Morgunblaðið - 13.06.1979, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1979
25
fclk í
fréttum
Gerist
nú aldur-
hniginn.
+ Hinn mikli grínisti og kvik-
myndaleikari Bob Hope gerist
nú aldurhniginn. — Hann ku þó
fara létt með það, en fyrir
skömmu átti hann 76 ára af-
mæli. — A afmælinu var afmæl-
isterta borin fram með einu
kerti (einu ári umfram 75) er
Bob kom í bækistöðvar sjón-
varpsstöðvarinnar NBC í New
York. Blés leikarinn á logandi
kertið eins og vera ber. Með
honum á myndinni er dóttir
hans Linda en maðurinn sem er
með þeim er forstjóri
NBC-sjónvarpsins, Fred Silver-
man.
,JBreyttur bær”
— ljósmyndasýning í Hafnarfirði
BYGGÐAVERND, samtök fólks
um byggðavernd í Hafnarfirði
gengst um þessar mundir fyrir
sýningu á gömlum myndum úr
Hafnarfirði í húsi Bjarna ridd-
ara Sívertsen. Þetta er saman-
burðarsýning á húsum úr bæn-
um þar sem safnað er saman
gömlum myndum af húsum og
þær síðan bornar saman við
nýjar.
Aðaltilgangur félagsins er að
vekja athygli á húsum og húsa-
verndun auk þess sem það er að
reyna að opna hús Bjarna meira
fyrir almenningi en verið hefur.
Hús þetta var byggt, að talið er,
upp úr 1800, af Bjarna sem var
með verslun og útgerð í Hafnar-
firði og hinn mesti fram-
kvæmdamaður. Húsið var síðan
endurbyggt 1974 og notað sem
byggðasafn, en byggðasafns-
vörður er Gísli Sigurðsson.
Um 130—150 myndir eru á
sýningunni og góð aðsókn hefur
verið að henni síðan opnað var,
þann annan í Hvítasunnu. Elstu
myndirnar eru frá því um 1890.
Sýnin'gin er opin daglega frá kl.
20—23.30 en um helgar kl.
14.00—23.30, og stendur til 17.
júní.
Ljósm. Emilía.
Forsvarsmenn félagsins Byggðaverndar, þau Páll Bjarnason og
Edda Óskarsdóttir. Þarna sjást nokkrar þeirra mynda sem eru á
sýningunni, auk þess sem húsráðandi, Bjarni riddari Sívertssen,
horfir með velþóknun yfir híbýli sín.
Á kvikmyndahátíð
+ Þessir náungar, reyndar eru báðir mjög frægir
kvikmyndaleikarar, eru hér staddir á hinni árlegu
kvikmyndahátíð í franska Miðjarðarhafsstrandar-
bænum Cannes. — Til hægri er ameríski leikarinn
Jerry Lewis, sem kjörinn var bezti kvikmynda-
leikarinn. Með honum er Þjóðverjinn Schlondorff,
sem hlaut „Gullpálmann" fyrir mynd sína „the Tin
Drum“ (pjáturtrumban — lausl. Þýtt).
VIÐ ÁRNAGARÐ
+ Þessi mynd var tekin á stéttinni fyrir framan Árnagarð á dögunum er hinir góðu gestir austan frá
Kína voru hér í heimsókn. — Fremstir á myndinni eru varaforsætisráðherrann kínverski, Geng Biao, og
Pétur Thorsteinsson sendiherra. — Túlkur ráðherrans er lengst til hægri. Að baki þeim Biao og Pétri eru
eiginkonur þeirra, Zhao Lanxiang og frú Oddný Thorsteinsson. — Fylgdarliðið rekur lestina.
Mandeville of London:
Nýr hártoppur með
gegnsæju grunnefni
MANDEVILLE-fyrirtækið i
London hefur hafið framleiðslu
nýs hártopps sem þeir hafa nefnt
„Alþjóðlega hártoppinn“ og telja
hann hafa bylt allri afstöðu
manna til daglegrar notkunar
hártoppa.
Um nokkurra ára skeið hefur
fyrirtækið staðið fyrir rannsókn-
um á því að finna með hvaða hætti
bæta mætti hártoppa þá sem fyrir
eru á markaðnum. Aðalmárkmið
þeirra var að finna fullkomið
grunnefni og einnig að aðlaga
grunn hártoppsins höfuðlagi ein-
stakra manna og jafnframt að
forðast fellingar og sauma og
treysta grunninn að öðru leyti, svo
hann næði æskilegri lögun.
Grunnefnið hafa þeir nú búið til
úr mjög grannri fiskilínu. Efni
þetta er sterkt og nær alveg
gegnsætt og telja þeir, að með
framleiðslu þessa efnis hafi þeir
náð því markmiði að finna full-
komið grunnefni.
Allt að 15.000 einstök hár eru
handhnýtt við grunninn. Hvert
einstakt hár er fest til að öðlast
eðlilega „lyftingu" og útlit vaxandi
hárs. Unnt er að greiða hárið,
bursta, leggja og hagræða með
fingrunum.
Um 120 vinnustundir tekur að
búa til einn hártopp en hann mun
kosta hingað kominn um 700.000
íslenskar krónur eða um helmingi
meira en sá hártoppur sem
Mandeville-fyrirtækið hefur haft
bestan á boðstólum hingað til.
Lj6f>m. Kristinn.
Hinn nýi „Alþjóðlegi hártoppur“
Mandeville of London. Eins og
sjá má á myndinni er grunnefnið
gegnsætt og hárin mynda hvirfil
rétt eins og eðlilegt hár.
Menningar- og fræðslusjóð-
ur Félags bifreiðasmiða
AÐALFUNDUR Félags bifreiða-
smiða var haldinn nýlega. Félag-
ið hefur fyrir skömmu ráðist í
kaup á orlofshúsi að Svigna-
skarði í Borgarfirði að % hlutum
á móti Sveinafélagi skipasmiða.
I tilefni 40 ára afmælis félags-
ins var í fyrra stofnaður menning-
ar- og fræðslusjóður Félags bif-
reiðasmiða, í þeim tilgangi að
styrkja bifreiðasmiði til aukinnar
menntunar í starfsgreininni inn-
anlands eða utan. í þennan sjóð
renna 10% af félagsgjaldi hvers
félagsmanns. Stjórn félagsins
veitir styrki úr sjóðnum og skal
sveinum bent á að leita til stjórn-
arinnar.
Úr stjórn félagsins gengu þeir
Gunnlaugur Einarsson og Guð-
mundur Á. Kristjánsson. Núver-
andi formaður félagsins er Ást-
valdur Andrésson.