Morgunblaðið - 13.06.1979, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 13.06.1979, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JUNI1979 — Strákarnir sýndu mikin dugnað í leiknum, og léku eins og ég ætlaðist til af þeim. — Ég er að sjálfsögðu mjög ánægður með úrslitin. Valsmenn eru með gott lið sem erfitt er að sigra, sagði Victor Helgason þjálfari ÍBV er lið hans hafði borið sigurorð af Val 2—0 í 1. deildinni í knattspyrnu á Laugardalsvellinum í gær- kvöldi. Já, þar kom að því að Valur tapaði leik. Liðið hafði leikið alls 37 leiki án þess að tapa í 1. deild, glæsilegt afrek. En í gærkvöidi mættu þeir ofjörlum sínum. Eyjamenn unnu sanngjarnan sigur, þeir voru betra liðið á vellinum. Börðust af miklum krafti og dugnaði frá fyrstu mínútu og uppskáru í samræmi við það. Framan af fyrri hálfleiknum voru Valsmenn öllu hættulegri. Strax á 3. mínútu leiksins fékk Albert góða sendingu frá Herði en var seinn að leggja boltann fyrir sig og klúðraði tækifærinu. Atli á átætt tækifæri á 11. mínútu, en lánið leikur ekki við hann og skotið fer framhjá. Smátt og smátt færa Vestmannaeyingar sig upp á skaftið og ná tökum á leiknum. Á 20. mínútu bjargar Sævar á marklínu Vals naumlega eftir gott skot frá Tómasi. Og þremur mínútum síðar ver Guðmundur hörkuskot Tómasar sem var mjög ógnandi í framlínu ÍBV. Tvö mörk í fyrri hálfleik Á 30. mínútu leiksins kemur svo fyrra mark ÍBV. Vilhjálmur Kjartansson gefur boltann illa frá sér og Ómar Jóhannsson kemst inn í sendinguna og rennir inn á Tómas Pálsson sem er á auðum sjó óvaldaður. Tómas gaf sér góðan tíma, lagði boltann vel fyrir sig og skoraði svo með góðu skoti í markhornið fjær. Margir vildu meina að Tómas hefði verið rangstæður. Ómögu- legt var að dæma um það úr blaðamannastúkunni, en eftir leikinn ræddi undirritaður við Óla Olsen línuvörð, og sagði hann það ekkert hafa farið milli mála að Dýri Guðmundsson miðvörður Vals hefði verið fyrir innan, og hefði vantað góðan metra upp á að Tómas væri rangstæður. Valsmenn hresstust við að fá á sig mark og sóttu stíft. Atli gefur góða sendingu á Guðmund sem er óheppinn með skot sitt úr góðu færi því þaö fór hátt yfir. Skömmu síðar ver Ársæll glæsilega þrumu- skot Alberts. Á 44. mínútu fyrri hálfleiksins skorar ÍBV sitt annað mark. Tómas Pálsson átti allan heiður- inn af því. Brunaði hann upp kantinn með varnarleikmann á hælunum, en tókst að snúa hann f r‘"li ? rr ; * ' I -SJÍSÖP?. l=—-Trr“ i ..rrr fj • Valsmenn sækja fast að marki ÍBV, en án árangurs. Valsmenn töpuðu þarna sínum háa herrans tíð. ; ■„ ^ - fyrsta deildarleik f Ljósm. Kristinn. Ovæntur sigur IBV Loks tapaði Valur leik í 1. deild höfðu leikió 37 leiki án taps af sér á móts við markteigshornið og senda góðan bolta fyrir. Gústaf Baldvinsson fylgdi vel á eftir og skoraði örugglega af stuttu færi. Var þetta vel gert hjá Tómasi, sýndi hann harðfylgi og gafst ekki upp. Valur — ÍBV 0:2 Valsmönnun’ tókst ekki að rétta úr kútnum Á 52 mínútu leiksins voru Vest- mannaeyingar nær því búnir að bæta þriðja marki sínu við. Ómar Jóhannsson skaut þrumuskoti af um 25 metra færi sem skall í einum varnarmanni Vals og þaðan í þverslá og yfir. Valsmenn gerðu nú allt hvað þeir gátu til að jafna leikinn en allt kom fyrir ekki. Vörn ÍBV var traust fyrir og gaf framlínumönn- um Vals aldrei frið. Valsmenn áttu nokkur góð færi á að skora, en þetta var ekki þeirra dagur. Eitt besta færi þeira var er Ingi Björn skallaði af um eins metra færi eftir fyrirgjöf, en Ársæll bjargaði vel. Þá átti Atli gott skot á 42. mínútu rétt yfir þverslá. Liðin Liðsmenn ÍBV