékk Gunnar Þór Gísla- son nemandi í Hlíðaskóla. t Innilegt þakklæti til allra þeirra sem auösýndu okkur samúð og vinarhug viö andlát og útför móður okkar, STEINUNNAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Höfða, Skagafirói. Guðrún Antonsdóttir, Þóra V. Antonsdóttir, Friðrik Antonsson. t Innilegar þakkir fyrir samúö og vinarhug við andlát og útför, GUÐMUNDAR HELGASONAR frá Ytri-Kárastöðum, Hamarsteigi 3, Mosfellssveit. Ingibjörg Kristjónsdóttir, Margrét S. Guömundsdóttir, Þorgeir Sæmundsson, Kristján Guðmundsson, Helga Jörundsdóttir, Davíð Þór Guðmundsson, Hrafnhildur Þorleifsdóttir, Bjarni Rúnar Guömundsson, Ásgeir P. Guömundsson, Ásthildur Jónsdóttir, Örlygur A. Guðmundsson, Nina Hrönn Guömundsdóttir, Jónína M. Pétursdóttir, Þórðveig Jósefsdóttir ' og barnabörn. óskar eftir blaðburðarfólki VESTURBÆR: □ Hjarðarhagi 44—64 □ Fornhagi □ Nesvegur frá Vega- mótum að Hæðar- enda. Uppl. i sima 35408 ^Tdv/ó/v v/a YqyíA \!L OKM'K m vy&hT \iójv MEM AQúAriáA V!?+, ÝYlWYl \\LöföY/ \INTÍ ‘tfÓY- KoC6ÍLIGTÍ 'tGr SKoTZ4 Wf/\JN/f ÓVAY Á ylÓAl VÍMMA^ J9 //-SLO i aa-zj—h

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.