Morgunblaðið - 19.08.1979, Síða 1

Morgunblaðið - 19.08.1979, Síða 1
Sunnudagur 18. ágúst Bls. 33 — 64 Bræðurnir Þorgils og Hermann. Þcir eru mjög samrýndir og búa tveir einir að Efri Hrísum Sérstæð söfnun bræöra á Snæfellsnesi: „Oft í dagbók litið fæ liðnu þar að sinna.“ Eiga þúsundir klukkustunda af útvarpsefni á spólum - Hafa ræktað prjár jardir, en aldrei verið við kvenmenn kenndir Dagbókar- og veðurfregna- ritun upp á dag í45 ár. /slenzkt veðurfar er breytilegt og geta líf og afkoma margra manna veriö komin undir vitneskjunni um væntanlegt veðurfar, enda blusta menn úr vissum starfsstéttum, s.s. bændur og sjómenn, reglulega á veðurlýsingar og fréttir í útvarpi. A bænum Efri Hrísum, skammt frá ólafsvík, búa tveir bræöur, Þorgils og Hermann Þorgilssynir. Þorgils, sem er á 61. aldursári hefur frá 16 ára aldri haldið dagbók og skráð nákvæmar veðuriýsingar. Þeir bræður eignuðust útvarpstæki 1942 og hefur Þorgils upp frá því, með aðstoð Hermanns, skráð niður hvern einasta veðurlýsingar- og veðurspárþátt útvarpsins og með tilkomu sjónvarpsins 1968 hafa þeir cinnig tekið niður allt efni þaðan, sem fjallar um veðurfar. Arið 1963 tóku þeir tæknina í sína þjónustu, er þeir festu kaup á segulbandstæki og upp frá því hafa þeir tekið upp á segulbönd og skráð allar veðurlýsingar og einnig fjöldamikið af öðru efni. Við heimsóttum þá bræður að Efri Hrísum og spjölluðum við eldri bróðurinn, Þorgils, um þetta áhugamál þeirra. — Hvað kom til að þú fékkst svo mikinn áhuga á veðurfrétt- um og til hvers skráir þú þœr? „Þetta er sífellt hugðarefni mitt. Ég fékk snemma áhuga á að skrifa og var þetta góð æfing í því. Ég byrjaði að skrá dagbók 16 ára að aldri, hún verður 45 ára á árinu. Þegar ég var ungur töluðu eldri menn alltaf mikið um veðrið, litu til lofts og sögðu spekingslegar setningar. Þetta vakti áhuga minn, þegar ég var barn og unglingur." Þorgils sagði að hann hefði haft mikla ánægju af að fylgjast með veðri og skrá, en þó hefði hann fagnað tilkomu segul- bandsins, því nú væri hann ekki eins bundinn við útsendingar- tímana. „Veðurfréttum er út- varpað sjö sinnum á sólarhring, kl. 8.15, 10.00, 12.45, 16.15, 19.00, 22.30 og 1.00. Ég hlusta alltaf þegar ég mögulega get og skrái þær niður, en svo er tækninni fyrir að þakka, að nú get ég rólegur lokið mínum verkum og látið taka fyrir mig upp á band og skráð síðar." — En var ekki erfitt að ná öilu niður beint? spurði ég Þorgils, minnug þess, að veður- fréttir eru heill aragrúi af tölum og staðarheitum. „Jú, það var stundum nokkuð erfitt, en ég var búinn að ná upp miklum hraða og missti lítið úr. Ég fékk líka sérstök veður- skeytablöð frá þeim á Veðurstof- unni og gekk það mun betur eftir það Ég er nú hættur að kaupa þau, þau voru orðin svo dýr.“ — En svo tókuð þið tæknina í þjónustu ykkar, hverjar voru helstu breytingarnar við það? „Við eignuðumst fyrsta segul- bandstækið 1963, nú eigum við þrjú tæki. Það getur komið sér vel, ef eitt bilar. Nýjasta tækið okkar er mjög fullkomið, með fjórum rásum. Helsta breytingin varð sú, að nú söfnum við marg- víslegu öðru efni. Veðurlýsingar- þættir og allt sem viðkemur því, t.d. viðtöl við veðurfræðinga, hafísfréttir og ileira er náttúru- lega númer eitt hjá okkur, við eigum t.d. alla annála frá Köldu árunum ‘65 — ‘70. En við söfnum einnig ýmsu öðru efni, fræðslu- þáttum ýmiss konar, bæði úr sjónvarpi og útvarpi. Við eigum allar útvarpsumræður frá Alþingi og ekki má gleyma tón- listinni. Ég safna öllum fallegum lögum, sérstaklega er ég hrifinn af harmoníku- og alþýðumúsik Sígild tónlist er ekki það sem heillar mig mest. Spólusafnið telur 450—460 spólur — En er þetta ekki kostnaðarsamt og hvað eigið þið orðið stórt spóiusafn? „Það má kannske segja að þetta kosti sitt, en ég reyki ekki og drekk ekki brennivín og fer sjaldan sem aldrei á skemmti- staði nú orðið. Ég hef aðeins einu sinni farið út fyrir lands- steinana, það var í fyrra, þá fór ég til Skotlands. Eitthvað verður maður að veita sér, og þetta er mín skemmtun og okkar bræðr- anna. Við eigum eitthvað á milli 450—460 spólur áteknar. Þær eru margar stórar, fjögurra rása og allt að 7 klst. langar. Þær eru allar skráðar og númeraðar og auðvelt að finna efnið. Tæknin er góð, þetta er allt tölusett á tækjunum og enginn vandi að sjá um skrásetninguna. Ég tek aldrei ofan í efni. Ef maður gerir það, þá þynnast böndin og endast verr. Eg hef vanið mig á að taka aðeins það upp sem ég veit að við viljum eiga.“ — Hafið þið hugleitt, að fá ykkur myndsegulbandstæki til að geta einnig safnað sjón- varpsefni með myndum? „Já, við höfum talað um það. Sjónvarpstækið okkar er svart/hvítt og við ætlum ekki að fá okkur littæki áður en það gamla er orðið ónýtt. Mynd- segulbandstækin eru enn það dýr, — ég er viss um að þau lækka í verði, þegar framleiðslan vex, þá fáum við okkur eitt slíkt. Það verður gaman að eiga veður- fréttirnar í mynd líka.“ Hef aldrei hugleitt að fá að ráða neinu um útvarpsdag- skrána — Ertu ánægður með dag- skrá útvarpsins og hvernig myndir þú hafa hana. ef þú mættir ráða hcnni í einn dag? „Það hafa nú verið gerðar einhverjar skoðanakannanir. Það finnst mér rétt að gera og svo ætti að reyna að hafa dag- skrána í samræmi við niðurstöð- urnar. Ég hef nú aldrei hugleitt að fá að ráða neinu þarna um.“ SJÁ NÆSTll SÍÐIJ ** —

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.