komu svo sann- arlega á óvart í leiknum. Þeir léku allan tímann vel. Notuðu vallar- breiddina til fullnustu og sköpuðu sér góð tækifæri með fyrirgjöfum, börðust af dugnaði og voru yfir- leitt fljótari á boltann. Tómas Pálsson var besti maður liðsins. Skapaði hann ávallt hættu með hraða sínum g útsjónarsemi er hann fékk boltann. Þá var vörnin föst fyrir. Friðfinnur er ávallt drjúgur og Óskar og Örn eru jaxlar sem gefa ekki þumlúng eftir nema síður sé. Þá greip Ársæll markvörður vel inn í leik- inn og varði oft vel. Valsmenn léku nú ekki eins vel og oftast áður. Sigur kemur ekki á silfurfati, það verður að hafa fyrir honum. Að þessu sinni var miðjan gefin eftir og framlínumennirnir náðu illa saman. Atli var yfir- burðamaður í liðinu og aðaldrif- fjöðrin. Þær voru ófáar sóknirnar sem hann byrjaði. Þá voru Grím- ur, Dýri og Sævar seigir í vörninni að venju. En aðrir leikmenn risu varla upp úr meðalmennskunni. í stuttu máli: íslandsmótið 1. deild. Laugardals- völlur 12. júní. Valur — ÍBV 0—2 (0-2) , Mörk IBV: Tómas Pálsson á 30. mínútu og Gústaf Baldvinsson á 44. mínútu. Áminning: Einar Ingólfsson ÍBV gult spjald. Áhorfendur 942. Dómari Þorvarður Þorbjörnsson. - Þr. Gefa strákunum ekkert eftir! • Sigurlína (t.v.) og Halldóra (t.h.) • Það hefur færst f aukana aö kvenfólk láti sér ekki nægja að hafa gaman af að horfa á knattspyrnu, heldur taki upp á þvi að æfa hana og leika ekki síður en karlarnir. Enda er nú til sérstök kvennadeild. Það eru þó ekki nema örfá kvennalið á öllu landinu og hvað eiga stúlkur að gera sem hafa ekki aðgang að kvennaliði, en þrá að ieika knattspyrnu'/ Þetta hafa tvær ungar stúlkur í Bolungarvík leyst á mjög sérstæð- an hátt. Þær Sigurlína Pétursd- óttir (t.v.) og Halldóra Gylfadóttir (t.h.) leika einfaldlega með stráka- liði Bolungarvíkur. Þær eru í 5. flokki og gefa strákunum ekkert eftir nema síður sé. í fyrra urðu þær Vestfjarðarmeistarar með Bolungarvík og þær munu að öllum líkindum leika flesta leiki Islandsmótsins með liðinu. Nýlega vann Bolungarvíkurliðið góðan sigur á jafnöldrum sínum frá HSÞ, 4—0. Haukur nokkur Vagnsson skoraði þrennu fyrir Bolungarvík, en Halldóra Gylfa- dóttir skoraði fjórða markið. Er óhætt að fullyrða, að þetta uppá- tæki stúlknanna á sér ekki mörg fordæmi. HSÞ var létt bráð ÞÓR SIGRAÐI HSÞ í bikar- keppni KSÍ á Akureyri í gær- kvöldi, með 4 mörkum gegn 2, staðan í hálfleik var 3—0 fyrir Þór. Þór hafði umtalsvérða yfir- burði í leiknum, en gestir þeirra skoruðu úr einu færunum sem þeim buðust. Jón Lárusson (15, og 27. mín.) og Hafþór Helgason (20. og 82. mín.) skoruðu mörk Þórs. Jónas Hallgrfmsson komst tvívegis inn fyrir vörn Þórs og nýtti sér það vel, skoraði bæði mörk HSÞ. Allmargir leiki verða í keppni þessari víða ui land í kvöld, en þeir eru: Skallagrímur — ÍBÍ í Borgarnes Ármann — Víðir í Reykjavík UBK — Stjarnan í Kópavogi Hekla — Grótta á Hellu Leiknir — Selfoss á Fellavelli Magni — Svarfdælir á Grenivík Reynir — Völsungur á Árskóg strönd KS — Árroðinn i Siglufirði Einherji — Austri á Vopnafirði Súlan — Þróttur á Stöðvarfirði. Víkingarnir að stinga af VÍKINGARNIR hans Tony KnappOafa nú náð þriggja stiga forskoti i norsku deildarkeppninni eftir siórsigur gegn Start á útivelli í gærkvöldi. Víkingur hefur 15 stig og er enn ósigraður. Bryne er á næstu grösum með 12 stig. Úrslit leikja í norsku deildarkeppninni í gærkvöldi urðu þessi. Bryne — Lilleström 3—0 Ilamkam — Mjöndalen 6 — 1 Start — Viking 0—3 Brann — Valerengen 0—1 Rosenborg — Moss i—3 Skeid — Bodö Glint 2—0 'Æ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.